Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Ásdís
Systkini
fagna
SYSTKININ Guðný og Skúli
Gunnsteinsbörn hafa ærna
ástæðu til að fagna þessa dagana
- Skúli varð Islandsmeistari með
Aftureldingu, sem liann þjálfar
^ og Guðný hampaði í gær Islands-
meistaratitli með Stjörnunni.
■ Stjarnan/BB
--------------
KR-sport
kaupir þrjá
veitingastaði
«*ÍR-SPORT hefur fest kaup á
' ’þremur veitingastöðum við Eiðis-
torg, Rauða ljóninu, Koníaksstof-
unni og Sex baujunni. Kaupverð
fæst ekki gefíð upp.
„KR-sport er hlutafélag með
samning um rekstur knattspyrnu-
deildar og samkvæmt samþykktum
félagsins er gert ráð fyrir að fyrir-
tækið geti fjárfest á sviði lista,
menningar og afþreyingariðnaðar,"
sagði Hjörtur Nielsen, einn stjórn-
armanna. „Kaupin koma því heim
og saman við þá stefnu sem fyrir-
tækið markaði sér frá byrjun. Þetta
er hluti af því að renna frekari stoð-
um undir rekstur fyrirtækisins KR-
sport því rekstur knattspyrnudeild-
- ^ar er í eðli sínu áhættusamur.“
Hjörtur sagði að miklar vonir
væru bundnar við þessa fjárfest-
ingu. Sagði hann að sjálfsagt yrði
rekstri þessara veitingastaða breytt
en að ekki væri tímabært að greina
frá því með hvaða hætti en einhver
hluti þeirra yrði fjölskylduvænni.
„Þetta hefur engin áhrif á kaup
leikmanna," sagði hann. „Meistara-
flokkur KR er rekinn samkvæmt
rekstraráætlun og það stóð aldrei
til að eyða öllu hlutafé í leikmenn á
fyrsta ári. Menn eru að hugsa til
framtíðar."
Könnun Félagsvísindastofnunar sýnir stjórnarflokkana styrkja stöðu sína
Framsókn vinnur mest á
en Samfylkingin tapar
FRAMSÓKNARFLOKKURINN, Sjálfstæðis-
flokkurinn og Vinstrihreyfingin vinna á en Sam-
fylkingin tapar fylgi samkvæmt nýrri skoðana-
könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir
Morgunblaðið. Fylgistap Samfylkingarinnar frá
síðustu könnun Félagsvísindastofnunai-, sem
gerð var fyrir einum mánuði, er 7,1 prósentu-
stig, en fylgisaukning hinna flokkanna þriggja
er á bilinu 1,2-3,5 prósentustig. Framsóknar-
flokkurinn bætir mestu við sig.
Fyrirvari um þingsæti
Samkvæmt skoðanakönnuninni fær Fram-
sóknarflokkurinn 19,8% (16,3% í mars), Sjálf-
stæðisflokkurinn 43,7% (41,3%), Samfylkingin
26,4% (33,5%), Frjálslyndir 2,3% (2,5%),
Vinstrihi-eyfíngin 7,5% (6,3%) og aðrir flokkar
0,3% (0,1%).
Félagsvísindastofnun setur ákveðna fyrirvara
við útreikning þingsæta, en sé miðað við hlut-
fallstölu fengi Framsóknarflokkurinn 13 þing-
menn, Sjálfstæðisflokkurinn 28, Samfylkingin
17 og Vinstrihreyfíngin 5.
Vinstrihreyfingin fengi kjördæmakjörinn
mann í Reykjavík
Skipting fylgisins í Reykjavík bendii- til þess
að Vinstrihreyfingin fengi kjördæmakjörinn
þingmann í Reykjavík, en flokkurinn mælist þar
með 7,3% fylgi. Framsóknarflokkurinn hefur
bætt verulega stöðu sína á Reykjanesi, en þar
mælist flokkurinn með 20% fylgi, en var með
10,6% stuðning í síðustu könnun. Fylgisaukning
Sjálfstæðisflokksins er fyrst og fremst í Reykja-
vík þar sem stuðningur við flokkinn mælist 48%,
en var 42,8% fyrir mánuði. Fylgistap Samfylk-
ingarinnai' er nokkuð jafnt í öllum kjördæmum.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins meðal kvenna hefur
aukist umtalsvert frá síðustu könnun en stuðn-
ingur við flokkinn meðal karla hefur nánast
ekkert breyst milli kannana. Stuðningur flokks-
ins meðal aldraðra hefur einnig aukist þótt
flokkurinn njóti enn minnst stuðnings meðal
þessa aldurshóps. A sama tíma virðast konur og
aldraðir vera að hverfa frá stuðningi við Sam-
fylkinguna í talsvert miklum mæli ef marka má
könnunina.
