Morgunblaðið - 09.04.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 31
LISTIR
LOUISA Matthíasdóttir. Uppstilling, pastel 51X66 cm.
LOUISA Matthíasdóttir. Sjálfsmynd, pastel 49X66 cm,
Pastelmyndir
Louisu Matt-
híasdóttur
SÝNING á pastelmyndum Louisu
Matthíasdóttur verður opnuð í Hafn-
arborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, fímmtudaginn 9. apr-
fl kl. 14.
Verk Louisu eru löndum hennar
vel þekkt þótt hún hafí um margra
ára skeið búið erlendis. Margar sýn-
ingar á verkum hennar hafa verið
settar upp hér á landi áður, en þetta
mun vera í fyrsta sinn sem hér er
sett upp sýning á pastelmyndum
hennar eingöngu.
Louisa er fædd í Reykjavík árið
1917. Hún stundaði nám við Den
Tekniske Selskabs Skole í Kaup-
mannahöfn 1934-37 og listnám í
París undir handleiðslu Marcels
Gromaire 1938-39. Louisa sótti nám-
skeið við Art Students League, en
fluttist síðan yfir í skóla Hans Hof-
manns við áttunda stræti í New
York 1943-45.
Á sýningunni i Hafnarborg er
myndefni Louisu af ýmsum toga.
Uppstillingar, sjálfsmyndir og
myndir af fólki og dýrum. í tilefni
Náttúrulegir
heitir pottar
úr ilmandi sedrusviði
l
líka fyrir
þá sem
hafa ekki
jarðhita
S. 588 5848 & 552 8440
spAi www.islandia.is/igi/spa
sýningarinnar er gefín út sýningar-
skrá. Aðalsteinn Ingólfsson listfræð-
ingur fjallar þar um verk Louisu og
segir m.a.: „Gaumgæfum til að
mynda þá flóknu atburðarás sem
listakonan leysir úr læðingi í upp-
stillingum sínum. Djarfir lith', stund-
um purpurarauðir, sterkgrænir eða
bleikir, ýmist storka okkur eða
keppa um athygli okkar, auk þess
sem þeir slá stöðugt neista hver af
öðrum án þess að ríða myndunum á
slig. I gerð hvers smæsta forms eru
þessar myndir sömuleiðis lifandi og
þá ekki síst fyrir það hvemig hið of-
ur hversdagslega neitar að haga sér
fyrirsjáanlega."
Sýningin stendur til 27. aprfl og er
opin frá kl. 12-18 alla daga nema
þriðjudaga.
BMW 3 linan með ABS sem staöalbúnað
B&L Suðurlandsbraut 14, sími 575 1210
Verð 5.990 kr. stgr.
iIU kmik
Verið velkomin í nýja og stórglæsilega verslun okkar
yy^eqti
að Sætúni 8. Hjá okkur finnur þúTrábært úrval
heimilistækja sem þú getur gert hörðustu kröfur til
- á verði sem stenst alla samkeppni.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt