Morgunblaðið - 27.04.1999, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 67 x
FRÉTTIR
U Úr dagbók lögreglunnar
— Margvísleg verkefni á borði lögreglunnar Helgin 23. til 26. apríl 1999
’~mm m
.. Morgunblaðið/Ingvar
OKUMAÐUR bifhjóls var fluttur á slysadeild á laugardag eftir að
hafa prjónað yfir sig að því er talið var.
EKKI var fjölmennt í miðbænum
aðfaranótt laugardags og ekki
þurfti að hafa afskipti af börnum
vegna aldurs þeirra ef undan eru
skilin afskipti af einum pilti sem
strokið hafði af unglingaheimili.
Til átaka kom milli aðila í Hafn-
arstræti síðla nætur og þegar lög-
reglumenn voru að handtaka
brotamann var veist að þeim.
Tveir menn voru handteknir
vegna ósæmilegrar hegðunar sem
þeir sýndu í Austurstræti að
kvöldi laugardags. Höfðu þeh' girt
niður um sig brækur sínar og
kastað af sér vatni. Piltarnir sem
báðir eru 22 ára voru fluttir á lög-
reglustöð til skýrslutöku.
Fjölmennara var á miðborgar-
svæðinu aðfaranótt sunnudags
eins og gjarnan vill vera. Stúlka
var handtekin eftir að hafa valdið
skemmdum á bifreið. Hún reynd-
ist óviðræðuhæf vegna ölvunar en
tókst samt að bíta lögreglumann
við handtökuna.
Sást bregða hnífi
í löggæslumyndavél
Tveir menn voru handteknir
eftir að lögreglumenn sem voru að
vinna á eftirlitsmyndavélum veittu
athygli slagsmálum í Austur-
stræti. Þar sást meðal annars að
einn málsaðila hafði brugðið hnífi.
Ekki urðu alvarlegir áverkar í
átökunum en telja má ljóst að í
þessu tilviki hafi öryggismynda-
vélarnar komið að góðum notum
og hugsanlega komið í veg fyrir
alvarlega áverka.
Ökumaður sem grunaður er um
ölvun ók bifeið sinni á tvo kyrr-
stæða bíla á Flókagötu að morgni
föstudags. Ökumaður var stöðvað-
ur og síðan grunaður um ölvun við
akstur eftir að hafa yfirgefið
árekstrarstað á föstudagskvöld.
Maðurinn hafði reynt að laga
ákomu á bifreið sinni en ekki haft
erindi sem erfiði.
Opið hús
Heima-
hlynningar
HEIMAHLYNNING verður
með samverustund fyrir að-
standendur í kvöld, þriðjudag
kl. 20-22, í húsi Krabbameins-
félags íslands, Skógarhlíð 8.
Valgerður Sigurðardóttir
læknir og Þorbjörg Guð-
mundsdóttir hjúkrunarfræð-
ingar segja frá líknardeild
sem er nýtekin til starfa.
Kaffi og meðlæti verður á
boðstólum. '
Engir farþegar voru í strætis-
vagni þegar eitt afturhjóla hans
virðist hafa sprungið þar sem
vagninn var kyrrstæður við bið-
skýli á laugardaginn. Nokkrar
skemmdir urðu á vagninum.
Ökumaður bifhjóls slasaðist
þegar hann féll af bifhjóli sínu á
Sæbraut við Holtaveg á laugar-
dag. Svo virðist sem ökumaðurinn
hafi tekið full hraustlega af stað
með þeim afleiðingum að hjólið
prjónaði yfir sig og ökumaðurinn
GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG
íslands heldur ráðstefnu í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs, föstudag-
inn 30. apríl kl. 8.30-12. Ráðstefn-
an ber yfirskriftina „Gæðastjórnun
og innra umhverfi fyrirtækja."
„A ráðstefnunni eru tveir er-
lendir og tveir innlendir fyrirles-
arar. David Wilson starfar sem
gæðastjóri hjá Pirelli Ltd. en fyi’-
irtækið hefur um þriggja ára skeið
haldið uppi samræmdu kerfi fyrir
allar verksmiðjur fyrirtækisins til
að mæla árangur í heilsu- og ör-
féll af baki. Hann var fluttur á
slysadeild til aðhlynningar.
Ökumaður missti vald á öku-
tæki sínu á Hringbrautinni á laug-
ardagskvöld með þeim afleiðing-
um að hann olli gróðurskemmdum
á hringtorginu. Talið er að hann
hafi ekki haft í heiðri gildandi
reglur um hámarkshraða.
Ekið var á 4 ára bam á Grettis-
götu að kvöldi sunnudags. Barnið
fékk áverka á fæti og var flutt á
slysadeild af foreldrum. Ökumað-
yggismálum," segir í fréttatikynn-
ingu.
„Martine Vanremoortele er frá
belgíska gæðastjórnunarfélaginu
og er verkefnastjóri evrópska E-
quality-verkefnisins sem GSFI er
að hrinda af stað hér á landi en
aðrir þátttakendur era gæða-
stjórnunarfélögin í Belgíu og Ir-
landi,“ segir þar ennfremur.
Loks segir: „Árelía Guðmunds-
dóttir er lektor við Viðskiptahá-
skólann og hefur unnið sem ráð-
gjafi hjá Gallup sl. 3 ár. Hún er að
ur ók brott af vettvangi.
Tveh' menn vora handteknir á
föstudaginn eftir að hafa reynt að
nota illa fengin greiðslukort. í
fyrstu sögðust mennirnir hafa
fundið kortin á götunni framan við
verslunina sem þeir voru hand-
teknir í en sú frásögn hefur síðan
tekið nokkram breytingum.
