Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 57
UMRÆÐAN
Sjálfstæðis-
flokknum
er alvara
SJÁLFSKIPAÐIR
sérfræðingai’ í sjávar-
útvegsmálum hafa að
undanförnu talað hátt
og mikið um sjávarút-
vegsmálin og nauðsyn
þess að breyta sjávar-
útvegskerfínu í grund-
vallaratriðum. Frjáls-
lyndir vilja kvótakerfíð
dautt strax og senda
alla togara út fyrir
landgrunnið. Samfylk-
ingin vill leggja kerfíð
af á fjórum árum eða
svo og bjóða upp afla-
heimildirnar. Það
mætti halda að þessir
frambjóðendur hefðu
engar áhyggjur af því hvort hægt
verði að stunda útgerð á Islandi yf-
irleitt eða ekki. Innantóm slagorð
Sjávarútvegur
Gáleysislegt tal um
sjávarútveginn, segir
Kristján Pálsson, getur
haft mjög alvarlegar
afleiðingar fyrir
þessa mikilvægu
atvinnugrein.
og upphrópanir eru þeirra ær og
kýr og þeir tala um þennan undir-
stöðuatvinnuveg eins og vísinda-
skáldsögu.
Sjávarútvegurinn
er undirstaðan
Gáleysislegt tal um sjávarútveg-
inn getur haft mjög alvarlegar af-
leiðingar fyrir þessa mikilvægu at-
vinnugrein. Flest stærstu sjávarút-
vegsfyrirtæki landsins eru komin á
hlutabréfamarkað og er talið að um
17.000 Islendingar séu beint og
óbeint hluthafar í íslenskum sjáv-
arútvegsfyrirtækjum. Upphrópan-
ir um að breyta stjórnkerfinu í
grundvallaratriðum leiða til óró-
leika á markaðinum og verðfalls
hlutabréfa þessa fólks.
Það er merkilegt að heyra
„Fylkinguna“ (Össur, Jóhönnu og
co.) tala um að uppboð
á aflaheimildum leiði
til betri nýliðunar í
gi’eininni. Hverjir
halda þau að kaupi
kvótann, það verða
auðvitað þeir sem eiga
mestu peningana, sem
eru ekki nýliðarnir.
Það sama á við um
að uppboð leiði til
bættrar stöðu lands-
byggðarinnar. „Fylk-
ingarmenn" vita ekki
hvar peningamir era
mestir, það er í
Reykjavík. Uppboðs-
kvótinn mun því safn-
ast til Reykjavíkur en
ekki Raufarhafnar. Hugmyndir
þeirra „Fylkingarmanna" era því
alveg innstæðulausar og í raun
stórhættulegar þegar hagur þjóð-
arinnar allrar er hafður í huga.
Hugmyndir þeirra era álíka illa
undirbúnar og þegar Jóhanna
skellti á húsbréfakerfinu árið 1990.
Húsbyggjendur töpuðu þá 7,6
milljörðum króna í affollum árin
1990-1993 á flumbragangi Jó-
hönnu, þáverandi félagsmálaráð-
herra.
Stefna Sjálfstæðisflokksins
Sem fyrr er það stefna sjálf-
stæðismanna að styrkja undirstöð-
ur þessarar mikilvægustu atvinnu-
greinar landsmanna. Það teljum
við best gert með því að ná sátt um
núverandi stjórnkerfi. Það má
gera með því að útgerðin greiði
fyrir þá þjónustu sem hún fær í
dag frá ríkinu, m.a. Hafrannsókna-
stofnun og Sjómannaskólanum.
Þjónustugjöld í þessu formi fyrir
aðgang að auðlindinni era viðun-
andi. Sjávarútvegurinn verður um
leið að fá frjálsræði til að ná þeirri
hagkvæmni út úr sínum aflaheim-
ildum sem kostur er og þjónar
þjóðarhag.
Þessu teljum við best náð með
því að byggja í grandvallaratriðum
á núverandi stjómkerfi fiskveiða.
Ábyrgð hefur verið aðal Sjálfstæð-
isflokksins og helsta einkenni, þeg-
ar Sjálfstæðisflokkurinn segist
vilja breyta er það alvara.
Höfundur er alþingismaður.
w_
Kristján
Pálsson
«r
„Þó að íslenska ríkisstjórnin
hafi verið ein sú fyrsta sem
lét þýða Grundvallarreglur
Sameinuðu þjóðanna um
málefni fatlaðra, þá er ekki
nóg að þýða þær. Það þarf
líka að framfylgja þeim."
Úr fréttabréfi Biskupsstofu:
„Helmingur skjólstæðinga Hjálparstarfsins eru öryrkjar. Eru þetta
sæmandi kjör í velferðarsamfélagi á tímum hagvaxtar og afgangs
á fjárlögum? Vissir þú að öryrkjar á íslandi eru aðeins 7.776 talsins?
Getur verið að það sé hagkerfinu ofviða að bæta kjör þessa hóps?"
Janúar 1999.
r-
Desember 1997.
Oryrkjabandalag Islands
Skráning skuldabréfa á
Verðbréfaþing íslands
Útgefandi:
Lýsing á flokknum:
Nafnverð útgáfu
Skráningardagur á VÞÍ
Viðskiptavakt á VÞÍ
Milliganga vegna skráningar
Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík,
kt. 541185-0389.
1. flokkur A 1998, 7 ára kúlubréf með vaxtagjalddögum,
verðtryggð, 5% ársvextir. Vaxtagjalddagar tvisvar á ári.
HöfuðstólI skuldarinnar endurgreiddur með verðbótum
1. september 2005.
400.000.000 kr. að nafnverði. Bréfin eru öll seld.
Bréfin verða skráð á VÞÍ hinn 3. maí 1999.
Búnaðarbankinn Verðbréf.
Búnaðarbankinn Verðbréf.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum
BLINAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík, sími 525 6060, fax 525 6099.
Fasteignir á Netinu
Ólafur Örn Haraldsson
þingmaður Reykvfkinga hef
barist fyrir mannréttindum
minnihlutahópa \ samfélag
c*