Morgunblaðið - 27.04.1999, Qupperneq 52
> 52 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Skák í
hreinu
lofti 1999
SKAK
Ilellisheimilíð,
Þönglabakka I
SKÁK í HREINU LOFTI
22. apríl
ÞRÍR keppendur urðu jafnir
og efstir á Skák í hreinu lofti,
einu glæsilegasta barna- og ung-
lingaskákmóti ársins. Dagur
Ai-ngrímsson, Sigurður Páll
Steindórsson og Halldór Brynjar
Halldórsson hlutu allir 8 vinninga
í 9 umferðum. Mótsstjórn hafði
ákveðið að láta fara fram auka-
keppni um einstök verðlaunasæti
og keppni þessara þriggja varð
reyndar þríhliða barátta um
verðlaunasæti. í fyrsta lagi
kepptu þeir um það hver teldist
sigurvegari á mótinu sjálfu. I
öðru lagi var teflt um tvö sæti í
sérstöku einvígi sem sjónvarps-
stöðin SÝN stendur fyrir og
verður á dagskrá nk. laugardag.
I þriðja lagi tefldu þeir Halldór
og Sigurður Páll um verðlaun í
sínum aldursflokki en þau voru
ferð á skákmót erlendis.
Dagur sigraði í keppninni, Sig-
urður Páll lenti í öðru sæti og
Halldór í því þriðja. Dagur Arn-
grímsson er því sigurvegari á
„Skák í hreinu lofti 1999“. Dagur
og Sigurður Páll tefla sérstakt
einvígi á SÝN nk. laugardag. Sig-
urður Páll varð hlutskarpastur í
sínum aldursflokki þar eð hann
vann Halldór í innbyrðis viður-
eign.
Allir keppendur á mótinu
tefldu í einum flokki og voru
keppendur rösklega 170 talsins.
Aðalverðlaun mótsins voru ferðir
á heimsmeistaramót bama og
unglinga í Disney-garðinum í
París næsta haust. I elsta aldurs-
flokknum var keppt um ferð fyrir
pilt og stúlku á mót erlendis. Sig-
urvegarar í einstökum flokkum
voru þessir:
Stúlkur fæddar 1987-9:
1. Anna Lilja Gísladóttir.
Piltar fæddir 1987-9:
1. Dagur Arngrímsson
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HERMANN Gunnarsson, sem var kynnir mótsins, ásamt þeim
Onnu Margréti Sigurðardóttur, Önnu Lilju Gísladóttur og Ingi-
björgu Eddu Birgisdóttur, en þær sigruðu í stúlknaflokkuni, og
Helga Ólafssyni stórmeistara.
Stúlkur fæddar 1985-6:
1. Anna Margrét Sigurðardóttir
Piltar fæddir 1985-6:
1. Guðjón Heiðar Valgarðsson
eftir bráðabana gegn Ólafi Gauta
Olafssyni.
Stúlkur fæddar 1983-4:
1. Ingibjörg Edda Birgisdóttir
Piltar fæddir 1983-4:
Sigurður Páll Steindórsson - eftir
aukakeppni við Halldór Brynjar
Halldórsson.
Þessir keppendur fengu 50%
vinningshlutfall eða meira:
1. Dagur Amgrímsson 8 v.
2. Sigurður Páll Steindórsson 8 v.
3. Halldór Brynjar Halldórsson 8 v.
4. Guðni Stefán Pétursson 7V4 v.
5. -13. Guðmundur Kjartansson, Birkir
Örn Hreinssijn, Ingibjörg Edda Birgis-
dóttir, Páll Óskar Kristjánsson, Bene-
dikt Örn Bjamason, Harald Björnsson,
Ólafur Kjartansson, Ólafur Gauti Ólafs-
son, Guðjón Heiðar Valgarðsson 7 v.
14.-17. Stefán Bergsson, Hilmar Þor-
steinsson, Arnljótur Sigurðsson, Stefán
Guðmundsson 6Vi v.
