Morgunblaðið - 15.12.1998, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
JEPPI fauk út af veginum í Kollafirði skammt frá BM Vallá. Morgunblaðið/RAX
Thor Heyerdahl
boðið til íslands
Okumenn í
vandræðum í
hvassviðrinu
NORSKI landkönnuðurinn og
fræðimaðurinn Thor Heyerdahl
er væntanlegur til fslands 21.
desember næstkomandi ásamt
konu sinni Jacquelene og verður
sérstakui' gestur forseta íslands,
Ólafs Ragnars Grímssonar.
Hyggst hann dvelja hér í viku,
eiga viðræður við íslenska fræði-
menn og skoða sig um.
Síðustu árin hefur Thor
Heyerdahl, sem fæddur er 1914,
búið á Kanaríeyjum og vinnur nú
meðal annars að útkomu bókar
um víkinga ásamt Per
HÁTT í 1.000 börn á íslandi hafa
fæðst eftir tæknifrjóvgun og tækn-
isæðingu á vegum Tæknifrjóvgunar-
deildar Landspítalans, frá því deildin
tók til starfa árið 1991. Þetta kemur
fram í nýjasta eintaki Púlsins, frétta-
bréfi Ríkisspítala.
Deildin sinnir tæknifrjóvgunum,
tæknisæðingum og sæðisrannsókn-
um. Frá 1996 hefur verið hægt að
frysta fósturvísa og hefur það nýst
stórum hópi þeirra para sem leita
sér meðferðar á deildinni, segir í
fréttabréfinu.
Lillieström. Ráðgera þeir að
kortleggja ferðir víkinga og
norrænna manna að því er fram
kemur í frétt norska dagblaðsins
Aftenposten nýlega.
Dagskrá heimsóknar Thors
Heyerdahl í Islandsheimsókninni
er ekki að fullu frágengin en
Kornelíus Sigmundsson forseta-
ritari upplýsti Morgunblaðið um
að forseti Islands og Heyerdahl,
sem hefur áhuga á Islendinga-
sögum, Iandafundum, verslun og
siglingum víkinga, hefðu skipst á
bréfum þar að lútandi og væru
Um 40% þeirra para sem eiga um-
framfósturvísa geta nýtt sér fryst-
ingu þeirra, en ekki eru allir um-
framfósturvísar hæfir til frystingar.
í einstaka tilfellum er hægt að frysta
frjóvguð egg frá konum sem þurfa
að fara í krabbameinsmeðferð og
eins getur verið heppilegt að frysta
fósturvísa og bíða með fósturfærslu
ef vandamál koma upp í miðri glasa-
frjóvgunarmeðferð. Nú eru um 140
THOR Heyerdahl.
að móta endanlega dagskrá.
Hugsanlegt er einnig að Thor
Heyerdahl flytji fyrirlestur við
Háskóla Islands og yfír jólin
verður hann gestur á sveitabæ í
nágrenni Skálholts.
pör sem eiga frysta fósturvísa eftir
meðferð á deildinni.
Árangur af smásjárfrjóvgunum á
deildinni hefur einnig verið góður, en
þær hófust í mars 1997. Aðferðinni
er beitt ef sæðissýni inniheldur fáar
sæðisfrumur, þær hafa skertan
hreyfanleika eða ef frjóvgun hefur
verið dræm í fyrri skiptum sem
parið hefur farið í meðferð. Árangur
þeirra er alveg sambærilegur við
árangur af venjulegum glasafrjóvg-
unum og er þungunartíðni tæplega
50% á fósturfærslu.
SPÁÐ er norðanhvassviðri eða
stormi á norðanverðu landinu í dag
með snjókomu en hægara veðri
sunnanlands. Víða var mjög hvasst
um sunnanvert landið í gær og
lentu ökumenn í vandræðum.
Hvergi urðu þó alvarleg slys.
Síðdegis fór að lægja sunnanlands
en þá herti í vindinn fýrir norðan.
Einna hvassast varð á Kjalarnesi
þar sem tíu vindstig voru um tíma.
Flug lá að mestu niðri í gærdag
en seinnipartinn var flogið til Vest-
mannaeyja og tvær ferðir farnar til
Akureyrar þar sem veður var farið
að ganga niður. Aflýsa varð flugi til
Isafjarðar, Hornafjarðar, Egils-
staða og Færeyja.
