Morgunblaðið - 27.04.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 53 <
Bláa lónið -
Náttúruleg með-
ferð við psoriasis
NOKKUR umræða
hefur orðið að undan-
fömu um möguleika
psoriasis-sjúklinga til
náttúrulegrar meðferð-
ar við sjúkdómnum og
hefur þá einkum verið
horft til loftslagsmeð-
ferðar erlendis. I þeirri
umræðu, sem hefur
verið nokkuð tilfinn-
ingaþrungin á köflum,
hefur mér fundist að
ágæti Bláa lónsins hafi
ekki verið haldið á
lofti. Vegna þess að ég
hef persónulega mjög
góða reynslu af með-
ferð í Bláa lóninu lang-
ar mig að vekja athygli á þeim
möguleikum sem þar eru fyrir
hendi.
Það eru bráðum 20 ár síðan vís-
indalegar rannsóknir hófust á
áhrifum jarðsjávarins við orkuver
Hitaveitu Suðurnesja á húð. Lækn-
ingamáttur jarðsjávarins í Bláa
lóninu við psoriasis er nú vel
þekktur og einnig góð áhrif hans á
heilbrigða húð. Um það þarf ekki
að fara mörgum orðum. En ég leyfi
mér að vitna til orða Sólveigar B.
Granz yfirhjúkrunarfræðings við
Göngudeildina við Bláa lónið, en
hún segir eftirfarandi í Fréttabréfi
Bláa lónsins 3. tbl. 1. árg. Sólveig
segir sérstöðu meðferðarinnar
fyrst og fremst felast í því að með-
ferðin er náttúruleg. Síðan segir
hún: „Algengt er að meðferðarúr-
ræði hafi aukaverkanir I för með
sér, en þar sem meðferðin við Bláa
lónið er tilbúin frá náttúrunnar
hendi hefur hún engar aukaverk-
anir í för með sér. Einnig er mikill
kostur hvað fólk nær góðri and-
legri og líkamlegri slökun um leið
og það stundar húðrækt í Bláa lón-
inu.“
Ég kom fyrst til meðferðar í Bláa
lóninu sumarið 1995. Þá var ég bú-
settur á Húsavík og tók mér frí,
dvaldi í tvær vikur í Reykjavík og
ók daglega í Bláa lónið. Eftir 16
daga meðferð var árangurinn ótrú-
legur, ekki var ég þó alveg ein-
kennalaus, en batinn entist í all-
marga mánuði. Síðan hef ég
nokkrum sinnum sótt Bláa lónið
með mjög góðum árangri. A árinu
1997 hafði ég náð mjög góðum bata
í Bláa lóninu og fór í beinu fram-
haldi á eigin vegum í frí til Kanarí-
eyja og hugðist bæta
yið árangurinn þannig.
Ég varð hinsvegar fyr-
ir nokkrum vonbrigð-
um vegna þess að bat-
inn virtist ekki halda
áfram. Ég fór að verða
var við ný útbrot með-
an ég dvaldi í sólinni
ytra. Út frá þessu má
hinsvegar ekki alhæfa
um gagnsemi þess að
dvelja á heilsuhælum
erlendis og njóta lofts-
lagsmeðferðar þar.
Eftir að ég fluttist suð-
ur hef ég stundað Bláa
lónið reglulega og er nú
laus-við útbrot.
Göngudeildin við Bláa lónið er í
húsnæði sem stendur baka til við
orkuverið, alveg útaf fyrir sig.
Húsnæðið er snyrtilegt, umhverfið
Psoriasis
Meðferðin gagnast
mörgum og því telur
Einar Njálsson
að möguleikum til
náttúrulegrar meðferð-
ar við psoriasis í
Bláa lóninu þurfi
að halda á lofti.
mjög rólegt, þjónustan er persónu-
leg og blátt áfram, viðmótið hlýtt
og vingjarnlegt. Hver einstakling-
ur fær umönnun sem honum hæfir.
Tveir læknar starfa við göngu-
deildina og skoða sjúklinga reglu-
lega. Hjúkrunarfræðingur stjórn-
ar daglegri meðferð. Félagsskapur
sjúklinganna er líka mjög
skemmtilegur, heimsmálin eru
gjarnan rædd og leyst í baðinu,
eða menn miðla öðrum af reynslu
sinni í baráttunni við sjúkdóminn,
eða menn bara njóta hvíldar og
afslöppunar með hugsunum sínum.
