Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Starfsmenn
Nýherja tóku
fyrstu skóflu-
stunguna
ALLIR starfsmenn Nýhjeija,
225 talsins, mynduðu merki fé-
lagsins er þeir tóku fyrstu
skóflustunguna að nýbyggingu
Nýherja við Borgartún 33 í
Reykjavík í gær. Byggingar-
framkvæmdum verður lokið á 8
ára afmæli félagsins þann 2.
aprfl árið 2000.
Húsið, sem verður um 6.400
fermetrar mun rúma alla starf-
semi Nýheija sem nú eru
þröngar skorður settar á
tveimur stöðum í Reykjavík,
Skaftahlíð 24 og Skipholti 37.
Morgunblaðið/J úlíus
• fflB&'C^
ST ■_• .v^L.vg i ' jAj
Atlantsskip stefna á 45% markaðshlutdeild í innflutningi frá Bandaríkjunum
Segjast bjóða 67% lægra
verð en keppinautarnir
ATLANTSSKIP, sem annast
sjóflutninga fyrir varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli, hafa ákveðið
að bjóða fast verð fyrir flutninga
í sjófrakt frá Bandaríkjunum til
Islands, og að sögn Stefáns
Kjæmested, framkvæmdastjóra
Atlantsskipa, er um að ræða 40%
til 67% lægra verð en verðskrá
samkeppnisaðila Atlantsskipa.
Verð Atlantsskipa fyrir 20 feta
gám verður 1.600 dollarar og
1.900 dollarar fyrir 40 feta gám.
„Þetta er lægra verð heldur en
við höfum verið að bjóða hingað
til, en við viljum ná aukinni
markaðshlutdeild og í stað þess
að eyða miklum tíma í að semja
um einhverjar nokkrar krónur er
öllum boðið þetta verð,“ sagði
Stefán. Hann sagði að um væri
að ræða 1.400 gámaeiningar sem
Atlantsskip gætu selt á ári.
Stefán sagði að Atlantsskip
stefndu að því að ná 45% mark-
aðshlutdeild í innflutningi frá
Bandaríkjunum en að hans sögn
er félagið nú þegar komið með
yfír 35% markaðshlutdeild að
flutningunum fyrir varnarliðið
meðtöldum.
Ekkert nýtt
Þórður Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs
Eimskips, sagði að Atlantsskip
hefðu verið að bjóða umrædd
verð frá því félagið hóf siglingar í
nóvember síðastliðnum. Hann
segir fullyrðingar Atlantsskips
um mun á flutningsgjöldum ekki
réttar eins og viðskiptavinir Eim-
skips þekkja.
„Undirtektir viðskiptavina
hafa verið litlar á liðnum sex
mánuðum, enda þjónusta Atl-
antsskipa ótrygg þar sem þeir
hafa átt í erfiðleikum með vöru-
meðferð, siglingaráætlun og
fleira. Þannig að það er ekkert
nýtt í þessu svokallaða verð-
stríði," sagði Þórður.
Fengu rannsóknar-
styrk frá ÍSAL
ÍSLENSKA álfélagið hf. veitti
tvo styrki til rannsóknarverk-
efna á sviði umhverfismála og
rannsókna á náttúru landsins á
miðvikudag, síðasta vetrardag.
Styrkupphæðin skiptist
þannig að Hafsteinn Helgason,
verkfræðingur hjá Línuhönnun
hf., hlaut 900 þúsund krónur til
framhaldsrannsókna á bindieig-
inleikum leirs, sem nefndur er
bentónit, á fokgirni foksands og
útskoli köfnunarefnissambanda
úr tilbúnum áburði. Þá hlaut
Jóhannes Sturlaugsson hjá
Veiðimálastofnun 300 þúsund
krónur til rannsókna á dverg-
bleikju í Straumsvík.
Á myndinni stendur Einar
Guðmundsson, staðgengill for-
stjóra ISAL, milli styrkþeg-
anna, Hafsteins Helgasonar,
t.h., og Jóhannesar Sturlaugs-
sonar, t.v.
