Morgunblaðið - 08.05.1999, Qupperneq 84
-í 84 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
IIiiisj6ii Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag
\ Suðurnesja
LOKAMÓTIÐ í ár er tveggja
kvölda barómeter með forgefnum
spilum. í hverri setu þurfa pörin að
leysa þrautir og eru gefin stig fyrir
réttar lausnir.
Staðan í barómeter:
Karl G. Karlsson - Gunnlaugur Sævarsson 18
Gísli Isleifs - Bjöm Dúason 15
Jóhann Ben. - Sigurður Alb. 10
Heiðar Sigurjóns. - Daníel 9
I þrautakóngskeppninni hafa Jói
og Svavar forustu með 15 stig. Karl
og Gunnl. 14 stig, Þröstur og Pétur
10 stig.
Bridsfélag eldri borgara
í Kópavogi
Föstudaginn 30. aprfl sl. spiluðu
26 pör Mitchell-tvímenning og urðu
eftirtalin pör efst í N/S:
Baldur Asgeirsson - Garðar Sigurðsson 367
Albert Þorsteinss. - Auðunn Guðmundss. 356
Þórður Jörundss. - Ólafur Lárusson 343
Lokastaða efstu para í A/V:
Halldór Magnúss. - Páli Hannesson 406
Ólafúr Ingvarss. - Þórarinn Amason 368
Anton Sigurðsson - Hannes Ingibergss. 345
Þriðjudaginn 20. apríl spiluðu 29
pör og þá urðu úrslit þessi í N/S:
Eysteinn Einarss. - Láms Hermannss. 427
Baldur Asgeirss. - Garðar Sigurðss. 371
Kristinn Guðmundss. - Guðm. Magnússon 343
Lokastaðan í A/V:
Albert Þorsteinss. - Björn Amason 364
Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 359
Magnús Oddsson - Magnús Halldórss. 346
Meðalskor var 312 báða dagana.
'slim-line"
dömubuxur frá
gardeur
Qhrntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
EINFALT ■ AUÐVELT ■ HANDHÆGT
©DEXI0N
APTON SMÍÐAKERFI
-Snidið fyrir hvern og einn
SINDRI
-Þegar byggja skal með málmum
Faxið til okkar
hugmyndir og
við sendum ykkur
verðtilboð.
Borgartúni 31 • 105 Rvík • sími 575 0000 • fax 575 0010 • www.sindri.is
.*
NÝJAR HÚSGAGNASENDINGAR
ANNETTE 3-1-1 AÐEINS 179.500
ALKLÆTT ÚRVALS LEÐRI - 3 LITIR
Mikið úrval af kommóðum.
Tilvalin nóttborð við amerísk rúm.
Verð frú kr. 7.100.
36 món.
Opið í dag kl. 10-14.
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavfkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
36 món.
Fréttir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= £ITTH\TA£) NÝTl
í DAG
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Öðruvísi
ferðamáti
VE LVAKANDA barst
eftirfarandi bréf:
„Eg heiti David
Krispin (56 ára) og er fé-
lagi í samyrkjubúinu
Gazit í ísrael. Ég er
kvæntur, hæverskur,
hagsýnn og lista- og nátt-
úruunnandi.
Hinn 7. júní næstkom-
andi til 7. júlí hafði ég
hugsað mér að kanna og
mynda hið stórkostlega
ísland, hitta fólk og von-
andi eignast vini. Ég
hafði hugsað mér að
dvelja 3-7 daga í hverj-
um landsfjórðungi.
Er einhver sem gæti
hugsað sér að leyfa mér
að dvelja hjá sér sem
„einkagestur“ í nokkra
daga, og jafnvel veita
mér smá leiðsögn? Ef svo
er væri það stórkostlegt.
Þetta gæti leitt til
gagnkvæmrar vináttu og
væri góður grunnur ef
viðkomandi hefði áhuga á
að heimsækja ísrael.
Ef einhver hefur
áhuga á þessu er hann
beðinn um að hafa sam-
band við:“
David og Michal Krispin,
Kibbutz Gazit 19340,
D.N. Izrael, Israel.
Fax: +972 6 6767712.
Hneykslaður
á grein
ÉG er mjög hneykslaður
á Morgunblaðinu, blaði
allra landsmanna, að það
skyldi birta grein, eins og
um einhvem merkisat-
burð væri að ræða, um
væntanlega opnun nýs
flatbökustaðar hér á
landi á vegum amerískra
braskara og hugmjmda-
snauðra íslenskra tagl-
hnýtinga þeirra. Ef þess-
ir menn vilja hefja gerð
og sölu flatbakna, ættu
þeir að nota hugmynda-
flugið, slá lán hér innan-
lands, og demba sér út í
það. Þannig byrja flestir
ungir menn hér á landi.
