Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Slapp
óbrotinn
eftir 8
metra fall
KARLMAÐUR var fluttur á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir
vinnuslys við Fossvogsskóla
skömmu eftir klukkan 13 í gær.
Vinnupallur hrundi undan mann-
inum við vinnu sína og féll hann um
átta metra til jarðar. Hann kenndi til
eymsla í baki og meiddist á fæti en
er óbrotinn að sögn læknis á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur.
Mátti mildi telja að maðurinn kom
ekki niður á steyputeina sem stóðu
upp í loftið hvarvetna í kringum slys-
staðinn. Vegna mikillai- fallhæðar
átti að fylgjast áfram með hinum
slasaða á sjúkrahúsinu.
Morgunblaðið/IRG
Móðir 8 ára drengs er ósátt við að hann hafí getað keypt fyrir 5.000 kr. í söluturni
Keypti fótboltamyndir
fyrir á fjórða þúsund
GETA börn keypt fyrir háar Qárhæðir í sölu-
turnum og verslunum án þess að við það séu
gerðar athugasemdir af afgreiðslufólki?
Steinunn Hjartardóttir, móðir átta ára
drengs í Hafnarfirði, lenti í því í síðustu viku
að sonur hennar tók frá henni fímm þúsund
krónur án hennar vitundar. Að því búnu fór
hann út í næsta söluturn og keypti fótbolta-
myndir fyrir 3.700 krónur, tvær möppur til
að setja myndirnar í á 700 krónur, auk sæl-
gætis og gosdrykkjar. Fyrir þessa fjárhæð
fékk hann 37 pakka af fótboltamyndum, sem
hann tók upp strax eftir innkaupin og gaf fé-
laga sínum nokkra pakka. Steinunn komst að
þessu athæfi drengsins síðar um kvöldið og
fór strax með hann út í verslunina.
„Mér fannst ekki eðlilegt að átta ára barn
skyldi hafa verið afgreitt með svo mikla fjár-
muni í höndunum. Þetta er gífurlegt magn af
fótboltamyndum sem hann keypti og tók ég
strax á málinu með því að segja honum að
með þessu athæfi hefði hann misst rétt á
ákveðnum hlunnindum og hann yrði undir
sérstöku eftirliti næsta mánuðinn.
Að því loknu fór ég með hann og talaði við
sjoppueigandann og afgreiðslustúlkuna sem
afgreiddi hann með þetta. Eigandinn sagði að
þau gætu ekki alltaf verið að hringja í for-
eldra til að athuga hvort börn mættu eyða
þeim peningum sem þau væru með. Mér
finnst hins vegar ótrúlegt að foreldrar sendi
börn sín út í sjoppu með svona háar fjárhæðir
til þess að þau geti keypt það sem þau vilja,“
segir Steinunn.
Fengið svívirðingar
frá foreldrum
„Stelpan í sjoppunni sagði að hann hefði
bara keypt myndir fyrir 2.200 krónur, en það
var ekki satt vegna þess að myndirnar voru
mun fleiri en það. Hún sagði að hann hefði
keypt þær í smáskömmtum en hann segir að
hann hafi fyrst keypt fyrir 2.500 krónur, opn-
að pakkana hjá sjoppunni og farið strax inn
aftur og keypt meira. Og það kemur heim og
saman við fjölda myndanna.“
Elfar Berg eigandi verslunarinnar Holta-
nesti í Hafnarfirði, þar sem drengurinn
keypti fótboltamyndirnar í þessu tilviki, segir
að starfsfólk verslunarinnar hafi ekki gert at-
hugasemdir við kaup drengsins meðal annars
vegna þess að í fyrri tilvikum hafi foreldrar
tekið það óstinnt, upp að gerðar hafi verið at-
hugasemdir við þær fjárhæðir sem börnin
höfðu í höndunum.
„Við höfum oft, lent í því að þegar krakkar
koma með mikla peninga þá höfum við hringf
heirn til viðkomandi og spurt hvort hann
mætti kaupa fyrir svona mikið. Þá höfum við
yfirleitt fengið viðkvæðið: „Eruð þið að þjóf-
kenna barnið mitt?“ Þetta hefur komið fyrir
oft og mörgum sinnum. Ég hugsa að það hafi
haft mest áhrif á það hvernig afgreiðslustúlk-
an brást við í þetta sinnið, en við höfum oft
fengið svívirðingar frá foreldrum þegar við
gerum athugasemdir við háar upphæðir eins
og til dæmis 1.000 krónur," segir Elfar.
