Morgunblaðið - 04.03.1999, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1999 43
Safnaðarstarf
Alþjóðlegur
bænadagur
kvenna
UM allan heim koma kristnar konur
saman til bæna fyrsta fbstudag í
mars ár hvert.
Hér á Islandi hafa konur komið
saman þennan dag áratugum saman
til að biðja fyrir fólki í fjarlægum
löndum, konur úr mörgum kirkju-
deildum og á öllum aldri.
Sem fyrr verða bænastundir víða
um land í tilefni bænadagsins. I
Reykjavík verður haldin samkoma í
Háteigskirkju að kvöldi föstudagsins
5. mars kl. 20.30. Að henni standa
konur úr Aðventkirkjunni, Aglow
Reykjavík, Fríkirkjunni í Reykjavík,
Hjálpræðishernum, Hvítasunnu-
kirkjunni, Kaþólsku kirkjunni,
KFIJK, Kristniboðsfélagi kvenna og
Þjóðkirkjunni. Orgelleikari er Sig-
rún Eckhoffs og Sigrún Jónsdóttir,
13 ára, leikur á fíðlu. Stjómandi er
Katla Kristín Ólafsdóttir ásamt sr.
Maríu Agústsdóttur. Ræðukonur
eru þrjár, Þórdís Agústsdóttir, for-
maður KFUK, Ásgerður Margrét
Þorsteinsdóttir frá Hvítasunnukirkj-
unni og Norunn Rasmussen frá
Hjálpræðishernum í Noregi. Bæði
konur og karlar eru hjartanlega vel-
komin í Háteigskirkju á Alþjóðleg-
um bænadegi kvenna.
Dr. Einar
Sigurbjörnsson
í Hafnarfjarðar-
kirkju
DR. EINAR Sigurbjömsson, pró-
fessor í trúfræði, heldur fræðsluer-
indi í Strandbergi tvo laugardags-
morgna í mars. Þann 6. mars mun
hann fjalla um kristna guðsmynd og
trú og 13. mars mun hann fjalla um
gmnnstef Passíusálma Hallgríms
Péturssonar. Erindin hefjast kl. 11.
Að þeim loknum er boðið upp á sam-
ræður og léttan hádegisverð þátttak-
endum að kostnaðarlausu.
Fyrir nokkmm missemm flutti
faðir Einars, dr. Sigurbjöm Einars-
son, biskup, fræðslueeiindi á laugar-
dagsmorgnum um guðrækni og
kristna íhugun í Hafnarfjarðai'kirkju
og Strandbergi. Fjöldi manns sótti
þessi merku erindi og var mjög góð-
ur rómur gerður að þeim. Þess er
vænst að þessi fræðsluerindi dr. Ein-
ars verði líka vel sótt.
Altaris-
sakramentið
FIMMTUDAGINN 4. mars kl. 20.30
verðui- fræðslukvöld í Seljakirkju.
Þar flytur sr. Valgeh- Ástráðsson er-
indi um innihald og merkingu altar-
issaki-amentisins. Erindi þetta er hið
fjórða og síðasta í röð erinda á veg-
um Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra um helgihald kh-kjunnar og
helstu áherslupunkta þess.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
umræður og kaffi á eftir.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14-17. Biblíulestur kl. 20.30 í
safnaðarheimili Áskirkju. Jóhannes-
arbréf lesin og skýrð. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgnar kl.
10-12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa í safnaðarheimilinu á milli
kl. 14-16.
Hallgrimskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, íhugun, altaris-
ganga. Léttur málsverður í safnað-
arheimili eftir stundina. Fundur
Kvenfélags Hallgrímskirkju kl. 20.
Elísabet Sigurgeirsdóttir flytur er-
indi í máli og myndum um Halldóru
Bjamadóttur. Dómhiidur Jónsdóttir
segir frá kynnum sínum af Halldóru
og Björg Þórisdóttir les ljóð eftir
uppáhaldshöfund Halldóru, Matthías
Jochumsson. Gestir velkomnir.
Iláteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára
böm kl. 17. í auga stormsins, kyrrð,
íhugun, bæn, lofsöngur og fræðsla.
Kl. 19.30 innri íhugun. Kirkjan opn-
uð kl. 19.15 til kynningar fyrir þá
sem era að koma í fyrsta skipti. Kl.
