Morgunblaðið - 06.05.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 59
UMRÆÐAN
Þögnin er til
margra hluta
nytsamleg...
JÁ, HANN Davíð
forsætisráðherra er að
vakna til lífsins í kosn-
ingabaráttunni. Eg
kunni hins vegar betur
við þögnina, því þögnin ____
er til margra hluta nyt-
samleg, þótt hennar sé "
ekki getið í smáatrið-
um.
Ég komst ekki á
fundinn hans á Akur-
eyri á fimmtudags-
kvöldið - og harma það
ekki, en ég heyrði aftur
á móti í honum í
svæðisútvarpinu okkar
kvöldið eftir.
Davíð, af hveiju
talarðu svona?
Þótt ég hafí ekki kosið Sjálfstæð-
isflokkinn í tvennum síðustu kosn-
ingum - reyndai- skilaði ég auðu -
þá hef ég varið þig í bak og fyrir, en
nú er farið að koma að því, að ég
geti það ekki lengur.
Þú vitnar stundum í hana móður
þína, og ég vitna stundum í mína
móður. En nú langar mig að vitna í
afa þinn og föður. Það er nefnilega
þannig, að foreldrar mínir eru
fæddir og uppaldir á Eyrarbakka,
og móðir mín er í dag 86 ára. Hún
telpuhnokkinn fór einu sinni til
Nordals tannlæknis með mikla
tannpínu. Hún var logandi hrædd
og angistin skein úr augum hennar.
Eftir að afi þinn hafði skoðað litla
munninn sagði hann með mjög
hugsandi og sefandi röddu: „Ja, það
verður nú sennilega að taka þessa
tönn væna mín.“ Litlum lófum var
skellt fyrir andlitið og þeim haldið
fast. „Ég vil það ekki! Þarf að
sprauta? Ég finn ekkert til núna.“
Hvað heldur þú að afí þinn hafi
sagt?
„Jæja, vina mín. Ég er nú búinn
að taka tönnina - hún er hérna,
sjáðu.“ Þvílík snilld!
Mörgum árum seinna, eða árið
1939, er þessi kona húsmóðir suður
með sjó, lögð inn á Landspítalann
og skal eiga sitt fyrsta barn - eldri
systur mína. Og þá annast hana að
mestu ungur læknakandidat, sem
hét Oddur. Þetta leit ekki vel út hjá
hinni verðandi móður, en hún var
aldrei í minnsta vafa um að allt færi
vel. Þetta var erfitt, en hvorugt
beið skaða af. Meira hefur mér eig-
inlega ekki verið sagt - en ég er
viss um það, að reynslan af tann-
lækninum forðum hefur meitlast í
huga móður minnar. Sú reynsla, og
það að hafa haft þennan kandidat -
tannlæknissoninn - sér við hlið á
Landspítalanum, hefur haft sitt að
segja. I andliti móður minnar get
ég lesið í svipina. Spjallið um Eyr-
arbakka, fólkið og fjöruna.
En nú vilt þú sennilega fá að vita
af hverju ég hætti að kjósa minn
gamla flokk. Og ég skal segja þér
það. Þegar ég flutti tO Hríseyjar
1991 var það alltaf inni í myndinni
að verða kannski trillukarl seinna
meir - engin spurning, eins og Árni
Tryggvason, vinur minn, hefði sagt.
Ég vissi um aflatakmarkanirnar, en
að hlutirnir mundu breytast í það
forað, sem orðið er...
Trillukariarnir hérna í Hrísey
eru að deyja út. Það er engin end-
urnýjun og bátarnir hrúgast upp á
kambinum. Hvar er betra að
stunda sjóinn og sækja verðmesta
fiskinn?
Davíð, sjáðu nú til þess að ég geti
keypt mér trillu og sótt sjóinn
svona síðustu árin, og að það borgi
sig - þá á ég við, að þetta standi nú
undir sér og tengist ekki einhverju
tekjutengdu rugli. Að vísu er ég
ekki kominn á neinn virðulegan ald-
ur, en fólk sem er 67 ára og eldra er
Helgi
Sigfússon
búið að skila sínu. Það
á ekki að þurfa að
standa í þessu ströggli
- þú veist það eins vel
og eg sjálfur.