Ég tel að heilbrigðisráðuneytið
hafí, á sínum tíma, unnið mjög gott
verk í þágu psoriasis-sjúklinga þeg-
ar ákveðið var að viðurkenna með-
ferð í Bláa lóninu sem hluta af ís-
lenska heilbrigðiskerfinu. Trygg-
Einar
Njálsson
ingastofnun ríkisins greiðir nú hlut
íslenskra sjúklinga, sem njóta með-
ferðar við göngudeildina. Fjölmarg-
ir íslendingar sækja meðferð í Bláa
lóninu og fá góðan bata. Á síðasta
ári voru rétt tæplega 5000 komur
Islendinga á göngudeildina, fjölgun-
in milli ára var 25%. Útlendingar
sækja líka í vaxandi mæli lækningu
í lónið og er það vel. Jafnframt því
að geta veitt sjúklingum lækningu
og betri líðan er þama um mikil-
væga atvinnustarfsemi að ræða,
virkjun á íslenskri þekkingu og ár-
angur af hugmyndaauðgi frum-
kvöðlanna.
Núverandi heilbrigðisráðherra
Ingibjörg Pálmadóttir gerði samn-
ing árið 1997 um opnun sjúkrahót-
els við Bláa lónið. Með þeim samn-
ingi var stigið mjög mikilvægt
skref til þess að auðvelda fólki hvar
sem er á landinu að njóta lækning-
ar í lóninu. Þama er á ferðinni mik-
ið réttindamál fyrir landsbyggðar-
fólk. Samningurinn felur í sér að
Tryggingastofnun greiðir sem
svarar 4 rúmum á ársgrundvelli
fyrir sjúklinga sem stunda með-
ferð. Sjúklingar dvelja á hótelinu
sér að kostnaðarlausu. Meðaldval-
artími er 3 - 4 vikur, en lengd með-
ferðar er ákveðin af lækni allt eftir
ástandi hvers og eins. Með þessu
móti getur fólk komist út úr dag-
legu umhverfi, streitu og áreitis;
hvílst við slakandi böð og holla
hreyfingu í gönguferðum um ná-
grennið og einbeitt sér að því að ná
bata. Það ber að þakka Grími Sæ-
mundsen, framkvæmdastjóra Bláa
Lónsins hf. og starfsfólki við
göngudeildina fyrir frumkvæði í
þessu mikla hagsmunamáli okkar
sem eigum við þennan sjúkdóm að
stríða. Einnig á núverandi heil-
brigðisráðherra heiður skilið fyrir
að taka myndarlega á málinu og
koma því í höfn.
Að lokum er rétt að hafa í huga,
að það gildir jafnt um meðferð í
Bláa lóninu og aðrar meðferðir, hún
gagnast ekki öllum, enda sjúkdóm-
urinn með afbrigðum kenjóttur. En
vegna þess að meðferðin gagnast
mörgum tel ég að möguleikum til
náttúrulegrar meðferðar við psori-
asis í Bláa lóninu þurfi að halda á
lofti og kynna þá enn frekar en gert
hefur verið. Ég fagna samstarfi sem
Samtök psoriasis- og exemsjúklinga
hafa átt við Bláa Lónið h/f um kynn-
ingarstarf. En Bláa lónið hefur
styrkt kynningarfundi félagsins þar
sem m.a. er kynnt starfsemin við
Bláa lónið. Ég vil hvetja alla sem
eiga við erfiðleika að stríða vegna
psoriasis að kynna sér starfsemina
við Bláa lónið rækilega og ræða
málið við sinn lækni. Það er aldrei
að vita nema þar bíði lækning fyrir
þig-
Höfundur cr bæjarstjóri
í Grindavík.
Að hika er
sama og tapa
RÓTGRÓNIR
Reykvíkingar hafa
talið flugvöllinn nánast
óaðskiljanlegan hluta
af Reykjavík.
Hávær dynur, drun-
ur og skerandi há-
tíðnitónar flugvéla á
leið til lendingar yfir
miðborginni voru sem
tónlist í eyrum okkar
strákanna, þar sem við
stóðum á vaðstígvélum
að vori og veiddum
hornsíli við Reykjavík-
urtjöm. Douglas Da-
kóta þristar, Skymast-
er og Viee Count flug-
vélar voru farkostir
draumanna og boðberar tækni og
þróunar. En þessir dagar era löngu
liðnir og nýir tímar runnir upp.
Það hlýtur að vera flestum ljóst
Flugvöllur
Keflavíkurflugvöllur,
segir Uggi Agnarsson,
virðist vera langeðlileg-
asti kosturinn fyrir flug-
samgöngur til Reykja-
víkur og nágrennis.
að nú er tækifæri til að gera nauð-
synlegar breytingar á skipulagi og
uppbyggingu Reykjavíkur. Nýta
besta byggingarlandið undir vist-
væna borgarbyggð og ómetanleg
útivistarsvæði. Hugsum okkur
byggðina tengda Fossvogi, Öskju-
hlíð og Nauthólsvík, ef til vill með
heitum pottum, hrein og falleg
fjara með möguleikum á sjóböðum
og sundi. Smábáta- og skútuað-
stöðu, veitinga- og afþreyingar-
staði og fleira og fleira.
