Morgunblaðið - 08.05.1999, Side 12
12 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ekkert athugavert
við söng sýslumanns
BRYNDÍS Friðgeirsdóttir, kosn-
ingastjóri Samfylkingarinnar á
Vestfjörðum, segir að það hafi
verið skrumskælt sem haft var
eftir henni á fréttavefnum Vísi.is
um söng Ólafs Helga Kjartansson-
ar sýslumanns á kosningahátíð
Sjálfstæðisflokksins í fyrradag.
Olafur Helgi á jafnframt sæti í yf-
irkjörstjórn.
„Samfylkingin er ekki að ákæra
Ólaf Helga fyrir nokkurn skapað-
an hlut. Við hófum ekki þessa um-
ræðu og komum henni ekki á
framfæri. Ólafur Helgi tekur sín-
ar persónulegu ákvarðanir sjálfir,
og ef hann telur sjálfan sig van-
hæfan gerir hann vart við sig.
Hann er póiitiskt kjörinn í þessa
kjörstjórn eins og allir eru og það
eru engin ákvæði um að þeir séu
ópólitískir. Hann er sýslumaður
okkar hér á ísafirði og við treyst-
um honum til að meta þetta sjálf-
ur og gæta mála af hlutleysi,"
segir Bryndís. „Það getur hins
vegar vel verið að ýmsum finnist
þetta sérkennilegt.“
Mick Jagger betri
Hún kveðst hafa verið stödd á
bæjarstjórnarfundi þegar Ólafur
Helgi tók að syngja lög Rolling
Stones á kosningahátíð Sjálfstæð-
isflokksins á Silfurtorginu á fsa-
firði og hafí fundarmenn séð
ástæðu til að gera örstutt hlé á
fundinum, hlýða á söng sýslu-
mannsins og horfa á hann í gegn-
um glugga stjórnsýsluhússins.
„Mick Jagger er alltaf bestur og
það fer enginn í skóna hans, ekki
einu sinni Ólafur Helgi,“ segir
Bryndís.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
ÓLAFUR Helgi sýslumaður þenur raddböndin.
Skoðanakannanir benda til að fylgi flokkanna hafí ekki breyst mikið að undanförnu
Litlar breytingar á fylgi
í kosningabaráttunni
Hlutfollslegt fylgi
á landsvísu
í siðustu könnunum
fyrir kosningnr
og úrslitin 1995
37'63M36.2
31,6
25,5
23,3
Síðustu skoðanakannanir
og úrslit kosninga 1995
Alþýðuflokkur Framsóknarfl. Sjálfstæðisfl. Alþýðubandalag Þjóðvaki
Mbl./Félagsv.st., 2.-4. apríl
RÚV/Gallup, 5-6. april
Stöð 2 og Bylgjan, 5.-6. apríl
DV, kosningaspá, 6. april
|—Kosningar8. april
^£55 4,9 4,9
1,5 18 1,7 1,4 b’
Kvennalisti Önnur framboð
Skoðanakannanir frá 18. apríl
Framsóknar- 18 flokkur aPril 23. 27. 29. apríl apríl apríl 3. 4. maí maí 5. 6. 7. maí maí maí
Gallup 17,3 i ,|É ív' 18,7 18,3 18,0 17,7 17,3
DV 17,9 18,5 5'/ 21,2
Félagsv.st. 19,8 /Z 19,0
Sjálfstæðisflokku ir
Gallup 44,8 40,8 42,3 43,2 43,1 42,7
DV 43,6 41,2 42,8
Félagsv.st. 43,7 41,9
Samfylkingin
Gallup 30,1 29,1 27,1 05 oo CM co C\J co Osl
DV 24,1 26,7 25,2
Félagsv.st. 26,4 28,6
Vinstrihreyfingin - grænt framboi 5
Gallup 5,0 7,5 8,3 7,9 7,6 7,5
DV 8,8 9,4 7,5
Félagsv.st. 7,5 8,7
Frjálslyndi flokkurinn
Gallup 2,4 2,7 3,2 3,4 2,5 2,9
DV 4,5 3,5 2,9
Félagsv.st. 2,3 2,5
SAMKVÆMT skoðanakönnunum
hefur fylgi stjómmálaflokkanna
sem bjóða fram til Alþingis lítið
breyst frá því kosningabaráttan
hófst af fullum krafti eftir páska.
Einu marktæku breytingamar era
að stuðningur við Vinstrihreyfing-
una hefur heldur vaxið og fylgi við
Samfylkinguna minnkaði í lok apr-
fl, en óx síðan aftur til fyrra horfs.
í flestum könnunum sem gerðar
vora skömmu fyrir kosningamar
1995 fékk Sjálfstæðisflokkurinn
minna fylgi en hann fékk í kosning-
unum, en Framsóknarflokkurinn
fékk svipað eða meira fylgi í könn-
unum en hann fékk í kosningunum.
Skoðanakannanir hafa verið
gerðar næstum daglega síðustu
tvær vikurnar. Þær sýna fylgi
Framsóknarflokksins á bilinu
17,3-19,8%. Skoðanakönnun DV
frá því í gær sker sig reyndar
nokkuð úr en hún sýnir 21,2%
stuðning við ílokkinn. Fylgi við
Sjálfstæðisflokkinn mælist í könn-
ununum 40,8-43,7%. Ef tvær kann-
anir, sem gerðar vora um síðustu
helgi, era undanskildar sýna allar
kannanimar 41,9-43,7% fylgi.
Kannanir hafa sýnt meiri sveiflur á
fylgi Samfylkingarinnar. Það hefur
sveiflast frá 24,1% í 29,1%. Fylgi
Vinstrihreyfingarinnar hefur hins
vegar verið mjög stöðugt eða á bil-
inu 7,5-8,7% ef undan er skilin ein
könnun DV sem sýndi 9,4% stuðn-
ing við U-listann. Stuðningur við
Frjálslynda flokkinn hefur mælst á
bilinu 2,3-3,4% ef ein könnun DV
er undanskilin sem sýndi flokldnn
með 4,5% fylgi.
B- og U-listi hafa styrkt stöðu
sína frá því í mars
Ef horft er á stöðu flokkanna
eins og hún var í fyrstu könnunum
sem gerðar vora eftir páska þegar
kosningabaráttan var að fara á
fullan skrið kemur í ljós að óvera-
legar breytingar hafa orðið á fylgi
flokkanna. Framsóknarflokkurinn
mældist með 13,1% fylgi í könnun
sem gerð var um miðjan mars og
varð hún til þess að flokkurinn hóf
kosningabaráttuna nokkuð á undan
öðrum flokkum. Fylgi flokksins fór
fljótlega upp fyrir 17-18% og hefur
lítið breyst síðan ef undan er skilin
þessi nýjasta könnun DV, sem gæti
verið vísbending um að einhverjar
breytingar séu að eiga sér stað.
Tvær kannanir sem birtust 6. og
19. aprfl bentu til þess að fylgi
Sjálfstæðisflokksins væri um 45%.
Síðan hefur flokkurinn mælst með
42-43% fylgi. Eftir páska mældist
Samfylkingin með 29-30% fylgi, en
framboðið hafði í mars mælst með
33-36% fylgi. Kannanir sem gerðar
voru í lok mars benda til að stuðn-
ingur við framboðið hafi farið enn
neðar, en síðustu kannanir benda
til 27-28% fylgis. Fylgi Vinstri-
hreyfmgarinnar mældist 4-6% í
mars og framan af aprfl, en hefur
aukist síðan í 7-8%.
