Morgunblaðið - 19.02.1998, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Misskilningur
félagsmálastj órans
VEGNA bókhalds-
legra loddarabragða
R-listans varðandi
leiguíbúðir borgarinn-
ar ritar félagsmála-
stjóri borgarinnar
mikla grein hér í
Morgunblaðið 13. jan-
úar sl. Oánægjan með
félagsbústaðarugl R-
listans á bara að vera
misskilningur.
Félags-
bústaðir hf.
Ekki er misskiln-
ingur að R-listinn lof-
aði í stefnuyfírlýsingu
að vinna gegn hlutafé-
lagsvæðingu opinberra stofnana.
Ekki er það misskilið að mikill
vafi leikur á um lögmæti þess fé-
lags. Ekki er misskilningur að eitt
af markmiðum með stofnun þessa
hlutafélags er að ýta út úr leiguí-
búðum borgarinnar þeim sem
ekki „eru verðugir". Það er held-
^ur ekki misskilningur að Félags-
bústaðir hf. taka að sér verkefni
sem áður var unnið af Félags-
málastofnun borgarinnar. Vænt-
anlega er það ekki misskilningur
að Félagsmálastofnun réði vel við
þetta verkefni, eða hvað? Var ekki
viðhaldi eignanna markvisst
stjórnað? Eiga lesendur greinar
félagsmálastjórans að trúa því að
innan Félagsmálastofnunar hafi
ekki verið hægt að gera áætlanir
um markvisst viðhald eigna til
*Rangs tíma? Félagsmálastjórinn
talar um skyldu sveitarfélags um
að útvega efnalitlu fólki félagslegt
húsnæði. Hvernig rímar það við
yfirlýsingu borgarstjórans frá
janúar á síðasta ári að ekki sé
hægt að fjölga leiguíbúðum borg-
arinnar?
Upphæð leigu -
húsaleigubætur
Félagsmálastjórinn fullyrðir að
leiga borgaríbúðanna hafi hingað
til verið niðurgi-eidd. Þessari full-
yrðingu verður Lára Björnsdóttir
að finna stað og gefa upp hver
niðurgreiðslan var. Þetta er afar
. brýnt, enda grundvöllur þess að
*Félagsbústaðir taki „svokallaða
raunleigu" fyrir íbúðirnar. Vegna
þess að Lára lýsir því yfir í grein
sinni að ómarkvisst hafi verið
unnið að viðhaldi leiguíbúða borg-
arinnar, þá má ætla
að með markvissu við-
haldi og áætlunum til
langs tíma megi
lækka viðhaldskostn-
aðinn.
Upphæð leigu hef-
ur hingað til verið
sögð sú hin sama á
fermetra og Húsnæð-
isnefnd Reykjavlkur
heimilar þegar svo-
nefndir verkamanna-
bústaðir eru leigðir
út. Ekki ætla ég
þeirri ágætu nefnd að
hafa ætlað eigendum
verkamannabústaða
að fá minna í leigu
fyrir íbúðir sínar en a.m.k. sem
svarar raunverulegum kostnaði
vegna íbúðanna.
Húsaleigubæturnar sem Lára
nefnir svífa mjög í lausu lofti, enda
gerir Lára ráð fýrir því að þær
muni ekki duga öllum en segir sem
svo, það er auðvitað allt í lagi, þeir
sem raunverulega þurfa meira fé
til að greiða raunleigu R-listans
koma bara til mín og fá mismun-
inn. Ja svei. Ein af stefnuyfirlýs-
ingum R-listans er undir yfir-
skriftinni „Virðing á öllum ævi-
skeiðum“.
„Það er markmið Reykjavíkur-
listans að stuðla að auknum jöfn-
uði í lífskjörum borgarbúa þannig
að ytri aðstæður komi ekki í veg
lyrir að þeir geti lifað með reisn.“
Þegar leigjendur borgarinnar
verða að leita til Láru Bjömsdótt-
ur um styrk til að greiða „raun-
leigu“ R-listans þá fýkur reisn og
sjálfsvirðing brott.
Barbarismi
frumskógarins
Eins og margoft hefur komið
fram hjá talsmönnum R-listans er
hugmyndin með Félagsbústöðum
hf. sú m.a. að ýta út þeim sem í
borgaríbúðum búa og em „ekki
verðugir“. Nú á svo að heita að R-
lista liðið komi fram undir merkj-
um jafnaðar og félagshyggju (þótt
vissulega hafi kvennalistinn ekki
gert það). Því eru stjórnarmenn
Félagsbústaða flestir með þann
stimpil utan auðvitað Sveinn
Andri, sem er maður ójafnaðar og
einstaklingshyggju, sem hann
sannaði reyndar þegar honum
tókst að gera allt vitlaust hjá SVR
Félagsmálastj óri
Reykjavíkur skrifaði
grein í Morgunblaðið
fyrir skömmu. Kristinn
Snæland gerir þá grein
að umtalsefni.
