Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 60
*so ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
. Eru bjálkar
í kirkjum?
NÝLEGA barst mér
betliseðill frá Hjálpar-
starfi kirkjunnar með
fyrirsögninni „Er vatn
á Mars?“. Mér fannst
þessi bleðill athyglis-
verður fyrir þá sök að
á honum kristallast
gömul kergja kirkjunn-
ar manna út í vísindin
og þá tiktúru leik-
manna að vilja rann-
saka alheiminn í stað
þess að rýna einungis í
hina einu bók.
Kirkjan lætur sér
sæma að fetta fingur út
í það fjármagn sem
Geimvísindastofnun
Bandaríkjanna ver í að senda geim-
flaug til Mars og bendir á að hefði
því verið varið til vatnsöflunar í
þriðja heiminum hefðu milljónir
manna fengið aðgang að hreinu
vatni. Það má til sanns vegar færa
en hvað varðar íslenska kirkju um
- Geimvísindastofnun Bandan'kj-
*"anna? Kannski liggur hún vel til
höggsins þar sem eng-
inn er henni til varnar
en hvernig var þetta
með bjálkann og flís-
ina?
Hvað ver íslensk
þjóðkirkja mörgum
milljónum á ári í kalda
steinsteypu, parket,
pluss og fallíska veldis-
sprota á hverjum hól?
Það lætur nærri að allt
kirkjubáknið gleypi til
sín tvo til þrjá millj-
arða í þessu fámenna
landi, tvö til þrjú þús-
und milljónir á hverju
ári! Hvernig væri að
verja þeim fjármunum
til hjálpar hér heima og erlendis?
Má ekki taka biskup og presta af
spenum ríkisvaldsins og fela þeim
Drottni sínum á vald, líkt og hröfn-
unum sem lausnari þeirra sagði að
hefðu hvorki forðabúr né hlöðu en
Guð fæddi þá samt? Hversu frem-
ur mun hann ekki klæða prelátana,
þér trúlitlir?
Nei, kristin kirlga á nú nærri tvö
þúsund ára sögu að baki og henni
virðist jafnan hafa verið meira í
mun að safna auði og völdum en að
hjálpa náunganum. Hvað skyldi
mega grafa marga brunna fyrir
jarðeignir hennar, eðalmálma, lista-
verk, fasteignir og önnur verðmæti
sem mölur og ryð fá sannarlega
grandað?
Það er hins vegar ekki svo langt
síðan vísindin brutust undan oki
kirkjunnar og með örri þróun
Reynir
Harðarson
Bílavarahlutaverslun
& bílaverkstæði
HYUNDAI - MITSUBISHI - NISSAN - SUBARU - TOYOTA - VOLKSWAGEN
HEIMSÞEKKTIfí gj GÆÐA VARAHLUTIR
• Bónvörur
• Hreinsiefni
• Aukahlutir
8-20 MANUDAGA- FOSTUOAGA
• 10-16 LAUGARDAGA
þeirra hefur líf alls mannkyns batn-
að svo um munar. Mikið af þeirri
þróun má einmitt þakka geimvís-
indum og öðrum fjárfrekum verk-
efnum. I ljósi alls þessa finnst mér
gíróseðill kirkjunnar afar ósmekk-
legur.
Auk myndar af Mars er þarna
mynd af Banchi, þrettán ára stúlku
í ónefndu þorpi, í ónefndu landi og
álfu. Gaf hún leyfi sitt fyrir því að
ásjóna hennar yrði notuð í þessum
tilgangi og fær hún einhver laun
fyrir vikið? Sennilega hafa fáir
áhyggjur af því. Má vera að Banchi
vilji ekki vera í betlihlutverkinu?
Getur hugsast að hún eða ætt
hennar eigi sér aðra trú sem e.t.v.
væri vert að hlúa að í stað þess að
afmá eða umbreyta? Það fé sem
Fjársöfnun
Hvað skyldi mega
grafa marga brunna
fyrir jarðeignir kirkj-
unnar, spyr Reynir
Harðarson, og önnur
verðmæti sem mölur og
ryð fá sannarlega
grandað?
fólk lætur af hendi rakna til Hjálp-
ar- starfs kirkjunnar fer nefnilega
ekki bara í að grafa brunna og fjár-
magna ferðalög yfirmanna hennar
heldur er hluti þess notaður til
áróðurs fyrir trúarbrögðum og
gildum Vesturlanda, (þau hljóta,
jú, að vera best og réttust) svoköll-
uðu trúboði. „Kastið trú yðar og
siðum, menningu og gildum og sjá
ég mun gefa yður hreint vatn.“
Nei, ég vil styrkja fólk á annan
hátt.
Eg get hent gíróseðlinum en eftir
sem áður þarf ég að fjármagna
rekstur kirkjunnar með skatt-
greiðslum mínum, jafnvel þótt mér
sé það þvert um geð. Hvers vegna?
Höfundur er þýðandi.
Sj 6 (flug) manna-
afsláttur
FYRIR stuttu lýsti
fjármálaráðherra því
yfír að stefna ætti að
því að afnema svokall-
aðan „sjómannaaf-
slátt“. Sjómannaaf-
sláttur þessi er í lögum
og því þyrfti lagabreyt-
ingu til. í raun er um-
ræddur skattaafsláttur
ekki annað en niður-
greiðsla ríkisins á
launakostnaði útgerð-
anna. Ríkið greiðir nið-
ur launakostnað íyrir-
tækja í annarri starfs-
grein án þess að fyrir
þeim niðurgreiðslum
séu heimildir í lögum.
