Morgunblaðið - 09.04.1998, Page 26
24 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Páska-
eggið
skreytt í
Prag
PÁSKAHEFÐIRNAR eru mis-
munandi frá einu landi til ann-
ars og í Tékklandi og víðar í
Mið- og Austur-Evrópu er það
gömul venja að búa til mjög stór
egg í líkingu við þetta, sem hún
Jirina Petraturova, háifsjötug
kona í Prag, er að vinna að.
Páskaegg nú á dögum má rekja
aftur til miðalda þegar páska-
skatturinn var greiddur í eggj-
um. Var sogið innan úr þeim og
þau síðan skreytt og gefín böm-
um. Á 19. öld var farið að búa til
pappaöskjur fylltar sætindum
og síðan súkkulaðiegg en hér á
landi urðu þau almenn eftir
1920. Vom þau fyrst steypt í
Björnsbakaríi í Reykjavfli. Máls-
hættir á páskaeggjum em kunn-
ir allt frá því á barokktimanum
og voru þá skráðir á eggin sjálf.
Eidesgaard herðir
takið á stgórn Nyrups
JÓANNES Eides-
gaard, sem situr fyrir
færeyska jafnaðar-
menn á danska þing-
inu, herðir nú taldð á
ríkisstjóm jafnaðar-
manna. Segir hann í
viðtali við Sosialurin að
fái Færeyingar ekki
hagstæða niðurstöðu í
Færeyj abankamálinu
geti Poul Nyrup
Rasmussen forsætis-
ráðherra „allt eins boð-
að til kosninga".
Meirihluti dönsku
stjórnarinnar stendur
og fellur með Eides-
gaard og segir hann í
samtalinu við færeyska
blaðið að danska þingið verði
óstarfhæft ef Færeyingar verði
ósáttir við málalok Færeyjabanka-
málsins. Færeyska landsstjórnin
mun á næstu dögum
ganga frá stefnu á
hendur danska ríkinu,
Den Danske Bank og
Fjárfestingasjóðnum
árið 1992, vegna þess.
Líta má á ummæli
Eidesgaards sem
merki um að hann sé
jafnvel reiðubúinn að
fella stjórn Nyrups ef
viðræður um banka-
málið sigla í strand, að
því er segir í Jyllands-
Posten. Blaðið ræðir
við Jógvan Mprkpre,
félagsfræðing við há-
skólann í Þórshöfn,
sem segir ummælin
harkaleg. „Eidesgaard
teflir djarft. Þrátt fyrir reiðina sem
ríkir í garð stjórnar Nyrups, munu
þau tæplega vekja óblandna hrifn-
ingu í röðum jafnaðarmanna [í
Jóannes
Eidesgaard
Færeyjum],“ segir Morkore.
Eidesgaard er einn þeirra sem
talinn er eiga möguleika á að verða
næsti lögmaður Færeyinga í Lög-
þingskosningunum sem fram fara
30. apríl. Fari svo tekur varamaður
hans, Marita Petersen, fyri-verandi
lögmaður, sæti Eidesgaards. Segist
hún fylgja sömu hlutleysisstefnu og
hann hefur gert en Eidesgaard hef-
ur sagst eingöngu munu greiða at-
kvæði um mál í danska þinginu er
varði Færeyjar.
Aukið fylgi við sjálfstæði
Skoðanakönnun sem birt var í
Færeyjum í gær, bendir til þess að
þeir flokkar sem styðja æ háværari
kröfur um sjálfstæði Færeyja frá
Danmörku, muni auka hlut sinn
verulega í kosningunum en Sam-
bandsflokkurinn, sem er fylgjandi
óbreyttu sambandi við Dani, tapi
fylgi-
Ráðuneyti
skrá skoð-
anir blaða-
manna
Helsinki. Morgunblaðið.
MIKILL trúnaðarbrestur hefur
orðið milli fmnskra fjölmiðla og
nokkurra ráðherra vegna frétta af
því að að minnsta kosti þrjú ráðu-
neyti hafi látið skrá mat á umfjöll-
un einstakra blaðamanna um mál-
efni sem varða ráðuneytin.
Uttekt atvinnumálaráðuneytisins
á skrifum blaðamanna hefur verið
birt eftir þrýsting frá fjölmiðlum. I
henni voru nafngreindum blaða-
mönnum gefin stig eftir því hversu
jákvæðir eða neikvæðir þeir höfðu
verið gagnvart aðgerðum ráðuneyt-
isins.
Jafnaðarmaðurinn Liisa Ja-
akonsaari, ráðherra atvinnumála,
neitaði í fyrstu opinberlega að
nokkur listi væri til en varð svo að
viðurkenna tilvist hans. Þá neitaði
Jaakonsaari því hins vegar að
markmið stigagjafarinnar væri að
flokka blaðamennina.
Það hefur einnig vakið athygli að
úttektin var pöntuð hjá ráðgjafa-
fyrirtæki en ekki framkvæmd af
embættismönnum ráðuneytisins.
Ráðgjafarfyrirtækið fékk rúmlega
200.000 finnsk mörk í greiðslu fyrir
úttektina, um 2,4 milljónir ísl. kr.,
og þykir það nokkuð góð upphæð
fyrir að lesa blöðin og flokka um-
fjöllun þeirra.
Annað sem kemur gagnrýnend-
um Jaakonsaaris spánskt fyrir
sjónir er að flokkssystir hennar var
verið meðal þeirra sem fram-
kvæmdu úttektina. Ulpu Iivari,
fyrrverandi flokksritari jafnaðar-
manna, var í hópi þeirra er vann að
verkefninu.
-------♦♦♦-------
„Snorriu reyn-
ir aftur
ÁHÖFNIN á „Snorra“, eftirmynd
af víkingaskipi, ætlar að gera aðra
tilraun í sumar til að sigla í kjölfar
Leifs Eiríkssonar frá Grænlandi til
Nýfundnalands. I fyrrasumar varð
hún að gefast upp þegar stýrið
brotnaði.
Rithöfundurinn W. Hodding
Carter og félagar hans gera ráð
fyrir, að það taki þá sex til átta vik-
ur að sigla leiðina, sem er 1.900 mfl-
ur, en ævintýrið er kostað af póst-
versluninni Lands’ End í Wiscons-
in.
Er „Snorri", sem er 54 feta lang-
ur, kominn með ný og endurbætt
stýri en siglt verður yfir Davissund
til Baffinseyjar, þaðan í suðaustur
til Labradors og þaðan til L’Anse
aux Meadows á Nýfundnalandi.
immm iiidhhihiiihmiiimhi
■? <
ið alla páskana
IndfeE'
— skírdag, föstudaginn langa, páskadag
k og annan í páskum — bæði í Grillinu
og í Skrúði.
M<?a
Borðapantanir og nánari upplýsingar í
síma 552 9900.
Gleðilega páska!
/////////////////////■
'//////////S//////////J////////S/S////S//////Í
w*i£tf/ss/sffs/ff/s/j/ifi//f//s////////////ss///s/*>m