Morgunblaðið - 08.05.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 43
þetta kvöld var Jón Theodór, sonur
Sigrúnar. Aróra vill þó meina að
fleiri karlmenn í fjölskyldunni séu
á bandi United, þeir séu bara ekld
eins æstir og þær. Þær láta nefni-
lega engan United-leik fara fram-
hjá sér og horfa yfirleitt á leikina
saman.
Best hafði neistann
„Þetta byrjaði hjá mér árið 1968,
árið sem Manehester United vann
Benfica í úrslitaleik Evrópukeppn-
innar,“ sagði Aróra. „Og það var
Morgunblaðið sem kom mér á
bragðið. Ég las þá grein um
United-liðið og hvemig Matt Bus-
by hafði náð að byggja aftur upp
afburðalið eftir flugslysið hræði-
lega í Munchen 1958. Síðan fór ég
að fylgjast með United-liðinu og
eftir það varð ekki aftur snúið.“
Áróra segir að á þessum árum
hafi George Best verið sinn uppá-
haldsmaður í liðinu. „Hann var svo
ungur og leikinn og lipur, alveg
frábær knattspymumaður. Hann
hafði neistann. Að mínu mati sá
besti sem uppi hefur verið í heim-
inum. En hann var eyðilagður. Það
vom alltaf að birtast myndir af
honum með kampavínsglös og ljúfa
lífið tók sinn toll.“ í þessum orðum
töluðum er dæmt víti á United,
sem Liverpool skorar úr og minnk-
ar muninn í 1:2. Við þetta slær
þögn á mannskapinn, en aðeins
skamma hríð enda leikurinn að
fjara út og United er enn yfir.
En brátt dregur til tíðinda.
Dennis Irwin er rekinn útaf fyrir
klaufaskap og öllum ber saman um
að þessi dómur sé út í hött. „Hann
var bara að reyna að halda boltan-
um inná og var á svo mikilli ferð og
danglaði eitthvað í hann í leiðinni,"
segir Aróra og er afar ósátt við
þennan dóm. Skömmu síðar jafnar
Paul Ince, íyrmrn United-maður,
leikinn fyrir Liverpool og þá dreg-
ur verulega úr stemmningunni í
stofunni í Hraunbænum, enda ber-
ast nú þær uggvænlegu fréttir að
Arsenal sé komið í 3:1 og búið að
gulltryggja sigurinn á Tottenham.
„Ég var feginn þegar Paul Ince
hætti að leika með Manchester
United," segir Aróra, svona eins og
til að hughreysta afkomendur sína.
„Mér hefur alltaf þótt hann leiðin-
Ráðning
Draumurinn hefur sérstakt lag
á að segja manni með myndum
sannleikann um eðli manns sjálfs,
þrátt fyrir dagdrauma um sér-
stakt líf og óskir um að það ræt-
ist. Þessi draumur er þannig upp-
byggður. í honum er gerð hús-
anna, umhverfið, beinu göturnar
og konumar þættir í þér sem
sýna löngun í annað líf en þú lifir,
þessi ósk virðist byggð á hug-
mynd um að staðlað umhverfi, röð
og regla sé lausnarorðið til frelsis.
Að líf þitt verði fullkomið í skipu-
lögðum boxum líkt og ímynd úr
sjónvarpi, en það er ekki þitt eðli
líkt og önnur tákn draumsins
sýna. Trén sem vantaði og malar-
vegurinn spegla þitt rétta „ég“ og
þrátt fyrir að þú reynir að breiða
yfir það með fallegu teppi sem
reynist vera hjóm eitt (jólaskraut-
ið), ertu alltaf þú sjálf þótt mikið
megi læra af hlutverkaleikum og
því að bregða sér í annan stíl og
annað líf um stundarsakir.
• Þeir lesendur sem vifja fá drauma
sína birta og ráðna sendi þá með
fullu nafni, fæðingardegi og ári
ásamt heimilisfangi og dulnefni til
birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaði
Kringlunni 1
103 Reykjavfk
Einnig má senda bréfin á netfang:
krifri@xnet.is
Ljósmynd/Kolbrún Olafsdóttir
Snemma beygist
krókurinn.
Alexandra iitla er
þegar komin
með United-
húfu, þótt hún
átti sig
kannski ekki
enn á út á
hvað leikurinn
gengur.
legur leikmaður og fremur ógeð-
felld persóna," bætir hún við.
Giggs í mestu uppáhaldi
Aðspurð kveðst Aróra halda
mest upp á Ryan Giggs, af núver-
andi leikmönnum Manchester
United. „Hann er afburða knatt-
spymumaður og andstætt við Ge-
orge Best hefur hann haldið sig
fyrir utan sollinn. Hann er ungur
og á framtíðina fyrir sér. Beckham
er líka í miklu uppáhaldi hjá mér
og svo auðvitað markvörðurinn
danski, Peter Schmeichel. Ég er
strax farin að sakna Schmeichels,
en hann hættir með liðinu eftir
þetta tímabil," segir Áróra. Aðrir í
fjölskyldunni eru sammála ætt-
móðurinni með vinsældalistann:
Giggs, Beckham og Schmeichel og
einhver bætir nafni Roy Keane,
fyrirliða liðsins, við listann. „Já,
það er hræðilegt að Keane skuli
ekki vera með í úrslitaleik Evrópu-
keppninnar á móti Byem
Munchen. Ég held að ég þori ekki
að horfa á þann leik,“ segir Áróra.
Leiknum er lokið, United hefur
misst forystuna í deildinni. En
stelpumar í Hraunbænum halda
þó enn í vonina um Englands-
meistaratitilinn. „Ef bæði Arsenal
og United vinna sína leiki sem eft-
ir em gæti United unnið á marka-
mun, en þá verða þeir líka að
skora grimmt í næstu leikjum. Svo
gæti Arsenal tapað einhverjum af
sínum leikjum á meðan United
vinnur alla sína. Við verðum bara
að stóla á að Arsenal tapi næsta
leik..."
Og svo segja menn að kvenfólk
hafi ekki áhuga á fótbolta!
Lísur
Blóm fyrir mömmu
Rafmagnshekkklippur
25 m. rafmagj
kapall fylgij
IBlímmmmí ~þm mm émmmmiB typrjjm