Morgunblaðið - 16.04.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999 5 T
MINNINGAR
STEINUNNI.
GUÐJÓNSDÓTTIR
+ Steinunn I.
Guðjónsdóttir
var fædd í Hafnar-
firði hinn 14. maí
1916. Hún lést á
Landakoti liinn 27.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Arn-
fríður Jónsdóttir, f.
19.2. 1989, d. 21.3.
1963, og Guðjón
Gunnarsson, f. 21.9.
1889, d. 24.2. 1961.
Systur Steinunnar
eru: Guðbjörg, lát-
in, Jenný Marín,
látin, Aslaug
Hanna, látin. Eftir-
lifandi systur Stein-
unnar eru Bryndís
og Hrafnhildur
Inga.
Hinn 23. október
1937 giftist Stein-
unn Guðna Jóns-
syni, f. 12.7. 1915,
d. 25.6. 1990.
Útför Steinunnar
fór fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju 7.
apríl.
Jótlandi. Þessi eftirréttur var það
sem þú kallaðir sultaðar rabar-
baralappir og voru bornar fram
með rjóma og þú barst oft fram til
hátíðarbrigða á sunnudögum.
En á öðrum sviðum varstu frek-
ar íhaldssöm, þú varst til dæmis
lítið fyrir að taka í notkun nýjustu
tæki eins og þvottavéi, þvoðir frek-
ar á þvottbretti og sauðst þvottinn
í kolakyntum potti. Afi var með
tækjadellu eins og fleiri, og þau
voru ófá heimilistækin sem hann
kom með að Laugalandi, sem síðan
fengu að rykfalla á loftinu. Ég var
svo sem ekkert að skipta mér af
þessu, en mér kom þó á óvart þeg-
ar afi kom með hrærivél af flott-
ustu gerð, en þú lést strax fara
með hana upp á loft og sagðir það
algjöran óþarfa að láta tækið
hræra deig og þeyta rjóma, þetta
færi allt miklu betur í höndunum á
þér sjálfri.
Þannig að í þér voru í raun tvær
ólíkar persónur, annars vegar
þetta spænska eða jafnvel franska
útlit þitt sem gerði þig að heims-
konu og hins vegar eiginleikar sem
bundu þig tryggðaböndum við átt-
hagana í dalnum, en þaðan fórst þú
heldur ekki ótilneydd og ég man
bara eftir einni eða tveimur ferð-
um, annarri til ísafjarðar og hinni
til Reykjavíkur í þetta eina skipti
sem þú þurftir að leggjast á
sjúkrahús um ævina og þá í smáað-
gerð.
Þú náðir líka öðrum fremur að
nýta það sem umhverfið í kringum
þig bauð upp á, tíndir mikið af
berjum á sumrin, sultaðir og bjóst
til berjasaft, tíndir fjallagrös og
bjóst til úr þeim heimsins bestu
fjallagi'asamjólk, nýttir heita læk-
inn til að þvo alla sokka og áttir þér
þinn eigin heita pott í læknum,
þangað sem þú fórst reglulega og
fyrir mér var það hátíðarstund að
mega fara með þér í lækinn.
Við þessa miklu samveru við þig
lærði ég ýmislegt sem hefur oft
komið mér að góðum notum síðan.
Fyrst á eftir þekkti ég fjölda blóma-
tegunda úr íslenski-i flóru, og einnig
varstu ólöt við að syngja fyrir okkur
og hluti þeirra texta síaðist inn og
sat þar einhverja stund og ég er
þeirrar skoðunar í dag að þau átta
sumur sem ég var hjá ykkur afa
hafi skilað mér grunni að ýmsu, sem
hefur komið mér að notum seinna á
lífsleiðinni, og ég hef lengi verið öf-
undaður af félögum mínum, sem
einnig voru í sveit á þessum árum,
með hvaða veganesti ég kom með úr
sveitinni og þá ekki síst frá þér.
