Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 + Guðrún Sig- mundsdóttir fæddist á Mel í Hraunhreppi í Mýr- arsýslu 9. maí 1913 og ólst upp í Fífl- holtum í Hraun- hreppi. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 4. aprfl síðast- Iiðinn. Foreldrar hennar voru Sig- mundur Guðmunds- son og Soffía Krist- jánsdóttir. Bróðir Guðrúnar var Krist- ján, f. 12. janúar 1916, d. 18. janúar 1993. Hinn 13. janúar 1940 giftist Guðrún Guðmundi Gíslasyni, f. Elskuleg amma okkar, Guðrún Sigmundsdóttir, er látin. Okkur langar að minnast hennar í fáein- um orðum. Amma var okkur mjög kær og mun hún ávallt eiga stóran hlut í hjörtum okkar. Amma átti stórt hjarta og nutum við alltaf góðs af því. Hún var amman sem allir hefðu viljað eiga og var það okkar lán að fá að njóta hennar í öll þessi ár. Aldei komum við að tómum kof- anum hjá ömmu, alltaf var hún til staðar með heimalagað bakkelsi og bros á vör. Ofáar stundir áttum við með henni þar sem hún sat með 15.8. 1908. Börn þeirra eru: 1) Bryn- liildur, f. 21.8.1944, gift Guðmundi Garðarssyni. Þau eiga finim dætur. 2) Gísli, f. 4.3. 1951, kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur. Þau eiga tvær dætur. 3) Sig- mundur, f. 7.5. 1955, kvæntur Agústu Björgvinsdóttur. Þau eiga þijú börn. Fyrir átti Sigmund- ur son. Barnabörn- in eru fjögur. Útför Guðrúnar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnm klukkan 14. okkur og kenndi okkur að prjóna og hekla. Lagði hún mikla áherslu á það að handavinnan væri vel unnin og frágangur til sóma. Það er með ólíkindum hvað þessi hægláta kona hefur afkastað miklu í gegnum tíðina af hannyrð- um. Sem dæmi má nefna að nú þegar hún er fallin frá lætur hún eftir sig að minnsta kosti tveggja ára birgðir af sjónvarpssokkum handa yngstu börnunum sem segja má að hafi verið hennar aðall alla tíð. Einnig var hún byrjuð á handavinnu sem gefa átti í jóla- gjafir næstu jól. Við erum svo MINNINGAR lánsamar að eiga marga fallega hluti eftir hana sem piýða heimili okkar. Amma var mjög vel gefin kona, mannglögg, ættfróð og fylgdist ætíð vel með því sem fram fór í þjóðfélaginu. Hægt var að setjast niður með henni og spjalla um daginn og veginn. Var það með eindæmum hve hugur hennar var skýr þar til hún háði sína lokabar- áttu. Það sem situr fastast í huga okkar er hve vel hún fylgdi okkur eftir í lífi og starfi og er það með eftirsjá sem við kveðjum elskulega ömmu okkar. Megi hún hvfla í friði. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatáiin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Asa, Guðrún, Sara, Anna og Helga. GUÐRUN SIGMUNDSDÓTTIR JON STEFÁNSSON + Jón Stefánsson fæddist í Reykjavík 10. júní 1965. Hann lést af slysförum 3. aprfl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 12. aprfl. Á páskadagsmorg- un barst mér sú fregn til útlanda að Jón Stefánsson, vinur minn og vinnufélagi, hefði farist í snjófíóði. I fyrstu trúði ég því ekki og fannst að hann hlyti að hringja í mig eins og vanalega. Við töluðum síðast saman á miðvikudagskvöld fyrir páska og þá sagðist hann ekki myndu klára verkefnið sem hann var að vinna fyrir mig fyrr en eftir helgina því hann ætlaði í frí með fjölskyldunni. Hann hafði margoft hvatt mig til að gera það sama, sagt mér umbúðalaust að ég væri vitleysingur að taka mér aldrei frí. Hann gladdist því mjög þegar ég ákvað að fara með fjölskylduna til útlanda í fyrsta skipti í rúm tíu ár. Hann sagði að maður ætti ekki bara að vinna heldur njóta lífsins og leika sér. