Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 66
x 66 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hátíð harmon- * ikkunnar í Asgarði HIN árlega Hátíð harmonikkunnar 1999 verður haldin í samkomuhús- inu Asgarði (Glæsibæ), laugardags- kvöldið 1. maí kl. 20.30. Dagskráin hefst með barnatónleikum kl. 20.30, þar sem fram koma nemend- ur hjá Almenna músíkskólanum og Tónlistarskóla Akraness. Síðan fylgja hátíðartónleikar þar sem fram kemur m.a. 46 manna Stór- hljómsveit Harmonikkufélags w Reykjavíkur, Matthías Kormáks- son, nýbakaður Islandsmeistari í harmonikkuleik, í efsta flokki, í flokki 11-15 ára Oddný Björgvins- dóttir; Hljómsveit Karls Adolfsson- ar; Hljómsveitin Stormurinn (9 manna úrvalssveit). Þá koma fram einleikarnir Jóna Einarsdóttir, Sveinn Rúnar Björnsson, Garðar Olgeirsson og systurnar Asa og Ingunn Eiríksdætur. Að tónleikum loknum verður harmonikkudans- leikur. Meðal hljómsveita má nefna 20 manna Léttsveit Harmonikufé- lagsins, hljómsveitina Neista með Karli Jónatanssyni í fararbroddi, hjómsveit Ulrich Falkner og tríó Böðvars og söngkonan Ragnheiður Hauksdóttir. Forsala aðgöngumiða er hafín hjá Almennu umboðsskrifstofunni. FRÁ afhendingu styrkja Sumargjafar. Morgunblaðið/Arni Sæberg Þetta er rétti staðurinn... Bílaland B&L er ein stærsta bílasala landsins með notaða bíla af öllum stærðum og gerðum. Bílaland er í nýja B&L húsinu við Grjótháls 1 (rétt ofan við Select við Vesturlandsveg) og þú gengur inn ffá Fosshálsi. Síminn er 575 1230, við erum með rétta bílinn á réttum stað - og á rétta verðinu. L 1 Járnháls Fossháls ? s Ö 'd5 Hestháls Við bjóðum allar tegundir bílalána. (Select) Visa/Euro raðgreiðslur. Vestu rl an d svegu r ...fyrir rétta bílinn: BMW 735 IL, árg. 90, 3500, ss^ a. 4d, vínrauóur, 11^, ek. 149 þús. VW Polo, árg. 1400, 5g, 5d, svartur, elc 13 þús. kr. 1.240.000, Hyundai Sonata, árg. 9/y^HHRP 3000, ss, 5g, 4d, grænn, ek. 26 þús. kr. 1.690.000,- ■PF VWGolfGL, j^rg. 97, 1400, 5g, 5d, blár, ek. 31 þús. 'J&jjjjjjjÉ/fö, Toyota Hi Lux, wB&m'iucg. 92, 2400, 8§g*|®r' 5g, 4d, hvítur, ek. 150 þús. kr. 1.550.000,- Hyundai Elantra GLS^iÍi&PWB^ árg. 96, 1800, ss, 5d, Ijósblár, ek. 34 þús., kr. 1.290.000. síjuHyundai Accent, 98, 1500, 5g, 3d, silfurgrár, ek. 26 þús. 5GMCJimmy, lr árg. 96, 4300, ss, pd, rauóur, ek. 46 þús. kr. 2.950.000, Renault Megane, 'árg. 98, 1600, ss, 5d, _ blár, ek. 14 þús. MMC Pajero V-6, árg. 91, 3000, ss, 5d, hvítur, mMÉ ek. 100 þús, WfBSF Renault RlpF Megane RN, Imrg. 97, 1400, 5g, 5d, blár, ek. 23 þús. Subaru Legacy Wagon/^^^^^^ árg. 93, 2000, ss, 5d, vínrauóur, ek. 90 þús. kr. 1.240.000,- |É|jprTord I scort ^^^BP^^Wagon, árg. 97, HpF 1400, 5g, 5d, PP*"7,TTT''" rauður, ek. 37 þús. kr. 1.120.000,- Suzuki VitaraJLX, árg. 93, 1600, 5g, 3d, hvítur, ek. 95 þús. kr. 880.000,- Grjótháls 1 sími 575 1230 Styrkir veitt- ir á 75 ára afmæli Sumargjafar BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumar- gjöf minntist 75 ára afmælis síns sumardaginn fyrsta í leikskólanum Grænuborg. Formaður félagsins, Jón Freyr Þórarinsson skólastjóri, rakti í stuttu máli sögu Sumargjafar en félagið var stofnað 22. apríl 1924 að tilhlutan reykvískra kvenna. Fé- lagið gerði sumardaginn fyrsta að hátíðisdegi íslenskra bama og fjár- öflunardegi sínum með því að selja merki, fána og „Sólskin" sem var lítil bók ætluð bömum. Lengi vel stóð félagið fyrir útihátíðarhöldum í Reykjavík og hélt skemmtanir í bíó- um borgarinnar sumardaginn íyrsta. í upphafí rak félagið dagheimili einungis á sumrin en upp úr 1940 fór dagheimilum að fjölga og sá Sumargjöf um rekstur fyrir Reykjavíkurborg fram til 1979 er Dagvist barna tók við rekstrinum. Uppeldisskóli Sumargjafar, síðar Fóstruskólinn, var stofnaður 1946 og rekinn í samvinnu við Reykjavík- urborg uns ríkið tók við menntun leikskólakennara með stofnun Fóst- urskóla íslands 1973. í dag á Sumargjöf tvo leikskóla sem leigðir eru Reykjavíkurborg annars vegar Grænuborg og hins vegar Steinahlíð en á 25 ára afmæli félagsins færðu hjónin Halldór Ei- ríksson og Ellý Schepler Eiríksson Steinahlíð að gjöf og er hún nú orð- in skemmtileg vin í borgarlandinu, segir í fréttatilkynningu. Styrkir til fræðslu, tækjakaupa og endurmenntunar Að loknum leik lúðrasveitar og upplestri ljóða úr „Sólskini“ voru veittir fjórir styrkir í tilefni af af- mælinu og runnu þeir til félaga og stofnana sem sinna málum barna og ungmenna sem vegna fötlunar á huga og geði hafa lent til hliðar í samfélaginu. I tilkynningunni segir. Þannig fengu Umsjónarfélag einhverfra og Foreldrafélag geðsjúkra barna hvort um sig 500.000 krónur til fræðslu og kynningar á vanda við- komandi barna. Barna- og ung- lingadeild Landspítalans (BUGL), sem þyrfti að stækka verulega til að veita fleiri börnum úrlausn, fékk 250.000 krónur til tækjakaupa og Dalbrautarskólinn, sem einkum sinnir málefnum nemenda frá BUGL og býr við mjög léleg húsa- kynni, fékk 250.000 krónur til end- urmenntunar kennara skólans. Fulltrúar styrkþega, þau Ástrós Sveinsdóttir frá Umsjónarfélagi einhverfra, Jenní Steingi’ímsdóttir frá Foreldrafélagi geðsjúkra barna, Olafur Guðmundsson, yfirlæknir BUGL, og Guðmundur Ingi Leifs- son, skólastjóri Dalbrautarskóla, þökkuðu öll þann hlýhug sem Sumargjöf sýndi með styrkjunum og töldu að þeir skiptu máli í starf- semi hjá viðkomandi og beindu jafn- framt athygli að vanda þessara barna og unglinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.