Morgunblaðið - 06.05.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 63
Verkin tala
FYRIR fjórum ár-
um var samþykkt á Al-
þingi ágæt tillaga. Það
var þingsályktun um
ráðstafanir í byggða-
málum. Að samþykkt
hennar stóðu m.a. þeir
sem farið hafa með
stjóm landsins síðustu
fjögur ár. Þessi tillaga
var ekki endilega
merkileg vegna þess
sem í henni stóð, sem
flest var tfl hins betra
fallið, heldur fyrir hitt
hver urðu afdrif henn-
ar þegar kom að fram-
kvæmdum. ^
Dæmi: Alyktað var
að fjölga skyldi opinberum störfum
á landsbyggðinni en fækka þeim á
höfuðborgarsvæðinu. Afar skyn-
samlegt. Að fjómm ámm liðnum er
niðurstaðan sú að slíkum störfum
hefur fjölgað um á fimmta hundrað
á Reykjavíkursvæðinu, en fækkað
um ríflega þrjátíu á landsbyggðinni.
Annað dæmi: Ályktað
var að auka skyldi fjöl-
breytni í atvinnulífinu
utan Reykjavíkursvæð-
isins. Einnig skynsam-
leg hugsun. Að fjómm
árum hðnum hafa verið
reist og stækkuð þijú
stóriðjuver á suðvestur-
hominu, en fyrir liggur
yfirlýsing um að ein-
hvem tíma eftir kosn-
ingar liggi hugsanlega
fyrir vfljayfirlýsing um
iðnaðarappbyggingu í
Reyðarfirði, svipaður
pappír og Jón Sigurðs-
son varð sér úti um á
Keflisnesi forðum daga.
Þetta heitir á máli stjórnarflokk-
anna góðæri og hagvöxtur. Austfirð-
ingar gætu haft annað orð yfir sama
hlut: Þensla á höfuðborgarsvæðinu.
Hvað veldur?
Við hljótum að velta fyrir okkur
hvers vegna slíkt og þvíumlíkt ger-
Einar Már
Sigurðarson
UMRÆÐAN
ist. Ekki hefur skort pólitísk völd.
Af þingmönnum Austurlands hefur
einn verið oddviti ríkisstjórnar,
annar stjórnarformaður Byggða-
stofnunar og sá þriðji formaður
fjárlaganefndar. Enn einn leiðir nú
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
hér eystra. Ekki hvarflar að nokkr-
Kosningar
Stjórnarflokkarnir sem
stæra sig af góðæri,
segir Einar Már Sig-
urðarson, hafa sett
hryggilegasta íslands-
met seinni tíma.
um manni að þetta ágæta fólk vilji
landsbyggðinni illt; fyrr mættu nú
vera ósköpin. Hver er þá skýring-
in? Getur verið að hún finni sér
birtingarmynd í því þegar fjórir
ráðherrar í ríkisstjórninni héldu
saman blaðamannafund fyrir
nokkrum vikum og tilkynntu að
ætlunin væri að leysa byggðamál
með nokkmm „menningarhúsum“
á landsbyggðinni? Menningarhús-
um sem enginn hefur beðið um og
flestir era sammála um að séu
óþörf? Getur verið að þingmennirn-
ir hafi týnt sér í þenslugleðinni í
Reykjavík? Að þeir muni ekki leng-
ur hvað er að gerast hér fyrir aust-
an?
Verkin tala
I ljósi sögunnar hlýtur það að
teljast í meira lagi ótrúverðugt þeg-
ar þingmenn kjördæmisins koma
nú kortéri fyrir kosningar eins og
iðrandi syndarar og biðjast vægðar
fyrir að hafa gleymt landsbyggð-
inni. Eins og þeir gleymdu barna-
fólkinu. Og eins og þeir gleymdu
lífeyrisþegum. Foringi sjálfstæðis-
manna á Austurlandi orðaði þetta
svona: „Stefna núverandi ríkis-
stjómar í byggðamálum hefur verið
mótuð.“ Þetta sagði hún 8. mars
1999, fáeinum dögum fyrir þingslit.
Það skiptir minnstu hversu
margar fagurorðaðar tillögur
stjórnarflokkarnir samþykkja á Al-
þingi; það era efndirnar sem skipta
máli og sagan er rækt vitni um
þær. Um þær vitna líka sjö hund-
rað horfin störf á Austurlandi og
sjö þúsund manns sem flutt hafa af
landsbyggðinni á kjörtímabilinu,
sem er líklega hryggilegasta ís-
landsmet sem sett hefur verið í
seinni tíð. Samfylkingin hefur lagt
fram ígrandaða áætlun um endur-
reisn landsbyggðarinnar.
Lykilatriði í henni er að fram-
kvæði heimamanna ráði för, en ekki
miðstýrðar ráðherratilskipanir úr
Reykjavík. Ennfremur að byggðaá-
ætlanir verði bundnar í lög svo
hægt sé að fylgjast nákvæmlega
með því hvernig þeim er framfylgt
og draga hlutaðeigandi til ábyrgð-
ar.
F élagshyggjuflokkarnir hafa
sýnt að þeim er treystandi fyrir
hag landsbyggðarinnar, einmitt af
því að þeir láta ekki ki-eddur frjáls-
hyggjunnar ráða hugsun sinni og
gerðum. Samfylkingin ætlar að
halda þessu merki hátt á loft á AI-
þingi á næsta kjörtímabili. Það er
ekki bara skynsamlegt, heldur
bráðnauðsynlegt.
Við höfum ekki efni á öðra kjör-
tímabili undir núverandi stjórn.
Höfundur skipar 1. sæti framboðs-
listtí Samfylkingarinnar á Austur-
landi.
