Morgunblaðið - 08.05.1999, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐA
LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 75 ,
Kröftug bæn réttláts
manns megnar mikið
ÉG VIL með þessum orðum mín-
um vekja athygli á bænadeginum,
sem á þessu ári ber upp á þann 9.
maí nk. Bænadagurinn er ávallt 5.
sunnudagur eftir páska og er hann
helgaður bæninni innan íslensku
þjóðkirkjunnar. En hér kemur ann-
að og meira til. Að þessu sinni er
hann helgaður bæn til Guðs í þágu
friðar um alla jörð og sérstaklega
ástandinu í Kosovo.
Hér vil ég hvetja alla íslendinga
til að sameinast á bænadaginn þann
9. maí næstkomandi til að koma til
kirkjunnar sinnar og taka þátt í
til bænastundar í einingu anda og
friðar, kærleika og bræðralags í
einni sameiginlegri bænastund, er
sameinar hugi í krafti bænarinnar.
Pað og eflir andann í kirkjunni, sem
hér eftir stendur sameinuð og brýtur
hlekki illskunnar og sýnir öðrum það
fordæmi, að afl trúarinnar er það
vopn sem hægt er að sameinast um.
Þetta leiðir til nýs upphafs og skapar
farveg til einingar sem verður að
hlúa að og þroska með sérhverjum
einstaklingi uns við höfum sameigin-
lega og meðvituð náð því takmarki
að friður ríkir í hverju landi. Heimin-
um öllum. Ef og allir sameinast ein-
um huga í bæn fyrir friði, fyrir íbú-
um Kosovo sem hraktir eru og smáð-
ir, fyrir ráðamönnum að þeir nái
saman og geti tekist í hendur tO að
mynda sátt er standi, og fyrir upp-
byggingu í kjölfar friðar sem leiðir
tÚ öryggis fyrir íbúa landssvæðanna,
þá hefur mannkærleikurinn sigrað
stríðið. Sérhver hugsandi og frið-
elskandi maður hlýtur að viija taka
þátt í því að friður og sátt ríki á
Balkanskaga. Hörmungum verður
að linna. Astand stríðshrjáðra þjóða
lætur engan mann ósnortinn.
í tæp tvöþúsund ár hefur kristin
kirkja boðað frið á jörð og einingu
meðal manna sem hafa Jesú Krist að
leiðarljósi. Senn fögnum við tvöþús-
und ára kristni og þúsund ára ein-
ingu kristinnar þjóðar á íslandi. Þá
lá við borð að þjóðin sundraðist, en
fyrir tilstilli friðarsinna og réttlátra
manna tókst að halda friðinn og
halda einingu meðal þjóðarinnar.
Hér er verðugt markmið fyrir hönd-
um að sýna í verki að íslensk þjóð er
þakklát fyrir þá einingu, sem henni
tókst að sýna þá og æ síðan, að verða
kristin þjóð í alkristnu landi. En hér
er einnig áskorun til allra íslendinga
um að ganga með Kristi á veginum.
Er grimmd heimsins ástand sem
við viljum taka með inn í nýtt árþús-
und? Fyrir trú á Guð og réttláta
samvisku átt þú svar við þessu.
Kirkjan þín kallar þig, friður Guðs
og kærleiki höfða til þinna kristnu
manngilda. Minnstu orða Jesú sem
segir: „Elska skaltu Drottin Guð
þinn af öllu hjarta og náungann eins
og sjálfan þig“. Guð er kærleikur.
Stöðvum stríð með bæn. Styðjum g
Guð í verki. Biðjum hann í kirkjum
okkar þann 9. maí næstkomandi um
að efla anda friðar og réttlætis. Biðj-
um Guð að veita heiminum ljós og
efla trú í þágu friðar og kærleika.
Biðjum hann um að stöðva þau öfl
sem leitt hafa til átakanna. Biðjum
hann um að gera þá sem leitast við
að semja um frið og sátt í Kosovo að
farvegi friðar og kærleika. Biðjum
hann um að gefa hrjáðum heimi frið
og líkn öllu sem lifír. Bænadagurinn
9. maí er dagur Ijóss, friðar og kær-
leika. Hafðu þann dag og héðan í frá
Guð í verki með þér. Herrann þarf T
þín við.
Höfundur er prestur.
Sigurður Rúnar
Ragnarsson
Bænadagurinn
Bænadagurínn 9. maí
er dagur ljóss, fríðar
og kærleika, segir
Sigurður Rúnar Ragn-
arsson. Hafðu þann
dag og héðan í frá
Guð í verki með þér.
Herrann þarf þín við.
helgistund í nafni friðar og kærleika.