D-listinn mældist undir kjörfylgi
fyrir síðustu kosningar
Fróðlegt er að bera saman
kannanir sem gerðar vora fyrir
kosningarnar 1995 við úrslit kosn-
inganna. I kosningabaráttunni hef-
ur því ítrekað verið haldið fram að
Sjálfstæðisflokkurinn mælist alltaf
hærra í könnunum en í kosningum
og Framsóknarflokkurinn mælist
lægri í könnunum en kosningum.
Þetta gerðist ekki í síðustu kosn-
ingum. í öllum könnunum sem
gerðar vora síðustu tvær vikurnar
fyrir kosningar mældist Sjálfstæð-
isflokkurinn með 31-36% fylgi
nema í síðustu könnun Félagsvís-
indastofnunar, sem sýndi flokkinn
með 37,6% fylgi. í kosningunum
fékk Sjálfstæðisflokkurinn 37,1%
fylgi eða nokkru meira en flestar
kannanir höfðu bent til að flokkur-
inn fengi.
í upphafi kosningabaráttunnar
1995 var fylgi Framsóknarflokks-
ins 18-20%, en hækkaði fljótlega,
eins og nú virðist einnig hafa
gerst. I könnunum Gallup síðustu
vikuna fyrir kosningar fékk flokk-
urinn 22-24% fylgi. Tvær af fjór-
um síðustu könnunum sem gerðar
vora fyrir kosningar sýndu flokk-
inn með 24-25% fylgi, en hinar
mældu fylgi hans 20-22%. Flokk-
urinn fékk hins vegar 23,3% í
kosningunum, sem er svipað eða
jafnvel heldur minna en hann fékk
í sumum könnunum fyrir kosning-
arnar.
Framboðslistar
á landinu öllu
Hlutur
kvenna
39,4%
HLUTFALL kvenna á fram-
boðslistum flokkanna til Al-
þingis í dag er samanlagt
39,4% og hlutfall karla því
60,6%, að sögn Unu Maríu
Oskarsdóttur, verkefnastjóra
ráðherraskipaðrar nefndar
sem ætlað er að auka hlut
kvenna í stjómmálum. Til
samanburðar má geta þess að
hlutfall kvenna á framboðs-
listum flokkanna fyrir síðustu
alþingiskosningar var tæp-
lega 50%, samkvæmt tölum
frá Hagstofu íslands.
I alþingiskosningunum
1991 var hlutur kvenna 46% á
framboðslistum flokkanna og
hið sama var upp á teningn-
um í alþingiskosningunum
1987. Hlutfallið var heldur
lægra í kosningunum 1983, en
þá var það 35%. Fyrir fjöra-
tíu áram eða í kosningunum
1959 var hlutfall kvenna hins
vegar 8% á þeim 35 listum
sem buðu fram til Alþingis.
Að lokum má geta þess að
hlutfall kvenna í efstu sætum
framboðslista flokkanna til
Alþingis nú í vor er 25,5% og
hlutfall karia því 74,5%.
Framboðslistar
Framsóknarflokksins
Hlutur
ungra
fram-
bjóðenda
33,3%
HLUTFALL frambjóðenda,
35 ára og yngri, á framboðs-
listum Framsóknarflokksins
um allt land er 33,3% sam-
kvæmt útreikningum félaga í
Sambandi ungra framsóknar-
manna. Hlutur þessa aldurs-
hóps á framboðslistum sjálf-
stæðismanna er 22,6%, hlutur
hans á framboðslistum Sam-
fylkingarinnar er 21,4% og
hlutur hans á frambosmðslist-
um Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs er
21,4%.
Ef aðeins era teknii- fimm
efstu frambjóðendur í öllum
kjördæmum landsins er hlut-
fall þeiira sem era 35 ára og
yngri 27,5% hjá Framsóknar-
flokknum, 22,5% hjá Samfylk-
ingunni, 17,5% hjá Sjálfstæð-
isflokknum og sömuleiðis
17,5% hjá Vinstrihreyfing-
unni - grænu framboði.