Hvað hlutverk Moggans
snertir, efast ég um að
stórblöð í Bandaríkjun-
um, eins og N.Y. Times
eða Washington Post,
myndu birta grein um
það ef til dæmis eigendur
Staldursins, sem selur
ósvikna nautakjötsham-
borgara, vildu færa út
kvíamar til Ameríku.
Auk þess leyfi ég mér að
benda Morgunblaðinu á
það, að grein þessi er
móðgun við íslenska flat-
bökugerðarmenn, hún
ber vitni um klíkuskap.
S.I. Ólafsson,
Trðnuhólum 3.
Hytium
sandkassana
ÉG bý rétt hjá bama-
heimilinu við Njálsgötu.
Kettimir sækja mikið í
sandkassana þar. Nú veit
ég að þar em til net til að
setja yfir sandkassana
þegar þeir eru ekki í
notkun, en þau virðast
ekki vera notuð. Vil ég
hvetja til þess að þessi
net verði notuð á sand-
kassana.
íbúi.
Góð þjónusta
ÉG vil benda á mjög
góða þjónustu í snyrti-
vöruversluninni í Hag-
kaupi í Smáranum. Sér-
lega þakka ég Birnu fyrir
þolinmæði hennar og lip-
urð.
Viðskiptavinur.
Góð grein
BESTA grein sem fram
að þessu hefur verið
skrifuð um óréttmæta
skattálagningu er grein
Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, borgarfulltrúa, er
birtist í Morgunblaðinu í
kringum miðjan apríl sl.
Fjallar hún um eigna-
skatt, álagningu hins
svonefnda „ekknaskatts"
sem felur í sér nánast
hægfara eignaupptöku.
Ekki hefí ég orðið vör við
að nokkur hinna fram-
bærilegu frambjóðenda
hafi séð ástæðu til að ljá
málstað þessum lið. Vek-
ur það furðu þar sem líka
er um tvísköttun að
ræða. Eignaskattur
greiddur til ríkisins og
fasteignagjöld til borgar-
innar af sama húsnæði.
Þetta er vægast sagt
óþolandi ástand sem næg
rök eru fyrir að leiðrétta.
Skattgreiðandi
og kjósandi.
Tiltölulega
ánægð
MIG langaði að lýsa yfir
ánægju minni með að
þátturinn „Þetta helst“
skuli vera búinn og eins
Spunaþátturinn. Þótti
mér þetta ákaflega leið-
inlegir þættir. Annars er
ég tiltölulega ánægð með
sjónvarpið.
Guðný.
Export-baukur
óskast
ÁSTA hafði samband við
Velvakanda og óskar hún
eftir að fá gefins Export-
bauk (Johnson og
Kaaber) í skiptum fyrir
gamlan hlut. Upplýsing-
ar í síma 553 8237.
Tapað/fundið
Gleraugu
týndust
GLERAUGU, merkt
Alain Mikli, í blágrænni
kisulaga umgjörð týnd-
ust fyrir u.þ.b. fjórum
vikum, líklega á leiðinni
frá MH og niður í bæ.
Þegar þau týndust voru
þau í mjúku brúnu
hulstri. Hafi einhver
fundið gleraugun er hann
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 551 0563.
Gullarmband týndist
á Broadway
GULLARMBAND með
viðhengjum á týndist í
Broadway laugardaginn
3. apríl. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
557 6343.
Dýrahald
Högni týndist
frá Logafold
ÞESSI högni týndist frá
Logafold 184 3. maí.
Hann er eyrnamerktur
R-5049. Þeir sem hafa
orðið hans varir vinsam-
legast hafi samband í
síma 5671520 eða við
Kattholt. Fundarlaun.
Dúri er
týndur
DÚRI er ársgamall,
svartur og hvítur, með
gyllta ól og rautt merki
sem á stendur Álfholt
56a, Hafnarfirði. Finn-
andi vinsamlega hafi
samband í síma 565 2528
eða 515 1417.
Kettlingar óska
eftir heimili
FIMM gullfallegir kassa-
vanir sjö vikna kettlingar
fást gefins. Upplýsingar í
síma 568 7939 eða
554 1400, Ragnheiður.
Kettlingar óska
eftir heimili
ÞRÍR kettlingar, fallegir
og kassavanir, fást gef-
ins. Einn er kolsvartur,
hinir svartir og hvítir.
Upplýsingar í sima
561 8486.
Víkverji skrifar...
