Morgunblaðið - 08.05.1999, Side 10

Morgunblaðið - 08.05.1999, Side 10
10 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR * A lokaspretti kosn- ingabaráttunnar hefur færst hiti í leikinn. Morgunblaðið fór á kosningaskrifstofur í Reykjaneskjördæmi og hitti þar fólk að máli. Var ekki laust við að skjálfti væri í mönnum enda stóra stundin að renna upp. Heimsókn á kosningaskrifstofur flokkanna á Akureyri SKRIFSTOFA Sjálfstæð- isflokksins er í Kaupangi við Mýrarveg og þar hef- ur verið margt um mann- inn síðustu daga að sögn Guðbjargar Pétursdóttur kosninga- stjóra. „Kosningabarátta okkar hef- ur verið vel skipulögð, við gengum snemma frá dagskrá og hún hefur gengið vel eftir,“ sagði Guðbjörg. Hún sagði að líf og fjör hefði verið á skrifstofunni, þangað hefðu margir komið, m.a. á súpufundi sem haldnir voru í hádeginu, og þá bauð flokkur- inn ungum kjósendum til skyrfund- ar. „Hann tókst sérlega vel, það var hér biðröð út á götu,“ sagði Guð- björg. „Unga fólkið er að velta fyrir sér hvað það eigi að kjósa og er að afla sér upplýsinga." Kosningabaráttu sagði hún hafa verið frekar stutta, hafa farið seint af stað, en síðustu daga með vaxandi krafti. „Mér fínnst baráttan hafa verið jákvæð og afar skemmtileg," sagði Guðbjörg. Meðbyr sem staðfestur er í skoðanakönnunum „Þetta hefur verið mikii vinna, en afar skemmtileg. Samstarf við fjöld- ann allan af góðu fólki sem tekið hef- ur þátt í þessu með okkur er mér of- arlega í huga nú í lok baráttunnar,“ sagði Valtýr Sigurbjamarson. „Skoðanakannanir benda til að við séum að sækja í okkur veðrið og það er afskaplega gleðilegt. Ég trúi því að það sé fyrst og fremst vegna þess að við erum með sterka málefna- stöðu og frambærilega frambjóðend- ur.“ Valtýr sagði að mikill straumur fólks hefði verið á kosningaskrifstof- una við Hólabraut, marga fysti að ræða við frambjóðendur, og hafa súpufundir í hádeginu gjaman verið notaðir til þess. „Við fínnum fyrir meðbyr og það hefur verið staðfest í nýjustu skoðanakönnunum," sagði Valtýr. Skemmtileg kosningabarátta Frjálslyndir eru með kosninga- skrifstofu við Ráðhústorg og þang- að leggja margir leið sína að sögn Katrínar Gísladóttur, sem ásamt Þuríði Hermannsdóttur hefur stýrt skrifstofuhaldinu síðustu daga. „Það er líflegt hér við torgið,“ sagði hún. Halldór Hermannsson, sem skipar fyrsta sæti listans, kom glaðbeittur inn á skrifstofuna með harðfiskpoka og selspik, hafði hitt Færeying niðri við höfn, en þeir vom saman á ís- borginni 1959. „Við bjóðum upp á þetta kosninganóttina," sagði hann. Kosningabaráttan hefur staðið síð- ustu þrjár vikur og sagði Halldór að Norðlendingar hefðu tekið sér, Is- fírðingnum, vel. „Þeir hafa tekið mér af kurteisi, hér er gott fólk, en ég fínn það brennur mjög á mönnum að þetta er láglaunasvæði, peningamir hafa sogast suður og fólki svíður það,“ sagði Halldór. „Þetta hefur verið virkilega skemmtilegt, ég hef hitt margt yndislega gott fólk, sem ég annars hefði ekki átt kost á að kynnast, ég mun fara héðan með góðar minningar sem gaman verður að oma sér við í ellinni," sagði Hall- dór. Fáum góðan hljómgrunn Jón Daníelsson, kosningastjóri Samfylkingarinnar á Norðurlandi eystra, sagði að stemmningin væri góð fyrir framboðinu og hefði síðustu daga farið síbatnandi. Taldi hann glæsilegan fund í troðfullum Sjalla ekki síst eiga sinn þátt í því. „Við fómm seint af stað og hægt tii að byrja með. Kosningabaráttan fór alvarlega í gang hjá okkur fyrir um þremur vikum, þannig að þetta er stutt en snörp barátta. Hún hefur verið að færast í aukana nú síðustu dagana fyrir kosningar,“ sagði Jón. Hann sagði að þetta hefði verið erfíð vinna, en afar skemmtiieg og gjöful. „Ég hef hitt fleira fólk á síð- ustu þremur vikum en ég geri yfír- VALGERÐUR Jónsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Daníel Árnason og Elsa Friðfinnsdóttir rýna í nýjustu skoðanakönnunina á kosninga- skrifstofu Framsóknarfíokksins við Hólabraut í gær. Akureyri þegar þær voru heimsóttar í gær. Talsmenn flokkanna seg;ia að kosn- ingabaráttan hafí farið hægt af stað en kraftur komið í hana undir lokin. HALLDÓR Hermannsson og Hermann Haraldsson, frambjóðendur Fijálslyndra á Norðurlandi eystra, með harðfisk og selspik sem boð- ið verður uppá á kosninganóttina, en til hliðar era Þuríður systir ‘Halldórs og Katrín Gísladóttir eiginkona hans. Morgunblaðið/Kristj án HALLDÓR Blöndal að máta svuntuna sem hann bar á fjölskylduhá- tíð Sjálfstæðisflokksins á Ráðhústorgi síðdegis í gær. Þau Davíð Þor- láksson, Guðbjörg Pétursdóttir, Jón Garðar Steingrímsson, Ingi- björg Sólran Ingimundardóttir, Guðlaug Þóra Stefánsdóttir og Emil- ía Kr. Gunnþórsdóttir fylgdust með á kosningaskrifstofunni. Líf og fjör var á kosningaskrifstofum á JÓN Haukur Brynjólfsson, kosningastjóri Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, en hjá honum stendur Ámi Steinar Jóhannsson og Anna Helgadóttir situr. leitt í starfí mínu á tveimur þremur árum,“ sagði Jón, sem starfar við þýðingar. Hann sagði vaxandi straum fólks liggja á kosningaskrifstofuna við Skipagötu og þar væri margt spjall- að. „Eg verð var við að við fáum góð- an hljómgrunn og því hef ég góðar tilfinningar fyrir kosningunum,“ sagði hann. Stílum upp á persónulegt samband við fólk Jón Haukur Brynjólfsson, kosn- ingastjóri Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sagði að kosninga- baráttan hefði gengið vel. ,And- rúmsloftið í okkar garð er jákvætt," sagði hann. „Þetta hefur verið skemmtileg kosningabarátta en óvenjuleg að ýmsu leyti. Þetta er ný hreyfíng og nýtt fólk en litlir pening- ar tU, þannig að við höfum stflað upp á persónulegt samband við fólk,“ sagði Jón Haukur. Vinstrihreyfingin hóf baráttuna snemma, opnaði skrifstofu fljótlega eftir áramót. „Áherslan er að ná til fólks, tala við það, skýra okkar stefnu, en við höfum ekki tekið þátt í auglýsingakapphlaupinu. Það virðist ganga vel í fólk,“ sagði Jón Haukur, en fjöldi sjálfboðaliða hefur komið að kosningabaráttunni. JÓN Danfelsson, kosningasljóri Samfylkingarinnar, að störfum, en í mörg horn er að líta á lokasprettinum. V axandi kraftur í lokin tjyður 8 11® uursi V* GUÐLAUGUR virðir fyrir sér flokksafurðina Kristilegt dag- blað. Kristileg barátta í lágum gír „KOSNINGASKRIFSTOFAN er með töluvert öðru sniði hjá okkur en hinum flokkunum. Við höfum ekki aðgang að peningum eins og þeir, sem eru í ríkisstjórn,“ segir Guðlaugur Laufdal, kosningastjóri og frambjóðandi Kristilega flokks- ins, þegar hann tekur á móti blaða- manni og ljósmyndara á heimili sínu í Hafnarfirði. Heimilið er prýtt ís- lenskum landslagsmyndum í hefð- bundnum stfl og silkiblómum og Guðlaugur vasklegur í æfingagalla. „Við erum að þessu í rólegheitum - og þó. Við höfum gefíð út Kristi- legt dagblað, hitt fólk og kynnt mál- staðinn, þar sem okkur hefur boðist það.“ Kosningamiðstöð kristilegra er í sjónvarpsstöðinni Omega og þar hittist fimm manna kjarnahópur daglega. En eru kristilegir þá í þeirri einstöku aðstöðu meðal ís- lenskra flokka að hafa sjónvarps- stöð á sínum snærum? „Nei, við störfum þar, en stöðin er ekki í kosningabaráttu. Ég trúi því þó að þeir, sem reka Omega séu fylgjandi framboði okkar,“ segir Guðlaugur. Helsta áhugamál kjósenda telur Guðlaugur launamálin. „Stjórnar- flokkarnir og mennirnir, sem stjóma, eru ekki slæmir, en með því að kjósa þá eru menn að kjósa yfir sig sömu launastefnu og sama háttalag í kvótamálum og fjöl- skyldumálum.“ Mannasiðakennslu í skólum og áfengisfræðslu telur Guðlaugur brýna. „Áfengi tekur vitið frá fólki, svo þess vegna er eðlilegt að settir verði miðar með þessari áletrun á áfengisflöskur.“ Guðlaugur er bjart- sýnn á þetta annað framboð flokks- ins. „Fólk er hrætt við hið óþekkta,“ segir hann, en telur að með tíman- um læri fólk að þekkja flokkinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.