Morgunblaðið - 09.04.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 09.04.1998, Qupperneq 26
24 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reuters Páska- eggið skreytt í Prag PÁSKAHEFÐIRNAR eru mis- munandi frá einu landi til ann- ars og í Tékklandi og víðar í Mið- og Austur-Evrópu er það gömul venja að búa til mjög stór egg í líkingu við þetta, sem hún Jirina Petraturova, háifsjötug kona í Prag, er að vinna að. Páskaegg nú á dögum má rekja aftur til miðalda þegar páska- skatturinn var greiddur í eggj- um. Var sogið innan úr þeim og þau síðan skreytt og gefín böm- um. Á 19. öld var farið að búa til pappaöskjur fylltar sætindum og síðan súkkulaðiegg en hér á landi urðu þau almenn eftir 1920. Vom þau fyrst steypt í Björnsbakaríi í Reykjavfli. Máls- hættir á páskaeggjum em kunn- ir allt frá því á barokktimanum og voru þá skráðir á eggin sjálf. Eidesgaard herðir takið á stgórn Nyrups JÓANNES Eides- gaard, sem situr fyrir færeyska jafnaðar- menn á danska þing- inu, herðir nú taldð á ríkisstjóm jafnaðar- manna. Segir hann í viðtali við Sosialurin að fái Færeyingar ekki hagstæða niðurstöðu í Færeyj abankamálinu geti Poul Nyrup Rasmussen forsætis- ráðherra „allt eins boð- að til kosninga". Meirihluti dönsku stjórnarinnar stendur og fellur með Eides- gaard og segir hann í samtalinu við færeyska blaðið að danska þingið verði óstarfhæft ef Færeyingar verði ósáttir við málalok Færeyjabanka- málsins. Færeyska landsstjórnin mun á næstu dögum ganga frá stefnu á hendur danska ríkinu, Den Danske Bank og Fjárfestingasjóðnum árið 1992, vegna þess. Líta má á ummæli Eidesgaards sem merki um að hann sé jafnvel reiðubúinn að fella stjórn Nyrups ef viðræður um banka- málið sigla í strand, að því er segir í Jyllands- Posten. Blaðið ræðir við Jógvan Mprkpre, félagsfræðing við há- skólann í Þórshöfn, sem segir ummælin harkaleg. „Eidesgaard teflir djarft. Þrátt fyrir reiðina sem ríkir í garð stjórnar Nyrups, munu þau tæplega vekja óblandna hrifn- ingu í röðum jafnaðarmanna [í Jóannes Eidesgaard Færeyjum],“ segir Morkore. Eidesgaard er einn þeirra sem talinn er eiga möguleika á að verða næsti lögmaður Færeyinga í Lög- þingskosningunum sem fram fara 30. apríl. Fari svo tekur varamaður hans, Marita Petersen, fyri-verandi lögmaður, sæti Eidesgaards. Segist hún fylgja sömu hlutleysisstefnu og hann hefur gert en Eidesgaard hef- ur sagst eingöngu munu greiða at- kvæði um mál í danska þinginu er varði Færeyjar. Aukið fylgi við sjálfstæði Skoðanakönnun sem birt var í Færeyjum í gær, bendir til þess að þeir flokkar sem styðja æ háværari kröfur um sjálfstæði Færeyja frá Danmörku, muni auka hlut sinn verulega í kosningunum en Sam- bandsflokkurinn, sem er fylgjandi óbreyttu sambandi við Dani, tapi fylgi- Ráðuneyti skrá skoð- anir blaða- manna Helsinki. Morgunblaðið. MIKILL trúnaðarbrestur hefur orðið milli fmnskra fjölmiðla og nokkurra ráðherra vegna frétta af því að að minnsta kosti þrjú ráðu- neyti hafi látið skrá mat á umfjöll- un einstakra blaðamanna um mál- efni sem varða ráðuneytin. Uttekt atvinnumálaráðuneytisins á skrifum blaðamanna hefur verið birt eftir þrýsting frá fjölmiðlum. I henni voru nafngreindum blaða- mönnum gefin stig eftir því hversu jákvæðir eða neikvæðir þeir höfðu verið gagnvart aðgerðum ráðuneyt- isins. Jafnaðarmaðurinn Liisa Ja- akonsaari, ráðherra atvinnumála, neitaði í fyrstu opinberlega að nokkur listi væri til en varð svo að viðurkenna tilvist hans. Þá neitaði Jaakonsaari því hins vegar að markmið stigagjafarinnar væri að flokka blaðamennina. Það hefur einnig vakið athygli að úttektin var pöntuð hjá ráðgjafa- fyrirtæki en ekki framkvæmd af embættismönnum ráðuneytisins. Ráðgjafarfyrirtækið fékk rúmlega 200.000 finnsk mörk í greiðslu fyrir úttektina, um 2,4 milljónir ísl. kr., og þykir það nokkuð góð upphæð fyrir að lesa blöðin og flokka um- fjöllun þeirra. Annað sem kemur gagnrýnend- um Jaakonsaaris spánskt fyrir sjónir er að flokkssystir hennar var verið meðal þeirra sem fram- kvæmdu úttektina. Ulpu Iivari, fyrrverandi flokksritari jafnaðar- manna, var í hópi þeirra er vann að verkefninu. -------♦♦♦------- „Snorriu reyn- ir aftur ÁHÖFNIN á „Snorra“, eftirmynd af víkingaskipi, ætlar að gera aðra tilraun í sumar til að sigla í kjölfar Leifs Eiríkssonar frá Grænlandi til Nýfundnalands. I fyrrasumar varð hún að gefast upp þegar stýrið brotnaði. Rithöfundurinn W. Hodding Carter og félagar hans gera ráð fyrir, að það taki þá sex til átta vik- ur að sigla leiðina, sem er 1.900 mfl- ur, en ævintýrið er kostað af póst- versluninni Lands’ End í Wiscons- in. Er „Snorri", sem er 54 feta lang- ur, kominn með ný og endurbætt stýri en siglt verður yfir Davissund til Baffinseyjar, þaðan í suðaustur til Labradors og þaðan til L’Anse aux Meadows á Nýfundnalandi. immm iiidhhihiiihmiiimhi ■? < ið alla páskana IndfeE' — skírdag, föstudaginn langa, páskadag k og annan í páskum — bæði í Grillinu og í Skrúði. M<?a Borðapantanir og nánari upplýsingar í síma 552 9900. Gleðilega páska! /////////////////////■ '//////////S//////////J////////S/S////S//////Í w*i£tf/ss/sffs/ff/s/j/ifi//f//s////////////ss///s/*>m
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.