Flugliðar sem starfa um borð í
millilandaförum Flugleiða hf. njóta
skattfrjálsra dagpeninga jafnvel þó
þeir komi til baka samdagurs og
beri lítinn eða engan kostnað sem
dagpeningum er ætlað að mæta.
Samkvæmt skilgreiningum emb-
ætta skattstjóra Reykjavíkurum-
dæmis og Reykjanesumdæmis
varðandi skattalega meðferð dag-
peninga þurfa dagpeningar að hafa
verið greiddir vegna ferða utan
venjulegs vinnustaðar til að grund-
völlur til frádráttai- á móti þeim sé
fyrir hendi. Skilgreiningar iyrr-
nefndra embætta um þetta málefni
koma fram í bréfum sem embættin
sendu íyrrum starfsmönnum Is-
lenskra sjávarafurða hf. (IS) sem
störfuðu að verkefni þeirra á
Kamchatka á árinu 1996. f þessum
bréfum var tilkynnt um breytingar
á framtali og álagningu vegna dag-
peningagreiðslna og frádráttur á
móti þeim felldur niður.
Meginrökin voru þau að vinnu-
staður þessara starfsmanna hafí ver-
ið á Kamtsjatka og þar með hafi
grundvöllur til frádráttar á móti
þeim ekki verið íyrir hendi. Sami
skilningur virðist ríkja innan her-
búða yfirskattanefndar en í þeim úr-
skurðum sem þegar hafa fallið hafa
umrædd rök fyrmefndra skattum-
dæma verið samþykkt. Forveri nú-
verandi ríkisskattstjóra var sam-
stiga ofangreindum skattembættum
um þessa túlkun. Núverandi ríkis-
skattstjóri hefur hins vegar lýst því
yfir bréflega að meginrök fyrir því
að fella niður frádrátt á móti um-
ræddum dagpeningum séu alls ekki
þau að ekki hafí verið um að ræða
ferðir utan venjulegs vinnustaðar
viðkomandi heldur hafi starfsmenn
ÍS ekki sýnt fram á að þeir hafi borið
kostnað vegna ferða fyrir vinnuveit-
anda sinn. Hingað til hafa dagpen-
ingaþegar ekki þurft að leggja fram
gögn fyrir þeim kostnaði sem þeir
hafa orðið fyrir og dagpeningum er
ætlað að mæta enda sé frádráttur
sem færður er á móti dagpeningum
ekki hærri en kveðið er
á um í skattmati ríkis-
skattstjóra. Ljóst er að
langflestir sem frá
greidda dagpeninga
eiga stóran hluta þeirra
í afgang þegar allur
kostnaður hefur verið
greiddur og nýtist sá
afgangur eins og skatt-
frjálsar telqur.
Samkvæmt einka-
skilgreiningu núver-
andi ríkisskattstjóra á
meginrökum fyrir nið-
urfellingu frádráttar á
móti dagpeningum hjá
starfsmönnum IS ber
öllum sem fá greidda
dagpeninga að sýna fram á að þeir
hafi verið notaðir að fullu til
greiðslu kostnaðar á ferðum í þágu
vinnuveitanda séu þeir færðir til
frádráttar frá skattskyldum tekj-
um. Hvers vegna skyldu skattyfir-
Skattlagning
Um hrein og klár skatt-
svik er að ræða, segir
Örn Gunnlaugsson,
sem stunduð eru með
vitneskju og samþykki
stjórnvalda.
völd kjósa að beita sér aðeins gegn
litlum hópi eins fyrirtækis með
þetta að leiðarljósi en ekki gegn
dagpeningaþegum almennt? Hvers
vegna gilda ekki sömu reglur um
þessi mál fyrir alla þegna landsins?
Hafa skattyfirvöld einhverja heim-
ild til að hunsa ákvæði stjórnar-
skrárinnar? Þar sem úrskurður yf-
irskattanefndar tekur yfir úrskurð
ríkisskattstjóra þá hljóta þau rök
sem nefndin setur fram og sam-
þykkir að vega þyngra en einkaskil-
greiningar núverandi ríkisskatt-
stjóra. Samkvæmt þeim rökum sem
yfirskattanefnd hefur samþykkt og
er grundvöllur til úrskurða sem
nefndin hefur fellt í málum nokk-
urra starfsmanna ÍS er ekki grund-
völlur til frádráttar á móti dagpen-
ingum sem greiddir eru nema um sé
að ræða ferðir utan venjulegs
vinnustaðar. Hvar í veröldinni
skyldi vera venjulegur vinnustaður
flugliða? Eru þeir ekki ráðnir til að
starfa um borð í flugförum? Eðli
flugfara er að vera í ferðum frá ein-
um stað til annars og þörfin fyrir
flugliðana er vegna þess að flugför-
in eru í ferðum.
Venjulegur vinnustaður flugliða
getur því hvergi annars staðar verið
Örn
Gunnlaugsson
Ertu stúdent og átt eftir að
velja framhaldsnám?
Námskynning í Perl
lElÍÍÖÍ;i
Ertu á leið í nám eða á námskeið í haust?