Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 68
ts 68 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Þátturinn M8 popptíví
loftið á Áttunni
NINA Björk er annar af kynnum nýja poppþáttarins.
Ekki haft tíma
fyrir jólaskapið
„VIÐ ERUM að gera rosalega
spennandi íslenskt popptíví," segir
Nína Björk hressilega og auðheyrt
að htín hefur mjög gaman af til-
verunni enda er hún kynnir þátt-
arins M8 popptíví ásamt Adda
Fannari tír Skítamdral sem fdr í
fyrsta skipti í loftið í gær.
Hvaða þáttur er þetta eiginlega'!
„Við verðum með fullt af gdðri
t dnlist," svarar Nína Björk. „Það
koma hljdmsveitir til okkar í
hveijum þætti og einhverjir lista-
menn og við ætlum umfram allt að
hafa gaman af þessu. Tdnlistin
verður bæði íslensk og erlend.“
Og það kennir ýmissa grasa í
þættinum. „Þarna verður Bryndís
Asmundsddttir „skemmtilegasta
kona landsins" með fjörlegt inn-
legg um lífið og tilveruna. Viktor
Hdlm Jdnmundsson rdtari Skíta-
indrals verður hjálparhellan okk-
ar. Jdn Atli rödd Guðs á X-inu
verður alltaf með topp tíu listann.
Mikael Torfason verður með
(r.
V/SA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4539-8700-0003-2001
4539-8700-0003-2019
4539-8100-0003-9374
4539-8100-0003-8897
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
V/SA
VISA ISLAND
Álfabakka 16,
109 Rvík.
Sími 525 2000.
bökagagnrýni. Arnar Gauti í GK
ætlar að koma skoðunum sinum á
framfæri. Og loks verður Yasmine
Olsson dansari sem unnið hefur
við myndbandagerð títi í heimi
með John Stone og Backstreet
Boys og fleirum."
Þannig að það er ástæða til að
hlakka til?
„Mér líst rosalega vel á þetta,“
segir Nína Björk. „Mér finnst
þetta spennandi og það verður
fínt fyrir jölin að slaka aðeins á og
kveikja á sjdnvarpinu.“
Hversu mjög verður þátturinn í
anda MTV?
„Ekkert fram tír hófí,“ segir
Nína Björk. „Við ætlum að vera
við sjálf.“
Hversu Iengi verður þátturinn á
dagskrá?
„Hann verður keyrður fram að
30. desember. Þetta er reynslutími
og svo kemur í ljds hvað verður.
Við vonum auðvitað að þetta verði
tekið upp aftur síðar. Þátturinn
verður á milli 17 og 20 á hverjum
degi nema um helgar og endur-
sýndur frá 11 til 14.“
Er þetta í fyrsta skipti sem þú
kemur fram ísjónvarpi?
„Þetta er fyrsta skiptið í þátta-
gerð,“ svarar Nína Björk. „Eg hef
verið í auglýsingum og bítímynd."
Þú lékst í Hjarnið logar undir
leikstjórn Friðriks Þórs Friðriks-
sonar. Hvenær verður hún frum-
sýnd?
„Það er ekki komið á hreint;
það er eitthvað verið að fínpússa
hana.“
Ertu búin að sjá hana?
„Já.“
Hvernig leist þér á?
„Htín er rosa falleg og fín,“
svarar Nína Björk og bætir við:
„Listræn.“
Ertu komin íjólaskap?
„Það er bara búið að vera svo
bijálað að gera að maður hefur
varla haft tt'ma fyrir jdlaskapið,"
svarar htín og hlær. „En það kem-
ur pottþétt.“
Fingur5krím5li
[Öpj feykirófa
Skólavöröustíg 1a
Ný kvenfataverslun í Aðalstræti 9
Ný sending frá GRACE COLLECTION.
Silkiblússur á tilboði
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-14 -Sími 552-2100
ÁRNI Þdrarinsson les tír Ndttin hefur þtísund augu.
Pressukvöld á aðventu
Skáld úr
röðum
blaða-
manna
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ hélt
Blaðamannafélag íslands Press-
ukvöld á efn hæð veitingastaðar-
ins Sólon íslandus. Kvöldið var
tileinkað skáldskap og lásu
blaðamenn úr nýútgefnum bók-
um sínum. Fyrstur steig í pontu
Árni Þórarinsson, sem las kafla
úr bók sinni Nóttin hefur þúsund
augu. Þá tók við Eiríkur Eiríks-
son sem las úr bók sinni Áin mín,
sem er eins og höfundur sagði
ekki ættarsaga úr fjárhúsi held-
ur safn veiðisagna. Þá tók við
Gerður Ki’istný sem las söguna
„Mengele var misskilinn
húmoristi" úr smásagnabók
sinni Eitruð epli og að lokum las
Sindri Freysson úr verðlauna-
bók sinni Augun í bænum.
