Morgunblaðið - 08.05.1999, Qupperneq 83
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 83t
Frá Snævari Sigurðssyni:
ÞETTA er flókin spurning sem
margt ungt fólk er að velta íyrir sér
þessa dagana. Ég get ekki svarað
þessari spurningu fyrir alla en ég
get komið skoðunum mínum á
framfæri um það sem stendur til
boða. Þau málefni sem skipta ungt
fólk mestu máli eru umhverfismál
og menntamál. Við verðum að hafa
hreint land til að lifa í og menntun
til þess að afla okkur tekna. Ef
þetta eru málefnin sem við viljum
kjósa um þá get ég ráðlagt öllum að
kjósa ekki Framsóknarflokkinn.
Framsóknai-flokkurinn er flokkur-
inn sem leggur áherslu á stóriðjur í
stað menntunar til þess að viðhalda
góðum lífskjörum á íslandi. Á með-
an menntakerfið hefur verið
fjársvelt hafa þeir staðið fyrir því
að eyða mflljörðum í undirbúning
komu mengandi málmbræðslna.
Framsóknarflokkurinn heldur
því fram að Islendingar standi
framarlega í umhverfismálum. Á
hvaða sviði stöndum við framarlega
í umhverfismálum? Ég vil að ein-
hver svari þeirri spurningu. Eina
ástæðan fyrir því að við höfum enn
frekar hreint og ósnortið land er sú
að við erum fámenn og höfum ekki
haft tíma né tækifæri til að eyði-
leggja allt. En við erum á góðri leið
með dyggri forystu Framsóknar-
flokksins.
Halldór Ásgrímsson heldur því
fram að við stöndum framarlega í
umhverfismálum vegna þess að við
notum manna mest af endurnýjan-
legri orku. Athyglisverð fullyrðing í
Ijósi þess að við myndum jafn mikið
af gróðurhúsalofttegundum og aðr-
ar vestrænar iðnþjóðir. Það að við
notum mikið af orku lýsir aðeins
því bruðli með orkulindir okkar
sem einkennir samfélagið.
Hvað á
ég að
kjósa?
Endumýjanlegu orkuauðlindir
Halldórs eru ekki sjálfkrafa um-
hverfisvænar. Það er ekki umhverf-
isvæn orka sem fæst með því að
sökkva náttúruperlum sem eru
margfalt meira virði bæði efna-
hagslega og tilfinningalega en
gróðinn af raforkusölunni nokkurn
tímann. En andvirði náttúruperlna
er umdeilanlegt. Norðmenn stór-
græða á því að auglýsa sig með
næststærstu ósnortnu víðerni Evr-
ópu. Við viljum heimila álrisum að
fá okkar gróða. Álverið í Straums-
vík græddi meira á síðasta ári en
Landsvirkjun hefur gert á tíu áram
af allri sinni raforkusölu.
Umdeilanleg er náttúra Islands.
Framsóknarráðherrar hafa lýst yf-
ir vilja til að ná sáttum milli virkj-
anasinna og þeirra sem vilja varð-
veita náttúruna. Sátt í þeirra huga
er sú að þeir fái að virkja það sem
þeir vilja gegn því að Dettifoss og
Gullfoss verði varðveittir. Nátt-
úruperlur eru umdeflanlegar. Til
dæmis sagði Halldór það á stöð 2
þann 29.4 að hans skoðun væri sú
að Eyjabakkar væru ekki nátt-
úruperla. Hann hefur þessa skoðun
og honum er það heimilt í lýðræðis-
ríki. En þessi skoðun hans lýsir við-
horfi stjórnmálaflokks sem svo
óheppilega vill til að hann stjórnar.
Eyjabakkar eru umdeilanlegir.
En alþjóðlegir samningar sem Is-
land hefur samþykkt eiga ekki að
vera það. Ramsar-sáttmálinn kveð-
ur á um verndun votlendis sem eru
mikflvæg búsvæði fyrir fugla. Mý-
vatn og Þjórsárver hafa verið skil-
greind sem friðlönd skv. þessum
sáttmála og Eyjabakkar uppfylla
öll skilyrði til þess sama. Eina
ástæðan fyrir því að náttúruperlan
Eyjabakkar hefur ekki verið sett á
lista með þessum friðlöndum er sú
skoðun Éramsóknarflokksins að
Eyjabakkar væru betur komnir
undir gruggugu uppistöðulóni.
Svona fór þá með hina umhverfis-
vænu Islendinga. Það er sama hvaða
fógru loforð og fyrirheit gefin eru í
stefnuskrám og kosningaloforðum.