18.-35. Heimir Einarsson, Daníel
Richter, Máni Atlason, Stefán Ingi
Amarsson, Kristinn Símon Sigurðar-
son, Viðar Berndsen, Alfreð Ellertsson,
Grímur Daníelsson, Elí Bæring
Frímannsson, Hafliði Hafiiðason, Sig-
urjón Kjærnested, Víðir Petersen,
Andri Þór Sigurðsson, Björn Gestsson,
Aldís Rún Lárusdóttir, Guðlaugur P.
Frímannsson 6 v.
36.-46. Anna Lilja Gísladóttir, Hjörtur
Ingvi Jóhannsson, Jóhann Valur Sæv-
arsson, Oddur Helgi Óskarsson, Daníel
Helgason, Gísli Logi Logason, Stefán
Atli Thoroddsen, Sigurður Þ. Guð-
mundsson, Rúnar Geir Ólafsson, Viktor
Orri Valgarðsson og Vilhjálmur Þórar-
insson 51/2 v.
47.-73. Birgir Þór Magnússon, Haf-
steinn Jónasson, Ásgeir Birkisson,
Gylfi Davíðsson, Víkingur Fjalar Ei-
ríksson, Einar Hallgrímsson, Sölvi
Guðmundsson, Tómas Ami Gunnars-
son, Aron Ingi Óskarsson, Ómar Logi
Gunnarsson, Sigurður Finnbogason,
Garðai' Sveinbjörnsson, Hendrik Tóm-
asson, Árni Gunnar Eyþórsson, Árni
Valur Sigurðsson, Árni Júlíus Arnar-
son, Árni Jakob Ólafsson, Steinunn
Kristjánsdóttir, Einar Orri Sveinsson,
Magnús Guðmundsson, Oddur Ari Sig-
urðsson, Darri Páll Einarsson, Elsa
María Þorfinnsdóttir, Magnús Magnús-
son, Daníel Þór Gerena, Óskar Ingi
Magnússon, Guðmundur Magnússon 5
v.
74.-90. Anna Margrét Sigurðardóttir,
Láms Helgi Ólafsson, Þorsteinn Páls-
son, Magnús Norðfjörð, Baldvin Ingi
Gunnarsson, Egill Þorláksson, Stefán
Már Möller, Guðni Páll Kárason, Anna
Margrét Rúnarsdóttir, Valdimar Garð-
ar Guðmundsson, Ásbörn Ólafsson,
Magnús Gunnlaugsson, Guðjón H.
Hilmarsson, Guðbjörn Jansson, Ari
Baldur Baldursson, Una Helga Jóns-
dóttir, Flóki Sigurðsson 4‘/2 v.
o.s.frv.
Islenska útvarpsfélagið, VISA-
Island, Tóbaksvamarnefnd og
SAM-bíóin voru aðalstyrktaraðil-
ar mótsins. Vaka-Helgafell og
fjölmargir aðrir stuðningsaðilar
koma einnig að mótinu með ein-
um eða öðrum hætti. Skákskóli
Islands, með Helga Olafsson stór-
meistara í fararbroddi, sá um
undirbúning mótsins ásamt Skák-
sambandi Islands.
Þetta er í annað skipti sem
Skák í hreinu lofti er haldið og
hefur mótið heppnast afar vel í
bæði skiptin. Tilgangurinn með
mótinu er að leggja baráttunni
gegn reykingum lið. Auk fjölda
verðlauna og happdrættisvinn-
inga fengu allir keppendur bol
með áletrun sem minnir á þetta
baráttumál.
Mótið var haldið í Hellisheimil-
inu í Þönglabakka 1 í Mjódd.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
BKIDS
Umsjón Arnór G.
R a g n a r s s u 11
Nútíma brids
Nútíma bridge heitir ný íslensk
bridsbók eftir Guðmund Pál Ai-n-
arson. I inngangi segir höfundur að
bókinni sé ætlað að þjóna nokkuð
breiðum hópi spilara, bæði reynd-
um keppnisspilurum og áhugasöm-
um nýliðum. Fjallað er um öll svið
spilsins: sagnir, úrspil og vörn.
