Morgunblaðið - 15.12.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 27
Vikulangri
vopnaleit lokið
Bagdad. Reuters.
VOPNAEFTIRLITSNEFND
Sameinuðu þjóðanna í Irak
(UNSCOM) lauk í gær vikulangri
vopnaleit, sem litið var á sem próf-
stein á það hvort írakar myndu
standa við loforð sín um fullt sam-
starf við nefndina.
Þrír eftirlitshópar UNSCOM
fóru frá írak í gær og fyrradag og
gert er ráð fyrir að fjórði hópurinn
fari þaðan síðar í vikunni. Eftir
verða aðeins kjarnahópar með fasta
búsetu í landinu.
Hóparnir höfðu farið í eftirlits-
ferðir til að láta reyna á það hvort
írakar myndu standa við loforð sín
eftir að þeir féllust á að leyfa eftir-
litsnefndinni að hefja vopnaleitina
að nýju fyrir mánuði og afstýrðu
þannig loftárásum sem Bandaríkja-
menn og Bretar höfðu hótað.
Einn eftirlitshópanna fór frá Irak
á sunnudag eftir að hafa reynt að
rannsaka höfuðstöðvar stjórnar-
flokksins í Bagdad á miðvikudaginn
var. Hætt var við vopnaleitina í
byggingunni vegna þess að írakar
vildu aðeins hleypa fjórum eftirlits-
mönnum inn í hana.
Irakar vilja „hlutlæga“ skýrslu
Ráðgert er að Richard Butler,
formaður UNSCOM, sendi öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna skýrslu
síðar í vikunni um hvort írakar hafi
staðið við loforð sín um fullt sam-
starf við eftirlitsnefndina. Verði nið-
urstaða skýrslunnar sú að Irakar
hafi staðið við skuldbindingar sínar
gæti það orðið til þess öryggisráðið
fallist á að endurskoða vopnaeftirlit-
ið. Ráðamenn í Irak vona að sú end-
urskoðun verði til þess að slakað
verði á viðskiptabanninu sem sett
var á íraka eftir innrás þeirra í Kú-
veit árið 1990.
Mohammed Saeed al-Sahaf, utan-
ríkisráðherra íraks, kvaðst í gær
vilja að skýrslan yrði ,;hlutlæg“ og
að Butler staðfesti að Irakar hefðu
staðið við allar skuldbindingar sín-
ar. Hann kvaðst þó ekki gera sér
miklar vonir um að skýrslan yrði
írökum í hag þar sem Butler væri
staðráðinn í að hindra að viðskipta-
banninu yrði aflétt.
írakar sökuðu einnig bandaríska
hermenn um „sjóræningjastarf-
semi“ við strendur Iraks og sögðu
þá hafa reynt að stöðva skip sem
hefði flutt matvæli milli tveggja
borga í suðurhluta landsins á laug-
ardag. „Áhöfn skipsins neitaði að
hlýða fýrirmælum Bandaríkja-
mannanna og héldu ferðinni áfram,“
sagði Ahmed Murtada Ahmed
Khalil, samgönguráðherra Iraks.
Hann bætti við að þetta væri í ann-
að sinn á einni viku sem bandarískir
hermenn hefðu reynt að stöðva
matvælaflutninga íraka.
Staðalbúnaður meðal annars:
Vökvastýri, samlæsing, upphituð framrúða, ræsitengd þjófavöm,
16 ventla, 1,25 lítra vél, rafdrifnir og upphitaðir speglar.
Verð (á götuna): 3 dyra, kr. 1.098 þúsund, 5 dyra kr. 1.158 þúsund.
LfiiæiuJ
110.000 kr.
jólapakki fylgir. ..
Sjóðheit frétt!
„Besti smábíllinn"
í desemberhefti What Car,
fær Fiesta 1,25 LX bestu
einkunn í samanburði við
þrjá helstu keppinautana:
. Bestu aksturseiginleikarnir,
• Besta vinnslan
. Besta staðsetning okumanns.
Ford Fiesta, besta smábíl ársins
1998 að mati bílabíaðsins What Car
í pakkanum er:
• Geislaspilari
• Rafdrifnar rúður
• Loftpúði fyrir ökumann
• Vetrardekk
Verðmæti alls: 110.000 kr.
Aðeins örfáir bílar til.
Er eftir nokkru að bíða?
Ford - fer vel með þig '
jvcslihneíur
ImkkaBar
möruUur
me8 hyBi
tnöndlur
fnöndlur
Hakkaðar
,($inetukjarnar
döðlur
fíkjur
tttUfornia rusrnur
Heslinncíur
kesUhneíur
jlögur
kókosmjöl 1
\ Bráðumkoma
l blessuðjólin...
i
Brimborg-Þórshamar Bíley Betri bílasalan Bílasala Keflavíkur Tvisturinn
Tryggvabraut 5, Búðareyri 33, Hrísmýri 2a, Hafnargötu 90, Faxastíg 36,
Akureyri Reyðarfirði Selfossi Keflavík Vestmannaeyjum
sími 462 2700 sími 474 1453 sími 482 3100 sími 421 4444 sími 481 3141
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7010
VELJUM ÍSLENSKT!