Ef hugur og hönd fylgja ekki líka þá
eru fyrirheitin hjóm eitt. Verkin
hafa talað. Framsóknarflokkurinn
hefur sýnt sig og sannað sem sá
stjómmálaflokkur sem ötulast geng-
ur fram í að sökkva náttúruperlum.
Formaður flokksins hefur talað.
Halldór hefur lýst því yfir að hann
telji hálendi Islands ekki þess virði
að varðveita fyrir komandi kynslóðir
og því sé best borgið undir vatni.
Nú er komið að kjósendum að
tala. Við höfum okkar atkvæðisrétt
og verðum að kjósa. Við verðum að
kjósa flokka sem vilja sýna frum-
kvæði og framsýni í atvinnusköpun.
Sem vflja efla menntun, tölvu- og
tækniiðnað sem em vaxtarbroddar
framtíðarinnar. Við verðum að
kjósa flokka sem sýna að þeir hafa
hugsandi menn í framboði sem
sýna umhyggju fyrir náttúranni og
verðmætum hennar. Flokk sem
tekur ekki skammtímagróða af
stóriðjum fram yfir langtímahags-
muni heillar þjóðar. Ég legg það í
þínar hendur, kjósandi góður, að
velja þann flokk á kjördag.
SNÆVAR SIGURÐSSON,
Þórsgötu 17a, Reykjavík.
íslensk erfðagreining
Frá Guðbjarti Þorleifssyni:
EITT er það einkenni meðal ís-
lendinga hversu þrætugjarnir og
dómsjúkir sumir þeirra geta verið,
þetta leiðindaeðli gýs upp einkum
ef einhver nýlunda er í augsýn. Ailt
frá því umræðan um miðlægan
gagnagrunn hófst heyrðist mikið
bölsýnistal fámenns flokks manna
með sjálfgefnu ofuiviti, að eigin
áliti, og fólk er jafnvel ennþá varað
við persónunjósnum, mannrétt-
indamissi og helst að mönnum sé
flett upp andlega og líkamlega sem
opinni bók fyrir hvern sem er. Ann-
ar hluti flokksins telur hins vegar
að nú geti íslensk erfðagreining
einokað rannsóknir á erfðastofnun
landsmanna.
Svona meðal Jón, sem ég er, á í
Fögur nátt-
úrusmíði
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
I MIÐJUM asa stjórnmálabarátt-
unnar gerðist það, að fegursta
stuðlaberg kom undan Vatnajökli -
eða a.m.k. fyrir augu sjónvarps-
áhorfenda - og dró huga okkar að
leiksviði áramilljónanna. Ég gæti
Þ’úað, að það hefði heilnæm áhrif á
flesta, að leyfa sér þann munað að
staldra hér við.
Vel væri það gert, ef einhver
jarðfræðingur vildi fræða okkur um
aldur þessara menja og myndun
þeirra; leyfi ég mér að giska á, að
aldurinn sé öðra hvoram megin við
mörk hins yngra og eldra blágrýtis;
það er nærri þriggja milijóna ára
aldri. En þetta er stofuspádómur
alveg út í bláinn og aðeins til þess
að koma hugsun af stað.
Greiningin milli eldra og yngra
blágrýtis er jafn fullgild nú í fræð-
unum og hún var fyrir nokkram
áratugum, þegar ég var að læra
skólabækur. Sumt er varanlegt í
vísindum, en annað ekki.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
talsverðum erfiðleikum með að
skilja hugsunargang fjallgreindra
manna sem hafa helst allt á hornum
sér vegna starfsemi eins merkasta
fyrirtækis sem ráðist er í hér á
landi. Starfsemin var samþykkt á
Alþingi, þannig að lúðrablástur
þessa auma hóps er varla áheyri-
legri en vindur úr mýflugurassi. En
lengi sýður í grútnum, þegar hund-
gáin lætur illa í landsmönnum er
óhróðurinn fluttur til annarra
landa; ennþá skal nöldra. Aumt er
til þess að vita að læknar finnist í
þessu niðurrifsliði.
Sú er þó stéttin sem ætti að
styðja með alefli rannsóknarstarf
er leitt gæti til lækninga á sjúk-
dómum sem herja á milljónir
manna um allan heim. Spurningin
er: „Hver er að fórna hverju og fyr-
ir hvern?“ Mitt svar er það, að góð-
fúslega má þessi stofnun fá að not-
færa sér sjúkraskrá mína, ég er svo
lánsamur að búa í lýðræðisríki og
get nýtt öðrum tfl gagns eigin
mannréttindi. Hver er siðgæðistil-
finning þess manns sem aftrar öðr-
um með hræðsluáróðri að vera
þátttakandi í svo göfugu starfi sem
Islensk erfðagreining vinnur að?
