Morgunblaðið - 15.12.1998, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Endeavour
fer frá geim-
stöðinni
Reuters
GEIMFARINN James Newman lýkur við að tengja saman aðaleiningar alþjóðlegu geimstöðvarinnar í þriðju
og siðustu geimgöngu áhafnar geimferjunnar Endeavour á laugardag.
Houston. Reuters.
AHÖFN geimferjunnar Endeavour
fór út úr alþjóðlegu geimstöðinni á
sunnudagskvöld eftir að hafa tengt
tvær aðaleiningar hennar saman í
vikunni sem leið í 386 km fjarlægð
frá jörð.
Mikil gleði var í stjórnstöð
Geimferðastofnunar Bandaríkj-
anna (NASA) eftir vel heppnaða
ferð geimferjunnar. Frank Cul-
bertson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri geimstöðvarinnar, sagði að
með henni hefði mannkynið náð
varanlegri fótfestu í geimnum.
„Þetta er grunnurinn að því að
mannkynið geti alltaf átt mannaða
geimstöð."
Rússar vonuðust til þess að geta
alltaf haft menn úti í geimnum þeg-
ar þeir skutu fyrstu einingu geim-
stöðvarinnar Mír á loft árið 1986,
en efnahagsþrengingarnar í Rúss-
landi hafa orðið til þess að þeir
hafa ekki getað endurnýjað hana.
16 þjóðir taka þátt í að reisa nýju
geimstöðina undir forystu Banda-
ríkjamanna, sem vonast til þess að
fjölþjóðasamstarfið gefíst betur.
Nýja geimstöðin verður fjórum
sinnum stærri en Mír, mun sjást
greinilega með berum augum á
jörðu og verður meðal björtustu
hlutanna í næturhimninum.
Gervihnöttur til hvalaleitar
Sex manna áhöfn Endeavour fór
út úr geimstöðinni kl. 20.25 í fyrra-
kvöld. Geimferjan var síðan færð
um 150 m frá geimstöðinni og
Endeavour flaug hægt í kringum
stöðina til að geimfararnir gætu
tekið myndir af henni.
Geimstöðin á að snúast hægt í
geimnum þar til geimferjan
Discovery verður send í maí eða
júní á næsta ári til að stækka hana.
Geimstöðin verður helmingi stærri
á næsta ári þegar farnar verða fjór-
ar geimferðir til að bæta við nýjum
einingum. Þegar stöðinni verður
lokið eftir rúm fimm ár verða í
henni sex alþjóðlegar rannsóknar-
stofur sem eiga að stunda rann-
sóknir á sviði geimvísinda, jarðvís-
inda, læknis- og líffræði og verk-
fræði. Þessar rannsóknir er aðeins
hægt að stunda án þyngdarafls
jarðar og utan gufuhvolfsins.
Endeavour snýr aftur til Kenn-
edy-geimferðamiðstöðvarinnar í
Cape Canaveral á Flórída í kvöld
eða nótt. Aður en geimfararnir
lögðust til svefns í gær losuðu þeir
gervihnött úr farmrými geimferj-
unnar. Hnötturinn verður notaður
til að leita að hvölum í heimshöfun-
um og prófa tæki sem verða notuð
þegar fram líða stundir til að fylgj-
ast með ferðum hvala í útrýmingar-
hættu.
Sungið
fyrir Nób-
elsskáld
PORTÚGALINN José Saram-
ago, sem hlaut Nóbelsverðlaun-
in í bókmenntum í ár, sést hér á
morgunsloppnum ásamt eigin-
konu sinni Pilar del Rio eftir að
sænskar stúlkur vöktu þau með
söng á hótelinu í Stokkhólmi að
morgni Lúsíu-dagsins, 13. des-
ember, en liann er haldinn há-
tíðlegur um alla Svíþjóð á þenn-
an hátt. Saramago fékk
verðlaun sín afhent um helgina.
Reuters
fað er TURBO þurrkun?
rrkkerfinu blæs vélin út heitri
mni sem hituð er upp af hitaelementinu.
n fullkomna þurrkun.
r—, BRÆÐURNIR
tglORMSSON
Láqmúla 8 • Sími 533 2800
Þrjátíu falla við
landamæri Kosovo
HER Júgóslavíu, sambandsríkis
Serbíu og Svartfjallalands, felldi að
minnsta kosti þrjátíu Kosovo-Albana
og særði tólf aðra í átökum á landa-
mærum Kosovo í gær, að sögn
serbnesku iréttastofunnar Media
Center. Var greint frá þessu á CNN.