Á Hvanneyri, þaðan
sem ég er búfræðing-
ur, var einn besti
kennarinn sjálfstæðis-
maður. Hann var einu
sinni beðinn að útvega
mann á svínabú -
vinnumann. Hann fann
drenginn og sá starfaði
lengi við orðstír. Kenn-
arinn var hins vegar
spurður, af hverju hann
hefði valið þennan
dreng. Eftir talsverðar
umræður, og álit á öðrum skyldum
hlutum, sagði kennarinn:
„Meðalgreindur samvizkusamur
Kosningar
Taktu nú sönsum,
Davíð, segir Helgi
Sigfússon, áður en þú
verður að framsóknar-
manm.
maður gerir þjóðfélaginu meira
gagn heldur en gáfaður skíthæll."
Davíð, þú mátt alls ekki taka
þetta til þín, en hættu að dangla
með þessari „framsókn", nýrri
framsókn, þessa leiðina eða hina
leiðina ... skiptir ekki máli - taktu
nú sönsum áður en þú verður að
framsóknarmanni. Farðu þá leið,
sem sættir þjóðina sem mest.
Árið 2000 er merkisár íyrir Is-
lendinga og við eigum að muna það
ár - við eigum að muna það ár um
ókomna framtíð. Nú er þitt stóra
tækifæri framundan, en vita skaltu
að þú hefur ekki fengið dóm á
stjórnmálafundi eins og Halldór
Hermannsson hefur fengið:
„Engum blöðum var um það að
fletta hvaða frambjóðandi naut
mestrar hylli fundai-manna, Hall-
dór Hermannsson, oddviti Frjáls-
lyndra, sem fór á miklum kostum
og þótti skemmtilegri og harð-
skarpari en aðrir ræðumenn.“ Þá
máttu vita annað Davíð, að ég vil þá
báða bræður inn á þing. Þeir eru
harðduglegir, skarpgreindir og
skemmtilegir. Og það er nefnilega
málið, það eru eiginlega ekki neinir
skemmtilegir menn á þingi lengur.
Manstu hvað Hannibal sagði? „Ef
stjórnmálamenn eru leiðinlegú’ fyr-
irgefst þeim aldrei." Þeir bræður
tveir og nokkrir dyggir skjaldsvein-
ar með þeim geta virkilega orðið
þér að liði, eins og Sverrir er búinn
að segja, en þá verður þú líka að
taka sönsum.
Höfundur cr i 6. sæti Frjálslynda
flokksins á Norðurlandi eystra.
Yfírvaldið burt!
Á ÍSLANDI sem og
í öðrum meintum lýð-
ræðisríkjum er framið
lúmskt valdarán á
u.þ.b. fjögurra ára
fresti. Kjósendur eru
nánast neyddir til þess
að afsala sér völdum
sínum til kjörinna full-
trúa sem svo telja sig
koma hinum ýmsu
málum í framkvæmd í
samræmi við meintan
vilja almennings. í
raun era kjósendur
þar með komnir í íjög-
uira ára frí, enda era
þeir ekkert spurðir
frekar um afstöðu í ein-
stökum málum.
irvaldsins er eina leið-
in til þess að stuðla að
lýðræðislegum þroska
einstaklingsins og það
er nákvæmlega þetta
sem hugmyndafræði
anarkismans gengm-
út á. Anarkisminn
boðar ekki eiginlegt
stjórnleysi með kaos
og ringulreið heldur
j'fh'valdslaust samfé-
lag með lýðræði í sinni
hreinustu mynd þar
sem fólkið raunvera-
lega ræður. Hlutverk
Þórarinn kjörinna fulltrúa er að
Einarsson koma í framkvæmd
sýnilegum vilja al-
Fulltrúalýðræði
Fulltráalýðræðið er rotnandi
hræ. Það stuðlar að skoðanaleysi,
áhrifaleysi og afstöðuleysi almenn-
ings og heftir þroska þein-a sem
samfélagsþegna. Hinn almenni
þjóðfélagsþegn finnur lítið fyrir
ábyrgðarkennd og áhrifamætti ef
hann er ekki virkur í ákvörðunar-
töku í veigamiklum samfélagsleg-
um málefnum.
