Morgunblaðið - 09.04.1998, Síða 50

Morgunblaðið - 09.04.1998, Síða 50
YDDA/SÍA 50 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Qpið á iaugardag kl.10-16 Armstóll TM - HUSGOGN ¥ ■ 1 1 J 'vmk HésM f 1 ' Ci i | 1 Skemmtiferð um Skotland Fjölbreytt og skemmtileg ferð um Skotland. Dvalið er í 7 nætur á Inversnaid hótelinu sem stendur við Loch Lomond, eitt frægasta stöðuvatn Skotiands. Daglegar ferðir um 8.- í 5. júlí fyrir aðeins 67.000 krónur! (Ath. Þetta er ekki Skotabrandari!) innirauo i veroi: Rug með flugvallar- skatti. Gisting með morgunverði og þríréttuðum kvöldverði. Skoðunarferðir og verslunarferðir. skoskar sveitir og borgir, farið í siglingar, verslunar- ferðir o.fl. undir leiðsögn Ólafar H. Guðmundsdóttur fararstjóra. FERÐASKRIFSTOm ÍSLANDS % ICELAND TOURIST BUREAU Sími 562 3300 Bragi Þorfinns- son efstur í áskorendaflokki SKÁK Reykjavík SKÁKÞING ÍSLANDS 4.-11. aprfl 1998 BRAGI Þorfinnsson heldur enn forystunni í áskorendaflokki á Skákþingi Islands eftir sigur á Arn- ari Gunnarssyni í sjöttu umferð. Bragi er með 5í4 vinning og hefur hálfs vinnings forskot á Hrannar Baldursson, sem er í öðru sæti. Helstu úrslit sjöttu umferðar urðu þessi: Arnar Gunnarss. - Bragi Þorfinnss. 0:1 Hrannar Baldurss. - Einar H. Jenss. 1:0 Þorvarður Ólafss. - Bjöm Þorfinnss. 1:0 Stefán Kristjánss. - Sigurbj. Bjömss. 1:0 Sævar Bjarnas. - Einar K. Einarss. 1:0 Staða efstu manna að loknum sex umferðum: 1. Bragi Þorfinnsson hVz v. 2. Hrannar Baldursson 5 v. 3. -4. Stefán Kristjánsson, Þorvarður F. Ólafsson m v. 5.-9. Sævar Bjarnason, Amar Gunnars- son, Einar Hjalti Jensson, Björn Þorfinnsson, Jón Árni Halldórsson 4 v. o.s.frv. Þrjátíu keppendur taka þátt í áskorendaflokki. í opnum flokki er staða efstu manna þessi eftir sex umferðir: 1. Sveinn þór Wilhelmsson 6 v. 2. Lárus H. Bjamason 5 v. 3. -5. Hilmar Þorsteinsson, Dagur Am- grímsson, Gústaf Smári Björnsson 4‘/2 v. o.s.frv. Keppendur í opna flokknum eru 37. Skákstjórar eru þeir Gunnar Björnsson og Ólafur Ásgrímsson. Skák í hreinu lofti Tóbaksvarnaráð og Skákskóli ís- lands bjóða 300 krökkum til þátt- töku í glæsilegu skákmóti, sem haldið verður í Hellisheimilinu, Þönglabakka 1, 18. apríl klukkan 12:45. Verðlaun í mótinu eru afar glæsi- leg, þar á meðal munu fjórir þátt- takendur vinna ferð til Disneylands í París og keppa á heimsmeistara- móti þar í nóvember. Keppt verður í sex verðlauna- flokkum: a. Drengir fæddir 1986-8 b. Stúlkur fæddar 1986-8 c. Drengir fæddir 1984-5 d. Stúlkur fæddar 1984-5 e. Drengir fæddir 1982-4 f. Stúlkur fæddar 1982-4 Sigurvegarar úr flokkum a-d fara til Disneylands í París, en fyrstu verðlaun í flokkum e og f eru farseðlar á skákmót erlendis (á leiðum Flugleiða). í aukverðlaun verða bækur frá Vöku-Helgafelli og bíómiðar frá Sambíóunum. Skráning á mótið fer fram alla virka daga klukkan 10-13 og 15-17 hjá Skákskóla Islands í síma 568-0410. Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti á siksÉitn.is. Síðasti skráningardagur er fimmtu- dagurinn 16. apríl Hannes Hlífar sigrar á fyrirtækjamóti Hellis Hannes Hlífar Stefánsson stór- meistari sigraði í úrslitum á fyrir- tækjamóti Hellis, sem lauk nýlega. Hannes hafði mikla yfírburði á mótinu og vann allar skákir sínar, 14 að tölu. Hannes tefldi fyrir Námsflokka Reykjavíkur. í 2.-3. sæti urðu þeir Davíð Kjartansson, sem tefldi fyrir Blómabúðina Fjól- una, og Stefán Kristjánsson, sem tefldi fyrir Hoffell. Þeir hlutu báðir 9Vz vinning. 1. Námsflokkar Rvk. Hannes H. Stefánss. 14 v. 2. Blómabúðin Fjólan Davíð Kjartanss. 9V2 v. 3. Hoffell Stefán Kristjánss. 9*/2 v. 4. Sætoppur Gunnar Björnss. 9 v. 5. Kaupf. Skagfirðinga Jón G. Viðarss. 8V2 v. 6. íslakk Halldór G. Einarss. 8V2 v. 7. Veitingah. Katalína Jóhann Ragnarsson 8/2 v. 8. Reynir bakari Guðjón Valgarðss. 8 v. 9. Fræðslumiðstöð Rvk. Ólafur Kjartanss. 8 v. 10. Verkfr.st. Afl Bragi Þorfinnss. 8 v. 11. Fiðlarinn Vertinn Benedikt Egilss. 8 v. Fyrirtækjakeppnin fór þannig fram að fyrst voru tefldir fjórir undanrásarriðlar og síðan komust efstu fyrirtækin í úrslitakeppnina. Sérstök verðlaun voru veitt fyrir bestan samanlagðan árangur á þremur mótum. Efstir í þeirri keppni urðu: 1. Jón Garðar Viðarsson 36V2V. 2.-3. Askell Öm Kárason og Stefán Kristjánsson 30 v. 4.-5. Guðni Stefán Pétursson og Vigfús Óðinn Vigfússon26'/2 v. 6. Jón Úlfljótsson 25 v. 7. Guðjón Heiðar Valgarðsson 23 v. 8. Valtýr Njáll Birgisson 21 v. 9. Gústaf Smári Björnsson 20!4 v. 10. Eiríkur Garðar Einarsson 19!4 v. 11. Gunnar Bjömsson 19 v. Veitt voru þrenn unglingaverð- laun og þau hlutu: Guðni Stefán Pétursson, Guðjón Heiðar Val- garðsson og Valtýr Njáll Birgisson. Keppnin var haldin í Hellisheim- ilinu, Þönglabakka 1. Opna Kaupmanna- hafnarmótið Opna Kaupmannahafnarmótið er eitt vinsælasta erlenda skákmótið meðal íslenskra skákmanna. Þetta á bæði við um okkar sterkustu meistara og eins yngri skákmenn- ina, sem eru að taka þátt í sínum fyrstu alþjóðlegu mótum. Opna Kaupmannahafnarmótið, eða „Politiken Cup“ eins og það er einnig kallað fer fram í 20. skipti í sumar. Mótið, sem er öllum opið, verður haldið 4.-15. júlí á Egmont Kollegiet í Kaupmannahöfn. Tefld- SUÐURHLÍÐAR, KÓPAVOGS. Opið hús í dag frá kl. 13 -15 BLIKAHJALLI 3-7-11, Kóp. Glæsileg raðhús á tveimur hæðum m/innb. bflskúr. Stærð ca 200 fm. Húsin verða seld í núverandi ástandi, klædd og einangruð að utan, en rúmlega fokheld að innan. Frábær staðsetning. Útsýni. Verð frá 10,9 m. Áhv. húsbréf. Byggingaraðili: K.S. verktakar Kristján verður á staðnum frá kl. 13 - 15 í dag og veitir allar nánari upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.