Morgunblaðið - 09.04.1998, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mildu
UPP með háfinn, það þarf hvorki maðk né flugu á þessa stórlaxa, maður bara húkkar þá, góði...
afsláttur!
Akureyri
Nethyl
Ccislagötu 7 * Akureyri ♦ Nethyl 2 • Reykjavík
NÝHERJI
Nýherjabúðin • Skaftahlíð zt, • Reykjavík
X> í 5 .!
'z'irp''-
9 li. 'U 1
Suðurlandsbraut 6 * Reykjavík
Pósthússtraeti n * Reykjavík
e
VAKA - HELGAFELL
Forlagsverslun
Síðumúla 6 * Reykjavík
Háaleitisbraut 58 * Álfabakka 12 * Crímsbæ v/Bústaðaveg • Reykjavík Faxafeni 5 * Reykjavík
Læknaháskóli
í Varsjá
Auglýst
eftir
nemendum
LÆKNISFRÆÐIHÁSKÓLINN í
Varsjá í Póllandi auglýsti eftir stúd-
entum í sex ára M.D.-nárn í Morg-
unblaðinu sl. sunnudag. Einar Stef-
ánsson, deildarforseti í læknadeild,
segist ekki hafa séð slíkar auglýs-
ingar fyrr, en ljóst sé að háskólar
víða um heim bjóði upp á menntun á
alþjóðavettvangi og þar á meðal
læknaháskólar.
Einar kvaðst lítið geta tjáð sig
um þennan tiltekna skóla. Hann
hefði ekki upplýsingar um hvort
hann væri faglega viðurkenndur.
„Háskólamir í Mið-Evrópu era
náttúrulega fornfrægir og standa á
gömlum merg. En hvar þeir standa
í dag er mér ekld kunnugt um,“
sagði Einar.
Hann segir að allar Austur-Evr-
ópuþjóðirnar hafi liðið undir komm-
únismanum í fiestum greinum vís-
inda, ekki síst í læknisfræði. All-
margir skólar í Austur-Evrópu geri
hins vegar út á þennan markað og
einnig skólar í Suður- og Mið-Amer-
íku.
----------
Þcssi fyrirtæki vcita öllum scm
greiða með VISA krcditkorti
rafrænan afslátt
Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt
©
FRÍÐINDAKLUBBURINN
www.fridindi.is • www.visa.is
Klæðning
bauð lægst
KLÆÐNING efh. í Garðabæ átti
lægsta tilboðið í vegaklæðingar á
Norðurlandi vestra í sumar. Bauð
Klæðning efh. 13.906.300 kr. í verk-
ið en kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar var 13.894.085 kr.
Alls bárust fjögur tilboð í verkið
og átti Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða efh. á Selfossi næstlægsta
tilboðið, sem var 14.111.600 kr.
Borgarverk efh. í Borgamesi átti
þriðja lægsta tilboðið og bauð
15.873.600 í verkið og Slitlag efh. á
Hellu átti hæsta tilboðið og bauð
16.350.160 kr. í verkið.
Vestnorræna þingmannaráðið
Reisa á Þjóð-
hildarkirkju
á Grænlandi
þing-
gera
VESTNORRÆNA
þingmannaráðið er
skipað sex þing-
mönnum frá hverju Vest-
ur-Norðurlandanna, Is-
landi, Grænlandi og
Færeyjum. Hver lands-
deild kýs sér formann sem
skiptast á um að vera for-
menn Vestnorræna ráðs-
ins. Nú er Grænlendingur
formaður en Svavar Gests-
son er fyrri varaformaður
ráðsins og formaður ís-
landsdeildarinnar.
- Hvaða hlutverki gegn-
ir Vestnorræna þing-
mannaráðið?
„Það er samstarfsvett-
vangur þingmanna í þess-
um þremur löndum, Græn-
landi, Færeyjum og ís-
landi, og við höfum verið að
reyna að styrkja þetta
mannaráð, breyta því og
það virkara en áður. Aðallega
beinist samstarf okkar að þvi
sem er sameiginlegt þ.e.a.s. nýt-
ingu náttúrunnar á norðurslóð-
um, að umhverfismálum og að því
sem við eigum sameiginlegt í
menningu og menningararfi. All-
ar ráðstefnur okkar til þessa hafa
snúist um þessi mál beint og
óbeint. Nú erum við hins vegar
aðallega að vinna að fjórum verk-
efnum um þessar mundir.“
- Hvaða verkefni eru það?
„Fyrst ber kannski að nefna að
Vestnorræna þingmannaráðið
stendur fyrir æskulýðsráðstefnu
í sumar þar sem 50 ungmenni frá
hverju landi hittast og ræða um
framtíðarsýn ungs fólks á Vest-
ur-Norðurlöndum. Þar verður
væntanlega birt niðurstaða skoð-
anakönnunar sem nú er verið að
undirbúa á vegum félagsvísinda-
stofnunar Háskóla íslands um
framtíðarsýn og gildismat átján
ára árgangsins í öllum löndunum
þremur."
Svavar segir að starfandi sé
undirbúningsnefnd sem vinnur
að þessu verkefni og fram-
kvæmdastjóri Vestnorræna ráðs-
ins frá síðustu áramótum er Páll
Brynjarsson stjómmálafræðing-
ur.
- Eruð þið ekki líka að endur-
byggja hús í Bröttuhlíð á Græn-
landi?
„Vestnorræna þingmannaráðið
samþykkti að beita sér fyrir því að
reist yrðu tvö hús í Bröttuhlíð á
Grænlandi og stendur til að opna
þau almenningi til skoðunar árið
2000.“ Svavar segir að reisa eigi í
fyrsta lagi Þjóðhildarkirkju í
Bröttuhlíð en hún er kennd við
Þjóðhildi konu Eiríks rauða.
„Þetta er örlítil landnámskirkja
sem er ekki ósvipuð ___________
þeirri sem sýnd var í
anddyri Þjóðminja-
safnsins í vetur og var
fyrsta kristna húsið í
Vesturheimi.
í öðru lagi er meiningin að reisa
hús sem er eftirlíking af bæ Ei-
ríks rauða og konu hans Þjóðhild-
ar. Þjóðveldisbærinn er svipaður
þeim þjóðveldisbæ sem er í Þjórs-
árdal. Hann er einnig líkur þeim
bæ sem verður væntanlega reist-
ur á Eiríksstöðum í Haukadal í
Dalasýslu."
Svavar bendir á að frumkvöðull
að þessu máli öllu sé Ami Johnsen
alþingismaður. „Hann er formað-
ur byggingamefndar þessa verk-
efnis en auk Vestnorræna ráðsins
geram við ráð fyrir að fjöldi fólks
komi að verkinu bæði íslenska rík-
Svavar Gestsson
► Svavar Gestsson er fæddur í
Borgarfirði árið 1944. Hann
var blaðamaður og ritstjóri á
Þjóðviljanum til ársins 1978
þegar hann var kosinn þing-
maður Reykvíkinga og varð
siðan viðskiptaráðherra.
Svavar var heilbrigðis-, trygg-
inga- og félagsmálaráðherra
frá árunum 1980-83 og
menntamálaráðherra frá árinu
1988-91.
Hann var formaður Alþýðu-
bandalagsins frá árinu
1980-1987. Svavar tók við for-
mennsku þingflokks Alþýðu-
bandalagsins og óháðra árið
1995.
_ Eiginkona hans er Guðrún
Agústsdóttir, forseti borgar-
stjórnar Reykjavíkur. Þau eiga
sex böm; þijú hvort frá fyrra
hjónabandi.
Æskulýðs-
ráðstefna
í sumar
isstjómin, grænlenska og fær-
eyska landsstjómin auk fjölda
annarra."
- Er vinna þegar hafin við
byggingu þessara tveggja húsa á
Grænlandi?
„Hönnun, skipulag og önnur
undirbúningsvinna er þegar hafin
af fullum krafti og við reiknum
fastlega með að framkvæmdimar
sjálfar verði unnar sumarið 1999.“
- A ekki Vestnorræna þing-
mannaráðið aðild að Heimskauta-
ráðinu?
„Jú, og þjóðir sem eiga land að
norðurheimskautinu munu hittast
í Síberíu í lok þessa mánaðar í bæ
sem heitir Salekhard. Þar verða
þjóðþing heimskautalanda með
fúlltrúa sína, Grænland, ísland,
Rússland, Kanada og Bandaríkin
svo og Norðurlandaráð og Vest-
norræna ráðið.“
Svavar segir að þingmennimir í
_________ Vestnorræna þing-
mannaráðinu telji að
það sé eitt aðalhlut-
verk þeirra að vera
eins og brú frá heim-
skautalandasamstarfi
yfir til Norðurlandaráðs og Evr-
ópusamstarfsins.
- Fleira framundan hjá ráðinu á
þessu ári?
„Reglulegur ársfundur ráðsins
verður í byrjun júní og að þessu
sinni verður hann haldinn í bæn-
um Illullisat á Grænlandi.
Þar ætlum við að ræða sérstak-
lega um ungu kynslóðina á Vest-
ur-Norðurlöndum og framtíð
hennar þar sem og annars stað-
ar.“
Svavar segist gera ráð fyrir að
þessi ársfundur verði mjög mynd-
arlegur.