Morgunblaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Loðnan
loks
fundin
MIKIL loðna fannst á miðun-
um norðnorðvestur af Langa-
nesi um helgina. Skipin sigla
þá í gegnum margi'a mflna
langar lóðningar, en loðnan
var dreifð og stóð djúpt. Flest
þeirra fengu góðan afla á
fóstudagskvöldið, en urðu síð-
an að hætta veiðum vegna
brælu.
Þorsteinn Kristjánsson,
skipstjóri á Hólmaborg SU,
segir gott að vita til þess að
loðnan sé loksins gengin í svo
miklum mæli inn á miðin.
Hins vegar spái brælu áfram
og þess vegna bendi allt til
þess að ekki náist úr göng-
unni fyrr en eftir áramót.
Mikið af loðnu/24
Morgunblaðið/Kristj án
Ekki frekari viðræður
um sameiningu IS og SH
ÓFORMLEGUM viðræðum fulltrúa Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna hf. og Islenskra sjáv-
arafurða hf. um samstarf eða sameiningu félag-
anna hefur verið hætt. Stjórn IS hyggst reka fé-
lagið áfram sem sjálfstætt hlutafélag og vinnur
að ráðningu nýs forstjóra í stað Benedikts
Sveinssonar sem hefur tekið við forstjórastarfí
Iceland Seafood í Bandaríkjunum til frambúðar.
Fulltrúar hluthafa SH og IS hófu að ræða
saman á nýjan leik rétt fyrir helgi. Viðræðum
þeirra lauk síðdegis í fyiTadag. Stjórnarfor-
rnenn fyrirtækjanna vilja ekkert segja um
ástæður þess að ekki var haldið áfram. Þegar
viðræðunum lauk var verið að ræða mat á verð-
mæti fyrirtækjanna og sú staðreynd að hóparn-
ir treystu sér ekki til þess að mæla með því að
gengið yrði til formlegra viðræðna bendir til
þess að mikið hafi borið í milli.
Hlutabréf Islenskra sjávarafurða lækkuðu
eftir að tilkynnt var um viðræðuslitin í gær. Al-
bert Jónsson, forstöðumaður hjá Fjárvangi, tel-
ur að áhrifín á hlutabréfamarkaðinn bendi til
þess að hluthafar í ÍS sætti sig ekki við þessi
málalok.
Nýr forstjóri verður ráðinn
Hermann Hansson stjórnarfoi-maður segir að
Islenskar sjávarafurðir verði reknar áfram sem
sjálfstætt fyrirtæki og reynt að efla starfsem-
ina. „I Ijósi þessarar niðurstöðu munu Islenskar
sjávarafurðir hf. starfa áfram með þeim hætti
sem verið hefur og stjórn félagsins hefur fulla
trú á því að fyrirtækið hafi góða möguleika til að
eflast og styrkjast í framtíðinni,“ segir í orð-
sendingu sem stjórn IS sendi starfsmönnum
sínum í gær.
Gengið hefur verið frá ráðningu Benedikts
Sveinssonar sem forstjóra Iceland Seafood
Corp. til frambúðar og mun hann láta formlega
af starfi forstjóra IS í lok þessa árs. I fréttatil-
kynningu sem stjórn Islenskra sjávarafurða
sendi frá sér í gær kemur fram að unnið er að
ráðningu nýs forstjóra.
■ Misjafnt mat/10
Meistarinn kominn heim
ÖRN Arnarson, Hafnfirðingurinn
ungi, sem varð á laugardaginn
Evrópumeistari í 200 metra
baksundi, kom heim í gær. I
■mótslok var Örn útnefndur efni-
legasti sundmaður Evrópu í
karlaflokki.
Erni var vel fagnað við kom-
una til landsins; á móti honum
tóku m.a. Ellert B. Schram, for-
seti ISI, Magnús Gunnarsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, fjöldi
félaga hans úr Sundfélagi Hafn-
arfjarðar, ættingjar og vinir.
Örn er fyrsti íslendingurinn
sem verður Evrópumeistari í
sundi, en hann er aðeins 17 ára.
„Það var yndisleg tilfinning að
standa á efsta þrepi," sagði Örn
við koinuna til fslands síðdegis í
gær. „Eg vona að þetta verði að-
eins fyrsti sigurinn sem ég vinn á
stórmóti í sundi.“
Á myndinni er Örn með for-
eldrum sínum, Kristínu Jensdótt-
ur og Erni Ólafssyni.
■ Örn Evrópumeistari/Cl
AKO-Plast kaupir 75% í Plastos-Umbúðum hf.