BTogAT&T
kaupa sig inn
á japanskan
markað
BRITISH Telecommunications og
AT&T fjarskiptafyrirtækin hafa fest
kaup á 30 prósenta hlut í fyrirtækinu
Japan Telecom Co. fyrir rúmlega 1,8
milljarða bandaríkjadala. Vestræn
fjarskiptafyrirtæki hafa iengi haft
það að markmiði að geta boðið þráð-
lausa fjarskiptaþjónustu í Japan og
með kaupunum hafa BT og AT&T
gert það mögulegt. Þetta er fyrsta
sameiginlega fjárfesting BT og
AT&T en fyrirtækin hafa með sér
samstarf um útbreiðslu fjarskipta-
þjónustu um heiminn. Fjarskipta-
markaður í Japan, sem var lengi lok-
aður erlendum fyrirtækjum, hefur
verið að opnast að undanfórnu og
eru kaupin fyrsta stóra fjárfesting
erlendra aðila þar í landi. Talið er að
kaupin muni hafa í fór með sér auk-
inn samruna fyrirtækja á japönskum
fjarskiptamarkaði.
Frekara alþjóðlegs samstarfs og
samruna er að vænta meðal fyrir-
tækja á fjarskiptasviðinu og vilja
mörg af stóru fyrirtækjunum þannig
búa sig undir enn frekari tækni-
framfarir 1 greininni. I síðustu viku
var tilkynnt um 82 milljarða sam-
starf Deutsche Telekom og Telecom
Italia og einnig stendur yfir hörð
samkeppni milli japanskra o g
breskra stórfyrirtækja um yfirtöku
á símafyrirtækinu Cable and Wirel-
ess, svo að dæmi séu nefnd.
í kjölfar þess að ríkisrekin símafyi'-
irtæki hafa verið einkavædd og farið
á almennan mai'kað hefur samstarf
fyrirtækja frá ólíkum löndum færst
mjög í vöxt.
Fyrirtækjalausnir Nýherja
á Hótel Örk 7. og 8. maí
Nýherji blæs til ráóstefnunnar „Fyrirtækjalausnir Nýherja"
7. og 8. maí á Hótel Örk í Hveragerði og er það í sjöunda
skipti sem Mýherji efnirtil slíkrar ráðstefnu sem ávallt
hafa verið feikivel sóttar. Á ráðstefnunni gefst tækifæri
til að kynnast flestum þeim lausnum og nýjungum sem
fyrirtækið hefur að bjóða íslenskum fyrirtækjum.
Ráðstefnunni lýkur á hádegi laugardaginn 8. maí.
Haldnir verða yfir 30 fyrirlestrar og margir þeirra af
erlendum fyrirlesurum. Umfjöllunarefni er mjög fjölbreytt,
s.s. IBM AS/400 nýjungar og lausnir, IBM RS/6000 og
IBM WebSphare, netverslun og SET staðalinn, System/390,
Lotus Motes lausnir, SAP fjárhagsupplýsingakerfið, nýjungar
og lausnir í netbúnaði, PC sparnaðarmöguleikar, Metfinity
netþjóna, nettölvu IBM,Tivoli netumsjónarbúnað,fjármögn-
unar- og rekstrarleigu, Canon nettengdar Ijósritunarvélar,
afgreiðslukerfi, ráðgjöf Mýherja og þjónustudeild Mýherja.
Þátttaka tilkynnist með rafrænni skráningu frá heimasíðu
Nýherja http://www.nyherji.is eigi síðar en föstudaginn 30.
apríl nk. Mánari upplýsingar um ráðstefnuna má einnig
finna á heimasíðu Nýherja.
Vorráðstefna
* Sparaðu þínu fyrirtæki fé með lausnum Nýherja
"*■ Hittu alla helstu tölvuumsjónarmenn landsins
Eigðu Ijúfa daga í sveitasælunni í Hveragerði
* Bókaðu strax því þátttakendafjöldi er takmarkaður
NÝHERJI
Skaftahltð 24 ■ S:569 7700
http://www.nyherji.is