Bókin er í átta köflum. í þeim
fyrsta eru Standard-sagntöflur í
knöppu formi, en í síðari köflum er
nánari umræða um einstakar stöð-
ur, sem ekki eru beint bundnar
grunnkerfl. Kaflar 2-8 hefjast allir
á þraut, sem lesandinn er beðinn
um að glíma við áður en hann
ræðst til atlögu við efni kaflans.
Umfjölluninni er svo skipt í þrennt:
sagnir, spilamennsku sagnhafa og
vöm, og er ætíð lagt út af inn-
gönguspilinu í umræðunni sem á
eftir fer. I bókinni er að finna
fjölda sagnvenja, sem meistarar
nútímans telja ómissandi. Þá er
* i reynt að varpa Ijósi á margvíslega
útspilstækni, eins og innkast, öfug-
an blindan og kastþröng. Loks er
mikil áhersla lögð á að byggja upp
heilsteypt varnarkerfi: leiddar eru
til sögunnar helstu hjálparreglur
vamarinnar, eins og kall/frávísun,
talning og hliðarkall, og settar
fram reglur um forgangsröð í ein-
stökum stöðum. I lok hvers kafla
eru æfingar og svör.
Nútíma bridge er 144 blaðsíður í
gormabandi.
Tvímenningsmót Vals
að Hlíðarenda
Lokastaðan í tveggja kvölda tví-
menningsmóti Vals að Hlíðarenda
eftir 2 lotur.
Stefanía Skarphéðinsd. - Aðalsteinn Sveinss.
511
Sverrir Kristinss. - Símon Símonars. 509
Baldur Bjartmarss. - Halldór Þorvaldss. 495
Vilhjálmur Sigurðss. - Daníel M. Sigurðss. 482
Guðmundur Aronss. - Trausti Friðfmnss. 478
Guðný Guðjónsd. - Jón Hjaltas. 461
Vigdís Einarsd. - Marinó Einarss. 448
KristinnKarlss.-Porsteinn Joensen 441
Friðrik Jónss. - Friðjón Vigfúss. 440
Soffía Damelsd. - Stefán Garðarss. 431
Bridsfélag
Suðurnejsa
Eftir 8 umferðir af 13 í aðaltví-
menningi félagsins er staða efstu
manna sem hér segir:
Karl G. Karlss. - Randver R. - Gunnl. S. 48
Garðar Garðarss. - Bjami Kristjánss. 37
Kjartan Ólas. - Óli Kjartanss. 37
Þröstur Þórhallss. - Vignir Sigurðss. 35
Karl Hermannss. - Amór Ragnarss. 16
Karl Einarss. - Björn Dúason 12
Þá má minna á Reykjanesmótið í
tvímenningi sem verður spilað í
Mánagrund laugardaginn 24. apríl.
Suðurnesjamenn geta skráð sig hjá
Kjartani í síma 421 2287.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Nú er lokið aðalsveitakeppninni.
18 sveitir spiluðu 10 umferðir sam-
kvæmt Monrad-útreikningi. Sigur-
vegari varð sveit Ara Más Arason-
ar með 202 stig, meðaltal 20 stig í
leik. I sveitinni voru Ari Már Ara-
son, Páll Jónsson, Páll Þórsson,
Frímann Stefánsson og Steinar
Jónsson. I öðru sæti varð Nota
Bene með 196 stig. Spilarar Sig-
mundur Stefánsson, Hallgrímur
Hallgrímsson, Guðmundur Bald-
ursson, Jens Jensson og Magnús
Aspelund. I þriðja sæti sveit Guð-
rúnar Jörgensen 177 stig. Þar spil-
uðu Guðrún Jörgensen, Guðlaugur
Sveinsson, Þórður Bjarnason, Er-
lendur Jónsson, Birgir Jónsson,
Friðjón Þórðarson. Verðlaun fyrir
3 efstu sveitirnar verða afhent á
spilastað hinn 10. maí nk.
