Morgunblaðið - 08.05.1999, Page 96
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 8. MAI1999
VERÐ I LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Ný skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar á fylgi flokkanna
GUNNAR
D-listi endur-
heimtir fylgi
eldri kjósenda
stig. Ailar fylgisbreytingar eru
innan skekkjumarka.
Samkvæmt könnuninni ætla
31,3% kvenna að kjósa Samfylk-
inguna en 23,8% karla. 46,2% karla
ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn,
en 39,1% kvenna. Kynjamunur
milli annarra flokka er mun minni,
en þó eru fleiri konur en karlar í
kjósendahópi Framsóknarflokks-
ins og Vinstrihreyfingarinnar.
Næstum allir kjósendur Frjáls-
lyndra eru karlar ef marka má
könnunina.
Aldraðir stærsti einstaki
lqósendahópur Samfylkingar
Athyglisvert er að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur endurheimt það
fylgi sem hann hefur lengst af haft
meðal eldri borgara. 42,2% kjós-
enda 60 ára og eldri ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn, en í könnun
sem gerð var í lok apríl var fylgi
flokksins í þessum hópi 35,4% og
enn minna í könnun sem gerð var í
mars. Þrátt fyrir að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi þetta mikið fylgi
meðal eldri borgara er þetta
stærsti einstaki kjósendahópur
Samfylkingarinnar, en fylgi fram-
boðsins minnkar eftir því sem
kjósendurnir eru yngri. Fram-
sóknarflokkurinn á mest fylgi
meðal yngstu kjósendanna. Fylgi
Sjálfstæðisflokksins er mest meðal
kjósenda á aldrinum 25-34 ára.
Tryggð kjósenda við flokkana
minni en áður
Samkvæmt könnuninni er
tryggð kjósenda við flokkana held-
ur minni nú en í könnun sem gerð
var fyrir hálfum mánuði. Þá ætl-
uðu 82% þeirra sem kusu Sjálf-
stæðisflokkinn árið 1995 að kjósa
hann aftur, en nú mælist þetta
hlutfall 76%. Fyrir tveimur vikum
ætlaði 51% þeirra sem kusu Fram-
sóknarflokkinn að gera það aftur,
en nú er þetta hlutfall komið niður
í 44%. Um helmingur þeirra sem
kusu A-flokkana og Kvennalistann
í síðustu kosningum ætla að kjósa
Samfylldnguna núna. Hæst er
hlutfallið meðal fyrrverandi kjós-
enda Alþýðuflokksins eða 55%.
GUÐMUNDSSON
PRÓFESSOR LÁTINN
Morgunblaðið/Kristinn
KOSNINGABARATTUNNI lauk formlega í gærkvöldi með kappræðum forystumanna flokkanna í sjón-
varpssal. Davíð Oddsson heilsar Halldóri Ásgrímssyni við upphaf þáttarins en Margrét Frímannsdóttir
blaðar í gögnum sínum.
Kjósendur yfir 200
þúsund í fyrsta skipti
ALLS 8,8% þeirra sem hafa kosn-
ingarétt í alþingiskosningunum
sem fram fara í dag eru að kjósa í
fyrsta skipti, eða um 17.700 manns.
Rúmlega 201.500 manns eiga rétt á
kjósa, þar af 100.568 karlar og
100.957 konur.
Kjósendur sem eiga lögheimili
erlendis eru tæplega 8 þúsund tals-
ins, eða um 4% kjósenda, og hefur
þeim fjölgað um 1.653 frá seinustu
alþingiskosningum eða um 26%.
Kjósendur sem lögheimili eiga er-
lendis eru hlutfallslega yngri en
IfcRir sem lögheimili eiga á íslandi. í
seinustu alþingiskosningum voru
tæplega 192 þúsund kjósendur á
kjörskrá og hefur kjósendum því
fjölgað um 9.552 eða um 5% frá ár-
inu 1995.
Sex í öllum kjördæmum
Flestir nýir kjósendur eru í
Reykjavík eða tæplega 6.600 og á
Reykjanesi rúmlega 5.000. A Norð-
urlandi eystra eru tæplega 1.800
nýir kjósendur en fæstir nýir kjós-
endur eru í Vestfjarðakjördæmi
eða 571. Atta framboð eða flokkar
bjóða sig fram að þessu sinni, þar
af sex í öllum kjördæmum. Samtals
skipa 766 frambjóðendur sæti á
listunum en kosnir verða 63 þing-
menn í alþingiskosningunum. Kjör-
staðir verða víðast hvar opnir til
klukkan 21 eða 22 í kvöld. Búist er
við að fyrstu tölur verði birtar í
Reykjavík fljótlega eftir að kjör-
stöðum verður lokað klukkan 22,
en flokkun atkvæða hefst klukkan
18.30. Svipaða sögu er að segja í
öðrum kjördæmum og gera tals-
menn kjörstjórna sér vonir um að
talningu verði lokið víðast hvar um
klukkan fjögur í nótt.