Um allt land verður beðið í kirkjum
landsins, um að bænir okkar verði
verkfæri Guðs tO að grípa inn í að-
stæður. Sem kristnum mönnum ber
okkur að helga stundina í þágu friðar
og fórnarlamba í Kosovo. Samstaða
og eining stuðlar að friði og kærleika
meðal manna og þjóða. Hún getur
með sameiginlegri bænastund megn-
að að koma málum í þann farveg að
friður myndist. Samtakamáttur allra
þeirra er koma saman til þessarar
stundar er óútreiknanlegur og óút-
skýranlegur. En fyrir trú megnum
við mikið. Þreyið og biðjið. „Kröftug
bæn réttláts manns megnar mikið“
(Jk.5.16).
Ég skora á alla kristna menn að
sýna samstöðu í bæn fyrir friði í
Kosovo og biðja fyrir friði um allan
heim, sátt og kærleika. Við biðjum
þess að Guð megni fyrir bænir okkar
allra Islendinga, að stríðshörmung-
um linni. Að allir kristnir menn á Is-
landi sameinist í bæn í nafni Jesú
Krists, undir íslenskum himni í öll-
um kirkjum og hverjum söfnuði. Ég
vil því hvetja sem flesta til að safnast
saman og gefa Guði stund, í leit að
friði með Guð í verki, hvar í flokki
sem menn standa og í hvaða kristnu
frúfélagi sem þeir tilheyra! Því meir
sem ég hugsa um þessi mál verður
mér Ijóst að ekkert afl er bæninni
sterkara.
Bæn sem beðin er til Guðs um að
hann grípi inn í ástandið hefur áhrif
til góðs. Megi bænakraftur kristinn-
ar hugsunar og kærleika í nafni frið-
ar Jesú Krists koma að með sína
handleiðslu til að stöðva stríðsátökin
°g lina sárindin. Biðjum í einlægri
bæn og trú, að Guð megni að stöðva
eyðileggingu og fórn mannslífa.
Hann geri flóttamönnum kleift að
snúa aftur til síns heima og hefja
enduruppbyggingu og nýtt líf.
Með fordæmi um samstöðu og ein-
ingu er hægt að sýna í verki sam-
takamátt bænarinnar. Hér og nú
geta allir sannkristnir menn hvar
sem þeir eru á landinu, komið saman
DUBLIN
AISLANDI
Kjarakaup aldarinnar!
í dag kl. 12 opnum við
tímabundið nýja verslun að
Fosshálsi 1
(áður Hreystihusið).
Þú getur gert ótrúlega góð feaup.
Verðdæmi:
Kvenfatnaður:
Blússur frá br. 1.000
Gallabuxur frá fer. 1.100
Bolir frá br. 700
Fleece-peysur frá fer. 1.600
Silkiblússur frá kr. 1.500
Lycra leggings frá fer. 700
Fóðraðir jafefear frá fer. 1.600
Dragtir frá fer. 4.900
Sofefeabuxur frá fer. 175
Flauelssfeyrtur frá fer. 1.000
Stúlkufatnaður:
Blússur frá fer. 200
Gallabuxur frá fer. 600
Sofefeabuxur, bómull, frá fer. 300
Joggingbuxur frá fer. 700
Bolirfráfer. 150
Flauelsfejóll frá fer. 1.400
Micro fleece-jabfear frá fer. 600
Flauelssfeyrtur frá fer. 800
Peysur frá fer. 800
Toppar frá fer. 300
Barnafatnaður:
Náttföt, bómull, frá fer. 400
Bómullarsamfellur frá fer. 400
Sofefear, tvennir í pafefea, frá fer. 100
BómuIIarteppi frá fer. 600
BómuIIarnáttföt frá fer. 400
Bamaleggings frá fer. 400
Barnafejólar frá fer. 1.600
Karlmannafatnaður:
Gallabuxur frá fer. 1.100
Sparibuxur frá br. 1.500
Polo-bolir frá br. 600
Wax-jafefear frá fer. 4.000
Regnjafcfear frá fer. 1.400
Ullar blazer frá fer. 7.000
UHarbuxur frá fer. 3.000
Fleece-peysur frá fer. 1.200
Bolir, bómull, frá fer. 500
Sfeyrtur frá fer. 800
Drengjafatnaður:
Sfeyrtur frá fer. 300
Buxur frá fer. 800
Joggingbuxur frá fer. 600
Baseball-jafefear frá br. 600
Rúllubragabolir frá fer. 400
Combat-jafefear frá fer. 1.200
BómuIIarsfeyrtur frá fer. 600
Bómullarbaðsloppar frá fer. 300
Bolir, 2 í pafefea, frá fer. 400
Hásfeólabolir frá fer. 600
V
Komið, sjáið og sannfærist
Sjón er sögu ríhari
Afgreiðslutími:
mánudaga til miövikudags kl. 11-18
fimmtudaga til sunnudags kl. 11-22
mbl.is mbl.is mbi.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is
.taf= a 'TTH\S/\£2 A/