<
1
(
i
I
i
i
I
J
{
i
i Er milljarðinum
Framsóknarflokkur-
inn einn boðar í stefnu-
skrá sinni stóraukið
framlag tfl baráttunn-
ar gegn vímuefnum.
Ekki aðeins milljarð,
^ heldur stighækkandi
1 framlög til þessara
Imála, sem samanlagt
er ætlað á kjörtímabil-
inu að nema rúmum 2
milljörðum. Með þessu
viðurkennir Fram-
sóknarflokkurinn hinn
mikla vanda sem við er
að etja. Aðrir flokkar,
fylkingar og hreyfingar
virðast ekld gera sér
Ígrein fyrir umfangi
hans, að minnsta kosti fer lítið fyrir
því í stefnuskrám þeirra og mál-
flutningi.
Nokkiir talsmenn Samfylkingar-
innar hafa leitast við að rangfæra
stefnu Framsóknarflokksins í
þessu efni. í fyrsta lagi tala þeir
um „yfírboð" framsóknarmanna.
Það er rangt, enda framsóknar-
menn fyrstir að setja fram stefnu í
þessum málum. f öðra lagi velta
Iþeir sér upp úr því að stjórnarþing-
menn, og helst nefna þeir bara
þingmenn Framsóknarflokksins,
hafi fellt tillögu frá stórnarand-
stöðunni um 30 milljóna króna við-
bótarfjárveitingu til
meðferðarúrræða á
vegum bamaverndar-
stofu. Auðvitað láta
þeir þess ekki getið,
sem hér með er komið
á framfæri, að undan-
farin fjögur ár hafa ár
hvert verið veittar 150
milljónir til þessara
mála til viðbótar því
sem var á síðasta kjör-
tímabili. Og í þriðja
lagi vísa þeir til þess
að fjárskortur lög-
regluembættisins í
Reykjavík sé merki um
tvískinnung framsókn-
armanna, því á sama
tíma og boðuð séu aukin framlög tfl
baráttunnar gegn vímuefnum sé
aukavinna lögreglumanna skorin
niður og löggæsla þar með. Þess er
hins vegar að engu getið að fjár-
skorturinn, sem reynt var tíma-
bundið að mæta með niðurskurði
aukavinnu, stafar einkum af kostn-
aði við skipulagsbreytingar hjá
embættinu sem leiddu af stofnun
embættis ríkislögreglustjóra.
Þessum útúrsnúningi virðist
helst ætlað að rýra trúverðugleika
Framsóknai-flokksins. En það má
hverjum manni vera ljóst að slíkar
rangfærslur þjóna ekki hagsmun-
Jónína
Bjartmarz
ofaukið?
Vímuefnavandi
Ábyrg stefna Fram-
sóknarflokksins í bar-
áttunni gegn vímuefn-
um, segir Jónína Bjart-
marz, er aðeins ein af
mörgum ástæðum þess
að kjósa verður Fram-
sóknarflokkinn.
um unglinga sem hafa ánetjast eða
eiga á hættu að ánetjast vímuefn-
um og fjölskyldum þeirra.
Þeir sem gleggst þekkja til í
GOLFEFNABUÐIN
Borgartúni 33
^Mæða flísar
i^*y óð verð
þjónusta
þessum málum og hafa bestu yfir-
sýn draga ekki í efa að full þörf er
á þeim fjárframlögum sem Fram-
sóknarflokkurinn boðar til þessar-
ar baráttu. Meginrökin fyrir því að
hækka sjálfræðisaldurinn á kjör-
tímabilinu úr 16 áram í 18 ár vora
þau að tryggja yrði meðferðarúr-
ræði fyrir þá unglinga á því aldurs-
skeiði sem ánetjast hefðu vímuefn-
um. Þessi breyting ein og sér kall-
ar á veralega aukin fjárframlög.
Áætlað er að það þurfi 200-230
milljónir ki-óna til að reka meðferð-
arheimili og bráðamóttöku ein-
göngu til að mæta þeirri þörf sem
nú hefur skapast. Þá á eftir að efla
löggæslu og tollgæslu til að varna
frekar innflutningi og sölu vímu-
efna. Þá er og enn eftir allt eigin-
legt forvarnarstarf. Margir era
komnfr á þá skoðun að eigi síðar en
við upphaf grannskólans þurfí að
greina böm í helsta áhættuhópnum
og ná strax til þeirra. Þeima barna
sem líður illa og finna sig ekki,
hverjar svo sem ástæðumar era;
námserfiðleikar, einelti, þroskafrá-
vik, geðfötlun eða vegna tilfinn-
ingalegi-a eða félagslegra vanda-
mála. Forvarnir frá þessu sjónar-
horni eru í raun önnur og ný sýn á
barnaverndarstarf, sem vonandi á
eftir að koma til frekari umræðu og
skoðunar.
Ábyrg stefna Framsóknar-
flokksins í baráttunni gegn vímu-
efnum er aðeins ein af mörgum
ástæðum þess að kjósa verður
Framsóknarflokkinn.
Höfundur skipar 3. sætið á fram-
boðslista Framsóknarflokksins í
Reykjavík.
Aðalfundur
Aðalfundur íslenska járnblendifélagsins hf. verður
haldinn fimmtudaginn 20. maí 1999, kl. 16.00 á Hótel
Loftleiðum, Reykjavík.
Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf skv. 17. gr.
samþykkta félagsins. Kjörgögn verða afhent á staðnum.
Grundartanga 4. maí 1998.
Stjórnin
Ólafur Örn Haraldsson
þingmaöur Reykvfkinga hefur
barist fyrir mannréttindum
minnihlutahópa \ samfélaginu.
FRELSI FESTA FRAMSOKN
w w w . x b . i s / r ey kj a v i k
A.
€