Þekkja slík tilvik
Elfar segir að drengurinn hafi fyrst komið
í verslunina með fimm þúsund króna seðil um
eftirmiðdaginn og keypt fimm pakka. „Stúlk-
an sem var þá við afgreiðslu spurði hvort
hann mætti eyða svo miklum peningum.
Hann sagðist hafa fundið þá niður á Ásvöll-
um, sem er íþróttasvæði Haukanna. Síðan
kom hann aftur eftir kvöldmat og þá var
komin önnur vakt. Þá kom hann með klink og
keypti fyrir það, svo fór hann út en kom aftur
inn og þá með þúsund kall sem hann sagðist
hafa fundið fyrir utan,“ segir Elfar. Elfar
segist hafa sagt við móðurina að hann gæti
ekki borið ábyrgð á uppeldi barnsins hennar
en ef ekki hefði verið búið að rífa myndirnar
upp hefði hann verið tilbúinn að bæta henni
það upp.
Morgunblaðið/Kristinn
ÁTTA ára drengur keypti fótboltamyndir
fyrir á fjórða þúsund krónur í söluturni.
Morgunblaðið ræddi við nokkra eigendur
söluturna um það hvort börn með mikla pen-
inga væru yfirleitt afgreidd. AHir þekktu slfk
tilvik en sögðu flestir að barn sem vildi eyða
500 krónum þætti athugavert.
„Það er ekki eðlilegt að barn fái að fara út
í sjoppu með 5.000 krónur til að kaupa 50
pakka af fótboltamyndum. Það kemur alltaf
fyrir að krakkar komi með 500 kall og vilji fá
bland í poka fyrir allt. En það er alltaf eitt-
hvað gruggugt við það,“ segir Sævar Örn
Gunnlaugsson eigandi söluturnsins Allt í einu
við Jafnasel í Reykjavík. Aðrir eigendur sölu-
turna tóku undir hans orð, sögðu athugavert
ef börn á þessum aldri væru með 1.000 krón-
ur til þess að eyða. Guðrún Aradóttir, rekstr-
araðili söluturnsins Neskjörs á Nesvegi segir
að fyrir nokkrum árum hafi barn viljað
versla fyrir háa fjárhæð. Afgreiðslufólkið
hafi kannað málið og komist að því að féð var
ekki heiðarlega fengið.
Guðmundur Steinsson eigandi söluturnsins
Póló á Bústaðavegi segist fyrir nokkrum ár-
um hafa lent í svipuðu atviki þegar barn hafi
komið með 500 krónur og viljað fá bland í
poka fyrir allt saman. Hann hafi afgreitt við-
komandi og fengið óánægða foreldra í versl-
unina skömmu síðar. Helga Guðrún Jónas-
dóttir, einn af eigendum söluturnsins
Nammigott á Vesturgötu, tekur undir með
hinum viðmælendunum og segir nauðsynlegt,
að hafa strangt eftirlit með því sem börn
versla í söluturnum og hvað þau kaupi fyrir
mikinn pening.
Iðnaðarráðherra
um kísilgúrnám
í Syðri-Flóa
Til skoðun-
ar að fá er-
lenda sér-
fræðinga
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra hefur sett fram þá hugmynd
að erlendir sérfræðingar verði
fengnir til að meta hugsanlega
áhættu af gísilgúrnámi í Syðri-Flóa
Mývatns.
„Það er mikil tortryggni í gangi
hjá heimamönnum um þær rann-
sóknarniðurstöður sem liggja fyrir.
Ég tel vera mikilvægt að menn eyði
þeirri tortryggni. Þess vegna hef ég
verið með þá hugmynd að menn leiti
eftir því að fá erlenda sérfræðinga á
þessu sviði til þess að meta þær nið-
urstöður sem þama eru. Þetta yrði
gert í fullri samvinnu og sátt við þá
aðila sem hafa staðið að þessum nið-
urstöðum en málið er á algeru frum-
stigi,“ sagði Finnur.
