Morgunblaðið - 15.12.1998, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 51 -#■
AÐSENDAR GREINAR
Hvað á að
koma í staðinn?
KAUPÞING veiði-
heimilda væri einhvers
konar framlenging, en
jafnframt mikil víkkun
á núverandi kvóta-
þingi. Hér verður ekki
reynt til við að skil-
greina þau mörgu
tæknilegu viðfangs-
efni, sem útboði allra
veiðiheimilda og opn-
um markaði fyrir þær
tengjast. Það eru sjálf-
stæð og tæknileg við-
fangsefni, sem bíða
betri tíma og manna
með nauðsynlega
þekkingu. Hins vegar
er ljóst sem stefnuat-
riði, að starfsemi þessa kaupþings,
og raunar allrar breytingarinnar
yfir í nýja fískveiðistjórn, þarf að
Starfsemi og breyting-
ar innan þessa kaup-
þings yfír í nýja fisk-
veiðistjórn, segir
Jón Sigurðsson í
þriðju grein sinni af
fímm, þurfa að vera
undir styrkri stjórn og
í höndum óvilhallra
Jdu
Sigurðsson
hagsmuni útgerðarinn-
ar, er þess vegna nauð-
synlegt, að öll stjórn
umskiptanna frá nú-
gildandi kerfi yfir í
nýtt kerfi sé fengin
mjög sjálfstæðri nefnd
óvilhallra manna, sem
enga hagsmuni eiga í
útgerð og væru valdir
fyrir verðleika sakir,
t.d. af dómstóli. Verk-
efni þeirra t.d. þriggja
manna væri að ná þeim
markmiðum, sem sett
eru, hafa víðtækt um-
boð til að gera það,
sem gera þarf í þess-
um efnum, en jafn-
manna.
vera undir mjög styrkri stjórn og í
höndum óvilhallra manna; Það er
ljóst af sögu þeirrar fiskveiðistjórn-
ar, sem ríkt hefur undanfarin 15 ár
eða svo, að þröngsýnir skammtíma-
hagsmunir forráðamanna LÍÚ hafa
þar öllu ráðið og meirihluti Alþingis
hefur að mestu látið þá ráða för. Til
þess að hagsmuna alls almennings í
landinu sé gætt jöfnum höndum við
framt að hafa frumkvæðisskyldu,
bæði gagnvart ráðherra og gagn-
vart Alþingi um hvað eina, sem úr-
skeiðis kann að fara í svo róttækri
breytingu. Klúðrið, sem núgildandi
kerfí hefur leitt til, er mikið. Að
sama skapi eru möguleikarnir
margir til að upp komi vandamál,
sem enginn getur séð fyrir. Hin
ráðgerða stjórnarnefnd á að vaka
yfir þeim jafnskjótt og vandamálin
koma í ljós og bregðast við. Hún á
að verða miðstöð hinnar stöðugu
viðleitni til að bæta hið nýja kerfí,
sem enginn getur vænst að verði
fullkomið frá byrjun.
Sú úthlutun veiðiheimilda með út-
boði til leigu, sem hér er gerð tillaga
um, eyðir öllum helstu vanköntum á
núgildandi fiskveiðistjórn nema
brottkastinu. Að vísu er þess ógetið,
að hugmyndin er að bjóða veiðirétt-
inn út í stærðarflokkum, þannig að
t.d. stórþorskur yi-ði boðinn út sér,
miðlungsþorskur sér og smáþorsk-
ur sér. Þess er að vænta, að mis-
mikið yi-ði boðið í þorsk eftir stærð
og þannig fjarlægður sá hvati, sem
nú gildir, að menn geta ekki komið
með smærri þorsk í land nema sér
til tjóns.
Hins vegar er ljóst, að í hvaða
aflakvótakerfi sem er, verður að
MATARLITIR
fyrir kökur, marsipan
og skreytingar
15 mismunandi litir
Einmg lo mism. gerðir
a Konfektniótum
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Negro
Skólavörðustíg 21 a • 101 Reykjavík
Sími/Fax: 552 1220
Netfang: blanco@itn.is
Veffang: www.blanco.ehf.is
gera ráð fyrir því, að menn veiði
smáfísk, sem ekki var ætlunin að
veiða. Gera þarf sjómönnum ekki
aðeins mögulegt, heldur beinlínis
hagkvæmt, að koma með þennan
fisk í land. Verði það ekki gert, er
málið svo einfalt, að þessum fiski
verður fleygt í hafið aftur og engin
leið að lá mönnum það, jafnvel þótt
þetta sé sóun. Lausnin, sem hér er
lögð til, er að öllum lágverðsfiski,
hvort sem það er vegna smæðar,
hann er skemmdur eftir sel, dauð-
blóðgaður eða af öðrum ástæðum,
skuli landa honum utan hins leigða
veiðiréttar, en með sérstökum skil-
málum. Helmingur andvirðisins
renni til rannsókna á ríkisins veg-
um, en hinn helmingurinn renni til
útgerðar og sjómanna, t.d. til helm-
inga.
Þessum skiptum þarf að haga
þannig, að slíkur veiðiskapur sé
aldrei nógu ábatasamur, hvorki fyr-
ir útgerð né sjómenn til að þeim
finnist eftirsóknarvert að sækja í
hann, en jafnframt þarf þessi skip-
an að vera nógu góð til að bæði
áhöfn og útgerð þyki svara fyrir-
höfninni að koma með þennan afla í
land. Það er eina leiðin til að þjóðar-
búið fái að njóta góðs af honum,
þvert ofan í það, sem nú gildir í
þessu efni.
Hér hefur verið gerð grein fyrir
gi'undvallaratriðum í framtíðarskip-
an nýs fiskveiðistjórnarkerfis, sem
gerð er tillaga um. í næstu grein
verður gerð gi’ein fyrir þeim um-
þóttunartíma, sem telja verður
nauðsynlegt að veita útgerðinni við
umskiptin frá því óhæfa kerfi, sem
nú gildir til þessa framtíðarskipu-
lags.
Tekið saman að beiðni Frjáls-
lynda flokksins.
Höfuadur er fyrrverandi
framkvæmdasljóri.
A
Setjum upp
Jólaljós á jólanótt
í boss vogslcirhjuga rÓi
Raflýsingar|ijónusta Póla li/f
Sími: 561 8401
■ ** m-
GU^/ yJMJJM
Spring
\ AiRy
Qjy\\lA\Æ/
a\r\M/i\b 4v/Li/ iv&ULbALcui nu
með fimm svæða stuöningskerfinu
jÖSoi
Heilsudýnan frá SpringAir fékk
viðurkenningu frá Amerísku
neytendasamtökunum
Consumers Digest sem bestu
kaupin fyrir árið 1998.
et NASA f yrtt - «í! fé«ilf$ týdf |t|
Faxafeni 5 • 108 Rvk • Simi:588-8477