Könnunin var gerð dagana 22.-25. apríl. Hún
byggðist á slembiúrtaki úr þjóðskrá sem náði til
1.500 einstaklinga, 18 ára og eldri. Nettósvörun
var 71,7%. Alls ætluðu 7,2% að skila auðu eða
kjósa ekki og 3,9% neituðu að svara.
■ Konur/43
Tveir ungir strákar komu í veg fyrir töluvert tjón 1 Gufuneskirkjugarði
Morgunblaðið/Ingvar
Slökktu
eld við
geymsluskúr
TVEIR ungir drengir, Dagur
Snær Sævarsson og Arnar Ólafs-
son, komu í veg fyrir töluvert Ijón
í gærkvöld er þeir, með hjálp veg-
faranda og slökkviliðs Reykjavík-
ur, slökktu eld við geymsluskúr í
Gufuneskirkjugarði.
Að sögn slökkviliðs voru
drengimir að leika sér þegar þeir
urðu varir við brunalykt og
gengu þeir á lyktina. Lyktin
leiddi þá að stórum, rúmlega 100
fm, geymsluskúr, en kveikt hafði
verið í msli við skúrinn.
Drengirnir stöðvuðu ökumann og
báðu hann um að hringja í
slökkviliðið. Hann fór sfðan með
drengjunum að skúrnum og með
hjálp slökkvitækis úr bflnum
tókst þremenningunum að
slökkva nánast allan eld áður en
slökkviliðið kom. Slökkviliðsmenn
Ieyfðu síðan drengjunum að klára
verkið, en til þess fengu þeir að
nota brunaslöngur slökkviliðsins.
*
Islendingur viðstaddur þegar ólæti brutust út í Rotterdam á sunnudag
„Líktist helst stríðsástandi“
„ÉG GEKK áleiðis frá þeim stað
sem ólætin brutust út um mínútu
áður en þau byrjuðu og var kom-
inn um þrjátíu metra í burtu þeg-
ar ég heyrði skyndilega skothvelli,
sennilega á miUi 15 og 20 talsins.
Þá fylltist manngrúinn skelfíngu
og hljóp af stað,“ segir Örn Gunn-
arsson lögfræðingur sem staddur
var á ráðhústorginu í Rotterdam í
"Hollandi á sunnudag, þegar óeirð-
ir brutust út í kjölfar fótboltaleiks.
Þar varð lið Feyenoord Hollands-
meistari í knattspyrnu eftir leik
við NAC Breda sem endaði með
jafntefli, 2-2.
Talið er að að minnsta kosti
sextán manns hafí orðið fyrir
eiðslum í ólátunum og að lög-
-Æ
ÖRN Gunnarsson
Iögfræðingur.
• /-»eglan hafi sært fjóra ólátaseggi með byssu-
skotum, þar af einn alvarlega. Attatíu voru
handteknir og tjónið sem unnið
var er talið nema á milli 160 og
300 milljónum króna.
Ruddu fólki í burtu
„Enginn vissi fyrir víst hvað
var að gerast en ekki leið á löngu
áður en óeirðalögreglan kom á
staðinn og ruddi svæðið," segir
Öm. „Þama er gatan T-laga og
lögreglumennirnir stilltu sér upp í
miðjunni og ruddu fólkinu í burtu
í þrjár áttir sem voru opnar. Þeir
virtust forðast að lemja fólk og
reyndu frekar að fá fólk í burtu án
átaka, en ef þeir þurftu að kljást
við einhvern voru tveir til þrír lög-
reglumenn sem tóku á hverjum
og einum. Um alla borg var fólk
handtekið allt að tveimur tímum eftir að ólætin
hófust. Skemmdirnar voru gríðarlegar og
heimamenn segja þetta helst líkjast stríðsá-
standi.“
Eftir leikinn er áætlað að um 250 þúsund
manns hafi safnast saman á torginu fyrir fram-
an ráðhúsið til að hylla sigurvegarana. Örn var í
þeim hópi ásamt írskum skólabróður sínum, en
Órn stundar MBA-nám í viðskiptafræði í borg-
inni.
„Þetta er í raun og veru skríll sem réðst á
lögregluna, ekki venjulegir aðdáendur Feyen-
oord. Þetta eru meðal annars óánægðir at-
vinnuleysingjar, eiturlyfjaneytendur og
drykkjuboltar. Það er talið að á milli 150 og 200
manns hafí tekið þátt í átökunum við lögregl-
una. Þeir vh'ðast hafa króað af þrjá menn úr
hinni almennu deild lögreglunnar og gert aðsúg
að þeim. Lögi’eglumönnunum fannst þeim vera
ógnað og skutu upp í loftið. Einhverjir segja að
ólátaseggirnir hafí líka verið vopnaðir og skotið
á lögregluna og þeir síðan svai'að skothríðinni,
en þær fregnir eru óstaðfestar," segir Öm.
Reuters
LIÐSMENN óeirðalögreglunnar í Hollandi
handtaka fótboltabullu í miðborg Rotter-
dam eftir að heiftarleg átök brutust út á
milli óeirðaseggja og lögreglumanna.