Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
KIRKJUSTARF
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARNESKIRKJA
Kristin íhugun í
Laugarneskirkju
ENN boðar fullorðinsfræðsla Laug-
ameskirkju til opins fundar. Á
þessu þriðjudagskvöldi, 27. apríl,
mun sr. Tómas Sveinsson sóknar-
prestur, flytja eríndi í safnaðar-
heimilinu um kristna íhugun. Yir-
skriftin er sótt í orð Páls postula:
„Þér eruð musteri heilags anda.“
Fundurinn hefst kl. 20 og lýkur
kl. 21, en þá hefst þriðjudagur með
Þorvaldi, lofgjörðarstund í kirkj-
unni þar sem Þorvaldur Halldórs-
son leiðir söng við píanóundirleik
Gunnars Gunnarssonar, en sr.
Bjarni Karlsson flytur ritningarorð
og bæn.
Athugið að gengið er til fullorð-
insfræðslunnar um dyr á kórbaki og
niður stiga inn í gamla safnaðar-
heimilið. En þegar komið er á
þriðjudag með Þoi-valdi er gengið
beint inn um aðaldyr kirkjunnar.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð-
ur. Samverustund foreldra ungra
barna kl. 14-16. Fundur í æskulýðs-
félaginu kl. 20.
Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl.
20.30.
Dómkirkjan. Barnastarf fyrir 6-9
ára börn kl. 10.15 og kl. 14.15 í safn-
aðarheimilinu.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um. Æskulýðsfélagið Örk (yngri
deild) kl. 20.
Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára
böm kl. 17.
Laugarneskirkja. Kl. 20 fullorðins-
fræðsla Laugarneskirkju heldur
fund um kristna íhugun. Sr. Tómas
Sveinsson sóknarprestur flytur er-
indið „Þér eruð musteri heilags
anda“. Gengið inn um dyr að aust-
anverðu á kórgafli kirkjunnar. Opið
og ókeypis fyrir alla. „Þriðjudagur
með Þorvaldi“ kl. 21. Lofgjörðar-
stund með Þorvaldi Halldórssyni.
Gunnar Gunnarsson leikur á píanó
og sr. Bjami Karlsson flytur ritn-
ingarorð og bæn.
Seltjarnameskirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hjúkr-
unarfræðingar frá heilsugæslustöð-
inni í Árbæ koma í heimsókn.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15 í umsjá Önnu Sigurkarlsdótt-
ur. Leikfími, léttur málsverður. Kl.
20.30 æskulýðsstarf, unglingastarf
13 ára og eldri á vegum KFUM & K
og Digraneskirkju. Síðasta skipti á
þessum vetri.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
9-10 ára stúlkur kl. 17.30. Æsku-
lýðsstarf fyrir 8. bekk kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar,
opið hús kl. 13.30-15.30. Helgi-
stund, söngur, handavinna, létt
spjall og kaffíveitingar. Æskulýðs-
starf fyrir 8. bekk kl. 20-22 í kirkj-
unni. KFUM fyrir drengi 9-12 ára
kl. 17.30-18.30. „Kirkjukrakkar" í
Rimaskóla fyrir börn 7-9 ára kl.
17-18.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18. Prédikunarklúbbur
gresta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigurjóns
Árna Eyjólfssonar.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10-12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 7-9 ára börn frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. TTT-starf
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonar-
höfn Strandbergs. Kristin íhugun í
Stafni, Kapellu Strandbergs, kl.
21.30- 22. Heimsborgin - Rómverja-
bréfið, lestur í Vonarhöfn kl.
18.30- 20.
Keflavíkurkirkja. Helgistund í
Hvammi, félagsmiðstöð eldri borg-
ara kl. 14-16. Upplestur, söngur og
hugvekja. Umsjón hefur Lilja G.
Hallgrímsdóttir, djákni. Einar Öm
Einarsson annast undirleik.
Lágafellskirkja. Foreldramorgnar,
samvera á þriðjudögum kl. 10-12.