Mánudaginn 26. apríl nk. verður
spilaður eins kvölds Mitchell-tví-
menningur. Rauðvín í verðlaun fyr-
ir bestu skor í N/S og A/V. Skrán-
ing á spilastað í Þönglabakka 1
stundvíslega kl. 19.30.
Bridsfélag
Hafnarfjaðrar
Vortvímenningur félagsins fór
rólega af stað og er heldur dræm
þátttaka. Eftir fyrsta kvöldið af
þremur eru þessi pör efst:
Hjálmar S. Pálss. - Gisli Steingrímss. 136
Höpi Friðþjófss. - Gunnlaugur Óskarss. 121
Guðmundur Magnúss. - Ólafur Jóhannss. 121
Jón N. Gíslas. - Gísli Hafliðas. 111
Meðalskor 108
Ekkert mál er að bæta við pör-
um ef einhverjir vilja taka þátt tvö
seinni kvöldin. Spilastaður er
Hraunbolt, Dalshrauni 15.
Alþj óðavæðing
atvinnulífs
á Islandi
SUNNUDAGINN
18. api-fl sl. bh-tist í
Morgunblaðinu grein
eftir ungan lögfræð-
ing, Baldvin Björn
Haraldsson, undir fyr-
irsögninni: Vínar- og
New York-samningur-
inn eru forsendur al-
þjóðavæðingar. Segir
höfundur tilefni grein-
arinnar vera það, að
afar mikilvægir al-
þjóðasamningar hafi
orðið útundan í um-
ræðunni um alþjóða-
væðingu atvinnulífs á
íslandi. Meðal þeirra
séu Vínarsamningur-
inn frá 1980 um lausafjárkaup
(CISG) og New York-samningurinn
frá 1958 um viðurkenningu er-
lendra gerðardóma. Lætur höfund-
ur það álit sitt í ljósi, að aðild að
þessum samningum sé mikilvæg
forsenda alþjóðavæðingar atvinnu-
lífs á Islandi.
I grein sinni bendir lögfræðing-
urinn á, að sökklar alþjóðavæðing-
ar séu steyptir með breytingum á
löggjöf og aðlögun löggjafarinnar
að leikreglum hins alþjóðlega sam-
félags. Alþjóðavæðingin snúist um
margt fleira en frjálst flæði. Hún
snúist einnig og ekki síður um gild-
istöku alþjóðlegra leikreglna í víð-
ara samhengi. Hann bendir á, að sú
staðreynd, að lögfesting alþjóð-
legra leikreglna á viðskiptasviðinu
hafi orðið útundan hér á landi, leiði
til þess, að erlendir aðilar líti tor-
tryggnisaugum til íslensks markað-
ar, þegar þeir meti stöðu sína í við-
skiptum við íslenska aðila. Þeir lesi
almennt ekki íslenska löggjöf og
þurfí því að kynna sér með öðrum
hætti hvort íslensk löggjöf sé við-
skiptavæn fyrir erlenda aðila. Það
gerist með athugun á því, hverjir
alþjóðasamningar gildi hér á landi.
Höfundur fjallar síðan stuttlega í
grein sinni um Vínarsamninginn
frá 1980 um alþjóðleg lausafjár-
kaup (CISG) og segir biýna nauð-
syn að Island gerist aðili að samn-
ingi þessum svo hægara sé og ör-
uggara fyrir ei'lenda aðila að eiga
viðskipti við íslenska aðila á jafn-
réttisgrundvelli. I lokaorðum skor-
ar hann á stjórnvöld að taka til
höndunum og hefja strax undirbún-
ing að fullgildingu samninganna.
Hér er hreyft athyglisverðu máli
og má undir flest af því taka, sem
lögfræðingurinn hefur fram að
færa. Askorun hans um að taka til
höndunum og hefja undirbúning að
fullgildingu samninganna er þó
óþörf.
V ínarsamningurinn
frá 1980
Á síðasta löggjafarþingi lagði ég
fram og mælti fyrir frumvarpi til
nýrra laga um lausafjárkaup, sem
m.a. hefur að markmiði að leiða í
lög hér á landi efnisákvæði Vínar-
samningsins. Fnimvarp þetta varð
því miður ekki útrætt á síðasta
þingi, en því er ætlað að leysa af
hólmi gildandi lög um lausafjár-
kaup, sem eru frá árinu 1922.