Það er það að verið sé að selja inn-
viði landsmanna, er ekki nálægðin
með slíkum áburði komin að at-
vinnurógi?
Mikill meirihluti Islendinga er
bjartsýnn á þessa starfsemi og ekki
að ástæðulausu. I landinu búa ótrú-
lega margir einstaklingar með hug-
vit og atgervi sem hver stórþjóð
mætti vel við una. En allt of margir
dragbítar og afturhaldsdurtar
reyna hvað hægt er til að sporna
við framþróun og ávöxtun frjáls
framtaks.
Þessu fólki er vorkunn, ef til vill
tekst íslenskri erfðagreiningu að
finna genið sem veldur dómsýki og
öfund, hver veit?
Að lokum óska ég Kára Stefáns-
syni og hans starfsmönnum Guðs
blessunar í þessu göfuga starfi.
GUÐBJARTUR ÞORLEIFSSON,
Lambastekk 10, Reykjavík.
Sölusýning
á handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum
á Grand Hótel, Reykjavík,
í dag, laugardag, frá kl. 12-19
á morgun, sunnudag, frá kl. 13-19
HÓTEL
reykjavTk
Afgangar:
3 stk. gömul persnesk Tabriz, 2x3 m
1 stk. persnesk Hamadan, ca 1x1,8 m
4 stk. Indian Gabbeh, ca 0,7x1,4 m
Áður Nú stgr.
105.000 61.500
40.100 28.900
9.900 7.400
10% staðgreiðslu-
afsláttur
RAÐGREIDSLUR
Island áfram
í NATO
Einari Björgvin Eiðssyni:
ÍSLAND og NATO hafa verið
órjúfanleg heild allt frá því að ís-
land var stofnaðili að NATO í árs-
byrjun 1949. Nú þegar NATO á í
stríði við Serba ber okkur að
standa við bakið á þeim og styðja
NATO. Stríðsrekstur er aldrei góð-
ur kostur en oft nauðsynlegur, og
nú er nauðsyn. Takmarkið með
loftárásunum hjá NATO er að
stöðva þjóðarmorð Milosevics á
Kosovo-Álbönum. Þessu er reynt
að ná fram með því að stöðva að-
flutning vista og hergagna til Jú-
góslavíuhers, sem nú situr um
Kosovo og myrðir saklaust fólk.
Svona framkoma hjá Serbum við
annað fólk getur enginn Islending-
ur með snefil af réttlætiskennd lið-
ið. Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð vill binda enda á aðild okkar að
þessu bandalagi, og binda enda á
vera herafla hér á Islandi.
Hún vill binda enda á innkomu
ótaldra milljarða króna í þjóðarbú-
ið, enda á um 4-6% af gjaldeyris-
tekjum þjóðarinnar og binda enda á
notkun flugflota þeirra til að bjarga
íslendingum í lífshættu. Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð vill
binda enda á vera okkar í bandalagi
sem er tilbúið að vemda sjónarmið
okkar, og vernda lítilmagnann þeg-
ar hann getur ekki hjálpað sér
sjálfur. Tvær milljónir Kosovo-Al-
bana era á vergangi í Evrópu núna
og margir hverjir í hryllilegu ásig-
komulagi og það ástand má ekki
líða. Þetta stríð er óeigingjarnt,
stríð, það er engin olía í Kosovo, að-
eins venjulegt fólk eins og ég og þú
sem er verið að myrða á skipulegan
hátt. Miðað við grimmdina í Ser-
bum þá er þetta ekki fyrsta stríðið
á 21. öldinni heldur það seinasta á
þeirri 14. og við íslendingar þurf-
um að styðja hernaðarlega viðleitni
annarra ríkja í NATO tfl þess að
stöðva slátranina í Kosovo. Með því
að kjósa Vinstrihreyfmguna -
grænt framboð ertu að kjósa að
hætta stuðningi við NATO og
áframhaldandi þjóðarmorð Serba.
EINAR BJÖRGVIN EIÐSSON,
Grundarstíg 4, Sauðárkróki.
Tilboðsdagar í
Dekor
Bæjarhrauni 14
Dekor 220 Hafnarfirði
Freemanshúsinu sími 565 3710
Stjörnuspá á Netinu ^mbl.is
ALLTAF= GITTH\SA£J NÝTl