Morgunblaðið - 19.02.1998, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 37
Frábært í kirkju
ÞAÐ VAR fyrir nokkrum mán-
uðum að okkar ástkæra leikkona
og rithöfundur Guðrún Ásmunds-
dóttir knúði dyra á Grafarvogs-
kirkju. Bar hún upp erindi við
presta og sóknamefnd. Erindið var
að fá leyfi til að setja upp leikrit
sem hún hafði nýlokið við að skrifa.
Upp í huga minn kom strax leik-
verk hennar er fjallaði um prestinn
og skáldið Kaj Munk, en nú síðast-
liðinn janúarmánuð er liðin öld frá
því að hann fæddist og er því nú
fagnað í Danmörku um þessar
mundir. Með fáum orðum get ég
sagt, að fá leikverk hafa haft eins
„Heilagir syndarar“,
segir séra Vigfús Þór
Arnason, lýtur að líf-
inu, í gleði og sorg.
afhjúpa sig. Þar með hafa þeir lifað
þau hvörf sem eru upphaf eilífs
bata.“ Síðar í formálanum segir
hann: „Sá Guð sigrar með þraut
sinni, skapar ljós úr myrkri, líf úr
dauða. Hann er Guð upprisunnar,
nýs lífs, nýs himins, nýrrar jarðar.
Þetta er kristindómur."
„Þeir syndarar, sem þekkja
heilög áhrif hans, eru þakklátir
Guðrúnu Asmundsdóttur fyrir
skilaboð hennar í þessu leikriti,"
eru lokaorð Sigurbjöms biskups.
Það er Ijóst nú þegar fyrstu sýn-
ingamar em að baki að við getum
verið þakklát höfundinum og þeim
hópi af úrvalsleikumm sem leggur
hönd á plóginn fyrir að ráðast í
þetta verkefni. I fyrstu við nokkuð
erfiðar aðstæður, þar sem leikarar
þurftu að klæðast útigöllum til að
halda á sér hita. Nú er á leiksýn-
ingunni bæði til staðar innri og ytri
hiti, sem leikstjórinn efnilegi, sem
án efa á eftir að gera garðinn fræg-
an, Magnús Geir Þórðarson, beisl-
ar á eftirminnilegan hátt. Þó að
leikritið feli í sér alvarleika lífsins
er það aldrei dimmt og dapurlegt,
heldur bregður þar oft fyrir kímni
af bestu gerð. Það er ijóst að mæla
má með sýningunni, þó að hún,
eins og öll okkar mannanna verk,
sé ekki gallalaus.
Fjölmargir hafa komið að orði
við okkur í Grafarvogskirkju og
borið lof á verkið, innihald þess og
framsetningu í leikrænum búningi.
Hverfisnefnd Grafarvogs orðaði
það með þessum orðum til leik-
hópsins: „Hverfisnefnd Grafarvogs
telur fmmsýningu verksins
Heilagir syndarar í Grafarvogs-
kirkju mjög ánægjulegan og ein-
stakan menningarviðburð sem mun
styrkja ímynd hverfisins."
Undir þau orð tökum við hér í
Grafarvogi, um leið og við bjóðum
einnig alla þá, sem eiga heima
handan við hina „Gullnu brú“, inni-
lega velkomna í leikhús sem talar
til okkar og snertir innstu strengi
mannssálarinnar. Velkomna að sjá
sýningu þar sem fjallað er um
manninn sjálfan, baráttu hans og
drauma. Manninn sem er, eins og
Lúter sjálfur orðaði það ávallt,
„simul justus et peccator", „ávallt
réttlættur en um leið syndari“.
Leikrit sem fjallar um manneskj-
una, sem hefur í raun um tvennt að
velja í lífinu, eins og dr. Sigurbjöm
Einarsson biskup orðar það í leik-
skrá: ,Á-ð flýja frá Guði eða flýja til
hans.“
Höfundur er sóknarprestur í Graf-
arvogskirkju.
mikil áhrif á mig og leikrit Guðrún-
ar um hið ástsæla skáld og prest.
Ofáir lærðir og leikir eru á sömu
skoðun.
Eftir að haft hlýtt á flutning
Guðrúnar sjálfrar á verkinu
Heilagir syndarar voru prestar og
sóknarnefnd Grafarvogskirkju í
engum vafa um að það væri spenn-
andi verkefni fyrir kirkjuna að
skapa aðstöðu fyrir flutning á
verkinu. Höfundurinn lagði mikla
áherzlu á að spennandi væri að
flytja leikverkið í fokheldum hluta
kirkjunnar. Slíkt umhverfi hefði já-
kvæð áhrif á verkið. Því umhverfi
lýsir leiklistargagnrýnandi DV,
Auður Eydal, í fagmannlegri og
vandaðri umfjöllun sinni um leik-
ritið. Hún sagði: „Umhverfið er
óvenjulegt. Hálfbyggt guðshús þar
sem gráir steinveggir og naktir
innviðir blasa við. Ljós og myrkur
kallast á. Fjöldi logandi kerta brýt-
ur birtunni leið inn í skuggana og
fljótandi blúnduefni mýkir hvassar
línur steinveggjanna. Utfærsla um-
hverfisins kallast á við hverja línu í
Heilögum syndurum.“
Verkið sjálft lýtur að lífinu, í
gleði og sorg. I leikskrá fjallar Sig-
urbjöm Einarsson biskup um inni-
hald þess. Þar segir m.a.: „Það eitt
á maður sem hann þiggur. Það eitt
þiggur hver og einn sem hann veit
sig hafa þörf fyrir. Það minnir
Jesús á þegar hann segir: Ekki
þurfa heilbrigðir læknis við, heldur
þeir sem sjúkir em. Eg er ekki
kominn til að kalla á réttláta, held-
ur syndara. Nýja testamentið kall-
ar þá heilaga sem hafa skynjað
sjálfa sig í Ijósi þessara orða og
leyft Kristi að gegnumlýsa sig og
Blað allra landsmanna!
- kjarni málvins!
( \
BIODROGA
J urtasnyrtivö rur