Morgunblaðið - 15.12.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Að deyða mann og annan,
fullur undir stýri
ÉG GERI ekki ráð
fyrir að margir úr hópi
lesenda hafi komist hjá
því undanfarna daga,
að heyra viðvaranir
lögreglu þess efnis að
nú sé mikil áhersla
lögð á að koma í veg
fyrir að menn aki eftir
að hafa fengið sér í
glas. Sú einarða af-
staða lögregluyfii-valda
að nú skuli vegir og
götur hreinsaðar af
stórhættulegum ölvuð-
um ökumönnum, ætti
því engum að koma á
óvart. Það er mér því
illskiljanlegt hvers
vegna í ósköpunum það getur gerst
að tugir manna séu nú teknir á ein-
um sólarhring fyrir það vítaverða
athæfi að aka ölvaðir. Það getur
ekki verið að menn séu svo einfald-
ir að halda sífellt að þeir geti ekið
undir áhrifum áfengis og einhverjir
allt aðrir lendi í því að deyða mann
og annan, fullir undir stýri. Við
sem stjórnum ökuprófum í landinu,
hljótum að skoða hvort við höfum
verið að útskrifa í stónim stíl öku-
menn sem skortir gáfur til þess að
gera sér grein fyrir að ölvun-
arakstur er ekkert annað en glæp-
ur Ef til vill þurfum við að bæta við
bílprófin enn fleiri spurningum
sem höfða til heilbrigðrar skyn-
semi, þannig að enginn komist þar
í gegn nema a.m.k að vera svo gáf-
aður að hann geri sér grein fyrir að
enginn, nákvæmlega enginn, er
þannig skapaður að hann hafi hæfi-
leika til þess að aka af fullu viti
undir áhrifum áfengis,
annarra vímuefna eða
lyfja sem haft geta
áhrif á aksturshæfni.
En málið er víst
ekki svona einfalt,
fremur en svo margt í
heimi hér. Líklega
myndi enginn próftaki
svara spumingu á
ökuprófi, ef þar væru
settar fram þrjár full-
yi'ðingar, ölvunarakst-
ur er glæpur, ölvun-
arakstur er óæskileg-
ur eða ölvunarakstur
Óii H. er í lagi ef ekki er mik-
Þórðarson ið drukkið, öðruvísi en
svo að fyrirbærið sé
glæpur. Líklega myndum við nú
seint spyrja svona, en það sem ég á
við er að hver einasti ökumaður
veit þetta, spurningin er ekki um
Við biðjum alla að
muna ábyrgð sína í
þessum efnum, segir
Oli H. Þórðarson, og
minnast reglunnar
góðu, „eftir einn - ei
aki neinn“.
það. Það sem hins vegar gerist er í
flestum tilvikum það, að menn
missa dómgreind sína eftir neyslu
áfengis, og dómgreindarskorturinn
vex í réttu hlutfalli við magn þess
sem drukkið er. Það er því ekki að
ástæðulausu sem við segjum, að
besta forvömin felist í, að láta ekki
á þetta reyna. Fari fólk að
skemmta sér og líkur eru á að
áfengi verði haft um hönd, er ein-
faldast að skilja bflinn eftir heima.
Þar með er hann ekki tiltækur þeg-
ar á reynir og menn freistast ekki
til að gera vitleysuna, sem mörgum
hefur orðið svo afdrifarík, eins og
mörg dapurleg dæmi sanna.
Jólaaðventan er skemmtilegur
tími, með allri þeirri tilbreytingu
sem þá er boðið upp á, m.a. jóla-
hlaðborð og alls konar mannfagn-
aði þar sem áfengir drykkir eru á
boðstólum. Við biðjum alla að
muna ábyi'gð sína í þessum efnum
og minnast reglunnar góðu, „eftir
einn - ei aki neinn“, sem fellur svo
vel að kjörorðum tryggingafélag-
anna, lögreglu, lækna, Umferðar-
ráðs o.fl. um þessar mundir, „end-
um ekki jólagleðina með ölvun-
arakstri".
Höfundur er franikvæmdasljóri
Umferðarráðs.
sJÓLIN!
GANGAIGAMÐ
- O 'Iólasveinn í hcimsókn §|
Ít/T á hverjum dcgi frá
12. desember!
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 49.
NÝBÓKEFTIRGUNNLAUG GUÐMUNDSSON
vs
^ 0G SAMy^
Vv
STJÖRNUMERKJANNA
Persónuleiki allra stjörnumerkjanna
Hvernig merkin eiga saman
Bókin er 270 bls. og full af fróðleik
ÚTGEFANDI: STJÖRNUSPEKISTÖÐIN S: 553 7075
Fréttir á Netinu ^mbl.is
A.LUTAf= GITTH\SA£} A/ÝT7
Lax & síld
Góðgœti d jólaborðíð
ISLENSK MATVÆLI
Kynniö ykkur fjölbreytta
möguleika á merkingum
á gallanna á heimasíöu okkar:
www.formulal.is
VERÐSPRENGJA í KOLAPORTINU
Fallegar Ijósakrónur
Klingjandi kristalgiös
Kaffi og matarstell
Urval af mokkabollum
Glæsilegir lampar
Kopar- og brassvara
Friisenborg matar-
og kaffistell.
Úrval af hand-
máluðum bollum frá
18 öld.
| Plattar frá
Bing og
Gröndal
oa Royal
Cnopen-
Ihagen
/
á Sprengiverði
BORVÉLAR
SLÍPIROKKAR
SKRÚ FJÁRN ASETT
VERKFÆRATÖSKUR
TOPPLYKLASETT
LÓÐBOLTAR
VASAUÓS
VERKFÆRASETT
VATNSLITIR
OLÍULITIR
Fjöldi annarra verkfæra
á verði sem ekki hefur
sést hér á landi.
Sjón er sögu ríkari.
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Opið um helgar kl. 11 -17 og virka daga kl. 12-18 y
Opið alla daga til jóla