þegar því fyrirtæki var breytt í
hlutafélag. Stjórnarformaður Fé-
lagsbústaða hf. hefur kallað húsa-
leigumarkaðinn í Reykjavík frum-
skóg og barbarisma. Hann tekur
samt að sér það hlutverk að
þrýsta fólki út úr borgaríbúðum,
sem eru leigðar á skikkanlegu
verði, út í frumskóg og bar-
barisma. Lýsingar formannsins á
húsnæðismarkaðnum eru vissu-
lega réttar, en hvernig getur
sannur jafnaðar- og félagshyggju-
maður tekið að sér þetta óhugnan-
lega verk?
Hlutafélög
borgarinnar
Það var vissulega vel til fundið
og þó bitur hæðni hjá D-listanum
að setja Svein Andra í stjórn
hlutafélagsins Félagsbústaðir.
Sennilega hefur ekkert eitt valdið
sjálfstæðismönnum jafn miklu
tjóni í síðustu borgarstjórnarkosn-
ingum og hlutafélagsvæðing
strætisvagnanna. Þar var Sveinn
Andri í fararbroddi. Undir liðnum
„ÁbjTgð í fjármálum og fram-
kvæmdum" í stefnuyfirlýsingu R-
listans segir í síðustu málsgrein
þess plaggs: „Með því að stöðva
einkavæðingu þjónustufyrirtækja
borgarinnar og færa rekstur SVR
í fyrra horf.“
R-listinn breytti vissulega SVR
í borgarstofnun en þar þraut
kraftinn. R-listinn seldi Pípugerð
borgarinnar, hann breytti Grjót-
námi og malbikun í hlutafélag. R-
listinn stofnar hlutafélag um
leiguíbúðir borgarinnar og er að
stofna hlutafélag um rekstur ann-
arra fasteigna borgarinnar.
Sveinn Andri var sumsé alls
ekki svo slæmur og af var látið.
Honum hlýtur að vera vel
skemmt.
Höfundur er leigubílstjóri.
Kristinn
Snæland
Röskva - ein
fyrir alla
ROSKVA varð 10
ára 12. febrúar síðast-
liðinn og því rétt að
slíta bamsskónum í
háskólasamféjaginu.
Þrátt fyrir ungan ald-
ur hefur Röskvu tekist
að sýna þann kraft
sem í henni býr.
Framkvæmdagleði
Röskva átti frum-
kvæðið að stofnun Ný-
sköpunarsjóðs náms-
manna og aðstoðar-
mannasjóðs. Röskva
var drifkrafturinn í
stofnun Hollvinasam-
taka Háskóla Islands. Röskva
beindi athygli þjóðarinnar að mál-
efnum Þjóðarbókhlöðunnar og
safnaði tæplega 30 milljónum til að
bæta bókakost safnsins. Skýr
stefna og kraftmikil barátta
Röskvu hefur skilað bættum Lána-
sjóðslögum og nú hefur barátta
Röskvu og háskólamanna iyrir
auknum fjárveitingum til Háskól-
ans skilað 838 milljónum til Há-
skólans.
Röskva vill öflugan
þjóðskóla
Röskva vill auka kynningar-
starf Háskólans því aðeins þannig
er hægt að auka skilning stjórn-
valda á mikilvægi skólans. Þekk-
ing stjórnvalda, og í raun þjóðar-
innar allrar, á starfsemi skólans
er forsenda aukinna fjárframlaga,
hvort sem er frá ríki eða atvinnu-
lífi.
Til lausnar fjárhagsvanda Há-
skóla íslands hefur menntamála-
ráðherra, Björn Bjarnason, látið
uppi að vert sé að ræða upptöku
skólagjalda. Röskva hafnar skóla-
gjöldum og mun berjast gegn
þeim af krafti. Röskva vill öflugan
skóla sem allir stúdentar eiga
gi’eiðan aðgang að óháð fjárhag og
búsetu.
Röskva vill úrbætur í kennslu-
og prófamálum
Þrátt fyrir niðurskurð á fjár-
veitingum til Háskóla Islands er
hann góður háskóli. Alltaf má þó
gera betur. Til að bæta kennslu
við skólann vill Röskva að
frammistaða við kennslu og ein-
kunnaskil verði tekin til álita við
framgang og stöðu-
veitingar kennara.
Röskva vill einnig
nýjar, bættar og skil-
virkari kennslukann-
anir sem taka mið af
sérstöðu hverrar
deildar.
Meðal þess sem
Röskva vill að verði
gert í prófamálum er
að tekin verði upp
sjúkrapróf í öllum
deildum, tekið verði
upp prófnúmerakerfi
og kennurum verði
gert skylt að mæta í
próf.