Brotist var inní íbúðarhús í
Stekkjahverfi í Breiðholti um
helgina og þaðan stolið skartgrip-
um og öðram verðmætum. Svo
virðist sem innbrotið hafi verið um
miðjan dag á laugardag.
Lögreglan vill ítreka við for-
eldra þeirra barna sem era að
ljúka samræmdum prófum að
hvetja ungmennin til að taka þátt í
þeim dagsferðum sem skólayfir-
völd standa fyrir. Því miður hefur
alltaf nokkuð verið um ölvun ung-
menna á þessum tímamótun þrátt
fyrir að mörg ár séu þar til þau
munu ná tilskildum aldri til neyslu
áfengis. Þrátt fyrir þá staðreynd
era því miður til uppalendur sem
bregðast illa við þegar lögreglu-
menn neyðast til að hafa afskipti
af ungmennunum vegna áfengis-
neyslu þeirra. Lögreglan ásamt
ýmsum öðrum félagasamtökum og
borgaryfirvöldum mun fylgjast
með ástandinu og bregðast við
með tilheyrandi hætti.
Góð foreldravakt
í Mosfellsbæ
Ábyrgir foreldrar hafa nú um
nokkurt skeið unnið með lögreglu
og öðram yfirvöldum að því að virt-
ar séu reglur um útivist bama og
ungmenna. Þannig var t.d. mjög
gott eftirlit í Mosfellsbæ á fóstu-
dagskvöld sem varð tO þess að ekki
hlutust vandamál vegna hópa-
myndana bama á svæðinu. Lög-
reglan er mjög ánægð með þessa
samvinnu við foreldra sem nú er að
finna í mörgum hverfum í lögsagn-
aramdæminu.
skrifa doktorsritgerð um breyting-
ar í stjórnun út frá kenningum um
sveigjanleika (flexibility) og breyt-
ingum á samskiptum aðila vinnu-
markaðarins. Árelía mun fjalla um
þróun í innra skipulagi íslenskra
fyrirtækja
Jón Ásgeirsson er verkfræðing-
ur hjá ISAL og hefur m.a. umsjón
með þjálfun, fræðslu og starfs-
mannamálum í steypuskála fyrir-
tækisins. Hann mun kynna þróun
fjölskylduvæns starfsumhverfis
hjá ÍSAL.“
Ályktun fundar
á Lækjartorgi
Loftárásum
mótmæit
EFTIRFARANDI ályktun var
gerð á útifundi sem haldinn var á
föstudag á Lækjartorgi:
„Loftárásir NATO á Júgóslavíu
hafa nú staðið í mánuð og ekkert
bendir til þess að þeim linni í bráð.
Þær eru gerðar undir því yfírskini
að verið sé að stilla til friðar á
Balkanskaga og vernda óbreytta
borgara í Kosovo. Þessar aðgerðir
hefur íslenska rikisstjórnin stutt frá
upphafi.
En NATO er ekki friðarbandalag
og markmið þess era ekki að bjarga
Kosovo-Albönum. Árásirnar hafa
ekki aðeins beinst gegn hemaðar-
skotmörkum heldur einnig verk-
smiðjum, brúm og jafnvel lestum og
íbúðarhverfum um alla Júgóslavíu.
Þetta er hluti af þeirri ætlun
NATO-ríkja að ná hernaðarítökum
á svæðinu.
Straumur flóttamanna frá
Kosovo er mikill en takmarkanir
era settar á hversu mörgum er leyft
að fara til nærliggjandi landa. Ríki
sem hafa boðist til að taka við flótta-
fólki hafa einungis tekið við litlum
hópum og stjórnvöld veigra sér við
að veita þeim borgaraleg réttindi.
I Kosovo á sér hins vegar stað
víðtæk barátta fyrir sjálfsákvörðun-
arrétti íbúa héraðsins sem leidd er
af Frelsisher Kosovo. íbúar Kosovo
eru ekki ósjálfbjarga fórnarlömb,
heldur fólk sem berst fyrir réttind-
um sínum. NATO styður ekki kröf-
ur þeirra. NATO vill að íbúar
Kosovo fái takmarkað sjálfræði inn-
an Júgóslavíu sem verði viðhaldið af
hersveitum NATO. Kosovobúar
verða að fá að ákveða sjálfir hvort
héraðið verður áfram hluti af Jú-
góslavíu eða hlýtur sjálfstæði. Það
er gi-undvöllur fyrir lausn deilunnar
því hana getur enginn leyst nema
íbúa Balkanskaga sjálfir.
Við krefjumst þess að landamæri
verði opnuð fyrir flóttafólki og því
veitt full borgaraleg réttindi. Við
styðjum sjálfsákvörðunarrétt
Kosovobúa. Við mótmælum loft-
árásum NATO á Júgóslavíu.“
■ AÐALFUNDUR Starfsmannafé-
lags Mofellsbæjar, haldinn í Varm-
árskóla 20. apríl sl, samþykkti ein-
róma eftirfarandi tillögu: „Aðal-
fundur Starfsmannafélags Mosfells-
bæjar átelur harðlega vinnubrögð
bæjarstjórnar Mosfellsbæjar í
kjaramálum, en samkvæmt ákvörð-
un bæjarstjómar átti endurskoðun
á launakjörum allra starfsmanna
Mosfellsbæjar að vera lokið fyrir 1.
október 1998.“
Ráðstefna um gæðastjórmm
og innra umhverfi fyrirtækja
^ m m
Olafur Orn Haraldsson
þingmaður Reykvfkinga hefur
barist fyrir mannréttindum
minnihlutahópa í samfélaginu.
Ný framsókn til nýrrar
FRELSI FESTA FRAMSÓKN
w w w . x b . i s / r ey kj a v i k
aldar
B