Morgunblaðið - 06.05.1999, Side 78
78 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
i þessUM /!U6LýsiM6n
, TÍMA 'A KArrAGhs/HW
Hundalíf
Ferdinand
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Bréf til Halldórs
Asgrímssonar
Frá Ásthildi Cecil Þórðardóttur:
PAÐ gladdi mig að heyra að Hall-
dór Asgrímsson ætli að leggja
milljarð aukalega í fíkniefnavamir,
eða var það vímuefnavarnir. Eg er
ekki viss um hvort heldur.
Milljarð í fíkniefnavarnir, burt
með sölumenn dauðans, segir slag-
orðið. Það brenna á mér nokkrar
spurningar sem ég vil fá svör við.
Þar sem mér er málið skylt eins og
svo mörgum öðrum, enda er þarna
verið að seilast í atkvæði okkar.
Hefur formaður Framsóknar-
flokksins látið skilgreina hverjir
eni sölumenn dauðans og hveijir
eru fórnarlömb? Hefur formaður-
inn unnið að skipulagi um hvernig
hann hyggst verja milljarðinum?
Hefur hann fengið til liðs við sig
sérfræðing til að vinna að málinu?
Fíkniefnavandinn er nefnilega
langt í frá einfalt mál eða auðvelt
og alls ekki til að leika sér með í
einhverri kosningasmalamennsku.
Hvað hefur Framsóknai'flokkur-
inn verið að gera undanfarin fjögur
ár? Hafa þingmenn þar á bæ komið
fram með einhverjar tillögur eða
úrræði til að lagfæra ástandið?
Og seg þú mér, Halldór As-
grímsson, ertu fyrst núna að upp-
götva þennan fíkniefnavanda? Það
má segja að það sé betra seint en
aldrei, sérstaklega þar sem allt
bendir til að þið verðið áfram í rík-
isstjórn næsta kjörtímabil. En ég
verð að segja að ef þetta er ekki
annað en kosningabrella, fundin
upp á auglýsingastofu þinni, þá er
málið bæði lágkúrulegt og and-
styggilegt. Að nota sér örvæntingu
og neyð fólks á þennan hátt er
ekki sæmandi háttsettum mönn-
um. Að gera fólk sem er í sárum að
kosningafíflum er sorglegra en orð
fá lýst. Þess vegna vil ég að þú
komir fram strax með þínar hug-
myndir um hvernig þú ætlar að
leysa þessi mál. Við eigum heimt-
ingu á að fá þetta nánar skilgreint.
Það er nú svo að þegar fólk hefur
lent í þeim aðstæðum sem tilvon-
andi atkvæðin þín hafa lent í, þá
lítur maður öðruvísi á lífið og til-
veruna. Maður er kannski ekki svo
ginnkeyptur fyrir mistúlkun sann-
leikans eða svikum, vegna þess að
það eru þeir eiginleikar sem mað-
ur er að berjast við dagsdaglega í
sínu lífi.
I komandi kosningum ætla ég að
gefa Frjálslynda flokknum atkvæði
mitt. Ég treysti því fólki best til að
takast á við þessi málefni af festu
og einurð. Mér finnst fólkið þar
vera heilsteypt og hreinlynt. En
vegna annarra bið ég þig um svar.
Mér finnst einhvern veginn að ef
þið í Framsóknarflokknum hefðuð
raunverulegar áhyggjur af fíkni-
efnaneytendum og aðstandendum
þeirra hefði maður séð þess einhver
merki í verkum ykkar síðastliðið
kjörtímabil.
Það sem ég man í fljótheitum er:
Lokun meðferðarheimilisins Tinda,
fjársvelti hjá Krísuvíkursamtökun-
um, fjársvelti lögreglunnar í
Reykjavík. Lofar þetta góðu?
Ég skrifaði í vetur öllum þing-
mönnum íslenska ríkisins um nauð-
syn þess að setja á stofn meðferð-
arstofnun sem ungt fólk á glapstig-
um yrði dæmt til að vera á í stað
þess að loka það í fangelsum. Það
brennur á og einhvern tímann áttar
fólk sig á að við getum ekki gleymt
þessum hópi þegar tekið verður á
fíkniefnavandanum. Það var fátt
um aðgerðir þá. Svo mér brá við
þegar þetta kom eins og sprengja í
miðri kosningabaráttu. Þess vegna
krefst ég svara við spurningum
mínum.
ÁSTHILDUR C. ÞÓRÐARDÓTTIR,
Seljalandsvegi 100, ísafirði.
Smáfólk
YOÓ MAVE A BROTHER
ANPASISTERAT,
HOME..UiHVD0N'T
YOU A5KTHEM?
THANKS FOR
N0T éETTIN<5
MAP..
Traust stjórn
Frá Arnljóti Bjarka Bergssyni:
BÚ ÞIG í góðviðri við illviðri, segir
íslenskur málsháttur. Það sama má
sennilega segja um góðæri og hall-
æri. Ætíð er betra
en ekki, að hafa
vaðið fyrir neðan
sig. Því hlýtur að
vera þjóðinni hollt
að hafa trausta og
ákveðna stjóm í
efnahagsmálum.
Við Islendingar
höfum líkt og
flestir aðrir
slæma reynslu ,af óráðssíu í efna-
hagsmálum. Hver getur réttlætt
það fyrir sjálfum sér og niðjum sín-
um í framtíðinni að hafa kosið
verðbólgu og annað vesen yfir sig
nú þegar ríkissjóður er að komast í
það horf að geta lagt fyrir í stað
þess að leggja óheyrilegar fjár-
hæðir ár eftir ár í vaxtagreiðslur
og afborganir af erlendum lánum.
Abyrg fjármálastefna er forsenda
þess að atkvæði verði goldin ein-
stökum framboðum. Það er
skammgóður vermir að míga í skó
sinn, sérstaklega við norðurheim-
skautsbauginn þar sem allra veðra
er von.
Langþráður lífskjara bati,
lækkandi skuldir ríkissjóðs,
hagvöxtur er hagsæll hvati,
hagldir og tögl í höndum góðum.
A ári hveiju hækkar kaupmáttur,
árangur hér öllum bjóðum,
vinnumarkaður virðist sáttur,
víst er það til góðs.
ARNLJÓTUR BJARKI
BERGSSON,
formaður Varðar fus, Akureyri.
Er komið vor? Komstu hingað Þú átt bróður og Þau verða dð þegar ég spyr Þakka þér fyrir að
til að spyija mig að því? systur heima, af heimskulegra spurninga. verða ekki dð.
hveiju spyrðu þau Vorið kemur í næstu viku.
ekki?
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að Iútandi.