Morgunblaðið - 13.04.1999, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 21
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda hf.,
um hagræðingu við sölu sjávarafurða
Hagræðing næst
ekki án breytinga
BRYNJÓLFUR Bjarnason, for-
stjóri Granda hf., sagði á aðalfundi
félagsins síðastliðinn fóstudag, að
sú hagræðing sem fram fer í fram-
leiðslufyrirtækjum og verslunar-
fyrirtækjum erlendis krefðist sömu
hagræðingar við sölu afurða. Þetta
kalli á skjóta og skilvirka boðleið
milli framleiðenda og söluaðila
þeirra, en slíkum hagræðingum
verði ekki náð án verulegra breyt-
inga á viðhorfum og fyrirkomulagi
á sölu sjávarafurða.
Trú á að breyting
hjá SH hafi verið til góðs
Brynjólfur vék að því í máli sínu
á aðalfundinum að skiptar skoðanir
hafi verið um stefnu Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna hf. eftir að fé-
laginu var breytt í hlutafélag 1.
janúar 1997, en þá var í sjö ár búið
að ræða um breytingu á félaginu úr
framleiðslusamvinnufélagi í hluta-
félag.
Rifjaði Brynjólfur upp það sem
hann sagði á aðalfundi Granda hf.
4. apríl 1997, en þar sagði hann:
„Með breytingu á SH í hlutafélag
var afnumin sú afurðasöluskylda
sem gilt hafði í fyrra félagsformi,
þ.e. að meðlimir væru skyldugir að
afhenda til sölumeðferðar allar
frystar afurðir sínar. Við breytt
fyrirkomulag eru gerðir viðskipta-
samningar um sölu afurða eftir
mörkuðum og fisktegundum. Það
er trú okkar að hið nýja félagsform
muni efla og styrkja Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna til þeiiTa starfa,
að markaðssetja afurðir Granda
við sem hæst verð.“
Gríðarleg samkeppni
Brynjólfur sagði að það væri enn
skoðun sín að þessu fyrirtæki hafi
verið heillavænlegt að breyta fé-
lagsformi sínu þó fyrr hefði verið, í
þeim tilgangi að standast sam-
keppni á alþjóðlegum sjávaraf-
urðamarkaði og ná fram arðsemi í
rekstri sínum.
„Gríðarleg samkeppni er í öllum
þjóðfélögum og verðum við Islend-
ingar varir við það í almennum fyr-
irtækjarekstri og ekki síst í sjávar-
útvegi. Það sama gerist á erlendum
mörkuðum, þar sem mikil sam-
þjöppun verður á kaupendum okk-
ar afurða. Sú hagræðing sem fram
fer í framleiðslufyrirtækjum og
verslunarfyrirtækum erlendis
krefst sömu hagræðingar við sölu
afurða. Þetta kallar á skjóta og
skilvirka boðleið milli framleiðenda
og söluaðila þeirra, sem þurfa að
stunda öflugt vöruþróunar- og
markaðsstarf. Við skulum vona að í
tæka tíð takist að ná fram slíkum
hagræðingum, en það verður ekki
án verulegra breytinga á viðhorf-
um og fyrirkomulagi á sölu sjávar-
afurða," sagði Brynjólfur.
Veltikort Visa í notkun
HANDHOFUM kreditkorta hjá
Visa ísland gefst nú kostur á að
breyta kortum sínum í Veltikort,
þar sem korthöfum er í sjálfs-
vald sett hversu mikið greitt er
af hverri mánaðarúttekt svo
fremi sem um er að ræða 5.000
krónur að lágmarki, eða 5% auk
vaxta.
Korthafar geta óskað eftir að
breyta núverandi kreditkortum í
Veltikort, eða fá viðbótarkort
með veltisniði. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Visa er yfirstand-
andi tímabil, það er frá 18. mars
síðastliðnum til 18. apríl
næstkomandi, fyrsta kortatíma-
bil Veltikortanna sem innheimt
verður fyrir um næstu mánaða-
mót.
Vélaviðgerðir
Stórás 6 »210 Garðabæ
sími 569 2100 • fax 569 2101
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
HÉÐINN
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS
Hádegisveróarfundur
Er gengi hlutafjár í
tölvufyrirtækjum raunhæft?
Hótel Loftleiðum, Vikingasal,
15. april 1999 kl. 12.00-14.00
Mikill hækkun hefur verið á gengi hlutabréfa í tölvufyrirtækjum og virðist
sú hækkun vera varanleg. Þessi hækkun er ekki islenskt fyrirbæri því að
hlutafé í Internetfyrirtækjum hefur margfaldast á stuttum tíma.
• Hvernig á að meta slík fyrirtæki?
• Hverjar eru ástæður hækkunar undanfarið?
• Standa fyrirtækin undir væntingum?
• Gefur útrás von um hærra veró?
• Eru fjárfestar að flýja sjávarútveginn og flytja sig yfir i
tölvufyrirtækin?
Fyrirlesarar
Frosti Bergsson, Opnum kerfum hf.
Bjarni Þorvarðarson, FBA
Vilhjálmur Þorsteinsson, C0DA á ístandi hf.
Þátttökugjöld - hádegisverður innifatinn
5.500 kr. fyrir utanfélagsmenn
4.300 kr. fyrir fétagsmenn SÍ
Skráning
Þátttaka tilkynnist Skýrslutæknifétagi íslands í síðasta lagi
14. apríl 1999. Simi 553 2460, netfang sky@sky.is
Æ
9
Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið
M
SBVRISJÓIXJRLNN
-fyrirþigogþírm
JÉl
Isœ
Verkefnisstjóm um
upplýsingasamfólagið
© SAMTÖK
IÐNAÐARINS
0
ICEPRO
nefnd um
rafræn viðskipti
verslunarrAð Islands
Samtök í viðskipta- og atvinnulífi, ásamt iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytinu og Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið, boða til opinnar
ráðstefnu um rafræn viðskipti í nútíð og framtíð á Hótel Loftleiðum,
þingsal 1-4, á morgun, miðvikudaginn 14. apríl 1999, kl. 08:45-11:45.
08:45
09:00
09:10
09:45
10:05
10:30
10:50
11:10
11:30
11:45
Skráning
Setning
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
ísiensk löggjöf og alþjóðaþróun með tilliti til rafrænna viðskipta
GunnarThoroddsen og Skúli Magnússon, lögfræðingar
Upplýsingasamfélagið og vinnumarkaðurinn
Magnús Norðdahl, lögmaður ASÍ
Kaffihlé
Agaðri vinnubrögð, aukin arðsemi, fleiri sóknarfæri
Kolbeinn Kristinsson, formaður Verslunarráðs íslands
Rafræn bylting í bankaviðskiptum
Halldór J. Kristjánsson, formaður Sambands íslenskra viðskiptabanka
Skýrar leikreglur stuðla að framgangi rafrænna viðskipta
Finnur Ingólfsson, viðskiptaráðherra
Samantekt
Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskips
Ráðstefnulok
Tilkynningar um þátttöku berist með símbréfi eða tölvupósti til ráðstefnudeildar
Ferðaskrifstofu íslands fyrir klukkan 13 í dag, 13 apríl. Símbréf 562 3345, netföng:
lara@itb.is, gudrunb@itb.is og olof@itb.is. Ráðstefnugjald er kr. 5000.