Félagsmenn mættu ágætlega
til að hlýða á kollegana lesa úr
bókum sínum, en aðeins má
finna að skvaldri í salnum sem
truflaði talsvert þá sem lengst
frá pontunni sátu. Hins vegar
má hrósa Blaðamannafélaginu
fyrir tiltækið.
ÁSGEIR Friðgeirsson á visir.is, Sindri Freysson blaðamaður á
Morgunblaðinu, Árni Finnsson og Gerður Kristný, ritstjöri Mannlífs.
HÉR er hlustað af athygli en við borðið sitja Ingibjörg Anna Arn-
arddttir, Bjarni Brynjölfsson og Kristján Þorvaldsson hjá Frdða,
en þeir tveir síðastnefndu eru ritstjdrar Séð og heyrt.
Nútímalegt danspopp
TOIVLIST
Geisladiskur
WIDE NOISE
Wide Noise, breiðskífa
tvíeykisins Súrefnis. Stírefni
skipa Þröstur Elvar Óskars-
son og Páll Arnar Svein-
björnsson en þeim til aðstoð-
ar á plötunni eru Franz
Gíslason söngvari, Hafþór
trommuleikari, Tdmas Tóm-
asson gítarleikari, og
Höskuldur rappari. Lög eru
eftir Þröst en títsetningar og upp-
tökustjtírn voru í höndum Páls.
Umslagið gerði Spessi. Innn gefur tít.
34,03 mín.
SÚREFNI er helsta danssveit
landsins nú um stundir og hefur
sýnt og sannað að hún kann að laga
sig að straumum samtímans. Fyrsta
breiðskífa sveitarinnar kom út fyrir
ári og var um margt prýðileg þó
sitthvað, þar á meðal hljómur plöt-
unnar, hafi haldið aftur af henni. Á
nýrri plötu sinni, Wide Noise, er
sveitin aftur á móti með allt sitt á
hreinu, lögin eru almennt skemmti-
legri en fyrri verk og hljómur tals-
vert betri. Á skífunni sýnir Súrefni
einnig tilburði til að taka kúrsinn í
aðra átt og bætir inn lifandi hljóð-
færaleik og söng með góðum ár-
angri.
Upphafslag plötunnar sem Franz
Gíslason syngur hefur talsvert
heyrst í útvarpi, enda bráðvel
heppnaður bræðingur af rokki og
kraftmikilli danstónlist. Franz
syngur vel að vanda, en einna mest
lyftir laginu að þar sé lifandi slag-
verk og svo er víða á Wide Noise;
samþætting vélrænnar hrynsúpu og
lifandi trommuleiks gefur meiri
kraft ogbetra bragð.
I öðru lagi skífunnar er höggvið
í sama knérunn að fá gest til liðs
við sveitina, en að þessu sinni er
það Tómas Tómasson slidegítar-
leikari sem fer á kostum, aukin-
heldur sem hann leggur til stuttan
raddbút sem endurtekinn er eftir
þörfum.
Þriðja lagið gefur þriðja gestinn,
Hössa rappara úr Quarashi, sem
spinnur af listfengi eins og honum
einum er lagið, en Súrefnis-
menn laga sig að honum og
fara býsna nærri Quarashi í
prýðilegu lagi.
Þessi þrjú lög, og reyndar
það fjórða líka, eru frábær
byrjun á breiðskífunni sem
lögin sem á eftir koma ná
ekki alveg að standa undir.
Vekur spurningar um hvort
ekki hefði verið rétt að raða
skífunni öðruvísi upp í stað
þess að láta fjögur bestu lög-
in koma í einni röð í upphafi
og víst er erfitt að fylgja eftir
lagi eins og Desert Drifter svo vel
sé.
Ekki má þó skilja þetta sem svo
að ekkert sé spunnið í lögin sem á
eftir koma, fimmta lag skífunnar,
No Mistakes, er bráðgott og einnig
bassaveislan í Jay’s Dimension.
Súrefni er á réttri leið með tónlist
sína; Þresti er einkar lagið að semja
giípandi nútímaleg danspopplög og
sjálfsagt er fyrir þá félaga að þróa
áfram þá hugmynd að hafa lifandi
hljóðfæraleikara í sem flestu, aukin-
heldur sem skemmtileg notkun
radda ætlar að reynast þeim vel.
Umslag plötunnar er skemmti-
legt og dregur athyglina að hljóm-
sveitinni með því að sýna eitthvað
allt annað. Góð hugmjmd og vel út-
færð.
Árni Matthíasson