20.15 trúarreynsla - fræðsla, kl. 21
Taizé-messea.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra yngri barna kl. 10-12. Fræðsla:
Umhirða húðar. Jóna Margrét Jóns-
dóttir, hjúkranarfræðingur. Söng-
stund. Passíusálmalestur og bæna-
stund kl. 18.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Gunnar Gunnarsson leikur á
orgel frá kl. 12. Léttur málsverður
að stundinni lokinni. Samvera eldri
borgara kl. 14. Hróbjartur Amason
guðfræðingur frá Viðskipta- og
tölvuskólanum flytm- erindi um eldri
borgara og tölvutækni.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
laugardag 6. mars kl. 15. Farið í
Gerðasafn í Kópavogi og sýning
Svölu Þórisdóttur Salman skoðuð.
Allir velkomnir. Þátttaka tilkynnist í
síma 511 1560 í dag og á morgun
föstudag milli kl. 10-12.
Selljarnameskirkja. Passíusálma-
lestur kl. 12.30. Starf fyrir 9-10 ára
böm kl. 17-18.15.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Fræðsluerindi í prófastsdæminu fyr-
ir almenning sem verða í Seljakirkju
í febrúar og marsmánuði á fimmtu-
dögum kl. 20.30 og munu fjalla um:
Táknmál kirkjunnar. Sr. Valgeir
Ástráðsson flytur erindið í kvöld sem
nefnist: „Altarissakramentið“. Um-
ræður um efnið og kaffi á eftir.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn
á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar
kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdóttur
og Bjargar Geirdal. Leikfimi aldr-
aðra kl. 11.15. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18. Bænarefnum má koma
til sóknarprests eða kirkjuvarðar,
einnig má setja bænarefni í bæna-
kassa í anddyri kirkjunnar.
Felia- og Hólakirkja. Starf fyrir 11-
12 ára kl. 17.
Grafarvogskirkja. Mömmumorgnar
kl. 10-12. Áhugaverðir fyrirlestrar,
létt spjall og kaffi og djús fyrir börn-
in. Kyrrðarstundir í hádegi kl. 12.10.
Orgelleikur, fyrirbænir, altarisganga
og léttur hádegisverður.
I-Ijallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf
fyrir 7-9 ára böm kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf eldri borgara
í dag kl. 14-16 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Fyrirbænaefnum má
koma til prests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Fundur KFUM fyrir 9-
12 ára stráka er í dag kl. 17.30.
Fræðslukvöld kl. 20.30 fyrir almenn-
ing. Sr. Valgeh' Ástráðsson fjallar
um altarissakramentið.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 10-12 ára böm frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Æskulýðsfundur kl. 20-22.
Hafnarfjarðarkirkja.
Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar-
höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára kl. 17-
18.30 í Vonarhöfn.
Vídalínskirkja. Bæna og kyrrðar-
stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bibl-
íulestur kl. 21.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgun
milli kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12
árabörnkl. 17-18.30.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl.
18.30. ,
Keflavíkurkirkja. Æfingar ferming-
arbarna í kirkjunni. Þau sem ferm-
ast 21. mars kl. 10.30 komi fimmtu-
daginn í kirkjunni kl. 14.30 og þau
sem fermast 21. mars kl. 14 komi í
kirkjuna kl. 15.10. Þau sem fermast
28. mars kl. 10.30 komi í kirkjuna kl.
15.50 og þau sem fermast 28. mars
kl. 14 komi í kirkjuna kl. 16.30.
Kirkjan opin kl. 16-18. Kyrrðar-, fyr-
irbæna- og fræðslustund í kirkjunni
kl. 17.30-18. Sr. Ólafur Oddur Jóns-
son ræðir um ábyrgð fjölmiðla.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
14.30 helgistund á sjúkrahúsinu i
dagstofunni á 2. hæð. Kl. 17 TTT7‘
Kirkjustarf 10-12 ára krakka. Kl.
20.30 opið hús í unglingastarfinu í
KFUM & K húsinu.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 lof-
gjörðarsamkoma. Ofurstarnh- Nor-
unn og Roger Rasmussen.
© Husqvarna
■1
Husqvarna heimilistækin eru
komin aftur til landsins.
Þau taka á móti gestum í
verslun okkar alla virka daga
frá 9:00- 18:00.
Endurnýjum góð kynni!