Fyrir þetta allt þakka ég þér amma
mín, og kveð þig nú. Ég og dætur
mínar, Ingibjörg og Ragnhildur,
þökkum þér allt sem þú gafst okkur
af þér um ævina, það er og verður
okkur ómetanlegt.
Þórður H. Ólafsson.
Það eru ekki margir sem eiga því
láni að fagna eða hafa tækifæri til
að vera í sveit hjá langömmu sinni
og afa. Ég var fyrst send ein í
Laugarholt þegar ég var sex ára
gömul og nokkur ár eftir það eyddi
ég hluta af skólafríinu mínu hjá
þeim, Lillu ömmusystur minni, og
allri fjölskyidunni minni fyrir vest-
an. Það var ósjaldan sem langamma
gaf sér tíma til að sitja með mér í
borðstofunni í Laugarholti og horfa
yfir Skjaldfannardalinn og segja
mér frá hvernig lífið var í dalnum
þegar amma mín var ung kona.
Langamma kunni líka óteljandi vís-
ur sem hún lagði sig fram um að
kenna borgarbarninu og hefur verið
mér ómetanlegt veganesti. Það sem
er mér þó minnisstæðast er hversu
oft hún stóð með mér við eldhús-
vaskinn og þreif verðandi kýr og
kindur sem enn lifa ágætu lífi í bú-
inu mínu í hlíðinni fyrir ofan bæinn
þótt þær séu nú komnar á þriðja
tuginn.
Á lífsleiðinni á ég örugglega oft
eftir að hugsa til langömmu minn-
ar, þessarar sérstæðu konu, sem
hafði yfir sér ákveðinn ævintýra-
blæ. Ég er henni þakklát fyrir þá
umönnun sem hún veitti mér í
æsku minni og mun minnast henn-
ar með virðingu og hlýju.
Ingibjörg Þórðardóttir.
Á þeim tíma er farfuglarnir láta
sjá sig á Islandi þá kveður frænka
okkar og vinkona þennan heim.
Margs er að minnast er við kveðj-
um Steinunni Guðjónsdóttur.
Ætíð eru þó kveðjustundir erfiðar
þrátt fyrir að um lífsins gang sé að
ræða. Denna var ein af þeim sem
öllum þótti værit um, hún var bara
þannig kona. Á allan hátt var hún
ætíð háttvís og kunni sig sem um
drottningu væri að ræða en þau
ummæli bera því vitni frá hversu
góðu heimili hún kom og þar með
allar hennar systur, systurnar frá
Gunnarssundi 6. Nú eru aðeins
tvær þeirra eftir meðal okkar en
þeim ber sérstaklega að þakka þá
alúð og umhyggju sem þær sýndu
elstu systur sinni eftir að hún varð
ekkja, svo og þeirra mönnum.
Hún ræddi það oft hversu góðar
systur hún ætti og góða mága.
Þegar kemur að þakklæti til
fólks þá er ekki hægt að láta hjá
líða að segja frá þvi hve vel henni
leið á Norðurbrún 1. Þar voru allir
henni svo góðir en ekki verður hjá
því komist að nefna sérstaklega
Júlíönnu Sigurðardóttur sem var
henni sérstök stoð, bæði á léttum
sem erfiðum stundum. Einnig ber
að minnast allra frá Hvoli með
mikilli þökk fyrir mikla og trausta
vináttu.
Það er nú einu sinni svo að lengi
býr að fyrstu gerð. Þannig mót-
umst við öll til framtíðar og við
eigum ekki næg orð til að tjá okk-
ur um hve mikið var gert fyrir
okkur eða hve mikið þakklæti við
berum í brjósti. Þannig líður mér
nú er ég hugsa til baka. Til
margra ára bjuggum við í sama
húsi og naut ég ómældrar um-
hyggju þeirra hjóna Dennu og
Dunna. Ékki voru stundirnar síðri
við Vesturhópsvatn en ferðalög
þangað urðu fleíri og fleiri eftir
því sem árin liðu. Við fjölgun fjöl-
skyldunnar kom betur og betur í
ljós hve innileg vináttan var og
hve sterk við gátum verið saman.