IDAG eru kosningar og Víkverji
er staðráðinn í að nýta sér
kosningaréttinn og hafa með því
áhrif á stjóm landsmálanna. I
þessu felst styrkur lýðræðisins.
Lýðræðið í hnotskum. Að vísu hef-
ur það vafist dálítið fyrir Víkverja
um hvað er kosið að þessu sinni, en
hann treystir „sínum mönnum“
fullkomlega til að stýra þjóðarskút-
unni fimlega á milli skers og báru í
ólgusjó stjómmálanna, það er að
segja ef þeir komast þá að, sem
Víkverja þykir líklegt.
Annars er pólitíkin svo lúmsk og
margslungin að maður veit aldrei
hvað kann að gerast að loknum
kosningum og hverjir fara að vinna
með hverjum. í fjölflokkakerfi ís-
lenska lýðræðisins getur allt gerst
og samsteypustjórnir fela í sér að
samkomulag verður að nást um
stefnuna. Þá þurfa flokkarnir að
slaka örlítið á sínum kröfum og
bræða saman stefnuskrá sem allir
geta sætt sig við. Fyrir bragðið
fara mörg kosningaloforðin fyrir
lítið og einhvern veginn finnst Vík-
verja, þegar hann lítur til baka, að
oftar en ekki hafi það einmitt verið
þau mál, sem hann bar hvað mest
fyrir brjósti, sem þannig dagaði
uppi sem skiptimynt á markaðs-
torgi samsteypustjórnanna. En við
því er ekkert að segja. Svona er
lýðræðið.
AÐ MATI Víkverja hefur þessi
koningabarátta annars verið í
daufara lagi. Það er af sem áður var,
þegar Víkverji var ungur drengur
og lék sér í túnfætinum fyrir austan.
Þá voru kosningafundir einhver
besta skemmtun sem boðið var upp
á í kjördæminu. „Leikför um landið“
og Héraðsmótin komust ekki í hálf-
kvisti við kosningafundina, fram-
bjóðendumir voru svo orðheppnir
og skemmtilegir. Og oft var látið
fjúka í kviðlingum. Nú er þjóðin bú-
in að glata brageyranu, búin að
missa hæfileikann til að yrkja rímað
og með stuðlum og höfuðstöfum.
Það þykir ekki lengur fínt.
Já, kosningabaráttan hefur verið í
daufara lagi. Víkverji hefur mátt
hafa sig allan við að halda sér vak-
andi yfir stjómmálaumræðunni í
sjónvarpinu. Frambjóðendur hafa
þar komið fram hver af öðmm,
syfjulegir, áhugalausir og sumir
hverjir niðurdregnir, eins og það sé
þeim kvöl og pína að þurfa að standa
í þessu. Sem er líklega rétt. Stjóm-
endur þáttanna hafa nú heldur ekki
lagt sig neitt sérstaklega fram um
að lífga upp á umræðumar og oft
mætt illa undirbúnir til leiks.
XXX
AÐ SEM Víkverja finnst þó
merkilegast við þessar kosning-
ar er nýja talningarvélin, sem feng-
in var til landsins í tilefni kosning-
anna. Nú mun talning ganga mun
fijótar fyrir sig og í stað þess að
þurfa að bíða í klukkutíma, eftir að
kjörfundi lýkur, eftir áreiðanlegri
tölvuspá um úrslit kosninganna
verður spáin komin eftir tíu mínút-
ur - korter. Víkverji getur þá tekið
á sig náðir fyrr en ella, sem er hið
besta mál þar sem hann er fremur
kvöldsvæfur maður.
Víkverji hefur fyrir satt að nýja
talningarvélin okkar íslendinga sé
af annarri gerð en sambærilegar
vélar í nágrannalöndunum. Stafar
það af því að kjörseðlar okkar ís-
lendinga em stærri en í útlöndum
og því þurfti aðra gerð af vél, sem
fannst að lokum í fjarlægri heims-
álfu. Af hverju kjörseðlar okkar ís-
lendinga era stærri en hjá öðrum
þjóðum hefur Víkverji ekki fengið
viðhlítandi skýringu á. Tæplega af
því að flokkarnir hér em fleiri?
Kannski er letrið á okkar kjörseðl-
um haft stærra til að gamla fólkið
getið lesið á þá gleraugnalaust? Að
minnsta kosti kom aldrei til álita að
breyta kjörseðlunum til samræmis
við þá sem notaðir em í nágranna-
löndunum, svo að nota mætti sams-
konar vélar. Enda kannski engin
ástæða til. Stóru kjörseðlamir hafa
reynst okkur íslendingum vel og
óþarfi að vera að hringla eitthvað
með það mál fram og til baka.