Fyrirtækin
sameinuð
UPPHAF ehf. á Akureyri, sem er í
eigu þeirra Daníels Arnasonar, Ey-
þórs Jósefssonar og Jóhanns Odd-
geirssonar, hefur fyrir milligöngu
fjármálaráðgjafar Landsbanka ís-
lands keypt 75,86% eignarhlut í
íyrirtækinu Plastos-Umbúðum í
Garðabæ. Seljandi hlutabréfanna
er fjölskylda Sigurðar Oddssonar,
framkvæmdastjóra Plastos-Um-
búða hf.
Upphaf ehf. á og rekur AKO-
Plast á Akureyri en auk þess á fé-
lagið meirihluta í Kexsmiðjunni
ehf. Daníel Árnason sagði að stefnt
væri að því að sameina rekstur fyr-
irtækjanna tveggja, AKO-Plasts og
Plastos-Umbúða, undir einni yfir-
stjórn. Þeir félagar myndu nú á
næstunni kynna sér innviði síns
nýja fyrirtækis og í framhaldi af
því ákveða hvernig samruna þeirra
verður best háttað. Markmiðið með
sameiningunni væri að skapa öfl-
ugt fyrirtæki á umbúðamarkaði og
ná fram hagræðingu með sam-
rekstri þeirra, en bæði fyrirtækin
starfa að framleiðslu og sölu plast-
umbúða. Þá stefna þeir félagar að
því að hið sameinaða félag standi
báðum einingum framar í plast-
framleiðslu, prentun og markaðs-
sókn.
Óbreyttur rekstur
fyrst í stað
Fyrst um sinn verða félögin rek-
in með óbreyttum hætti, en innan
skamms mun stjórn Plastos-Um-
búða boða til hluthafafundar þar
sem kosin verður ný stjórn, en
þangað til verður framkvæmda-
stjórn í höndum Odds Sigurðsson-
ar og Jóhanns Oddgeirssonar.
■ Öflugt fyrirtæki/18
Fannfergi
norðan heiða
AKUREYRINGAR hafa tekið
kuldafatnaðinn fram aftur en
síðustu daga hefur kyngt niður
snjó og er því orðið nokkuð
jólalegt í bænum. Víða á Norð-
urlandi hefur hins vegar verið
vonskuveður með tilheyrandi
ófærð á vegum. Innanbæjar
hefur verið þokkaleg færð,
enda fjöldi snjómoksturstækja á
ferðinni. Áfram er spáð norð-
lægum áttum og má því gera
ráð fyrir að snjóskaflarnir eigi
enn eftir að hækka.
-----------
Formaður bankaráðs
Búnaðarbanka
Ríkisendur-
skoðandi
áritaði
tillöguna
PÁLMI Jónsson, formaður banka-
ráðs Búnaðai’bankans, segir í yfir-
lýsingu sem birt er í Morgunblað-
inu í dag, að samningur bankaráðs-
ins við bankastjóra bankans um að
flytja öll lífeyi’isréttindi þeirra í
séreignasjóð hafi m.a. byggst á því
að þeir féllust á að felld yi’ðu niður
framlög vegna samningsbundinna
réttinda þeirra í fímm ár frá 60-65
ára aldri. Hið sama hafi gilt um að-
stoðarbankastjóra og heildar-
sparnaður bankans vegna þessa
verið 117 milljónir kr.
„Áður en tillaga að bókun um
þetta efni var lögð fyrir bankaráðs-
fund, hinn 15.4. 1997, vai' hún borin
undir rfldsendurskoðanda, en álit
hans var auðvitað þýðingarmikið.
Hann áritaði tillöguna án athuga-
semda,“ segir í yfírlýsingu Pálma.
„Á haustdögum reis óánægja í
viðskiptaráðuneytinu með þessa af-
greiðslu bankaráðsins. Það var þó
algerlega á verksviði bankaráðsins
að ljúka uppgjöri þessara lífeyi-is-
réttinda en ekki á verksviði ráðu-
neytisins," segir í yfirlýsingu
Pálma.
Að mati Pálma er samanburður
við Landsbankann óréttmætur í
þessu efni. „Eftir því sem ég best
veit voru tveir bankastjórar
Landsbankans aðilar að eftirlauna-
sjóði bankans. Hefði svo verið um
bankastjóra Búnaðarbankans
hefðu þeir að sjálfsögðu lotið sömu
uppgjörsreglum og aðrir sjóðfélag-
ar,“ segir í yfirlýsingunni.
■ Uppgjör/15
ÞVÖRUSLEIKIR
DAGAR TIL JÓLA