Nýja kauplagafrumvarpið hefur
fjögur meginmarkmið að leiðar-
ljósi. í fyrsta lagi að laga íslenska
viðskiptalöggjöf að breyttum við-
skiptaháttum og breyttri þjóðfé-
lagsumgjörð, enda bráðum 80 ár
liðin frá lögfestingu gildandi kaup-
laga. I öðru lagi að efla réttarstöðu
neytenda. í þriðja lagi að tryggja
norræna réttareiningu á sviði
kauparéttar og í fjórða lagi að leiða
í lög hér á landi efnisá-
kvæði samnings Sam-
einuðu þjóðanna um
sölu á vöru milli ríkja
frá 1980, The 1980
United Nations Con-
vention of the
International Sale of
Goods (CISG). Æski-
legt er, að sem mest
samræmi sé á milli
þjóðlegra og alþjóð-
legra reglna á sviði
lausafjárkaupa.
Ástæðan er m.a. sú, að
þeir, sem viðskipti
stunda, geta þá fremur
reitt sig á, að svipaðar
reglur gildi í megin-
dráttum um sömu réttaratriðin,
hvort sem kaupin gerast á innlend-
um eða erlendum vettvangi. Er
hinu nýja frumvarpi ætlað að
tryggja þetta.
Kauplagafrumvarp
Mikilvægt er, segir
Finnur Ingdlfsson, að
nýkjörið Alþingi taki
strax næsta haust nýja
kauplagafrumvarpið til
meðferðar og tryggi
framgang þess.
N Y-sanmingurinn
frá árinu 1958
I bréfi er ég ritaði til utanríkis-
ráðherra fyrir tæpum tveimur ár-
um vakti ég athygli hans á nauðsyn
þess að staðfestur verði samningur
SÞ frá 1958 um gerðardóma. Á
fundi embættismanna ráðuneyt-
anna var ákveðið að frekari undir-
búningur þess máls yrði í höndum
utanríkis- og dómsmálaráðuneyt-
anna. Þess er því að vænta að nauð-
synlegri undirbúningsvinnu Ijúki
innan tíðar og samningurinn verði
lagður fyrir Alþingi til staðfesting-
ar.
Við setningu laga hér á landi um
viðskipti þarf að hyggja að mörgu
fleiru en því einu að treysta réttar-
stöðu erlendra aðila. Neytendarétt-
ur hefur verið í örri þróun á síðustu
árum jafnt hérlendis sem erlendis.
Hefur mikil áhersla verið lögð á
aukna vernd neytendum til handa á
öllum sviðum hér á landi.
I frumvarpi því til nýrra kaup-
laga, sem ég lagði fram og mælti
fyrir á síðasta þingi, er að finna
margvísleg ákvæði um neytendur,
sem verða nýmæli í íslenskri lög-
gjöf, ef frumvarpið verður að lög-
um. Horfa ákvæði þessi öll tví-
mælalaust í þá átt að styrkja og
efla réttarstöðu neytenda. Lögfest-
ing slíkra reglna mun fylla inn í þá
eyðu, sem myndast hefur hér á
landi á sviði neytendaverndar, og
mun vernd neytenda á íslandi að
þessu leyti verða sambærileg og í
nágrannaríkjum okkar, ef frum-
varpið verður að lögum.
Mikilvægt er að nýkjörið Alþingi
taki strax næsta haust, þegar það
kemur saman, nýja kauplagafrum-
varpið til meðferðar og tryggi
framgang þess. Með lögfestingu
þess mun réttarstaða neytenda hér
á landi aukast mjög og jafnframt
yi'ði stuðlað að alþjóðavæðingu ís-
lensks atvinnulífs.
Höfundur cr iðnnðnr- og viðskiptn-
ráðherra.
Finnui'
Ingólfsson
vg'mbUs
LLTAf= eiTTH\SA£> /VÝ/ /