Röskva vill fleiri tölvur
í Háskóla íslands eru um 60
stúdentar um hverja tölvu. Stjórn-
völd hafa ekki fengist til að viður-
kenna þörfina á tölvum í Háskóla
Islands. Stjórnvöld hafa í raun
ekki látið krónu til tölvumála við
Háskólann. Nú ætlar Röskva að
efna til söfnunarátaks í tölvumál-
um. Markmiðið er annarsvegar að
vekja athygli á ástandinu í tölvu-
málum við skólann og hins vegar
að safna fé til að kaupa tölvur.
Markið er sett hátt og vonandi
tekst að safna um 10 milljónum
króna til tölvumála í Háskóla ís-
lands.
Það skiptir máli, segir
Finnur Beck, hver fer
með meirihluta í
Stúdentaráði.
Taktu afstöðu - það skiptir máli
Það skiptir máli hver fer með
meirihluta í Stúdentaráði. Sam-
takamáttur stúdenta hefur á und-
anfömum árum skilað miklum ár-
angri. Röskva vill halda áfram
uppbyggingarstarfi síðustu ára og
leitar því eftir stuðningi þínum í
kosningunum. Kynntu þér kosn-
ingamálin sem ítarlega er sagt frá
í blöðum fylkinganna og taktu á
þeim grundvelli ábyrga og ígrund-
aða afstöðu.
Höfundur skipar 1. sæti á lista
Röskvu tii Stúdentardðs.
Finnur Beck
Taktu afstöðu!
Magnús Þór Guðlaug María
Gylfason Júlíusdóttir
í DAG ganga stúd-
entar við Háskóla ís-
lands að kjörborði og
velja sér fulltrúa til að
gæta hagsmuna sinna
næstkomandi ár. Valið
stendur á milli þriggja
fylkinga: Haka,
Röskvu samtaka fé-
lagshyggjufólks og
Vöku félags lýðræðisj
sinnaðra stúdenta. í
dag velja stúdentar
hvaða fylkingu þeir
treysta til að berjast
fyrir hagsmunum sín-
um næstkomandi ár.
Það er því mjög mikil-
vægt að stúdentar taki
afstöðu og nýti kosn-
inagrétt sinn.
Minnkandi kjörsókn
I fyrra kaus vel innan við helm-
ingur stúdenta. Þetta þýðir að nú-
verandi meirihluti Stúdentaráðs
hefur atkvæði um það bil 1600
manna á bak við sig, af 5700 stúd-
entum við Háskóla íslands. Kjör-
sókn í kosningum til Stúdenta- og
Háskólaráðs hefur hrapað úr 59% í
47% á síðastliðnum sjö árum. Það er
einmitt sá tími sem Röskva hefur
verið við völd í Stúdentaráði. Þetta
áhugaleysi stúdenta á hagsmuna-
málum hlýtur að vekja upp þá
spurningu hvort Stúdentaráð hafi
fjarlægst stúdenta.
Taktu afstöðu
Það er sorglegt hversu margir
stúdentar telja þessi mál ekki koma
sér við og nýta þar af leiðandi ekki
atkvæðisrétt sinn. Hlutverk Stúd-
Þetta áhugaleysi stúd-
enta á hagsmunamál-
um, segja Magnús Þór
Gylfason og Guðlaug
María Júlíusdóttir,
hlýtur að vekja upp þá
spurningu hvort Stúd-
entaráð hafí fjarlægst
stúdenta.
entaráðs Háskóla Islands er að sjá
um hagsmunabaráttu stúdenta og
vera sameiginlegur málsvari þeirra
innan skólans sem utan. Þessi mál
snerta því alla stúdenta við skólann.
Kosið er til ráðsins á hverju ári. All-
ir skráðir stúdentar við Háskólann
hafa kosningarétt og kjörgengi og
hafa þannig áhrif á hvernig ráðinu
er stjómað. Vaka leggur áherslu á
að stúdentar taki afstöðu og sýni
þar með í verki að menntun skiptir
þá máli.
X - Vaka
Vaka hefur í þessari kosninga-
baráttu opnað umræðuna um fjár-
hagsvanda Háskólans og varpað
ljósi á það, hversu slæmt ástandið
er í raun og veru. Vaka hefur bent á
nýjar leiðir til að afla Háskólanum
fjár. Við viljum leita út í atvinnulífið
og leyfa því að fjárfesta í skólanum.
Síðastliðin 7 ár hefur Röskva, sam-
tök félagshyggjufólks innan Há-
skólans, haft meirihluta í Stúdenta-
ráði. Samtökin hafa lítt horft til
annarra leiða við lausn vandans en
að gráta í pilsfaldinum á ríkisstjórn-
inni. Við þurfum nýjar aðferðir og
nýtt fólk til að rífa Háskólann upp
úr þeirri Iognmollu sem hann er
kominn í. Þess vegna, kæri stúdent,
átt þú að ganga að kjörborðinu í
dag og kjósa Vöku. Settu X-ið þitt
við listabókstafinn A.
Höfundar eru Magnús Þór Gylfason
og Guðlaug María Júlíusdóttir, sem
skipa 1. og 5. sæti á lista Vöku til
Stúdentráðs.