Morgunblaðið - 08.05.1999, Page 42

Morgunblaðið - 08.05.1999, Page 42
42 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FJÓRIR ÆTTLIÐIR MANCHESTER UNITED AÐDÁENDA VIKII LM Sameinast fótboltann Því er stundum haldið fram að konur hafí ekki áhuga á fótbolta og að íþróttin sundri fjölskyldum. ------7------------------------------------------- Aróra Tryggvadóttir, dætur hennar og afkomendur þeirra eru sönnun þess að svo er ekki. Sveinn Guðjónsson sótti fjölskylduna heim á meðan á leik Manchester United og Liverpool stóð nú í Morgunblaðið/Jón Svavarsson FJÓRAR kynsldðir United-aðdáenda: Jðn Theódór, Margrét, Sigrún, Tinna, Guðlaug, Kolbrún með dótturdóttur sínu Alexöndru Brynju, og Áróra. vikunni og þar var spennan í hámarki. ÞÆR vildu helst ekki fá blaðamann í heim- sókn meðan á leiknum stóð. Kváðust vera nógu stressaðar samt vegna leiksins og á það væri ekki bætandi. Undirrituðum tókst þó að troða sér inn á heimili Kol- brúnar Ólafsdóttur í Hraunbæn- um, í seinni hálfleik Manchester United og Liverpool, þar sem hún var að horfa á leikinn ásamt móður sinni, Aróru Tryggvadóttur, og fleirum úr fjölskyldunni, allt gall- hörðum United-aðdáendum. Við komum inn í þann mund sem dæmd var vítaspyma á Liverpool, sem Dennis Irwin skoraði úr af miklu öryggi. „Þetta var ljótt brot og hefði með réttu átt að dæma tvö víti og reka manninn út af,“ sagði einhver í hópnum og kvenfólkið hló og gerði að gamni sínu, enda United komið í tvö núll. I þessum aðdá- endaklúbbi eru nefnilega næstum allir meðlimimir konur. Aróra, dætur hennar Sigrún og Kolbrún, Margrét Theódóra, dóttir Sigrún- ar, Guðlaug Þóra og Tinna Dröfn, dætur Kolbrúnar og Alexandra Brynja, dóttir Tinnu. Hún er að vísu ekki nema nokkurra mánaða gömul og hefur ekki verið spurð álits. „Með réttu uppeldi ætti þetta að takast," segir langamman. „Galdurinn er sá að þvinga þessu ekki upp á hana heldur láta hana halda að hún hafi ákveðið þetta sjálf. Þannig fór ég að með stelp- umar mínar.“ Fjarverandi var enn ein dóttir Aróru, Sunna, sem einnig er eld- heitur United-aðdáandi. Eini full- trúi karlmannanna úr fjölskyldunni MARKI fagnað. Irwin skoraði úr vítaspyrnunni af miklu öryggi. RYAN Giggs og David Beckham eru í mestu uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Munúð draumsins DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns DRAUMURINN um fullnægða löngun og sælu tilfinninga er manninum jafn eðlileg og þörfin til að fjölga sér og gera sig ódauð- legan. Þessar hræringar anda og efnis kristallast í fmmkrafti sköp- unarinnar Guði, sem sæddi geim- inn og úr varð heimur, ég og þú. Draumurinn spilar mikið á þenn- an kraft sem í okkur býr og þarfnast útrásar til sköpunar og endumýjunar á verki Jave. Þegar svefninn hefur tekið við af vök- unni er draumaforritið ræst og al- vöm leikimir hefjast. Kynlöngun okkar er meðal annars lýst með alls konar vélum, ávöxtum, litum og dýmm en sjaldnar beinum mökum einstaklinga nema við- komandi sé sveltur tilfinningalega eða svo bældur að draumurinn einn sé honum fróun. Vélamar, svo sem bflar, reiðhjól og lestar em tákn fyrir þann kraft sem bíð- ur útrásar og litimir marka þann kraft ákveðnum tilfinningum ást- ar, eigingimi, ofsa eða annarra þeirra kennda sem kveikja kyndrauminn. Það em svo dýrin sem spegla eðli löngunarinnar, hvort hún er sprottin af losta, ást eða þörf íyrir nánd og hvort hún sé heil, bjöguð eða brotin. Avext- irnir sýna þroska hvatanna og áferð, þeir vekja sætuáhrif þeirra hughrifa sem ákveðin persóna smitar í drauminn eða sýra hvat- imar ef hugur er