Morgunblaðið - 02.03.1999, Page 68
J
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF mo. NETFANG: RITSTJ(SMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Góð loðnuveiði meðfram allri suðurströndinni - styttist í hrygningu
Dagur við nótt
í veiðum
o g vinnslu
LOÐNA veiðist nú meðfram allri
suðurströndinni, allt frá Hornafirði
vestur í Reykjanesröst, eftir kalsa-
tíð í síðustu viku. Víða hefur mynd-
ast löndunarbið á þeim stöðum sem
næst eru miðunum og eru jafnvel
dæmi um að skipin hafi siglt með
aflann norður fyrir land, til Siglu-
fjarðar, til löndunar. Sjómenn segja
' vetrarvertíðina hafa einkennst af
ótíð, loðnan hafi verið erfið við að
eiga og sé því mikilvægt að ná sem
mestu magni á land á meðan veður
haldist skaplegt. Aðeins sé nú um
vika í að íyrsta loðnan hrygni og því
verði að leggja dag við nótt í veiðum
og vinnslu, enda gríðarleg verðmæti
í húfi.
Hrognataka hófst m.a. í Grinda-
vík, Helguvík og Vestmanneyjum,
en frysting var sums staðar í gangi
á Austfjörðum. „Það er verið að
^■frysta loðnu úr eystri göngunni fyr-
ir austan og bytjað er að taka
hrognaprufur fyrir sunnan,“ sagði
Jarðskjálft-
ar í Eyja-
fjallajökli
Steindór Gunnarsson, markaðs-
stjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna. Hann sagði að hrognafyil-
ingin væri um 23% á veiðisvæðinu
við suðurströndina en um 17% til
18% íyrir austan. „Þetta er allt á
beinu brautinni," sagði hann.
„Það er verið að frysta á Vopna-
firði fyrir Japan en ætli það sé ekki
svanasöngurinn," sagði Pétur Is-
leifsson hjá íslenskum sjávarafurð-
um og bætti við að hrognataka færi
að hefjast fyrir austan.
Samtais um 51.000 tonnum hafði
verið landað hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar í gær og sagði Haukur
Bjömsson útgerðarstjóri að fryst-
ingu væri sennilega lokið en vænt-
anlega yrði byrjað að taka hrogn á
morgun. „Við höfum fryst um 1.100
tonn fyrir Japansmarkað en mér
sýnist að þeir vilji ekki meira af
þessari smáloðnu," sagði hann.
„Við höfum sent einn bát á miðin
til að ná í hrognaloðnu og hann ætti
að koma aftur á miðvikudag en síð-
an sendum við fleiri út í kjölfarið.
Það er loðna alls staðar en þessi
hrognatökuloðna virðist núna vera
á svæðinu frá Vestmannaeyjum að
Reykjanesi," sagði Haukur.
Nánast að veiðum
í innsiglingunni
„Við fengum 800 tonn í Reykja-
nesröstinni en svo dýpkaði á henni,“
sagði Sveinn ísaksson, skipstjóri á
Víkingi AK, í gær og bætti við að
vel gengi hjá bátum við Vestmanna-
eyjar og austur í bugtum. „Menn
eru farnir að huga að hrognum og
spá í hrognatöku," sagði Sveinn.
„Það er engin frysting hjá okkur
núna en hrognatakan er að byrja,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson,
markaðsstjóri Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum. Hjalti Bogason
hjá Fiskimjöli og lýsi í Grindavík
tók í sama streng. „Það er gegndar-
laus veiði og þeir eru nánast að
veiða í innsiglingunni héma en fyrir
vikið er nokkur löndunarbið. Hins
vegar er verið að kreista á fullu.“
Morgunblaðið/Golli
BENEDIKT Kristbjörnsson, löndunarstjóri hjá Fiskimjöli og lýsi í
Grindavík, með sýnishorn af hrognavinnslu gærdagsins.
Morgunblaðið/Sigurgeir
MIKIL loðnuveiði var um helgina og hófst hrognataka m.a. í Vest-
mannaeyjum þar sem stúlkurnar í ísfélaginu höfðu í nógu að snúast.
Fyrirhugnð sala Áburðarverksmiðjunnar rædd á Alþingi
V eldur óvissu um
vetnisframleiðslu
SNARPUR jarðskjálfti, 3,5 á Richt-
er, sem átti upptök í norðanverðum
Eyjafjallajökli, fannst víða á Suður:
landi laust fyrir klukkan 14 í gær. í
.-j_ kjölfarið komu nokkrir minni
skjálftar. Barði Þorkelsson, jarð-
skjálftafræðingur á Veðurstofu Is-
lands, sagði að þetta væri stærsti
skjálfti sem komið hefði á þessum
slóðum í meira en áratug.
Barði sagði að jarðskjálftahi-inur,
sem átt hefðu upptök í Eyjafjalla-
jökli, hefðu komið í gegnum árin.
Það sem væri merkilegt við þessa
hrinu væri hvað fyrsti skjálftinn
hefði verið stór. Hann hefði fundist
vel undir Eyjafjöllum, í Fljótshlíð,
Landeyjum og á Hvolsvelli.
. A Ekkert bendir til eldgoss
Ofan við Varmahlíð undir Eyja-
fjöllum urðu húsráðendur varir við
að klakabrynja, sem myndast hafði
yfir foss í klettunum, hrundi niður
ásamt grjóthnullungum þegar jarð-
skjálftinn reið yfir.
Eyjafjallajökull er virk eldstöð,
'^jæm síðast gaus 1821-23. Barði
sagði að þessi hrina benti ekki til að
eldgos væri að hefjast.