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir 12 árum þegar ég var nýbyrj- aður í rekstri. Hann var þá rétt rúmlega tvítugur. Ég var búinn að reyna við annan mann að ná stelli undan vörubfl þegar hann kom til bjargar. Hann lagðist undir bflinn, hamaðist og öskraði í hálftíma, kom þá rennsveittur og kolsvartur af sldt og kallaði „hífa!“. Það tók hann sem sagt aðeins hálftíma að gera það sem tveimur mönnum hafði ekki tekist á einum og hálf- um degi. Svona voru öll hans vinnubrögð. Krafturinn var óeðli- lega mikill. Þeir sem þekktu hann eru örugglega sammála um að hann hafi afkastað á við tvo til þrjá menn. Þá var hann bóngóður með afbrigðum og taldi ekki eftir sér að mæta á laugardagskvöldum eða sunnudagsmorgnum. Við hringd- um og báðum um aðstoð, hann kom og hló að okkur aumingjunum fyrir að geta ekki bjargað okkur. Svo reddaði hann öllu á augabragði. Það var ekki einasta að hann væri fljótur að koma tækjum aftur í vinnu, sem helst máttu ekki hætta að snúast, heldur lagði hann sig í framkróka við að útvega vara- hluti og leysa vanda- málin á sem hag- kvæmastan hátt. í þeim efnum var hann ótrúlega úrræðagóð- ur. Jón var seintekinn og alls ekki allra en þegar maður var kominn inn fyrir skelina komst maður að því að hann var tilbúinn til að fórna sér fyrir mann og að hann mátti ekkert aumt sjá. Honum var ekki aðeins umhugað um að rekst- urinn hjá mér gengi vel heldur bar hann hag fjölskyldu minnar einnig fyrir brjósti. Þegar ég sagði hon- um að nýfædd dóttir mín væri óvær á nóttunni einsetti hann sér að leysa það vandamál. Hann kom margar ferðir heim og mældi jai-ð- arspennu í húsinu, setti upp við- nám og hafði svo samband til að vita hvernig sú litla svæfi. I þessum heimsóknum hans var ýmislegt rætt. Hann hafði gaman af að spjalla um pólitík og var oft yfirlýsingaglaður. Skemmtilegast fannst honum að hleypa okkur upp og þegar honum tókst vel til hló hann ógurlega. Hann uppskar í staðinn að vera í stríðni kallaður komminn á Kjalarnesinu og fannst það voðalega sniðugt. Hann gat alltaf baunað einhverju á íhaldið í staðinn. Ég hugsa til Jóns með miklum söknuði. Skarð hans verður aldrei fyllt. Eiginkonu, sonum og öðrum ættingjum votta ég mína dýpstu samúð. Gísli Hjartarson. JOHANN GUÐMUNDUR ÞOR VALDSSON + Jóhann Guð- mundur Þor- valdsson fæddist í Reykjavík 19. júlí 1940. Ilann lést á Vífilsstaðaspítala 23. mars síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Selja- kirkju 29. mars. Jói bróðir okkar er látinn. Hann hafði barist eins og hetja við erfiðan sjúkdóm í nokkur ár og var þetta oft erfið ganga hjá honum, konu hans og bömum. Þú varst öllum svo góður og hjálpfús, gafst svo mikið af sjálfum þér til þeirra sem áttu erfitt. Hönd þín var ávallt reiðubúin. Tíminn er afstæður og minningarn- ar sem fljúga um í huga okkar eru miklu nær en árin sem þær tilheyi-a. Minningai- um æsku og unglingsárin sem vom okkur svo góð og skemmti- leg. Það voru dagar gleð- innar, mikið var spilað, sungið og leikið sér, dagar sem gott var að njóta með þér, mömmu, pabba og afa, ömmum, frændum og frænkum. Dagarnir hafa verið dimmir og öðravísi núna. Því er það mikil huggun að ylja sér við minninguna. Við voram svo lánsamar systur að eiga þig. Það er líka huggun að vita að þú ert búinn að fá lausn frá erfiðum veikindum og að vita að þú varst svo sáttur við að kveðja. Svo líka sú fullvissa að nú áttu eilífa lífið í drottni. Elsku bróðfr, það eru þakklátar systur sem kveðja þig sem gafst okk- ur svo mikið af góðleika þínum. Við biðjum guð að blessa fjölskyldu þína og halda utanum okkur öll í þessari sorg og söknuði. Erla og Inga. HOSKULDUR EGILSSON + Höskuldur Egilsson fæddist íReykjavík 18.janúar 1943. Hann lést í Landspítalanum 26. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Heydalakirkju 3. aprfl. Elsku Hössi minn. Síminn hringdi snemma að morgni fóstudagsins 26. mars sl. og í símanum var Margrét systfr að tilkynna mér að þú værir dáinn. Það þyrmdi yfir mig. Þótt ég vissi að hverju stefndi, þá er fráfall náins ættingja alltaf sárt og erfitt. Þótt ég viti að þér líði vel nú og að þú hafir fengið góða heimkomu til mömmu og pabba, þá er sorgin yfir- þyrmandi og ég held að ég sætti mig aldrei við fráfall þitt, en auðvitað reyui ég að vinna mig út úr því. Ég hugga mig við allar góðu minningamar. Við upplifðum ýmislegt saman enda ekki nema þriggja ára aldurs- munur á okkur og sambandið náið alla tíð. Við áttum mjög gott samtal í nóvember sl. þar sem við ræddum hluti sem höfðu legið þér á hjarta, sem eru og verða geymd í hjarta mínu. Þú varst yndislegur bróðir og vin- ur, snyrtimenni mikið og síðast en ekki síst mikill djassáhugamaður. Þú hefðir líklega farið um allan heim til að hlusta á þá stóru, ef þú hefðir haft efni á. Það má segja að tónlist hafi verið þitt tjáningarform. Þú reyndir í fyrstu eftir að ég flutt- ist til Breiðdalsvíkur að fá mig til að koma í Samkór suðurfjarða, en ekkert gekk. Enda þótt góð tónlist sé einnig hluti af mínu lífi, þá er hún bara af annarri tegund. Þú skildir mig auðvitað alveg, þótt þú hefðir ekki nokkurn áhuga á minni tegund. Málið er bara að djasstón- list er toppurinn á tilveranni, eng- inn skyldi halda annað. Nú ertu farinn, elsku Hössi minn, en eftir sitja minningarnar, þær verða ekki teknar frá mér. Guð geymi þig að eilífu, vinurinn minn, við sjáumst síðar. Ég vil að endingu þakka systur okkar Margréti og Oskari mági fyr- ir elsku þeirra í þinn garð alveg frá því að þú veiktist, þar til yfir lauk. Guð launi ykkur. Elsku Oddi minn, nú eram við bara þrjú eftir og ég bið guð að gefa okkur öllum styrk til að takast á við erfitt tímabil. Þín systir Ragnheiður. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður míns, tengdaföður, bróður okkar og afa, ÁKA JÓHANNESAR KARLSSONAR frá Eyvík, Tjörneshreppi. Ævar Ákason, Þóranna Jónsdóttir, Kristján Karlsson, Elísabet Jónasdóttir, Svava Björg Karlsdóttir, Hinrik Þórarinsson, Gunnsteinn Karlsson, Erla Eggertsdóttir og barnabörn. t Hjartans þakkir fyrir veitta samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóð- ur, ömmu og langömmu, IÐUNNAR E. S. GEIRDAL, Engihjalla 19, Kópavogi. Steinar Geirdal, Vigdís Erlingsdóttir, Elvar Geirdal, Edda Pálsdóttir, Marella Geirdal, Ari E. Jónsson, Margrét Geirdal, barnabörn og barnabarnabörn. + Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minn- ar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU SVEINSDÓTTUR, Hraunbraut 30, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 6A á Borgarspítalanum og Fífanna fyrir þeirra aðstoð. Gunnar Valgeirsson, Guðni Gunnarsson, Guðbjörg Sigþórsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir, Þorsteinn Hermannsson, Sigurbjörg Anna Guðnadóttir, Guðmundur Friðrik Georgsson, Guðrún Rósa Guðnadóttir, Benedikt Þór Leifsson, Elínborg Þorsteinsdóttir, Jón Pálmar Sigurðsson, Gunnar Þorsteinsson, Brynjar Helgi Guðmundsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.