Bardagar munu hafa staðið yfir í
um fimm klukkustundir og eru þeir
mannskæðustu frá því að Richard
Holbrooke, sendimaður Bandaríkja-
stjómar, knúði fram samkomulag við
Slobodan Milosevic, forseta Jú-
góslavíu, 12. október síðastliðinn.
Koma þessi átök á sama tíma og
Christopher Hill, sendifulltrúi
Bandaríkjamanna, hóf viðræður á
Áhyggjur af
vopnahléi
IRA
Dublin. Reuters.
ÍRSKA lögreglan sagðist í gær hafa
aukið viðbúnað sinn í landamæra-
héruðum írlands og Norður-ír-
lands til að sporna við þeirri ógn
sem stafar af klofningshópum úr
írska lýðveldishernum (IRA).
Sakaði jafnframt Gerry Kelly,
einn þingmanna Sinn Féin, stjórn-
málaarms IRA, á nýju norður-írsku
þingi sambandssinna um að reyna
að þvinga IRA til að rjúfa vopnahlé
sitt, sem nú hefur staðið síðan í júlí
1997. Sambandssinnar neita að
setja heimastjórn á laggirnar með
aðild Sinn Féin nema IRA afvopnist
fyrst, en það taka IRA-menn ekki í
mál.
Greindu breskii’ fjölmiðlar frá því
að IRA hefði kosið sér nýjan leið-
toga um helgina, Brian Keenan, en
hann hefur afplánað fjórtán ár í
fangelsi fyrir aðild að sprengjutil-
ræði á áttunda áratugnum. Mun
Keenan vera í hópi harðlínumanna
innan IRA og segja fréttaskýrend-
ur þetta geta verið til marks um að
áhrif leiðtoga Sinn Féin, Gerry Ad-
ams og Martin McGuinness, fari
dvínandi innan IRA, en það er ekki
talið góðs viti því þeim Adams og
McGuinness er eignaður heiður að
því að hafa sannfært vopnabræður
sína í IRA um að láta reyna á sátta-
leiðina.
nýjan leik við leiðtoga Kosovo-Al-
bana. Stríðandi fylkingar hafa hvor-
ar fyrir sig hafnað hugmyndum hans
um hvernig leysa eigi deiluna um
Kosovo, en Kosovo-Albanar hafa
krafist fulls sjálfstæðis á meðan Ser-
bar vilja að héraðið verði áfram und-
ir yfirráðum Júgóslavíu.
Munu vopnaðir Kosovo-Albanar
hafa reynt að fara yfir landamæri Al-
baníu og inn í Kosovo þegar til átak-
anna kom í gærdag í nágrenni
Gorozup og Liken, um 80 kílómetra
frá Prístína. Greindu heimildii- CNN
frá því að allir Kosovo-Albananna
hefðu verið klæddir búningum
Frelsishers Kosovo (KLA).
• •
Oryggismál
eins og
„gatasigti“
London. The Daily Telegraph.
ÖRYGGISMAL í farþegaflugi al-
mennt eru eins og „gatasigti“ og
bjóða upp á hörmungar á borð við
Lockerbie-hryðjuverkið. Kemur
þetta fram í nýrri skýrslu.
I skýrslunni „Flug, hryðjuverk
og öryggismál" sem sérfróðir
menn um hryðjuverk hafa sett
saman, er Bretum hrósað fyrir þá
lærdóma, sem þeir hafa dregið af
Lockerbie-hryðjuverkinu, en sagt
er, að fólk, sem ferðast frá Banda-
ríkjunum, flestum ríkjum Evrópu
og öðrum heimshlutum, sé látið
taka ónauðsynlega áhættu.
I Bretlandi er allur farangur
flugvéla á alþjóðlegum flugleiðum
gegnumlýstur en víðast hvar í
Evrópu aðeins fimm til tíu pró-
sent. I Bretlandi er auk þess
gengið úr skugga um, að allur far-
angur, einnig sá, sem kemur með
tengiflugi, tilheyri ákveðnum far-
þegum. Hefði sá háttur verið
hafðm- á á sínum tíma hefði mátt
koma í veg fyrir Lockerbie-
hryðjuverkið. Þá var farangur
með sprengjunni fluttur yfir í Pan
Am-flugvél á Heathrow-flugvelli
úr Pan Am-flugvél, sem kom frá
Frankfurt.
I skýrslunni segir, að í Banda-
ríkjunum og víðar hafi flugfélög
ekki tekið upp þessa reglu vegna
þess, að þau horfi í kostnaðinn.