Við látum þessi orð nægja á
sama tíma og við geymum elsku-
legar minningar í hjörtum okkar
og framköllum á okkar ákveðnu
stundum.
Við hjónin ásamt börnum okkar
þökkum Dennu að leiðarlokum
fyrir allt og allt. Með okkur öllum
tókst mikill og góður vinskapur
sem mun aldrei hverfa frá okkur.
Við munum öll minnast hjónanna
Dennu og Dunna í bráð og lengd.
Ásta, Bjarni og börn.
Skilafrestur minningargreina
EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef út-
fór er á mánudegi), er skilaft’estur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast íyrir hádegi á fóstudag. I miðvikudags-,
fimmtudags-, fóstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir há-
degi tveimur virkum dögum fyrh’ birtingardag. Berist grein efth’ að skila-
frestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta
birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GEIR ÍSLEIFUR GEIRSSON
rafvirkjameistari,
Selbraut 17,
sem lést á Landspítalanum föstudaginn
9. apríl, verður jarðsunginn frá Seltjarnar-
neskirkju mánudaginn 19. apríl kl. 13.30.
Bryndís Jónsdóttir,
Jón Ólafur Geirsson,
Geir Óttarr Geirsson, Margrét Harðardóttir,
Hildur Elín Geirsdóttir, Gylfi Már Geirsson
og Bryndís Soffía Jónsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður,
bróður okkar og afa,
KRISTJÁNS KRISTJÁNSSONAR
frá Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks vistheimilisins
að Arnarholti á Kjalarnesi fyrir alúð og hlýhug.
Kristján Kristjánsson, Valgerður Snæland Jónsdóttir,
Árni Sæberg Kristjánsson,
Friðrik Kristjánsson,
Kolbrún Kristjánsdóttir,
Kristján Kristjánsson.
+
Elskulegur eiginmaður rninn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR THORS,
sem lést sunnudaginn 11. april, verður jarð-
sunginn frá Fossvoqskirkju í dag, föstudaginn
16. apríl kl. 13.30.
Svanhildur J. Thors,
Lára Thors, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson,
Iðunn Thors, Jakob Hagedorn Olsen,
Jóna Thors,
Örn Thors,
Svanhildur Thors, James M. Fletcher
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
GEORG HELGASON,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurnesja miðviku-
daginn 14. apríi.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jóhanna Friðriksdóttir,
Friðrik Georgsson, Anna Jónsdóttir,
Vilborg Georgsdóttir, Guðmundur Björnsson,
Lovísa Georgsdóttir, Brynjar Hafdal.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
GUNNFRÍÐUR DAGMAR
GUÐJÓNSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt miðviku-
dagsins 14. apríl.
Útförin auglýst síðar.
Málhildur T raustadóttir, Guðmundur Vésteinsson,
Hildigunnur Guðmundsdóttir,
Hulda Mýrdal Gunnarsdóttir, Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir.
+
Faðir okkar,
STURLA PÉTURSSON,
Hrafnistu í Reykjavík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 14. april.
Börnin.
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför
JÓHANNS MATTHÍASAR
JÓHANNSSONAR
frá Bálkastöðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkrahúsinu
á Hvammstanga.
Guðrún Magnúsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN SIGURÐSSON,
Skollagróf,
Hrunamannahreppi,
sem lést á heimili sínu sunnudaginn 11. apríl,
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugar-
daginn 17. apríl kl. 13.30.
Jarðsett verður í Hruna.
Sigurður Haukur Jónsson, Fjóla Helgadóttir,
Sigurjón Valdimar Jónsson, Sigrún Guðmundsdóttir,
Aðalheiður Jónsdóttir, Reynir Guðmundsson
og barnabörn.