Morgunblaðið - 13.05.1999, Page 1
STOFNAÐ 1913
106. TBL. 87. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fjármálaráðherra-
skipti í Bandaríkjunum
Söguleg
þingsetning
í Edinborg
NOKKUR vatnaskil urðu í
breskum stjórnmálum í gær
þegar nýkjörin þing í
Skotlandi og Wales komu sam-
an í fyrsta skipti. „Nú er sam-
ankomið á nýjan leik þingið
sem lagt var niður 25. mars
1707,“ sagði Winnie Ewing,
þingmaður Skoska þjóðar-
flokksins (SNP), við upphaf
þingfundar í Edinborg í gær en
hún er aldursforseti hins nýja
þings. Þessu næst sóru þing-
menn Elísabetar Englands-
drottningar hollustu sína, en
þingmenn SNP kusu að bæta
því við að fyrst og fremst yrðu
þeir trúirjíjónar skosku þjóð-
arinnar. Á myndinni sést Alex
Salmond, leiðtogi SNP, ganga
glaður í bragði af þingfundi.
Summers
tekur við
af Rubin
Lawrence
Summers
Washington. Reuters.
ROBERT Rubin, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, sem sagður er eiga
nokkum heiður af góðri stöðu efna-
hagsmála í
Bandaríkjunum,
sagði af sér emb-
ætti í gær eftir
fjögurra ára
starf og mun að-
stoðarfjármála-
ráðherrann
Lawrence Sum-
mers taka við af
Rubin. Stuart
Eizenstat, að-
stoðarráðheiTa efnahagsmála,
. tekur við starfi Summers.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
tilkynnti í gærkvöldi að Rubin
hygðist hætta störfum í byrjun
júlímánaðar en orðrómur hafði
lengi verið á kreiki um að Rubin
væri á förum. Höfðu hins vegar
verið uppi getgátur um að Rubin
vildi ekki láta af embætti íyrr en
erfiðleikar í alþjóðlegum efnahags-
málum væru afstaðnir.
Fréttir af afsögn Rubins ollu
nokkrum titringi á fjármálamörk-
uðum en óvissa rfldr um hvort
Summers mun leggja jafnríka
áherslu og Rubin á frjálsa mark-
aðsstefnu og hátt gengi Banda-
ríkjadals. Gengi dollarans féll
nokkuð gagnvart helstu gjaldmiðl-
um í kjölfar fréttanna en frétta-
skýrendur töldu þó líklegt að með
því að tilnefna Summers þegar í
starfið hefði Bandaríkjastjóm tek-
ist að tryggja stöðugleika. Fór enda
svo að gengi dollarans og Dow Jo-
nes-hlutabréfavísitalan tóku við sér
að nýju fyrir lokun markaða.
Summers, sem er fjörutíu og
fjögurra ára, var áður prófessor í
hagfræði við Harvard-háskóla og
hefur verið aðstoðarfjármálaráð-
herra síðan í ágúst 1995.
Jeltsín varar NATO við að hunsa tillögur Rússa í Kosovo-deilunni
Stíf fundahöld um
pólitíska lausn
hússins, tók í sama streng og sagði
brottvikninguna rússneskt innanrík-
ismál og að hún ætti ekki að marka
stefnubreytingu af hálfu stjórnvalda í
Moskvu hvað Kosovo-deiluna varðaði.
Marti Ahtisaari sáttasemjari?
Hvað sem öllum viðvörunum
Jeltsíns leið héldu viðræður áfram
um hvemig binda mætti enda á
Kosovo-deiluna. Strobe Talbott, að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hitti Igor Ivanov, utanríkisráð-
herra Rússlands, og Viktor
Tsjernomyrdín, milligöngumann
Rússa í málefnum Kosovo, að máli í
Moskvu og var fundurinn sagður
hafa verið gagnlegur.
Talbott hélt í gærkvöldi til fundar
við Marti Ahtisaari, forseta Finn-
lands, en líkur voru taldar á að hann
tæki að sér að verða sáttasemjari í
deilunni. I dag mun Tsjemomyrdín
einnig hitta Ahtisaari í Helsinki og
jafnframt snýr Talbott aftur til
Moskvu til frekara skrafs og ráða-
gerða.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
var væntanlegur til Moskvu í nótt.
Hann mun hitta Jeltsín í dag en í
rússneskum fjölmiðlum var haft eftir
Tsjernomyrdín, sem kom úr Kína-
ferð sinni í fyrradag, að Kínverjar
væru e.t.v. reiðubúnir til að taka þátt
í alþjóðlegum friðargæslusveitum í
Kosovo, styddi stjómin í Belgrad það
að slíkar sveitir kæmu til Kosovo, og
ef Sameinuðu þjóðimar skipulegðu
starf sveitanna, en ekki NATO.
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, var ennfremur í Kína í gær til
viðræðna um málefni Kosovo. A sama
tíma var komið með ösku Kínveij-
anna, sem fórust í árás NATO á kín-
verska sendiráðið í Belgrad á föstu-
dagskvöld, heim til Peking. Mikill
íjöldi fólks safnaðist saman af þessu
tilefni en allt fór friðsamlega fram.
■ Sjá umfjöllun á bls. 32 og 46.
Moskvu, Belgrad. Reuters, AP.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti var-
aði leiðtoga Atlantshafsbandalagsins
(NATO) við því í gær að Rússar
myndu hugsanlega hætta þátttöku í
samningaumleitunum í Kosovo-deil-
unni en talsmenn NATO sögðust
þess hins vegar fullvissir að stjóm-
völd í Moskvu myndu áfram leggja
sitt af mörkum.
