Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐID
VIÐSKIPTI
Guðmundur Bjarnason afhenti umhverfisviðurkenningar umhverfísráðuneytisins
í sátt við lífríki
lands og sjávar
Á DEGI umhverflsins, á sunnudag-
inn, afhenti Guðmundur Bjamason
umhverfisráðherra Olíufélaginu hf.
og Haraldi Böðvarssyni hf. viður-
kenningar umhverfisráðuneytisins
á Café Flórunni í Grasagarðinum í
Laugardal.
Allt frá því árið 1994, hefur ráðu-
neytið afhent fyrirtækjum, sem
skara fram úr í umhverfismálum,
viðurkenningar, ef undanskilið er
árið 1997. Að sögn Guðmundar var
ákveðið að bæta úr þessu nú og því
afhenti ráðuneytið tveimur fyrir-
tækjum viðurkenningar að þessu
sinni, annars vegar elsta útgerðar-
fyrirtæki landsins, Haraldi Böðvars-
syni hfi, fyrir árið 1997 og hins veg-
ar Olíufélaginu hf. fyrir árið 1998.
Guðmundur sagði að unnið hefði
verið mjög myndarlega að umhverf-
ismálum hjá báðum þessum fyrir-
tækjum. Hann sagði að í 93 ára
starfi Haralds Böðvarssonar hf.
hefði ávallt verið lögð áhersla á að
fyrirtækið ynni í sátt við lífríki
lands og sjávar.
„Á undanfömum ámm hefur ver-
ið unnið myndarlega að aðbúnaði
starfsmanna og verndun umhverfis
og þar lagður grunnur að markviss-
um vinnubrögðum í anda umhverf-
isstjórnunar. í þessari vinnu er
horft til ynargra atriða og má þar
nefna: Úrgangs- og fráveitumál,
hráefnisnotkun og nýtingu, notkun
og meðhöndlun hættulegra efna,
vöruþróun með tillíti til umhverfis-
mála, umbúðanotkun, gæðamál og
aðbúnað starfsmanna,“ sagði Guð-
mundur.
Þá sagði Guðmundur að fyrirtæk-
ið hefði einnig unnið mikið starf við
að nýta svokallaðan glatvarma frá
þéttivatni soðkjarnatækja til upp-
hitunar á húsakynnum fyrirtækis-
ins, en prkan hefur verið ónýtt til
þessa. Á næstu mánuðum verða öll
húsakynni Haralds Böðvarssonar
hf. á Ákranesi hituð upp með þess-
um varma þegar verksmiðjan er í
gangi.
Olíufélagið hf. hlaut, eins og áður
sagði, viðurkenningu ráðuneytisins
fyrir árið 1998. Að sögn Guðmundar
leggur fyrirtækið áherslu á forvarn-
ir og stöðugar umbætur til að fram-
fylgja stefnumiðum og markmiðum
í umhverfismálum. Hann sagði fé-
lagið vinna markvisst að því að
framfylgja umhverfisstjórnunar-
kerfi, en að það væri gert með að-
stoð rekstrarhandbókar, sem allar
bensínstöðvar félagsins hefðu, en í
henni kæmi fram hver umhverfis-
stefna fyrirtækisins væri. Á bensín-
stöðvum félagsins eru einnig Eftir-
litsbækur, sem notaðar eru við dag-
legt eftirlit, en daglega eru skráðar
yfir 35 færslur í hverja bók.
„Olíufélagið leggur áherslu á að
mengunarvarnarbúnaður bensín-
stöðva sé fullnægjandi og að virkni
hans sé ávallt sem best. Allar tunn-
ur sem félagið, hvort heldur er á
eigin olíubörum eða hjá viðskipta-
vinum, eru endurnotaðar. Þvotta-
stöðvar félagsins nota eingöngu um-
hverfisvæn þvottaefni, en ekki hefð-
bundna tjöruhreinsa," sagði Guð-
mundur.
Auk þess að fá sérstakt viður-
kenningarskjal í tilefni dagsins,
fengu fyrirtækin listaverk, sem
unnin voru af listakonunum Krist-
ínu ísleifsdóttur og Ólöfu Erlu
Bjarnadóttur.
Geir Magnússon forstjóri Olíufélagsins ESSO
Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri HB
„Viðurkenning
eflir liðsandann“
„Umhverfisstefna
sparar“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
UMHVERFISRÁÐHERRA Guðmundur Bjarnason
afhendir Geir Magnússyni viðurkenningu umhverf-
isráðuneytisins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HARALDUR Sturlaugsson tekur við viðurkenningu
umhverfisráðuneytisins fyrir árið 1997, úr hendi
umhverfisráðherra.
MÍN viðbrögð eru þau að mér
finnst þetta sé mikil viðurkenning
á okkar starfi, verandi með olíu
sem aðalvöru. í umræðunni hefur
verið stutt frá orðinu „olía“ yfir í
orðið „mengun", bæði þegar rætt
er um notkun olíunnar og með-
höndlun," sagði Geir Magnússon
um viðurkenningu umhverfisráðu-
neytisins fyrir árið 1998 sem veitt
voru Olíufélaginu hf. ESSO um
helgina.
„Notkunina ráðum við ekki við,
en við höfum einsett okkur að haga
meðhöndluninni þannig að við sé-
um umhverfisvænir.
Við höfum lengi verið meðvitaðir
um umhverfismál og höfðum t.a.m.
forgöngu um að setja utan um
tankana þrær og sérstaka klæðn-
ingu til að varna því að eldsneyti
færi í jarðveg. Það var var hinsvegar árið
1997 sem við ákváðum að móta okkur um-
hverfisstefnu,“ sagði Geir.