Beint lýðræði
Það má svo sem vera að beinna
lýðræði geti ógnað efnahagslegum
stöðugleika og hindrað efnahags-
legar framfarir. Einhverjum kann
að þykja skynsamlegt að stjórn-
völd hafi vit fyrir „heimskum lýðn-
um“ og tryggi þeim efnahagslega
velsæld. Én efnahagslegur upp-
gangur getur skilað sér í andlegum
niðurgangi og þá komum við nefni-
lega að spurningunni um sjálfan
tilgang lífsins. Hver vill viðurkenna
það að hann telji tilgang lífsins
vera að hámarka efnaleg gæði? Ef
við nálgumst svarið á þeirri for-
sendu að tilgangurinn hafi fremur
eitthvað að gera með þroska og
hamingju í stað efnahagslegrar
velsældar, þá hlýtur það að teljast
grandvallaratriði að virkja einstak-
linginn í því að upplifa áhrifamátt
sinn með virkri þátttöku í mótun
umhverfisins með aukinni ábyrgð
og siðferðiskennd. Það er nú líka
svo að grundvallarforsenda lýð-
ræðisins er máttur og réttur ein-
staklingsins til þess að hafa áhrif.
Hugmyndafræði
anarkismans
Við þurfum því að losna við
þroskahöft yfirvaldsins. Afnám yf-
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Emm f sumarshapi
201 afsiáúur af ðitum efnuiu úl~ vihuna
Vefnaðarvörur
Hlíðasmára 14, Kópavogi, sími 564 5533.
Kosningar
Fulltrúalýðræðið er
rotnandi hræ, segir
Þórarinn Einarsson.
Það stuðlar að skoðana-
leysi, áhrifaleysi og af-
stöðuleysi almennings.
mennings, þ.e. samkvæmt niður-
stöðum úr þjóðaratkvæðagreiðsl-
um.
Fjölmiðlar
Anarkistar hafa engar öflugar
kosningamaskínur til þess að fjár-
magna kostnaðarsamar auglýs-
ingaherferðir. Anarkistar njóta
heldur ekki jafnræðis í almennri
fjölmiðlaumræðu þar sem ein-
göngu framboð á landsvísu fá að
vera með. Þar að auki miðar hefð-
bundin fjölmiðlaumræða að því að
fá fram skýrari afstöðu flokkanna í
sérhæfðum málaflokkum og hentar
því ekki Anarkistum sem leggja á
það höfuðáherslu að það sé hlut-
verk fólksins að taka beina afstöðu
í þeim málum en ekki stjórnmála-
manna.
Að lokum
I komandi kosningum vilja An-
arkistar gefa kjósendum færi á að
koma þeim skilaboðum á framfæri
að þeir vilji endurheimta atkvæði
sitt og virkja samfelldan áhrifa-
mátt þess. Með því að krossa við
„Z“ er þeim skilaboðum komið á
framfæri. Með því að kjósa eitt-
hvað annað má segja að það þýði
masókíska yfírlýsingu um staðfest
valdaafsal til viðkomandi flokks.
Höfundur skipar fyrsta sæti á fram-
boðslista Anarkista í Reykjavfk.
Stökktu til
Benidorm
2m w w
. jum
í 1 eða 2 vikur
frá kr. 29.955
Heimsferðir bjóða > SíðllStll 19 SffitÍn
nú þetta ótrúlega
tilboð til Benidorm hinn 2. júní, þessa vinsælasta
áfangastaðar Islendinga. Þú bókar núna og tryggir
þér sæti í ferðina 2. júní og fjórum dögum fyrir
brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér á
hvaða gististað þú gistir í fríinu. Á Benidorm er
sumarið byrjað og hér nýtur þú frísins við frábærar
aðstæður og um leið getur þú valið um spennandi
kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða.
Verð kr.
29.955
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
vikuferð 2. júní, skattar innifaldir.
Verð kr.
39.990
M.v. 2 í herbergi/íbúð, vikufcrö
2. júní, skattar innifaldir.
Verð kr.
39.955
M.v. hjóh með 2 böm í íbúð,
2 vikur 2. júní, skattar innilaldir.
Verð kr.
49.990
M.v. 2 í studíó/fbúð, 2 vikur,
2. júní, skattar innifaldir.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
í_