■ Kosningarnar
2/10/11/12/16/48/49
EINN helsti vísinda-
maður í læknastétt, dr.
Gunnar Guðmundsson
prófessor, lést á Land-
spítalanum fimmtudag-
inn 6. maí síðastliðinn,
71 árs að aldri. Hann
var víðkunnur í sinni
stétt.
Gunnar Guðmunds-
son var fæddur í
Reykjavík 25. desem-
ber 1927. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1947,
kandídatsprófi frá
læknadeild Háskóla íslands 1954 og
var veitt almennt lækningaleyfi árið
1959. Hann nam taugalækningar
við The postgraduate Medical
School í London og Institute of Ne-
urology, Queen Square London á
árunum 1955-1957 og í Gautaborg í
framhaldi af því.
Gunnar hlaut sérfræðiviðurkenn-
ingu í taugalækningum árið 1959 og
í geðlækningum árið 1962. Hann
varði doktorsritgerð við læknadeild
Háskóla íslands árið 1966 sem var
faraldsfræðileg rannsókn á floga-
veild á Isiandi og vakti sú vinna at-
hygli vísindamanna víða um heim.
Hann stofnaði taugalækningadeild
Landspítalans árið 1967 ásamt
Kjartani Guðmundssyni og gegndi
starfi yfirlæknis til ársins 1998. Arið
1977 var hann skipaður prófessor
við Háskóla Islands. Hann sat í
deildarráði læknadeildar 1982-1986,
var deildarforseti 1990-1992 og sat í
læknaráði Landspítalans 1982-1983.
matreiðslu
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur
var kallað út síðdegis í gær
vegna elds sem kviknað hafði í
eldhúsi íbúðarhúss við Skipa-
sund. Kviknað hafði í potti við
matreiðslu þar sem verið var
að bræða feiti og var töluverð-
ur eldur í eldhúsinnréttingu
þegar að var komið. Slökkvi-
starf íbúa bar ekki árangur en
slökkviliði gekk greiðlega að
slökkva eldinn og var íbúðin
reykræst að því loknu. Tals-
verðar skemmdir hlutust af
eldinum og vegna reyks sem
fór um íbúðina.
Um áratuga skeið
helgaði Gunnar sig
rannsóknum á arf-
gengri heilablæðingu
en jafnframt sjúkdóm-
um á borð við heila- og
mænusigg (MS) og
Alzheimer. Fjölmarg-
ar vísindagreinar
Gunnars birtust í al-
þjóðlegum vísindarit-
um auk þess sat hann í
ritnefndum margra
virtra tímarita. Hann
hélt fjölda fyrirlestra
við erlenda háskóla
víða um heim.
Gunnar var kjörinn félagi og í
stjóm í ýmsum erlendum og inn-
lendum vísindafélögum og vai- for-
maður líf- og læknisfræðideildar Vís-
indaráðs frá stofnun þess árið 1987
til ársins 1991. Á vísindaferli sínum
voru honum veittar margvíslegar
viðurkenningar og styrldr. Frá árinu
1995 veitti Gunnar forstöðu Rann-
sóknarstofu í faraldsfræðum tauga-
sjúkdóma sem hefur með höndum
yfirgripsmikla rannsókn á þeim. Er
hún samstarfsverkefni íslenskra og
bandarískra vísindamanna, kostuð af
National Institute of Health og
National Institute of Neurological
Diseases and Stroke en óvenjulegt
er að þessar stofnanir leggi fé í rann-
sóknir utan Bandaríkjanna. Gunnar
var sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu fyrir vísindastörf
1995.
Eftirlifandi eiginkona Gunnars er
Sigurrós Unnur Sigurbergsdóttir.
Þau eignuðust fjögur böm.
Kviknaði í við
Tæplega 18 þúsund nýir kjósendur á kjörskrá 1 kosningunum
m-'i
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fær 42,6% fylgi samkvæmt könnun
Félagsvísindastofnunar sem gerð
var í gær og fyrradag. Samfylking-
in fær 27,6% samkvæmt könnun-
inni, Framsóknarflokkurinn 17,8%
Vinstrihreyfingin 9,4%, Frjáls-
lyndi flokkurinn 2,2% og aðrir
flokkar 0,3%.
Urtak í könnuninni var 1.500
manns, 18 ára og eldri. Haft var
samband við 1.200 manns í fyrra-
dag og 300 manns í gær.
Nettósvarhlutfall var 74%. Könn-
unin sem gerð var í gær er lögð
saman við könnunina sem gerð var
í fyrradag og því em fylgisbreyt-
ingar litlar.
Samkvæmt könnuninni bæta
Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri-
hreyfingin við sig fylgi á kostnað
hinna flokkanna. Fylgistap Sam-
fylkingarinnar er eitt prósentu-
D-listi með 42,6%
og S-listinn 27,6%