Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 27

Morgunblaðið - 04.03.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 27 Glæsilegur píanóleikur Englar alheimsins Súrefiiisyörur Karin Herzog Kynning TOMJST Salurinn PÍANÓTÓNLEIKAR Þorsteinn Gauti Sigurðsson flutti verk eftir Gershwin, Satie, Beet- hoven, Chopin og Barber. Þriðjudag- inn 2. mars. PÍANÓTÓNLEIKAR gerast nú sjaldgæfir en voru aðaluppistaðan í tónleikahaldi Tónlistarfélagsins fyrrum og þá oftast, að erlendir pí- anóleikarar í heimsklassa voru þar á ferð. A seinni árum hefur tón- leikahald tekið miklum breytingum og margvísleg kammer- og söng- tónlist er orðin fyrirferðarmikil. Það eru því nokkur tíðindi að Þor- steinn Gauti Sigm'ðsson skuli halda einleikstónleika, enda sýndu tón- leikagestir áhuga sinn og komust færri að en vildu. Tónleikarnir hófust á þremur prelúdíum eftir Gershwin, sem eru ágætlega samin smáverk, og þótt Gershwin hafí samið tvo píanó- konserta er í raun sorglegt til þess að vita, að honum entist ekki aldur til að semja meira fyrir píanóið, sem var hans hljóðfæri. Gershwin var einn af þessum snillingum sem voru í raun lengi að „finna sig“ eins og sagt er, fór alfaraleið fyrst fram- an af en hafði þó séð sig um hönd og fundið að litróf listarinnar var margbreytilegra en fólgið var í ein- faldri lagsmíði. Þorsteinn lék þess- ar elskulegu prelúdíur nokkuð frjálst í hryn, ekki eins taktnjörvað og djassistar vilja, en fallega. Sama má segja um „Gnossíuna“ nr. 1 eftir Eric Satie. Þessi einfalda tveggja hljóma tónsmíð var fallega flutt. Lagið er í f-moll og þótt einu sinni sé snert við c-moll-hljómi er hljóm- skipanin aðeins I. og IV. sæti (f- og b-moll-hljómar). Auk sérkennilegs tónmáls voru yfirskriftir og leið- beiningarorð um Ieikmáta oft mjög óvenjuleg hjá Satie. Þrátt fyrir að Satie vildi vinna gegn öllu prjáli og tildurmennsku er tónlist hans ef til vill aðeins prjál og tildurmennska í sakleysilega tilbúnum búningi. Þriðja verkefni tónleikanna var Tunglskinssónatan op. 27 eftir Beethoven, mikið skáldverk, sem erfitt er að nálgast og túlka. Leikur Þorsteins var að mörgu leyti fallega mótaður, svolítið haminn og á köfl- um látlaus, þótt tekið væri oft nokkuð á í lokakaflanum. Þarna er vandamálið ekki að öllu leyti tækni- legt, heldur túlkunin, sem leiðir frá Þóra B. Jónsdóttir sýnir í Fjarðarnesti ÞÓRA B. Jónsdóttir opnar mynd- listarsýningu í Fjarðarnesti, Hafii- arfirði, á laugardag, kl. 15. Þóra er fædd og uppalin á Eyri í Skötu- firði. Hún fluttist til Hafnarfjarðar 1966 og hefur búið þar síðan. Hún stundaði nám við Myndlistaskóla Hafnarfjarðar á árunum 1993-1994, hún hefúr tekið þátt í samsýningum en þetta er hennar fyrsta einkasýning. Myndefni hennar er m.a. sótt í vestfirsk björg og fjöll og má þar nefna Látrabjarg, Hornbjarg, Hælavík- urbjarg o.fl. En sjón er sögu rík- ari. Sýningin stendur til 9. apríl. Kvikmyndasýning Goethe-Zentrum ÞÝSKA kvikmyndin Rossini frá ár- inu 1997 verður sýnd í Goethe- Zentrum, Lindargötu 46, í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30. Tríó Suður- lands í Þor- lákshöfn TRÍÓ Suðurlands heldm' tón- leika í Þorlákshafnarkh'kju sunnudaginn 7. mars og hefjast þeú' kl. 16. Tríóið skipa Agnes Löve píanóleikari, Ásdís Stross fiðluleikari og Gunnar Björns- son sellóleikari en á efnisskrá eru Trio nr. 25 í G-dúr eftir Ha- ydn og Trio op.l nr. 3 í c-moll eftir Beethoven. Myndin hlaut Þýsku kvikmynda- verðlaunin sem besta mynd en einnig fyrir bestu leikstjórn og bestu klippingu. Rossini er háðsá- deila á líferni fræga fólksins í þýska kvikmyndageiranum þar sem allt snýst um kynlíf, peninga, framapot og misheppnuð ástarsambönd. Meðal þekktra leikara í myndinni eru Götz George, Gudrun Land- grebe og Mario Adorf en leikstjóri er Helmut Dietl og skrifaði hann einnig handritið ásamt Patrick Siis- kind, höfundi Ilmsins. Myndin er með enskum texta og aðgangur er ókeypis. mbl.is hugleiðslu 1. þáttar yfir í tragikó- mískan