Olíustöð Shell f Skerjafirði verð-
ur auðvitað einnig að fara, enda
fallin á tíma.
Hér gefst því langþráð tækifæri
til að losna við sæg gamalla, úr-
eltra og löngu gagnslausra skúr-
og braggahjalla sem skreytt hafa
flugvallarsvæðið, okkur borgarbú-
um til armæðu og ergelsis. Skapa
aðstöðu til bættra samgangna í
borginni, land íyrir nýjar bygging-
ar, sem þörf verður á að reisa. Tími
þessa gamla flugvallar, draugur úr
fortíðinni, byggður af breska setu-
liðinu í kappi við tím-
ann í styrjaldará-
standi, er hðinn.
Notum nú loks tæki-
færið, ef ekki nú þá
sitjum við uppi með
flugvöllinn til eilífðar-
nóns og munum ekki
njóta þeirrar ánægju
sem ný byggð á þessu
fagra svæði myndi ann-
ars færa flestum okkar.
Nú er rétti tíminn til að
staldra við og skipu-
leggja til langs tíma.
Tíminn til að spyrja
grandvallarspuminga
um eðli flugsins, kosti
og galla. Meta þá þætti
sem myndu bæta mannlíf í hjarta
Reykjavíkur, draga úr mengun, há-
vaða og hættu. Komið hefur fram í
fjölmiðlum, að meirihluti aðspurðra
Reykvíkinga vill að flugvallarsvæðið
í Skerjafirði verði notað með öðram
hætti í framtíðinni, og að önnur
lausn verði fundin á flugsamgöngum
við Reykjavík og nágrenni.
En hvar á flugvöllurinn þá að
vera? Hvar er best að finna honum
stað? Einhvers staðar verða vondir
að vera! Stendur til að byggja nýj-
an flugvöll úti í Skerjafirði? Kosta
miklu til í fjármunum og valda
miklu umhverfisraski. Það virðist
mun eðlilegra að notast við einn
flugvöll á þessu svæði, Keflavíkur-
flugvöllur virðist vera langeðlileg-
asti kosturinn fyrir flugsamgöngur
til Reykjavíkur og nágrennis.
Bæta mætti samgöngur héðan
við Keflavíkurflugvöll veralega frá
því sem nú er. Löngu er tímabært
að tvöfalda Reykjanesbraut, sem
gera mætti fyrir brot af þeim
kostnaði sem nýr flugvöllur myndi
kosta og er auk þess nauðsynleg
framkvæmd hvort sem er.
Byggja þyrfti sérstakt sam-
göngumannvirki sem tengdi höfuð-
borgina við Keflavíkurflugvöll og
mætti þá á s.s. 20-30 mínútum
flytja farþega milli þessara staða.
Þannig gætu flugfarþegar fengið
alla afgreiðslu við upphaf ferðar á
brautarstöð í Reykjavík, náð flugi
á Keflavíkurflugvelli og komist
fljótt og greiðlega á áfangastað t.d.
á Egilsstöðum eða Akureyri eða öf-
ugt, svo dæmi séu tekin.
Ég vil því hvetja til þess að hætt
verði við áform um áframhaldandi
starfrækslu flugvallar í Reykjavík.
Höfundur er læknir.
Uggi
Agnarsson
ÞU ERT A BESTA ALDRI
ÞAÐ ER REGLULEGA GOTT AÐ SPARA
Það er mjög mikilvægt að fólk á aldrinum 20-40 ára byrji að
leggja fyrir reglubundið. Þannig má byggja upp öflugan varasjóð
til að forðast lántökur seinna meir og eiga meira til ráðstöfunar
á efri árum. Aðalmálið er að byrja strax að spara en vera ekki
sífellt að bíða betri tíma. Það er nefnilega betra að njóta vaxtanna
en að greiða þá til annarra.
Hqfðu samband ogfáðu bækl-
inginn okkar„Þú ert á besta aldrí“.
Þarfinnur þú ítarlegrí upplýsingar
um spamaðarkosti okkar.
SÍMI 525 6060
Við bendum þeim sem eru 40 ára
og yngri að kynna sér sérstaklega:
• Kosti í reglubundnum sparnaði
• Möguleika í lífeyrisspamaði
• 2% viðbótar lífeyrissparnað
• Skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa
• Langtímabréf og Veltubréf
• Alþjóðasjóði Búnaðarbankans
BIJNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
— byggir á trausti
Hafnarstræti 5 www.bi.is verdbref@bi.is