Villandi fyrirsögn
Fyrirsögh fréttar. sem birtist í
Morgunblaðinu í gær af fundi sem
sveitarstjórn Skútustaðahrepps boð-
aði til í Skjólbrekku í Mývatnssveit í
fyrrakvöld gaf ekki rétta mynd af
ummælum Valgerðar Sveri'isdóttur,
þingmanni Framsóknarflokks, á
fundinum. Er beðist velvirðingar á
þessu.
---------------
Málfarsráðunautur RTJV
Fer best á
því að tala
um Netið
HELGA Jónsdóttir, málfarsráðu-
nautur hjá Ríkisútvarpinu, segir fai'a
best á því að nota orðið Netið yfir
það sem á erlendum tungumálum
kallast Intemet.
Helga segist hafa verið spurð álits
á þessu síðastliðið sumar. Þá hafi
hún lagt til að notast yrði við Lýðnet
sem gefið væri upp í nýútkomnu
Tölvuorðasafni. „Orðið virðist ekki
ætla að öðlast hylli lýðsins svo ég
veit ekki hvort ég get haldið því jafn
eindregið fram núna,“ segir Helga.
Sjálf segist hún tala um Netið.
Einnig segist hún hafa heyrt talað
um Alheimsnetið og sjálfri hafi sér
dottið í hug orðið Heimsnet. „Ég sé
ekkert voðalegt við það að nota
Internet sé það gert til glöggvunar.
Við hikum oft ekki við það að nota
erlendan fyrripart framan við ís-
lenskan seinnipart. Við bendum hins
vegar fólki á að tala um Netið til
þess að komast hjá þessari slettu,“
segir Helga.
Japansferð
kostaði 1,1
milljón
BORGARSTJÓRI hefur svarað fyr-
irspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins um kostnað vegna Japans-
ferðar þriggja fulltrúa borgarinnar í
mars. Kostaði ferðin rúma 1,1 millj-
ón króna.
Ferðina fóru Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri, Alfreð Þor-
steinsson, formaður stjómar Orku-
veitu Reykjavíkur, og Guðmundur
Þóroddsson, forstjóri OR. I svari
borgarstjóra kemur fram að heildar-
kostnaður hafi verið 1.135.4876 krón-
ur og var hlutur borgarsjóðs 458.875
kr. og hlutur OR 676.612 kr.
Greiddar vora rúmlega 380 þús-
und krónur fyrir fargjöld, 408 þús-
und fyrir gistingu og 338 þúsund
krónur í dagpeninga. Annar kostnað-
ur var 6.900 kr.
Andlát
BJÖRN BJARNASON
BJÖRN Bjamason,
fyrrverandi rektor
Menntaskólans við
Tjömina, lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
þriðjudaginn 4. maí síð-
astliðinn á áttugasta
aldursári. Hann fæddist
6. ágúst 1919 í Bolung-
arvík. Foreldrar Björns
vora Bjami Eiríksson
kaupmaður og Halldóra
Benediktsdóttir.
Björn varð stúdent
frá Menntaskólanum á
Akureyri 1939. Cand.
mag.-gráðu öðlaðist
hann frá Kaupmannahafnarháskóla
1945. Hann var stundakennari við
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
1945-’46 og Verslunarskóla íslands
1945-’46 og 1948-’50.
Bjöm gegndi kennarastöðu við
Menntaskólann á Akur-
eyi’i 1946—’48 og við
Menntaskólann í
Reykjavík 1945-’46 og
1948-69. Stundakenn-
ari var hann við verk-
fræðideild Háskóla Is-
lands 1950-’69 og
stærðfræðikennari til
B.A.-prófs frá 1951. Sat
í landsprófsnefnd
1963-’70. Björn varð
dósent við HÍ 1969- 70.
Hann var síðan skipað-
ur rektor við Mennta-
skólann við Tjömina
(síðar MS 1977) 1970 en
var jafnframt stundakennari við Hí
1970-’71. Björn lét af störfum sem
rektor haustið 1987.
Eftirlifandi eiginkona Bjöms er
Erla Geirsdóttir. Börn þeirra eru
Helga, Geir og Halldóra.