TVEIR þingmenn Framsóknar-
flokksins, þeir Hjálmar Ámason og
Guðni Ágústsson, vöruðu í gær við
sölu Áburðarverksmiðjunnar í
Gufunesi og sögðu hana valda
óvissu um verksmiðjureksturinn
og um áform nýstofnaðs vetnisfé-
lags, Vistorku hf., sem Áburðar-
verksmiðjan á aðild að. Stjómar-
andstæðingar tóku undir gagnrýni
þingmannanna tveggja við utan-
dagskráramræðu um málið á AI-
þingi í gær.
Guðmundur Bjamason landbún-
aðarráðherra sagðist myndu leggja
fram á ríkisstjómarfundi í dag til-
lögu einkavæðingamefndar um að
1.275 milljóna króna tilboði Har-
aldar Haraldssonar yrði tekið.
Hann benti á að það væri 275 millj-
ónum króna hærra en fyrirfram
gefið lágmarksverð.
KEA í áburðarinnflutning?
Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfé-
lagsstjóri KEA, segist gera ráð
fyrir að áburðarinnflutningur auk-
ist á næstunni. Hann útilokar ekki
að KEA hefji eigin innflutning. Ei-
ríkur spáir því að aukin harka fær-
ist í samkeppnina um áburðarsölu.
Markaðshlutdeild Áburðarverk-
smiðjunnar hefur undanfarin tvö
ár verið yfir 90%. Áburðarsala hér
á landi fer að mestu leyti fram í
gegnum umboðsaðila og þar era
KEA, Kaupfélag Árnesinga, Kaup-
félag Borgnesinga og Sláturfélag
Suðurlands umsvifamest. Stærsti
irinflytjandi áburðar er fyrirtækið
Isafold, sem er í eigu Bananasöl-
unnar hf.
■ KEA útilokar ekki/2
■ Varar við sölu/10
Vísa gjald-
heimtu til
Samkeppn-
isstofnunar
STJÓRNENDUR Máls og menn-
ingar ætla að leita allra leiða til að
fá nýrri gjaldskrá fyrir útgáfu og
birtingu gagna frá Landmælingum
Islands hnekkt en þeir telja að
gjaldskráin eigi sér ekki lagastoð.
Hefur lögfræðingum fyrirtækisins
verið falið að skoða málið. Einnig
hefur verið ákveðið að óska eftir
áliti Samkeppnisstofnunar á rétt-
mæti þess hvernig að gjaldtökunni
er staðið, en forsvarsmenn Máls og
menningar telja óeðlilegt að þurfa
að sæta því að sækja sérstaklega
um leyfi til Landmælinga vegna út-
gáfu korta og leggja allar áætlanir
sínar um kortaútgáfu fyrir keppi-
nautinn.
Endurskoðuð gjaldskrá
gagnrýnd
Mál og menning mun síðar í þess-
ari viku gefa út þrjú ný landsfjórð-
ungakort af íslandi og að sögn Hall-
dórs Guðmundssonar, útgáfustjóra
Máls og menningar, var ákveðið að
greiða umrædd leyfisgjöld sam-
kvæmt gjaldskrá Landmælinga
með þeim fyrirvara að íyrirtækið
telji að hún eigi sér ekki stoð í lög-
um og að leitað verði allra leiða til
að fá henni hnekkt.
Umhverfisráðuneytið gaf út
nýja gjaldskrá á síðasta ári fyrir
útgáfu og birtingu gagna frá
Landmælingum á prentuðu formi
sem sætti harðri gagnrýni. Varð
það til þess að gjaldskráin var end-
urskoðuð og hún gefin út að nýju
fyrr á þessu ári. Að sögn Halldórs
er ýmislegt til bóta í nýju gjald-
skránni en þó eru óbreytt þau
grundvallaratriði sem varða gjald-
heimtu og leyfi til kortagerðar og
kortaútgáfu sem fyrirtækið getur
ekki sætt sig við.
„Við geram engan ágreining um
að borgað sé íyrir þau tölvugögn
sem við fáum frá Landmælingum.
Okkur finnst hins vegar hart að
þurfa að borga þennan nefskatt eða
birtingargjald af hverju framleiddu
korti,“ segir Halldór.
Kortin að stærstum hluta
unnin af Máli og menningu
Hann gagnrýnir einnig hvernig
að gjaldtökunni er staðið, en skv.
gjaldskránni þarf að sækja skrif-
lega um leyfi til Landmælinga
vegna útgáfu korta og skýra frá því
í umsókninni hvert sé upplag
þeirra korta sem birta á, stærð og
staðsetning o.fl. Halldór bendir á
að umrædd kort séu að stærstum
hluta unnin af kortagerðarmanni
Máls og menningar. Landmæling-
ar setji hins vegar einhliða skil-
mála fyrir birtingarleyfinu og
ákveði einhliða í hvaða gjaldflokki
fyrirtækið lendi.
„Við teljum að okkar kortagerð-
armaður eigi síst minna í þessum
kortum en þeir og jafnvel meira, því
þótt stuðst sé við hæðarlínur, vötn
og vegi frá þeim, þá er áferð okkar
korta allt önnur en þeirra og þau
era teiknuð fyrir okkur og engan
annan. Blaðskiptingin er önnur en
tíðkast hefur, mælikvarðinn er ann-
ar en hefur verið á þeirra kortum
og bakhliðin er sérstaklega unnin
fyrir okkur, þar sem eru myndir af
helstu ferðamannastöðum og upp-
lýsingar á fjóram tungumálum.
Engu að síður innheimta þeir gjöld
af okkur nánast eins og við séum að
gera sérútgáfu af þeirra kortum,“
segir Halldór.