fjarri. En kyn- löngun mannsins er fjölþætt og getur snúist um ótrúlegustu hluti frá pennum í dómldrkjur. I innra lífi mannsins býr vera af gagn- stæðu kyni sem birtist í draumum sem venslamaður, vemdari og hjálparhella á lífsins göngu. Þeg- ar kynhegðan breytist og hvatir færast frá löngun til konu, yfir til karls eða öfugt, klæðir veran (Animus/Anima) sig upp og sýnir breytta hegðun löngu áður en meðvitund hefur meðtekið breytt munstur tilfinninga eða kynhvöt- in er vöknuð. Sérstakar persónur og sérstakir hlutar líkamans fá ákveðna merkingu á sviði kynlífs- draumanna og þar leynast mikil- vægir þættir um persónulega heild og markmið dreymandans. Vertu viss, hafi þig dreymt nýlega djúpan heitan koss, ertu á frjó- semisskeiði og dagurinn því til fleiri hluta nytsamlegur en að kjósa nýja stjóm. Draumur frá „Krake“ Mér fannst ég vera stödd í húsi í úthverfi í gömlu og góðu hverfi, en ég geri mér ekki grein fyrir hvort þetta er á Islandi eður ei. Það sem var sérstakt við þetta íbúðarhverfi var að þama voru bara einbýlis- hús, öll með líku sniði, tvflyft með risi, svipað íslenskum byggingar- stfl, en húsin stóðu öll ofarlega í lóðunum. Lóðimar voru stórar, en alls staðar var nokkuð stór og Mynd/Kristján Kristjánsson DRAUMSINS Hulda dylur hug. sléttur grasflötur fyrir framan húsin er náði út að götu og endaði með bakka niður að gangstéttinni. Gatan lá sem sagt aðeins neðar en húsin. Annað sem var sérstakt var að það var enginn trjágróður í neinum af görðunum. Gatan var breið og bein og breiðar gangstétt- ar sitthvorum megin við, en gatan var ekki malbikuð sem mér þótti svolítið skrítið vegna þess að þetta var svona rótgróið hverfi. Gatan var þráðbein svo langt sem augað eygði og svo önnur hliðargata nið- ur til hægri líka breið og bein og náði mikið lengra en ég sá og allt var þetta byggt húsum beggja vegna götunnar. Allavega. Eg var gestkomandi í einu húsanna og þar voru konur að fóndra eitt og annað og undirbúa einhverja góðgerðar- samkomu. Eg var bara gestur í húsinu og tók ekki beint þátt í fóndrinu. Þá býðst húsfreyjan (sem ég þekkti ekki) til þess að sýna mér götuna fyrir framan hús- in og segir götuna mjög sérstaka. Hún fer með mig út og gengur með mér niður að götunni og ég rek upp stór augu. Gatan var þakin hekluðu bútasaumuðu teppi og var sett saman úr bútum sem voru ca metri á kant. Teppið var allt í hvít- um og bláum litum og enginn fem- ingur eins, ýmist hvítir með bláu munstri eða yijum eða bláir með munstri, greinilegt að hugmynda- flugið hafði fengið að ráða. Teppið var lagt í stað malbiks á götuna og útskýrði húsfreyjan fyrir mér að íbúarnir í hverfinu hefðu verið orðnir þreyttir á malbiksleysinu og einn íbúinn (kona) hefði fundið upp á þessu snjallræði; að hekla teppi og breiða yfir mölina (sem reyndar var mjög slétt undir tepp- inu). Eg man að ég fylltist lotningu að fá að ganga á þessu teppi og virti fyrir mér handverkið á meðan ég gekk þögul eftir því ásamt hús- ffeyjunni. Við gengum spöl og tókum svo hægri beygju og þar koma ég auga á einn bút í tepp- inu sem mér fannst sérstaklega fallegur og ég staðnæmdist og virti hann vel fyrir mér. Hann var himinblár og í hann voru fest ein fjögur gyllt hjörtu (svona svipað og maður hengir á jóla- tré). Við héldum svo áfram en húsfreyjan sagði mér að verkinu væri nú ekki lokið, enn ætti eftir að klára að hekla góðan part af veginum. Ég var mjög lotningar- full og dáðist að hugmyndaauðgi þessarar konu sem fengið hafði hugmyndina og samheldni fólks- ins í hverfinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.