Minniháttar skemmdir urðu á
þaki tveggja íbúðarhúsa í Vest-
mannaeyjum í gær þegar vindhraði
í norðaustanátt í gær, fór upp í 80
hnúta við Stórhöfða. 65 hnúta vind-
ur jafngildir 12 vindstigum. Mestur
var vindurinn um klukkan 6 að
morgni og lægði hann þegar líða fór
á daginn. Að sögn lögreglunnar
kom það sér vel að veðurofsinn
skyldi ná hámarki áður en fólk fór á
stjá, því ljóst er að vandræði hefðu
skapast ef stormurinn hefði geisað
að degi til þegar umferð er um göt-
urnar.
Jólatré við Landakirkju brotnaði
í tvennt í storminum og umferðar-
merki fauk á hliðina auk nokkurra
flaggstanga sem löskuðust er þær
létu undan vindinum. Ekki þurfti
að kalla út björgunarsveitir til að
sinna óhöppum.
Að sögn lögreglu á Akureyri varð
aldrei veruleg veðurhæð í bænum
yfir daginn en á ísafírði gekk á með
dimmum éljum og fjallvegir
lokuðust. Á Seyðisfirði var þokka;
leg færð en fjallvegir lokaðir. I
Öræfasveit var stormur fyrri hluta
dags og lentu ökumenn þar í vand-
ræðum vegna hvassviðrisins. Ófært
var orðið á Öxnadalsheiði í
gærkvöldi.
Afleit akstursskilyrði
undir Hafnarfjalli
Lögreglan I Borgarnesi að-
stoðaði ökumenn sex bifreiða, sem
fóru út af á þjóðveginum vestur af
Hafnarfjalli í gærmorgun. Einkum
var skafrenningi og afleitu skyggni
um að kenna, en í gærmorgun var
aftakaveður á þessum slóðum svo
ekki sást á milli vegastika.
Fleiri bifreiðar fóru út af á sömu
slóðum en ökumönnum þein'a tókst
að komast hjálparlaust upp á veg-
inn aftur.
Spáð er hvassviðri og stormi fyrir
norðan á miðvikudag en slyddu eða
rigningu sunnanlands. Á fimmtudag
á að ganga í norðaustanstorm eða
rok norðanlands með hvassviðri og
éljagangi sunnanlands.
Tæknifrj óvganir og tæknisæðingar í Landspítalanum
Hátt í 1.000 börn fædd
eftir tæknifrjóvganir
Um 140 pör eiga
frysta fósturvísa
KRINGMN
Gleðilega hátíð
Greiða ber í lífeyrissjóði
af desemberuppbót
GREIÐA ber iðgjöld í lífeyrissjóði
af þeirri launauppbót sem starfs-
menn fá nú í desember. Er þetta í
fyrsta skipti sem skylt er að draga
lífeyrisiðgjald af desemberuppbót-
inni vegna ákvæða í nýjum lögum
um skyldutryggingu lífeyi-isrétt-
inda og stai'fsemi lífeyrissjóða, skv.
upplýsingum sem fengust hjá VSÍ í
gær.
Skv. kjarasamningum á almenna
vinnumarkaðinum er desember-
uppbótin 26.100 kr. á þessu ári.
Starfsmenn sem voru í vinnu síð-
ustu vikuna í nóvember eða íyrstu
vikuna í desember eiga rétt á upp-
bót en aðrir þurfa að hafa unnið 12
vikur samfellt á árinu. Full uppbót
miðast við 45 unnar vikur. Starfs-
maður í hlutastarfi fær greitt hlut-
fallslega.
Allar tegundir Iauna mynda
stofn lífeyrisiðgjalds
Samkvæmt ákvæðum kjara-
samninga hefur desemberuppbót
verið greidd sjálfstætt og án
tengsla við laun. Einnig hefur orlof
verið innifalið í desemberuppbót.
Því hefur fram til þessa ekki verið
greitt í lífeyrissjóði af uppbótinni,
að sögn Hrafnhildar Stefánsdóttur,
lögfræðings hjá VSI. Hún sagði að
með nýjum iögum um lífeyrissjóði
sem tóku gildi 1. júní 1998 var
gjaldstofn lífeyrisgreiðslna lögfestr
ur og skv. 3. grein þeiira laga er nú
miðað við allar tegundir launa og
þóknana sem skattskyldar eru
samkvæmt lögum um tekjuskatt
og eignaskatt. Því skal héðan í frá
greiða í lífeyrissjóð af desember-
uppbótinni. Eftir sem áður er ekki
greitt í sjúkra- og orlofsheimilasjóð
af desemberuppbót.
Lágmarksiðgjald launþega í líf"
eyrissjóði er 4% sem dregst frá
uppbótinni að þessu sinni en fram-
lag atvinnurekandans er 6%. Ber
að greiða desemberuppbótina í
síðasta lagi í dag, 15. desember.