Einungis fáum klukkustundum
eftir að hafa rekið Jevgení Príma-
kov úr embætti forsætisráðherra
lýsti Jeltsín því yfir að Rússar
myndu draga sig út úr viðræðum
um hugsanlegar lausnir Kosovo-
deilunnar ef leiðtogar NATO litu
fram hjá tillögum þeirra og milli-
göngu.
NATO hunsaði hins vegar kröfur
Rússa og Kínverja, um að loftárás-
um á Júgóslavíu yrði hætt, og hélt
áfram hemaðaraðgerðum sínum,
fimmtugasta daginn í röð. Greindu
talsmenn NATO frá því að loftárásir
undangenginn sólarhring hefðu verið
þær hörðustu fram að þessu.
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, sagðist ekki eiga von á því að
brottvikning Prímakovs, og það upp-
nám sem hún olli í Rússlandi, hefði
áhrif á framgang mála í Kosovo-deil-
unni. Joe Lockhart, talsmaður Hvíta
Reuters
Boris Jeltsín Russlandsforseti víkur Jevgení Prímakov úr embætti forsætisráðherra
Moskvu. Reuters, AP.
STJÓRNARKREPPA blasir við í
Rússlandi eftir að forseti landsins,
: Borís Jeltsín, rak Jevgení Prímakov
forsætisráðherra úr embætti og til-
^ nefndi í staðinn ötulan stuðnings-
mann sinn, Sergej Stepashín.
Akvörðunin olli miklum titringi á
rússneskum fjármálamörkuðum og
jafnframt brugðust kommúnistar,
sem eru í meirihluta i Dúmunni,
neðri deild rússneska þingsins,
ókvæða við og hótuðu að efna til
mótmælaaðgerða. Samþykkti meiri-
hluta þingmanna áskorun þar sem
Jeltsín er hvattur til að segja af sér
fyrir að hafa kallað óstöðugleika yf-
ir Rússland með brottvikningu
Prímakovs, en hann var einn fárra
forsætisráðherra, sem Jeltsín hefur
skipað, sem Dúman gat látið sér
; lynda.
Jeltsín hitti Prímakov að máli í
gærmorgun og flutti síðan tíu mín-
útna langt sjónvarpsávarp um há-
degisleytið þar sem hann skýrði
þjóð sinni frá ákvörðuninni. „Því
miður er langt. frá því að stöðugleiki
ríki, hvorki í efnahagsmálum né
Slj órnarandstaðan
bregst ókvæða við
stjórnmálum," sagði forsetinn í
ávarpinu.
Mikil óreiða ríkti á fjármálamörk-
uðum, bæði í Rússlandi og erlendis,
eftir að fréttist um brottrekstur
Prímakovs sem Jeltsín sagði í
ávarpi sínu til kominn vegna þess að
Prímakov hefði ekki reynst fær um
að blása nýju lífi í rússneskan efna-
hag.
„Maður hefur á tilfinningunni að
aðgerðir stjórnarinnar hafi ein-
göngu falist í því að semja við AI-
þjóðagjaldeyrissjóðinn, rétt eins og
einungis væri hægt að laga efna-
hagsvanda Rússlands með því að
taka við lánum frá Vesturlöndum,"
sagði Jeltsín, og talaði hægt, var
nokkuð þrútinn í andliti og virtist
taugastrekktur.
Jeltsín bætti því við að Stepashín,
sem gegndi embættum aðstoðarfor-
sætisráðheri'a og innanríkisráð-
herra í stjórn Prímakovs, yrði mun
kraftmeiri forsætisráðherra.
Umdeild ákvörðun
Kommúnistar á þingi gagnrýndu
Jeltsín, sem undanfarna tólf mánuði
hefur haft þann sið að reka forsætis-
ráðherra sína með reglubundnu
millibili, harðlega í gær og Gennadí
Zjúganov, leiðtogi þeirra, sagði
ákvörðun Jeltsíns algerlega óafsak-
áp
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti,
var ábúðarmikill í fasi þegar
hann tilkynnti þjóð sinni brott-
vikningu Jevgenís Prímakovs
úr embætti forsætisráðherra.
anlega. Hann sagði að flokkur sinn
myndi hugleiða að efna til mðtmæla
vegna ákvörðunarinnar, „og við von-
um að almenningur í Rússlandi
muni bregðast við þeirri stöðu sem
komin er upp“, bætti Zjúganov við.
Einn fárra til að lýsa ánægju sinni
með ákvörðun Jeltsíns var auðkýfing-
urinn Borís Berezovskí, en áhrif hans
hafa farið dvínandi í valdatíð Príma-
kovs. Anatólí Tsjúbajs, einn helstu
höfunda umdeildrar umbótastefnu
Jeltsíns, lýsti einnig ánægju sinni og
gaf í skyn að hann hefði haft eitthvað
með ákvörðun forsetans að gera.
Brottvikningu Prímakovs var tek-
ið með nokkru jafnaðargeði erlendis
en margir óttast þó að ákvörðun
Jeltsíns valdi því að alvarleg stjórn-
arkreppa skelli á og að efnahag-
sástand versni enn. Jafnframt voru
viðræður um aðstoð erlendra lána-
stofnana taldar í uppnámi og loks
óttuðust margir að brottvikning
Prímakovs gæti haft áhrif á fram-
gang mála á Balkanskaga.
■ Hætta á/34
L