annan þáttinn, er svo brýst út með hamsleysi tilfinninganna í lokaþættinum. Að þessu leyti er þetta einstæða verk erfitt í flutn- ingi. Þorsteinn náði oft fallega mót- uðum tónlínum en ef til vill þó með frekar látlausum hætti. Eitt atriði var sérkennilegt og það var tón- mótun „aðalstefsins“ í fyrsta þætt- inum, sem var sérkennilega tón- stutt og ekki eins syngjandi og hjá mörgum píanistum, Þetta setti nokkuð sérkennilegan blæ á þátt- inn í heild. Eftir hlé reyndi meira á tæknina í glæsilegum etýðum Chopins, nr. 4, 6 og 8, úr æfingum op. 10, sem eru fingra-glæsiverk; nr 4 krómatískar leiktæknibrellur fyrir báðar hendur og nr. 8 yfir fjögurra áttunda hljómaleikur fyrir hægri höndina, á móti skemmtilegri laglínu í vinstri hendi, og nr. 6, sem er andstæða hinna, og þar leikur Chopin með laglínu á móti kontrapunktískri millirödd. Allt lék þetta í höndum Þorsteins Gauta og þótt gaman væri að heyra glæsileik hans í nr. 4 og 8 var leikur hans ekki minna um verður í þeirri sjöttu, sem hann „söng“ mjög fallega. Lokaverkið var stórsónatan eftir Samuel Barber, sem Þorsteinn Gauti lék af þvílíkum glæsibrag, að til þess verður að jafna með því sem best hefur heyrst héðra. Verkið er margslungið, kraftmikið með marg- breytilegum texta, sem er tematískt unninn, og lýkur verkinu á ævin- týralegri fúgu, sem að lokum leiðir yfir í stórsinfónískan endi. Flutn- ingur Þorsteins Gauta á þessu stór- brotna verki var glæsileg „yfirlýs- ing“ um að hann er óumdeilanlega okkar stórpíanisti. Jón Asgeirsson á spænsku ENGLAR alheimsins, verðlauna- skáldsaga Einars Más Guðmundsson- ar, er komin út á spænsku í þýðingu José Antonio Fernández Romero. Bókin nefnist í þýðingunni Ángeles del universo. Ut- gefandi er Ed- iciones Siruela. Þýðandinn er kunnur á Spáni. Hann hlaut fyrir nokkru helstu þýðendaverðlaun Spánar fyrir þýð- ingar íslenskra ljóða sem komu í safnritinu Poetica Nordica. Að auki hefur Femández Romero þýtt m.a. Islendingasögur, þjóðsögur, skáld- verk eftir Halldór Laxness og úrval ljóða eftir Jóhann Hjálmarsson sem kom út í fyrra. íslenskar samtímabókmenntir njóta vaxandi athygli á Spáni. Þess má geta að í nóvember eða desember á þessu ári kemur skáldsaga Guð- bergs Bergssonar, Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma, hjá Tuscet-út- gáfunni í þýðingu Enrique Bemárdez, en fleiri verk eftir Guðberg hafa kom- ið út á Spáni. --------------- Sýningum lýkur SÝNINGU á ljósmyndasamkeppn- inni Ljósbrot í Gallerí Geysi lýkur sunnudaginn 7. mars. Vinningshafar vom Vax, frá Menntaskólanum á Akureyri, fyrir besta heildarsvip þemans og Þorlákur Jónsson, Iðn- skólanum í Reykjavík, fyrir bestu mynd keppninnar. Opið frá 12-18 fóstudag, laugardag og sunnudag. Aðgangur ókeypis. Einar Már Guðmundsson í dag kl. 14—18 í Apóteki Ólafsvíkur, Ingólfs Apóteki, Krínglunni, Snyrtistofuríhf Paradís, Laugarnesvegi 82, og Apótekinu tðufelli. Kynningarafsfáttur Kyolic h vftl auksaf urðin - fyrir heilsuna Ef þú gerir þær kröfur til lyfja aö þau séu vel rannsökuð og geri gagn, því ekki aö gera sömu kröfur til fæöubótarefna? Þaö gerum við. Élhei Isuhúsið mælir meö KYOLIC Heimasíöa: www.kyolic.com Dreifing: Logaland ehf. SALOMON AXENDO 7.5 Nýiasta kynslóð carving sklðanna frá Salomon. Frábaer skfði sem eru bæði stööug og með SALOMQN PERF góðir skór fyrir og meðalgoða. jþaegilegur og a Ifara i og úr hor Dömu-og herra Litir: svart og h mikla kanteiginleika. með bindingum HEAD CARVE 7X Létt og leikandi carving skíði með miklum stöðugleika fyrir bæði mikinn og minni hraða. án bindinga SALOMON EVOLUTION topp skíðaskór fyrir krefjandi sklðafólk. Dömu- og herraskór ROSSIGNOL BANDIT Nýjustu carving og „freeride" skíðin frá Rossignol. Þau njóta sín vel innan og utan brautar. NORDICA NEXT EXOPOWER 6.0. Tæknilegur skór með mikil þægindi. Álsmellur og flísfóður að innan. án bindinga RgttsMlg' TEClVICA ^jyiAosbus TECNO Raðgreiðslur Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.