Allir foreldrar velkomnir til sam-
verunnar í umsjá Þórdísar og
Þuríðar í safnaðarheimilinu.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. Mömmumorgunn
í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og
12. Helgistund í kirkjunni sömu
daga kl. 18.30.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Samvera á vegum systrafélagsins
kl. 20. Sr. Anna S. Pálsdóttir flytur
hugleiðingu. Allar konur hjartan-
lega velkomnar.
Ilólaneskirkja, Skagaströnd.
KFUM og K fyrir 9-12 ára kl. 16.
Biblíulestur í Sæborg kl. 20.
KEFAS. Bænastund í kvöld kl.
20.30. Á morgun, miðvikudag er
samverustund unglinga kl. 20.30.
Allir velkomnir.
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Opið bréf til
ríkisstjórnar
ísiands
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf:
„Varpholti, 18. apríl 1999.
Við sem þetta bréf
skrifum enim í meðferð á
Varpholti í Eyjafirði. Við
getum ekki orða bundist
yfir því ástandi sem lýst er
í sjónvarpinu nú nánast á
hverjum degi um stöðu
meðferðarmála jafnaldra
okkar.
Tólf mánaða bið í að
komast á Stuðla og önnur
bið eftir langtímavistun.
Þessi staðreynd er alveg
fráleit og mestar líkur þær
að sá sem er hjálparþurfi
sé kominn í harðari neyslu,
jafnvel byrjaður að
sprauta sig, meðan á bið-
tíma stendur. Sú stað-
reynd að vita af krökkum
sem við þekkjum sem eru
beinlínis í lífshættu vegna
vímuefnaneyslu fyllir okk-
ur ófognuði. Við höfum séð
það áður að þegar einhver
hópur fólks er í hættu
staddur hér á landi eru
ævinlega Islendingar
fyrstir til að rétta út hjálp-
arhönd og við erum viss
um að allir vilja það líka
núna í þessu tilviki.
I fréttatíma sjónvarps-
ins fimmtudaginn 15. apríl
sagði forstjóri Barna-
verndarstofu, Bragi Guð-
brandsson, að það þyrfti
150 milljónir til að eyða
biðlistanum strax. Okkur
er spurn: Er þetta eitthvað
mál? Skilaði til dæmis ekki
Landssíminn 2.200 milljón-
um í hagnað á síðasta ári?
Það eru til peningar fyrir
þessu og það er ykkar að
útrýma þessari skömm
sem biðlistarnir á Stuðlum
eru. Við verðum að hafa
það fast í huga að við, ung-
lingar í dag og komandi
kynslóðir eiga eftir að
stjórna landinu þegar okk-
ar tími kemur og því eins
gott að okkar kynslóð nái
ekki að þróa með sér mikla
vímuefnaíikn, heldm- fái
meðferð strax.
Það eru ótvíræð mann-
réttindi að geta leitað sér
aðstoðar og á sama hátt al-
varlegt mannréttindabrot
að geta það ekki þegar
þess er þörf.
Með von um skilning og
aðgerðir strax.
Anna 16 ára, Brynja 15
ára, Brynjar Þór 15 ára,
Gígja 15 ára, Hrafnhildur
16 ára, Rannveig Eva 16
ára, Sif 15 ára
Vantar platta
MIG vantar platta frá
1974. Eru þeir þrír í setti
og hannaðir af Rúnu en
mig vantar þann rauðgula í
settið. Upplýsingar hjá
Borghildi í síma 462 7496.
Fyrirspurn
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi fyirspurn frá
Sigurði Pálssyni:
„Hvað verður ríkissjóð-
ur af miklum skatttekjum
vegna skattaafsláttai'
vegna hiutabréfakaupa?"
Dýrahald
Kettlingur týndist
frá Hverafold
KETTLINGUR, svartur
og appelsínugulur í andliti,
með hvítar loppur, týndist
sl. föstudag frá Hverafold.
Hann er ómerktur. Þeir
sem hafa orðið hans varir
hafi samband í síma
896 0598.
