Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 31
ERLENT
Tilræðismennirnir í Littleton í Colorado stefndu að enn meiri blóðsúthellingum
Hugðust myrða
a.m.k. 500 manns
Reuters
LOGREGLAN f Littleton áætlaði að um 70.000 manns hefðu sótt minn-
ingarathöfn um tólf nemendur og einn kennara sem biðu bana í árás
tveggja unglinga í framhaldsskóla staðarins f vikunni sem leið.
Littleton. The Daily Telegraph, AP.
FORELDRAR annars tilræðis-
mannanna, sem urðu tólf nemendum
og kennara að bana í framhaldsskóla
í Littleton í Colorado í vikunni sem
leið, vissu af byssu og búnaði til
sprengjugerðar í herbergi sonai- síns
en létu hjá líða að grípa í taumana,
að sögn Johns Stones, lögreglustjóra
Jefferson-sýslu. Lögreglustjórinn
skýrði ennfremur frá því um helgina
að tilræðismennirnir hefðu ætlað að
myrða að minnsta kosti 500 nemend-
ur og kennara, ráðast á íbúðarhús í
grennd við skólann, ræna síðan flug-
vél og brotlenda henni í New York.
John Stone sagði að tilræðismenn-
irnir tveir, Eric Harris, 18 ára, og
Dylan Klebold, 17 ára, hefðu skrifað
dagbók og þar kæmi fram að þeir
höfðu skipulagt árásina í ár áður en
þeir létu til skarar skríða.
Stone sagði að afsagað hlaup
byssu, sem notuð var í tilræðinu, og
búnaður til sprengjugerðar hefðu
fundist í herbergi annars tilræðis-
mannanna og hann furðaði sig á því
að foreldrarnir skyldu ekki hafa
gripið í taumana. „Eg tel að foreldr-
ar eigi að bera ábyrgð á gerðum
barna sinna,“ sagði lögreglustjórinn.
„Eg myndi hafa miklar áhyggjur ef
ég sæi byssuhlaup og efni til
sprengjugerðar í herbergi sonar
míns.“
Lögi'eglustjórinn neitaði að skýra
frá því hvort hann ætti við foreldra
Harris eða Klebolds. Hann skýrði
ennfremur frá því að í dagbók til-
ræðismannanna kæmi fram að þeir
Ætluðu síðan að
ræna flugvél og
brotlenda henni
í New York
hefðu þaulskipulagt árásina og
ákveðið að láta til skarar skríða á af-
mælisdegi Adolfs Hitlers. Þeir hefðu
m.a. teiknað kort af skólanum og ná-
grenni hans og fylgst með mötuneyti
og bókasafni skólans í marga mánuði
í því skyni að meta hvenær best væri
að hefja árásina til að verða sem
flestum að bana.
„Ætluðu að drepa
eins marga og þeir gætu“
í dagbókinni kemur fram að til-
ræðismennirnir könnuðu hvar best
væri að skjóta á nemendur og kenn-
ara skólans og útilokuðu nokkra
staði vegna slæmrar lýsingar. Dag-
bókin leiddi ennfremur í ljós að til-
ræðismennirnir hugðust einkum
myrða íþróttamenn, sem höfðu gert
gys að þeim vegna aðildar þeirra að
„rykfrakkamafíunni", hópi óvinsælla
nemenda við skólann.
Lögreglustjórinn sagði ennfremur
í viðtali við The Denver Post að til-
ræðismennh-nir hefðu ætlað að ræna
flugvél og brotlenda henni í New
York ef þeir kæmust lífs af úr fram-
haldsskólanum. „Þeir ætluðu að
brenna skólann til kaldra kola,
ganga síðan berserksgang í ná-
grenninu og drepa eins marga og
þeh- gætu.“
Hugsanlegra vitorðs-
manna Ieitað
Lögreglan kvaðst enn telja að til-
ræðismennirnir hefðu notið aðstoðar
annarra við að undirbúa árásina og
fela rúmlega 30 sprengjur í bygging-
unni og á skólalóðinni. Enn er þó
talið að Harris og Klebold hafí verið
þeir einu sem beittu byssum í
árásinni.
Tilræðismennirnir notuðu fjórar
byssur í árásinni og bandaríska al-
ríkislögi-eglan FBI hefur komist að
því að átján ára vinkona Klebolds
keypti tvær þeirra á byssusýningu í
Denver fyrir einu og hálfu ári. Lög-
reglan hefur yfirheyrt hundruð
manna til að hafa uppi á hugsanleg-
um vitorðsmönnum.
Þúsundir manna
minnast fórnarlambanna
Áætlað er að um 70.000 manns
hafi sótt minningarathöfn um fórnar-
lömb tilræðismannanna á bílastæði
verslunarmiðstöðvar nálægt fram-
haldsskólanum í Littleton á sunnu-
dag. A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, og eiginkona hans voru á með-
al viðstaddra.
Mikið fjölmenni var einnig við út-
för þriggja nemenda sem tilræðis-
mennirnir urðu að bana. Klebold var
hins vegar jarðsettur í kyrrþey og
foreldrar hans gáfu út yfirlýsingu
þar sem þeir báðust afsökunar á
gerðum sonar síns. „Við elskuðum
hann eins mikið og við gátum elskað
barn. Harmur okkar vegna dauða
hans og þessa harmleiks er ólýsan-
legur.“
mm
r<Y7A
CRISPIX
Kauptu þér pakka
af Kelloggs kornflögum
og þu fœrð kassa af
Kelloggs Crispix
morgunmúslí í kaupbœti!
---KaOþtu þér pakka I
af Kelloggs kornflögum
og þú foerð kassa af
Kelloggs Crispix
morgunmúslí í kaupbœtil
Kauptu þér pakka
af Síríus rjómasúkkulaði
og þú færð annan
Opit5 rxtag frá lítOO- til
gunmu^f