Morgunblaðið - 27.04.1999, Page 78
78 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
MORGUNB LAÐIÐ
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
^jpæða. flísar
^jpaeða parket
^jpóð verð
lóð þjónusta
v
3
Sænskir klefar í hæsta
gæöaflokki
Auöveldir í uppsetningu
Stálbotn með stillanlegum
fótum
Margar stærðir og gerðir
10 ára ábyrgð
Fáið sendan íslenska Macro-
bæklinginn
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21 -108 Reykjavík
Pósthólf 8620 - 128 Reykjavík
Sími 533 2020 - Bréfsími 533 2022
FÓLK í FRÉTTUM
Nýjasta afurð hljómsveitarinnar Gus Gus, This is Normal, kom út í gær
Allir eru fallegir,
ríkir og klárir.
Þeir drekka og
djamma öll
kvöld, hlaupa
um jöklana dag-
inn út og inn og
njóta ásta sér til
óbóta þess á
milli. Auk þess
eru allir í hljóm-
sveit.
KYNNINGARSTARFIÐ á
plötunni er búið að standa
meira og minna yfir allt
síðasta ár,“ segir Stefán
Arni. „Við hönnun allt sjálf, eins og
plötuumslagið, í samráði við fyrir-
tæki sem heitir V23, svo það hefur
verið heilmikið að gera undanfarið."
Talsverð ferðalög hafa einnig fylgt
plötuútgáfunni og fóru Gus Gus
bæði til Frakklands og Miami á
Bandaríkjunum þar sem spilað var
fyrir útgefendur og annað fólk sem
tengist tónlistarheiminum. Stefán
og Sigurður segja að tónleikamir
hafi gengið mjög vel á báðum stöð-
unum og þau hafi fengið fína dóma
þarlendra tónlistargagnrýnenda.
Tónleikaferð um heiminn
- Verða einhverjir tónleikar hérna
heima vegna útkomu plötunnar?
„Nei, ekki núna. Tónleikarnir
okkar í flugskýlinu voru eiginlega
útgáfutónleikamir hérna. Þannig að
öll hljómsveitin kemur líklega ekki
saman til að halda tónleika hérna á
næstunni. En það má alltaf hitta á
Alfred More, Herb Legowitch eða
Daníel Agúst sem troða upp hér og
þar um borgina sem plötusnúðar og
söngspírur," segir Sigurður.
-Þið eruð að leggja land undir
fót, ekki satt?
„Jú, við emm að fara í tónleikaferð
sem hefst um næstu helgi. Við byrj-
um í Bandaríkjunum," segir Stefán
og segir að hljómsveitin muni spila í
stærstu borgunum og fyrstu tónleik-
amir verði í Boston. Bandaríska
hljómsveitin Esthero mun hita upp
fyrir Gus Gus í ferðinni. Þetta er ekki
í fyrsta skipti sem sveitin sest upp í
rútu og keyrir um öll Bandaríkin í
tónleikaferð því hún fór tvisvar til
Bandaríkjanna á sama ári og spilaði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STEFÁN Árni og Sigurður Kjartansson úr Gus Gus munda hér raksápubrúsann vfgalegir á svip enda Iagið
þeirra, Lady Shave, búið að vera vinsælasta lag landsins um nokkurra vikna skeið.
Framtíðin
er núna
✓
Vinsælasta lagið á Islandi í dag er lagið
Lady Shave með hljómsveitinni Gus Gus
sem er á nýju breiðskífunni þeirra, This Is
Normal, sem kom út í gær. Dóra Osk Hall-
dórsdóttir greip þá Stefán Arna og Sigurð
Kjartansson glóðvolga á kaffíhúsi í miðbæn-
um um helgina og spurði þá um væntanlega
tónleikaferð og ímynd sveitarinnar erlendis.
víða til að kynna fyrstu plötu sína.
„Þá spiluðum við út um allt og líka á
smærri stöðum eins og Milwaukee,"
segir Stefán. Þegar hljómsveitin er
búin að spila vítt og breitt um Banda-
ríkin verður farið til Evrópu og tón-
leikafórinni haldið áfram.
- Hvernig leggjast þessi væntan-
legu ferðalög íykkur?
