Morgunblaðið - 15.12.1998, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Kakan hans Toni
PANETTONE - kakan hans Toni, sem fæst m.a. í Heilsuhúsinu.
TIL er kaka á Ítalíu sem bökuð hef-
ur verið í bakaríum á Norður-Ítalíu
frá því á fimmtándu öld. Kakan er
gerð úr gerdeigi með eggjarauðum
og í það er bætt sykruðum ávöxtum
af ýmsum tegundum. Þessi fræga
kaka heitir Panettone eða kakan
hans Toni og hún fæst nú á íslandi,
m.a. í Heilsuhúsinu.
Ýmsum sögum fer af tilurð Pa-
nettone. Sagt er t.d. að sá sem
fyrstur bakaði þessa gómsætu
köku hafi verið ungur bakara-
sveinn sem var í læri hjá bakara-
meistara, Toni að nafni. Toni þessi
átti ákaflega fallega dóttur sem
lærisveinninn var ástfanginn af og
gerði hann allt til að þóknast
meistara sínum og dóttur hans.
Þeim til heiðurs hannaði hann
þessa góðu köku sem Heilsuhúsið
hefur nú til sölu í verslunum sín-
um. í boði eru fjórar mismunandi
tegundir af Panettone: Classieo,
með möndlum, með súkkulaði og
Delicato. Classieo eða hefðbundin
Panettone fæst í þremur stærðum,
1 kg, 500 g og 100 g. Kökurnar eru
í fallegum gjafaöskjum og sagðar á
góðu verði.
Hákon Már Oddsson kvikmynda-
gerðarmaður bjó fimm ár á Italíu og
starfaði þar við sjónvarpsstöð.
Hann er mikill ádáandi kökunnar
hans Toni. „Ég kynntist þessari
köku á Italíu og hef verið einlægúr
aðdáandi hennar síðan. Það er bæði
hægt að kaupa hana og baka hana
heima. Miklu fleiri kaupa hana þó
vegna þess að hún er erfið í
bakstri,“ sagði Hákon. „Til eru eins
og fyrr sagði ýmsar sagnir um til-
urð Panettone. Auk þeirrar fyi’r-
greindu er önnur sú að í Mílanó á
fjórtándu öld hafi bakarameistari
einn lent í því að allt jóladeigið eyði-
lagðist. Hann átti að vera með stóra
veislu þennan dag og til að bjarga
sér út úr þessu tók hann brauðdeig-
ið og skutlaði í það eggjum, rúsínum
og sykruðum ávöxtum og bakaði
þetta og þannig fæddist Panettone.
Þetta er sem sagt eins konar brauð
sem þó er eins konar kaka og mest
borðað á aðventunni og um jólin um
alla Italíu. Kakan er borðuð fram í
fyrstu vikuna í febrúar en þá segir
sagan frá því að fest hafi fiskbein í
hálsi á strák einum og það náðist út
með því að borða bita af Panettone.
Þessi dagur hefur því orðið að loka-
degi í neyslu á Panettone eftir hver
jól. Panettone er líka notað í stór-
veislur svo sem giftingu og stóraf-
mæli, þótt þá atburði beri upp á
annan tíma ársins.
Þessi kaka er ekki þung í maga
og ekki sæt en mér finnst hún afar
góð. Allra, allra best er að skola
henni niður með ítölsku Spumante
(freyðivíni). Það er siður að allir í
fjölskyldunni fái sína köku og á mið-
nætti á jólanótt þá opna allir sem
vakandi eru kökuna sína og borða
hana með freyðivíni. Hver og einn á
svo sína köku og borðar af henni yf-
ir jólin. Ef kakan er rétt gerð, er í
henni smjör. Gott er að setja hana á
ofn eða hita hana í ofni á 50 gráðu
hita í allt að hálftíma til þess að
smjörið linist, þá verður kakan
miklu mýkri og ljúffengari. A
gamlárskvöld þykir hún líka alveg
ómissandi, margir fagna áramótun-
um með því að fá sér bita af Pa-
nettone og freyðivín með.
Undanfarin ár hefur Panettone
ekki fengist á Islandi en áhangend-
ur kökunnar hafa látið flytja hana
inn fyrir sig. Félagsskapurinn Italía
Azun’a, sem er félag Itala á Islandi,
hefur hingað til átt í mesta brasi við
að ná í Panettone til jólanna og
verður því vel fagnað þessi jól að
breyting sé orðin þar á með því að
Heilsuhúsið hefur nú hafið innflutn-
ing á þessari frægu köku. Ég veit
reyndar til þess að annar aðili hefur
líka hafið innflutning á svona kök-
um og hafa þær kökur fengist t.d. í
Nóatúni, þar hef ég séð þær í litlum
gjafapakkningum. Panettone er
upplögð jólagjöf sem gleður á marg-
an hátt og ætti að vera kærkomin
viðbót bæði við jóla-, áramóta- og
þrettándafagnaði Islendinga.
Þess má geta að ein kaka, svona 1
kílógramm sem er venjuleg stærð,
getur dugað fyrir fjölda manns ef
nettlega er skorið. Éf kakan er far-
in aðeins að þoma í plastinu má
dýfa henni í mjólkurkaffi, þá er hún
líka sælgæti. Panettone er ekki
bara fræg á Italíu, hún hefur lagt
undir sig a.m.k. alla Evrópu og stór-
an hluta Ameríku. Þegar hún t.d.
kemur í búðir í London er henni
staflað upp í píramýda og það eru
fáir sem fara út úr búðinni án þess
að taka eina Panettone með sér.“
Kaffihjálp til
stuðnings íbúum Ník-
aragva og Hondúras
KAFFIUPPSKERAN stendur sem
hæst í löndum Mið-Ameríku um
hver áramót. Þá er sumar gengið í
garð eftir margra mánaða rigninga-
tíð, sólin skín hátt á lofti og veðrið
er fallegt og þurrt.
Þjóðimar em aftur á móti í sár-
um eftir náttúrahamfarir þær sem í
lok október gengu yfir landsvæðið
með hræðilegum afieiðingum. ís-
lendingar, sem sjálfir þekkja af
eigin raun afl náttúr-
unnar, finna til
samkenndar með
Mið-Ameríkubú-
um.
Nú hefur starfs-
fólk Kaffitárs ákveð-
ið að leggja íbúum
Níkaragva og
Hondúras lið við uppbyggingarstarf
það sem þeir eiga nú íyrir höndum
með því að hefja framleiðslu á nýju
kaffi frá Níkaragva. Hefur kaffinu
verið gefið nafnið Kaffihjálp. Af
hverju seldu kílói af Kaffihjálp
munu 200 krónur renna til Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar og þaðan
til hjálparstarfs í Mið-Ameríku.
í fréttatilkynningu frá Kaffitári
segir að starfsfólk fyrirtækisins
vonist til að framlag ís-
lendinga verði
sem mest og
að þeim tak-
ist að sýna
íbúum Ník-
aragva og
Hondúras sam-
hug.
Uppskriftir m.a. á nýjum
vef Mjólkursamsölunnar
NÝR vefur Mjólkursamsölunnar
hefur nú verið opnaður samkvæmt
upplýsingum frá Baldri Jónssyni,
framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðssviðs MS.
Á vefnum má finna fjölmargt til
gagns og gamans fyrir neytendur á
öllum aldri. Má þar nefna aðgengi-
legan fróðleik um íslenskt mál, um-
hverfismál og ýmis önnur viðfangs-
efni sem Mjólkursamsalan hefur
látið til sín taka og fjallað er þar um
neytendamál, svo sem næringu og
hollustu. Á MS-vefnum er líka vöru-
listi með innihaldslýsingum og nær-
ingargildi allra vara fyriitækisins
og um 190 síður með spennandi
uppskriftum. Börn geta hlustað á
og tekið undir söng mjólkurdropans
Dreitils og fram til 15. janúar stend-
ur yfir á vefnum léttur og skemmti-
legur fjölskylduleikur. WWW.ms.is
er með stærstu vefjum á íslensku,
alls um 500 síður. Auglýsingastofan
Hvíta húsið hannaði vefinn og vann
texta en Skíma sá um tæknilega út-
færslu.
Anna María í
Pyrit hjá Ófeigi
ÓFEIGUR gullsmiðja og listmuna-
hús, Skólavörðustíg 5, hefur hafið
sölu skartgripum frá Önnu Maríu
Sveinbjömsdóttur gullsmíðameist-
ara MGH.
Anna María lauk sveinsprófi árið
1981, meistari hennar var Jóhannes
Leifsson. Síðan fór hún í framhalds-
nám í Guldsmedehojskolen í Kaup-
mannahöfn, 1983 til 1985. Hún rak
eigið verkstæði og verslun, Gull-
smiðjuna Pyrit, Vesturgötu 3, frá
1986 til 1994 og síðan Pyrit - G15
Skólavörðustíg 15 samt Þorbergi
Halldórssyni til 1997.
Nú selur Ófeigur gullsmiðja og
listmunahús skartgripi eftir 7 gull-
smiði og hönnuði. Þeir eru: Ófeigur
Björnsson, Katrín Didrikson, Bolli
Ófeigsson, Pia Rauff, Jouni
Jappinen, Harri Syrjanen og Anna
María Sveinbjörnsdóttir.
ÓFEIGUR og Anna María
fyrir utan verslunina.
SÖLUSTADIR
ft ffr sf' íff
KRAF^MESTA OG HRAÐVIRKASTA LEIKJATÖLVA í H
Zelda: Ocarina Of Time
Gagnrýnendur finna ekkert að leiknum
Hraði, spenna og skemmtileg ævintýr í hreint frábærum þrívíddarheimi.
Leikurinn sem beðið var eftir
NINTENDO
Reykjavík: Hagkaup, Elko, Hljómco, BT-tölvur, Bræðurnir Ormsson, Heimskringlan, Heimislistæki, SAM-tónlist, Japis, Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga Borganesi.
Vestfirðir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, fsatirði. Norðurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki, Hljómver, Akureyri. Bókval, Akureyri, Hagkaup Akureyri. Öryggi, Húsavík.
Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Kt. Árnesinga, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn, Reykjanes: Hagkaup, Keflavík. Ljósboginn, Keflavik. Samkaup, Ketlavik.
Lesið Undirtóna og Morgunblaðið 12. des 1998