Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Oddhvass hlutur
fannst í slátri
3 til 5
tonnum
af slátri
fleygt
ODDHVASS glerkenndur hlut-
ur fannst í lifrarpylsu frá Slát-
urfélagi Suðurlands um helgina,
en það var viðskiptavinur úr
Reykjavík sem fann hlutinn,og
lét foiTáðamenn SS vita. Jón
Gunnar Jónsson, framleiðslu-
stjóri SS, sagði að verið væri að
rannsaka hvaða hlutui’ þetta
væri og hvaðan hann hefði kom-
ið, en hann taldi víst að um slys
væri að ræða en ekki skemmd-
arverk.
Steinþór Skúlason, forstjóri
SS, sagði öryggi viðskiptavin-
anna vera það sem skipti máli
og því hefði fyrirtækið ákveðið
að biðja fólk um að henda allri
blóðmör og lifrarpylsu, en halda
eftir umbúðum eða búðarkvitt-
un. Eftir að farið hefur verið yf-
ir framleiðsluferlið, hefst fram-
leiðsla á slátri á ný og verður
það komið í verslanir á fimmtu-
dag. Þá getur fólk farið með
umbúðir eða kvittun í þá versl-
un sem það keypti slátrið og
fengið tvöfalt það magn sem
það upphaflega keypti til baka
frá versluninni.
Talið er að SS hendi um 2 til
3 tonnum af slátri og sagðist
Steinþór búast við því að um 1
til 2 tonn væru í umferð hjá við-
skiptavinum. Það má því búast
við því að um 3 til 5 tonnum af
slátri verði fleygt á haugana á
næstu dögum. Steinþór sagði að
SS myndi tapa einhverjum
miiljónum vegna þessa, en hann
sagði samt mikilvægast fyrir
fyrirtækið að halda trausti við-
skiptavinanna.
ÞRIR slösuðust þegar tveir fólksbílar, sem komu úr gagnstæðum átt-
um, skullu saman við afleggjarann að Skíðaskálanum í Hveradölum
síðdegis í gær.
Þrír fluttir á slysa-
deild eftir árekstur
ÞRIR voru fluttir á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur síðdegis
í gær eftir að tveir fólksbflar,
sem komu úr gagnstæðum átt-
um, lentu saman við afleggjar-
ann að Skíðaskálanum í Hvera-
dölum.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi voru hinir slösuðu fluttir
með tveimur sjúkrabflum til
Reykjavíkur og var ekki talið að
um alvarlega áverka væri að
ræða.
Svartaþoka var og lélegt
skyggni þegar áreksturinn varð
og telur lögreglan að rauður
Volvo á leið af heiðinni hafí ver-
ið valdur að slysinu en ökumað-
ur hans segir að skömmu áður
hafí hvítur sendibfll á austurleið
ekið utan í hlið Volvosins og
m.a. brotið hliðarspegil. Er öku-
maður sendibflsins beðinn um að
gefa sig fram við lögregluna á
Selfossi.
Loka varð þjóðveginum við
Hveragerði í um klukkustund
vegna slyssins og var allri um-
ferð beint um Þrengslin á með-
Morgunblaðið/Ásdís
Atlanta
leigir nýja
Boeing'
737-300
ATLANTA hefur tekið á leigu nýja
Boeing 737-300 vél frá Air New
Zealand, sem aðeins hefur verið
flogið í 400 klukkustundir frá því
hún kom úr verksmiðjunni. Að sögn
Arngríms Jóhannssonar, stjórnar-
formanns og annars eigenda Atl-
anta, var vélin þegar í stað endur-
leigð til Novair í Svíþjóð. Vélin
verður í Ósló og flýgur sólarlanda-
flug fram á haustið.
Arngrímur sagði að Atlanta hefði
gert samning við Air New Zealand,
sem á vélina, um að Atlanta nýtti
vélina í sumar, en Air New Zealand
nýtti hana í vetur. Síðan væri í und-
irbúningi frekari samnýting, þar
sem slíkt hentaði vel, vegna þess að
háannatími þeirra væri á veturna,
en hjá okkur á sumrin.
mbl.is
Aðgangur að fréttum
RUV auðveldaður
AÐGANGUR lesenda mbl.is að
útvarps- og sjónvarpsfréttum
Ríkisútvarpsins hefm’ nú verið
auðveldaður, en Morgunblaðið
og Ríkisútvarpið hafa undan-
farna þrjá mánuði átt samstarf
um dreifíngu efnis á vefjum hvor
annars.
Settir hafa verið upp tveir
hnappar á forsíðu mbl.is innan
flokksins Smellir. Vísar annar á
sjónvarpsfréttir en hinn á út-
varpsfréttir.
Þá má á upphafssíðu kosninga-
vefjar Morgunblaðsins finna
hnapp sem vísar í kosningavef
RÚV. Þar er hægt að hlusta á og
skoða útvarps- og sjónvarpsfrétt-
ir tengdar kosningabaráttunni.