„Bara mjög vel,“ segir Stefán sem
bætir við að þau verði ekki með svo
stífa dagskrá að enginn frítími gef-
ist. „Við munum koma og stoppa á
Islandi í nokkra daga alltaf á milli,
svo við náum vonandi í eitthvað af ís-
lenska sumrinu. En það er alltaf
gaman að spila fyiár mismunandi
áheyrendur. Bandarískir áheyrend-
ur eru líka mjög móttækilegir og það
var mjög gaman að spila fyrir þá síð-
ast og verður vonandi svipað núna.“
Skemmtilegir dómar
Fjöldi umsagna um This is
Normal hefur birst í erlendum tón-
listartímaritum og eiga allir dóm-
amir það sameiginlegt að vera mjög
lofsamlegir, þótt margir eigi erfitt
með að staðsetja sveitina. I nýjasta
hefti Melody Maker skrifar Ben
Knowles um plötuna og segir að tit-
illinn „Þetta er eðlilegt" hljóti að
vera þessi skemmtilega skrýtni ís-
lenski húmor því nánast ekkert sé
eðlilegt á plötunni, þar sem farið er
um víðan völl og vísað í urmul tón-
listarstefna og útkoman verði þessi
sérkennilegi íslenski bræðingur sem
erfitt sé að skilgreina eða setja á
ákveðinn stall með öðrum tónlistai'-
stefnum. Knowles gefur plötunni
fjóra og hálfa stjörnu sem getur ekki
talist annað en frábær dómur.
I nýjasta hefti Select skrifar hinn
karlmannlegi Andrew Male um plöt>
una og gefur henni einnig nánast fullt
hús eða fjórar stjömur af fimm
mögulegum. Honum verður tíðrætt
um Island og segir m.a.: „Fyrii' utan-
aðkomandi virðist Island vera skrýtr
inn staður. Allir em fallegir, ríkir og
klárir. Þeir drekka og djamma öll
kvöld, hlaupa um jöklana daginn út
og inn og njóta ásta sér til óbóta þess
á milli. Auk þess eru allir í hljómsveit.
Tökum Gus Gus sem dæmi. Auðvitað
em þeir einnig í öðrum störfum eins
og að leikstýra kvikmyndum og setja
lög í þinginu(I), en á milli jökla-
hlaupanna og drykkjukvöldanna
finna þeir einnig tíma til að búa til
ótrúlega metnaðarfulla tónlist."
-Er þetta lýsing á ykkar venju-
lega lífi?
„Ja, er þetta ekki venjuleg helgi í
Reykjavík," spyr Stefán blaðamann
grafalvarlegur. „Nei, annars kemur
þetta mikið til af upplifun erlendra
blaðamanna sem koma hingað. Við
buðum t.d. nokki’um erlendum
blaðamönnum hingað í janúar og
þegar þeir lentu var keyrt beint upp
í IR-skálann í Hveradölum. Það var
blindhríð á heiðinni og brjálað veð-
ur og rútan komst ekki alla leið að
skálanum. Gestirnir þurftu því að
labba síðasta spölinn á lakkskónum.
Margir þessara rólyndis Parísar- og
Ólafur Ólafsson
fyrrv. landlæknir
Á sídustu mánudum hafa sífellt fleiri gengid fram fyrir skjöldu
til að minna stjórnmálamenn á afdrifaríkasta siðferðisvanda
einnar rikustu þjóðar veraldar
„ Upplýsingar um örorku-
greiðslur hér á landi eru
ekki til að fara með í aðra
hreppa, þær eru svo lágar,
þrátt fyrir að við höfum
verið ein tekjuhæsta þjóð í
heimi í áratugi."
Úr fréttatilkynningu Hjálparstofnunar kirkjunnar:
„Hjálparstofnun kirkjunnar hvetur ráðamenn til þess að bæta svo
net almannatrygginga að þeir sem þurfa á því að halda geti
skapað sér mannsæmandi líf."
jSt
„Hafa menn gleymt tilgangi
almannatrygginga ? "
Desember 1998.
Október 1998.
Oryrkjabandolag Islands
Er tannholdið þitt aumf og bólgið?
Eru tennurnar farnar að losna?
Færðu oft munnangur?
Ertu með blóðbragð í munninum?
Særa gervitennurnar þig?
Skolaðu munninn reglulega með Silicol
Dental til að fyrirbyggja vandamólið.
30% afslóttur í dag og ó morgun.
& LYFJA
opið alla daga ársins
Lágmúla - Hamraborg - Setbergi