Að sögn Geirs nýtti Olíufélagið sér þekk-
ingu ESSO í Noregi þegar umhverfisstefna
fyrirtæksins var mótuð og Elísabet Pálma-
dóttir, verkfræðingur hjá Hönnun hf., hafi
leitt vinnuna, auk svonefndrar umhverfis- og
öryggisnefndar.
Geir sagði einnig að umhverfismálin séu
aðeins einn angi gæðakerfis sem nái yfir allan
rekstur Olíufélagsins og væri unnið sam-
kvæmt umhverfisstaðlinum ISO 14001, auk
gæðastaðalsins ISO 9001 og vinnuverndar-
staðlinum BS 8800.
Geir sagði að allir starfsmenn séu virkjaðir
í umhverfísmálunum og sé einn maður í þvi
starfi að fara á milli þjónustustöðva að kenna
fólki. „Það var mikil ánægja hjá okkar starfs-
fólki hér með verðlaunin. Maður finnur að
þetta hefur góð áhrif á liðsandann í svona fyr-
irtæki.“
Hvað nýjungar varðar sem væntanlegar
eru á þessu sviði hjá Olíufélaginu má nefna
sérstaka gufugleypa sem eiga að gleypa gufu
sem rýkur upp af olíubflum þegar eldsneyti
er dælt á þá og síðar einnig þegar eldsneyti
er dælt af þeim.
Aðspurður segist Geir Magnússon ekki
endilega sjá skilvirka framkvæmd umhverfis-
stefnu sem tæki til að ná betri stöðu í sam-
keppni á markaðnum. „Við erum bara að
uppfylla okkar metnaðannál gagnvart okkar
umhverfi. Ég sé ekki að markaðshlutföll olíu-
félaganna hafi breyst vegna umhverfisstefnu,
skógræktar eða landgræðslu eða stuðningi
Olíufélagsins við innlenda ferðaþjónustu. Ég
held að þessar átaksaðgerðir oh'ufélaganna
séu ekki að breyta hlutföllunum þeirra á
milli,“ sagði Geir Magnússon að lokum.
„VERÐLAUNIN era okkur
hvatning um að gera betur í fram-
tíðinni, og ánægjulegt að fá svona
viðurkenningu vegna þess að það
er margt starfsfólk sem kemur að
þessum umhverfismálum hjá fyrir-
tækinu. Ef umhverfismálin eru í
lagi þurfa margir að koma að þeim
og verða allir að vera vakandi, alla
daga. Það má segja að það að vinna
að umhverfísmálum sé sagan enda-
lausa,“ segir Haraldur Sturlaugs-
son, framkvæmdastjóri Haraldar
Böðvarssonar hf. á Akranesi, en
fyrirtækinu var um helgina veitt
viðurkenning umhverfisráðuneyt-
isins fyrir árið 1997.
Haraldur segir að umhverfis-
stefna Haraldar Böðvarssonar hf.
miðist við að skapa heilnæma af-
urð, hámarka nýtingu hráefna og
ganga um umhverfið af virðingu. „I 93 ára
starfi fyrirtækisins hefur ávallt verið lögð
áhersla á að vinna í sátt við lífríki lands og
sjávar. I þessari vinnu er horft til margra at-
riða og má þar nefna úrgangs- og fráveitu-
mál, hráefnisnotkun og nýtingu, notkun og
meðhöndlun hættulegra efna, vöruþróun með
tilliti til umhverfismála, umbúðanotkun,
gæðamál og aðbúnað starfsmanna," segir
Haraldur.
Umhverfisvitund innan
fyrirtækisins frá árinu 1933
„Það má segja að umhverfisvitund hafi ver-
ið innan fyrirtækisins frá árinu 1933 Þegar
rauði liturinn var fyrst settur á hús félagsins.
Það hefur alltaf verið hugsað um að hafa
snyrtilegt umhverfi og vel málað. Það er
svona fyrsta skrefið í þeim málum,“ segir
Haraldur en bætir við að áhersla á umhverf-
ismál hafi hins vegar komið um svipað leiti og
umhverfísvakning varð hér á landi fyrir
nokki-um áram og menn fóru að ræða þau
mál af alvöra.
„Það hefur verið mun hraðari þróun í þess-
um málum en menn kannski reiknuðu með.
Það er að hluta vegna krafna erlendis frá, og
eins vegna þess að áherslur í frystihúsum eru
að færast yfir í áherslur matvælaiðnaðar sem
kallar á síauknar kröfur um hreinlæti og ann-
að,“ segir Haraldur.
Hann segir að hjá fyrirtækinu séu um-
hverfishópar sem geri tillögur um umbóta-
verkefni. Aðalverkefni fyrirtækisins í um-
hverfismálum á undanfórnum áram er endur-
uppbygging sfldar- og fiskimjölsverksmiðj-
unnar. Þar hefur verið lögð áhersla á að bæta
umhverfi verksmiðjunnar, minnka lykt- og
reykmengun frá henni, ásamt því að vinna
verðmeiri afurðir.
Kraftur, } • }
þekking og frumkvæði fyrir Reyknesinga t t f 1-
Siv Friðleifsdóttir Hjdlmar Árnason Páll Magnússon Kosnin^askrífstofa Bæjarhrauni 26 : Hafnarfiríi, ; s.565-4790! 565-5740[ 565-5742 1
u FRAMSÓXIWmaKKBIUIUI Tölvupóstur: 1 reyUjanes@xb.isJ