Tenging við
Britannicu á mbl.is
Menntamálaráðherra hefur
gert samning um aðgang allra
Islendinga að netútgáfu Enc-
yclopædia Britannica. Nú er
hægt að tengjast þessari netút-
gáfu frá forsíðu mbl.is og upp-
hafssíðu Gagnasafns Morgun-
blaðsins með því að smella á
hnapp sem merktur er Britann-
ica.
Umfangsmikil Islandsvika og vörukynning átta íslenskra fyrirtækja í Danmörku
260 NETTO-
verslanir í Dan-
mörku taka þátt
í VIKUNNI 17.-24. maí verður haldin um-
fangsmikil íslandsvika í 260 NETTO-versl-
unum í Danmörku þar sem kynntar verða
framleiðsluvörur átta íslenskra matvæla-
fyrirtækja.
Undirbúningur stendur nú yfír hjá Út-
flutningsráði Islands í samvinnu við fyrir-
tækin átta og markaðsráðgjafann Torben
Vogter sem hefur haft veg og vanda af
skipulagningu Islandsvikunnar.
Þau átta fyrirtæki sem munu eiga vörur á
kynningunni eiu AKVA, íslenskt sjávarfang,
íslenskar sjávarafurðir, Pottagaldrar, SS,
Nói-Síríus, SH og Catco, sem framleiðir m.a.
Geysissnafs.
Rækilega kynnt í fjölmidlurn
Islandsvikan verður rækilega kynnt í
Danmörku, en auk umfangsmikillar auglýs-
ingaherferðar í vöi-ukynningarblaði
NETTO-verslananna, hefur verið boðað til
fjölmenns blaðamannafundar hinn 11. maí í
tilefni af Islandsvikunni, viku áður en kynn-
ingin sjálf hefst. Verður blaða- og frétta-
mönnum allra dönsku fjölmiðlanna boðið til
hádegisverðar þar sem gestum gefst kostur
á að bragða á sýnishornum þeirra vara, sem
kynntar verða á íslandsvikunni. Við sama
tækifæri verða ennfremur sex yfirmenn frá
NETTO-verslunum, þar af þrír innkaupa-
stjórar, sem að sögn Sigrúnar Guðbjarts-
dóttur, upplýsingafulltrúa hjá Útflutnings-
ráði íslands, skiptir miklu máli fyrir mark-
aðssetningu íslensku varanna hjá dönsku
NETTO-verslununum.
Umtalsverð söluaukning
íslenskra vara
Umtalsverð söluaukning hefur orðið á
vörum íslenskra fyrirtækja í Danmörku síð-
astliðna 15 mánuði, sem rekja má til mark-
vissrar dreifingar og markaðssetningar í
samvinnu íslenskra fyrirtækja og Útflutn-
ingsráðs. Sem dæmi má nefna að á þessu ári
hefur íslenskt lambakjöt frá SS verið selt
fyrir jafnmikil verðmæti og fengust á öllu
ái’inu í fyrra, eða um 2 milljónir danskra
króna.
Þá seldi AKVA nokkur þúsund flöskur af
íslensku vatni í Danmörku í fyrra á móti ríf-
lega einni milljón flaskna sem er áætluð sala
þessa árs, einkum til dönsku ríkisjárnbraut-
anna og til danskra veitingahúsa.
Að sögn Sigrúnar má ekki síst þakka
aukna sölu á íslenskum vörum þeirri sam-
vinnu sem íslensk fyrirtæki hafa tekið upp
sín á milli auk samstarfs við Útflutningsráð í
þeim tilgangi að ná góðri vörudreifingu í
Danmörku.
Að auki hefur Útflutningsráð notið starfs-
krafta markaðsráðgjafans Torbens Vogter
um tveggja ára skeið, en þess má geta til
gamans, að Vogter gekk í hjónaband á Akur-
eyri fyrir skemmstu, eins og greint var frá
hér í blaðinu.
Auk reynslu af íslenskum vinnumarkaði
og góðrar þekkingar á íslenskum fram-
leiðsluvörum á Vogter ennfremur að baki
áralangan feril í danskri verslun, en hann
var verslunarstjóri í einni af NETTO-versl-
ununum um árabil uns hann hóf störf hjá Út-
flutningsráði árið 1997.
Vogter, sem á drjúgan þátt í velgengni ís-
lenskra framleiðsluvara í danskri verslun,
sem tengiliður milli íslenski’a seljenda og
danskra kaupenda, telur að íslenskar fram-
leiðsluvörur eigi góða möguleika á mikilli
dreifingu í danskri verslun sökum gæða og
því skipti miklu máli að kynna þær vel og
halda þeim að neytendum í Danmörku.
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
•••••••••••••••••••••••••••
Stjarnan íslandsmeistari
kvenna annað árið í röð/B3
Arsenal er komið í efsta sæti
ensku úrvalsdeildarinnar/B12
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is