Morgunblaðið - 27.04.1999, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 27.04.1999, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 37 LISTIR Helga Rós Indriðadóttir ráðin að óperunni í Stuttgart Hún hefur ekki lokið námi, en er þegar komin með tveggja ára samning við óperuna í Stuttgart. Sigrún Davíðsdóttir sló á þráðinn til Helgu Rósar Indriðadóttur söngkonu. FYRIR skömmu var viðtal við hana í Stuttgarter Zeitung í tilefni af því að hún söng hlutverk Freyju í nýrri og rómaðri uppsetningu Stuttgart-óperunnar á Rínargulli Wagners. Þar sagði hún frá því hve mjög það kom henni á óvart að fá hlutverkið. Nú er hún ekki síður undrandi og glöð að hún hefur í höndunum tveggja ára samning við þetta virta óperuhús. Helga Rós Indriðadóttir lýkur þó ekki námi iýrr en í vor, en þeir hjá óperunni í Stuttgart hafa augun á ungum og efnilegum söngvurum, sem þeir vilja gjaman laða til starfa hjá sér. Óper- an í Stuttgart var valin óperahús ársins 1998 af þýska óperublaðinu Opernwelt og ein sýning hússins var sömuleiðis valin sýning ársins af tímaritinu, sem gefur tóninn í skrif- um um þýskt og alþjóðlegt óperulíf. Freyja í Rínargullinu Helga Rós er fædd og uppalin í Skagafirði, en fór í Fjölbrautaskól- ann á Akranesi og þar sem hún hafði spilað á píanó síðan hún var sjö ára og var upptekin af tónlist tók hún stúdentspróf á tónlistarbraut. Þá lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykja- vík, þar sem hún tók tónmennta- kennarapróf. En söngurinn var kominn til sögunnar og 1996 lauk hún einsöngvaraprófi og söngkenn- araprófí frá sama skóla, eftir að hafa stundað nám hjá Sieglinde Kah- mann. Það var ekki síst fyrir hvatn- ingu Sieglinde að leiðin lá í óperu- skólann við tónlistarháskólann í Stuttgart, en þar stundaði Sieglinde einnig nám á sínum tíma, auk þess sem hún hóf síðan feril sinn við Stuttgart-óperuna. Náminu við óperuskólann er Helga Rós að ljúka nú í sumar, en þar stundar hún nám hjá France Simard. í upphafí áleit hún sig mezzó-sópran, en þegar til Stuttgart kom voru kennarar hennar sammála um að hún væri sópran. „Það var í raun ekki mikil breyting fyrir mig, heldur aðeins spurning um að syngja aðra hluti. Röddin var þegar á þessari leið,“ segir Helga Rós. í fyrra söng Helga Rós fyrir í óp- erunni í Stuttgai-t og var síðan valin í tvö lítil hlutverk í Krýningu Popp- eu eftir Monteverdi. En henni til mikillar undrunar var hún einnig valin til að syngja hlutverk Freyju í Rínargullinu, sem var frumsýnt 12. mars. Sú sýning hefur fengið gríðar- góða gagnrýni. Sviðsetning Joachim Schlömer ballettstjóra í Basel þykir takast með eindæmum vel. í Stutt- garter Zeitung er talað um að bæði söngur og leikur sé gæddur áleitn- um ákafa. Freyja í túlkun Helgu Rósar er sögð „skýr og eðlileg" og í fleiri blöðum er talað um hrífandi túlkun hennar. Uppsetning RínarguOsins er liður í heildaruppsetningu á Niflunga- hring Wagners í Stuttgart-óperunni, þar sem sú leið er farin að fá fjóra leikstjóra til að setja upp hver sína óperu. í Götterdámmerung mun Helga Rós fara með hlutverk 1. Rín- ardóttur, en einnig syngja hlutverk Ninettu í Astin á appelsínunum þremur eftir Prókoffíeff og lítið hlutverk í Leðurblökunni, auk þess sem hún mun halda áfram í Rínar- gullinu og Krýningu Poppeu. Alls mun hún syngja í 45 sýningum á næsta leikári, en hefur hug á fleiri verkefnum eftir því sem þau bjóð- ast. Nú þegar er hún bókuð til að syngja á nokkram tónleikum „og svo er kannski kominn tími til að halda tónleika heima á íslandi," bætir hún við, en þar hefur hún ekki sungið síðan hún hélt utan 1996. Stór og lítil hús „Það er gott að vera í Þýskalandi," segir Helga Rós, „þótt þar vanti auð- vitað fossa og ár og um leið kraftinn í umhverfíð," segir hún. Frá sjónar- miði söngnema og söngkonunnar er staðurinn eins og best verður á kos- ið. Það ríkja eilífðarumræður meðal söngvara hvar best sé að byrja feril- inn, hvort betra sé að byrja í litlum eða stórum húsum. „Það hefur allt sína kosti og galla,“ segir Helga Rós. „Kosturinn við að byrja í litlu húsi er að maður fær strax að syngja stór hlutverk og það getur auðvitað verið gott, en um leið hefur maður færri fyrirmyndir. I Stuttgart fæ ég lítil hlutverk, en vinn með stórgóðu fólld ogþað er mjög lærdómsríkt." Onnur hætta fyinr unga söngvara er að vera ofnotaður af óperuhúsun- um. „Það er oft talað um að það sé meiri hætta á slíku í stóra húsunum, en ég held það eigi ekki síður við í litlum húsum. Það er alltaf verið að spara og í litlum húsum er þá hætta á að söngvarar séu látnir syngja upp fyrir fagið sitt, notaðir jafnt í óperar, óperettur, söngleiki og á tónleika." Helga Rós segist þegar hafa haft mikla ánægju af kynnum sínum af Stuttgart-óperunni og starfsfólkinu þai-. „Eg kem til með að fá tækifæri til að vinna með ýmsum leikstjóram og góðum undirleikurum og af því get ég lært mildð. I litlum hlutverk- um verður álagið á röddina ekki mjög mikið, sem er gott meðan ég er að læra að fóta mig í faginu. Það hefur allt sína kosti og galla, en ég er mjög ánægð að byrja hér, fínnst það góð byrjun og gott vegamesti." Samstarf við leikstjóra er Helgu Rós ofarlega í huga, því kröfur til leiklistarhæfileika söngvara vaxa stöðugt. „Fólk heldur kannski að söngvari þurfí aðeins að geta sungið, en í raun eru söngvarar orðnir syngjandi leikarar,“ segir hún. „Þetta er eðlilegt, því áherslan á hið sjónræna er stöðugt að aukast og þar verður óperan að fylgja með.“ Með góðar umsagnir um túlkun Helgu Rósar á Freyju vaknar sú spurning hvort hún sjái Wagner sem sitt framtíðarfag, en því tekur hún hikandi. „Sem stendur vil ég helst halda mig við lýrísk verkefni og fara ekki of snemma út í dramat- ísk hlutverk, en hvað verður seinna meir er ómögulegt að segja. En Wagner á í mér tök vegna sagnanna okkar, sem hann notar. Það er ótrú- legt hvemig hann gat sett þessa tónlist saman og svo textana," segir Helga Rósa. „En í söngnum lærir maður fljótt að taka aðeina eitt skref í einu og reyna að gera vel það sem maður fæst við þá stundina. Annað verður að koma í ljós síðar.“ Ljósmynd/A.T. Schaefer HELGA Rós Indriðadóttir í hlutverki Freyju í Rfnargulli Wagners. Með henni á myndinni er söngvarinn Roland Bracht. Leið- rétting ÞAU leiðu mistök urðu við birtingu viðtals við Sigur- björgu Þrastardóttur í blað- inu á laugardag að síðasta lína ljóðs úr nýútkominni Ijóðabók hennar, Bláloga- landi, féll niður. Því er ljóðið birt aftur um leið og beðist er velvirðingar á mistökunum. För Tálga sverð úr innvið að höggva mér leið gegnum skóginn kannski verð ég lögð í gegn fyrir vikið kannski mæti ég gömlu ljóni kannski er þetta ekki skógur heldur runni en allur er varinn góður þorpsfíflið sver að enginn komist vopnlaus í gegn. íslendingahótelið Picasso á Benidorm 9. júni irá b 49.855 í 2 vikur Viðbótarsæti 26. maí Nýja íslendingahótelið okkar á Benidorm, Picasso, hefur fengið hreint frábærar viðtökur í sumar og nú þegar er uppselt í fjölda ferða í sumar. Hótelið er staðsett í hjarta Benidorm, þaðan sem er örstutt að ganga í allar áttir og aðeins 5 mínútna gangur niður á strönd. Rúmgóðar, vel búnar íbúðir með einu svefnher- bergi, stofu, eldhúsi, baði og stórum svölum. Garður með sundlaug og veitinga- stað og íslenskur starfsmaður Heimsferða í móttökunni. Bókaðu meðan enn er laust og tryggðu þér góðan aðbúnað á góðu verði á Benidorm í sumar. Verð kr. 59.990 M.v. 2 í íbúð. 2 vikur, 9. júní, Picasso. Verð kr. 49.855 M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, 2 vikur, 9. júní. HEIMSFERÐIR KRINGLUNNI \c3 SÍMI 553 7355 Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is £
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.