Morgunblaðið - 04.03.1999, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 15
Alþjóðlegur
bænadagur
kvenna
ALÞJÓÐLEGUR bænadagur
kvenna er á fostudag, 5. mars, en
þann dag hittast konur hvarvetna
og biðja fyrir sameiginlegu málefni
og njóta samfélags hver við aðra. í
ár verður sérstaklega beðið fyrir
kristnum konum í Venezúela. Af því
tilefni verður bænasamkoma í
Akureyrarkirkju kl. 20.30 á
föstudagskvöld og eru allar konur
velkomnar. Samkoman er skipulögð
af konum í öllum trúfélögum og
ætluð öllum þeim sem vilja eiga
samfélag við aðrar kristnar konur
og leggja sitt af mörkum til að bæta
hag kvenna í Venezúela.
Fyrir 55 ára og eldri
Skúlagata 40A „penthousea
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 163 fm
„penthouse“- íbúð á tveimur hæðum ásamt
stæði í bílgeymslu. Tvennar svalir. Sólstofa.
3 svefnherb. 2 glæsileg baðherb. Stór stofa
og borðstofa. Parket, marmari og fiísar á
gólfum. Gegnheilt mahóní handrið á milli
hæða. Sveinbjörn og Birna taka á móti
ykkur frá kl. 14.00 í dag.
Fasteignasalan Gimli,
Þórsgötu 26, sími 552 5099.
Tríó Ólafs
Stephensen
í Deiglunni
TRÍÓ Ólafs Stephensen leikur á tón-
leikum á vegum Jazzklúbbs Akur-
eyrar á heitum fimmtudegi í kvöld,
fímmtudagskvöldið 4. mars, en þeir
hefjast kl. 21.
Þeir félagar Tómas R. Einarsson,
Guðmundur R. Einarsson og Ólafur
Stephensen eru löngu landsþekktir
fyrir skemmtilegar útfærslur á „al-
þýðulögum" sem þeir hafa fært í
sveiflubúning. Einkunnarorð þeirra
hafa verið að hafa ánægjuna í fyrir-
rúmi og kemur það heim og saman
við þær vinsældir sem tríóinu hafa
hlotnast.
Tríóið hefur leikið saman í um tíu
ár og víða farið, m.a til Bandaríkj-
anna, Grænlands, Suður-Ameríku,
Malasíu og Taílands. Þeir leika lög
úr kvikmyndum, gömul kúrekalög,
kurteislegar blússtrófur, dægurflug-
ur, þjóðlög, sálmalög og lög úr
smiðju Atla Heimis, Mozarts og Ell-
ingtons. A hverjum tónleikum flytja
þeir eitthvert nýtt efni sem mótast
af þeirri stemmningu sem skapast
hverju sinni.
Nokkur fyrirtæki á Akureyri eru
aðalfjárstoð tónleikanna, Búnaðar-
bankinn, Café Karólína, Fosshótel,
Rarik, Pricewater-housecoopers og
VSÓ ráðgjöf Akureyri. Aðgangseyr-
ir er innifalinn í árgjaldi félaga í
Jazzklúbbi Akureyrar og þá er
ókeypis fyrir skólafólk, en annars er
aðgangseyrir 1.000 krónur. Tríóið
djassar fyrír Þingeyinga á Hótel
Húsavík á fóstudagskvöld kl. 21.
----------------
Veðurklúbburinn á Dal-
bæ í Dalvíkurbyggð
Mikill snjór
í mars
„ÞAÐ á eftir að snjóa meira og þó
uokkuð meira,“ segir í spá Veður-
klúbbsins á Dalbæ fyrir marsmán-
uð og þykir mörgum þó nóg kom-
ið. Febrúarspá klúbbsins gekk vel
eftir og nú hafa félagarnir í
klúbbnum spáð f veðrið í mars þó
erfiðlega hafi gengið að kalla sam-
an fund þar sem 90% klúbbfélaga
hafa legið í rúminu vegna veik-
inda.
Gangi spá félaganna eftir mun
snjóa mikið í mars og veðrinu
svipa til þess sem var í sfðasta
mánuði. Seinni hluti mánaðarins
verður vindasamur, jafnvel vest-
lægar áttir, en nú í fyrri hluta
hans verður meira um norðlægar
áttir. „Við getum átt von á tveimur
góðum hríðarskotum og gæti ann-
að skotið slegið hátt upp í veðrið
um og eftir miðjan febrúar," segir
í spá klúbbfélaga. Útivistarfólk
geti átt von á örfáum góðum og
björtum dögum og þá eins gott að
grípa tækifærið.
Miðað við það hvernig veðrið á
Góunni byrjaði eru félagarnir á
Dalbæ sannfærðir um að sumarið
verði gott en einnig má nefna að
þeir spá því að jarðskjálftar verði í
fréttum f þessum mánuði.
Þú átt leik
Tcfldu á mátnetinu
Þú getur teflt á netinu.
Þú getur skorað á fólk í skák.
Þú getur farið yfir skákir þínar að leik loknum.
Þú getur fylgst með skákum annarra.
Við gefum skákstig og höldum lista yfir stigahæstu skákmenn.
Við höldum skákmót.
Það kostar ekkert að vera með.
mim
MÁTNETIÐ
matnet.simnet.is
Það er markmið Símans Internet að auka möguleika Internetnotenda
til samskipta sín á milli. Við erum leiðandi í að prófa og kynna nýjar
aðgangsleiðir inn á Internetið. Skákþjónninn er ein af leiðunum til þess.
Mátnetið er samstarfsverkefni Símans Internet og Skáksambands íslands.
SKÁKSAMBAND
ÍSLANDS
SÍMINNi.ntérnet>
www.simnet.is