Kettlingar óska
eftir heimili
FJÓRIR kettlingar óska
eftir góðu heimili. Upplýs-
ingar í síma 581 2316.
NÁMSMENN taka lestrarpásu við Þjóðarbókhlöðuna í blíðviðrinu.
SKAK
skila manninum til baka og
leika 15. - Rg4 16. h3 -15 17.
Rg3 - Bd6 þótt hann standi
höllum fæti) 16. Dxh6 - c5
17. Rxf6+ - Rxf6 18. He5 og
svartur gafst upp.
Pavel Kotsur frá Ka-
sakstan sigi-aði nokkuð
óvænt á mótinu.
HVÍTUR á leik
llinsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom
upp á rússnesku
bikarmóti í
Novogord í vor.
Sergei Volkov
(2.585) var með
hvítt og átti leik, en
Alisa Galliamova
(2.555) hafði svart.
14. Bxh6H - gxh6
15. Dd2 - Hfe8
(Hvítur vinnur
einnig eftir 15. -
Rxe4 16. Hxe4 -
Dd6 17. Hxe7 -
Dxe7 18. Dxh6 -
Rf6 19. Hel, svo
svartur hefði átt að
COSPER
ÉG hringi um leið og ég kem til Parísar, ef þið verðið
þá komin heim í Skýlufjörð í tíma.
Víkverji skrifar...
BÖRN hafa oft kvartað við Vík-
verja yfir því að þeim gangi
erfiðlega að fá afgreiðslu í verslun-
um og sölutumum borgarinnar.
Oft ryðjist fullorðið fólk fram fyrir
þau og stundum sé hreinlega eins
og afgreiðslufólkið sjái þau ekki ef
þau bíða kurteislega eftir af-
greiðslu.
Víkverji nefndi þetta við af-
greiðslustúlku í myndbandaleigu í
nágrenni heimilis hans og sagði
henni að hann hefði fengið kvart-
anir frá ungum vinum sínum um
að þeim væri ekki sinnt sem skyldi
þegar þeir kæmu á leiguna. Af-
greiðslustúlkan brást mjög vel við
kvörtunum Víkverja og talaði við
sitt samstarfsfólk um málið.
Eftir þetta hefur Víkverji heyrt
hjá börnum að viðmót afgreiðslu-
fólksins í viðkomandi myndbanda-
leigu gagnvart þeim sé orðið allt
annað og betra. Eru þessi við-
brögð fyrirtækinu til sóma og von-
andi hugsar afgreiðslufólk sinn
gang og gleymir því ekki að börn
eru jafngóðir viðskiptavinir og full-
orðið fólk. Jafnframt megum við
fullorðna fólkið ekki gleyma því að
við vorum einu sinni börn og að
okkur fannst það gjörsamlega
óþolandi þegar ruðst var fram fyr-
ir okkur á sínum tíma.
XXX
EITT af eftirlætiskaffihúsum
Víkverja er Grái kötturinn á
Hverfísgötu. Víkverji man hrein-
lega ekki eftir að hafa fengið betra
kaffi á íslensku kaffihúsi. Ekki
spillir fyrir skemmtilegt andrúms-
loft á staðnum þar sem hinir ýmsu
kvistir íslensks samfélags setjast
niður og spjalla um heima og
geima. Eru umræðurnar oft mjög
fjörugar og skiptir þá engu hvort
fólk þekkist eður ei. *
Eins er mikið úrval bóka á
staðnum sem gestir geta giuggað ‘i
og ef þeir hafa ágimd á einhverri
bók geta þeir tekið hana með sér
gegn því að þeir skilji aðra sam-
bærilega eftir.
Víkverji er meðal þeirra mörgu
sem sækja staðinn stíft um helgar
enda næsta víst að einhver setp
maður þekkir rekist inn í mat eða
kaffi. Ekki spillir matseðillinn fyr-
ir og er þar fremstur í flokkí
„Trukkurinn" sem samanstenduí’
af eggjum, beikoni, kartöfium,
tómötum, ristuðu brauði og alveg*
himneskum amerískum pönnukök-
um