Morgunblaðið - 11.11.1999, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Einmuna veðurblíða fyrir norðan
Unnið við þöku-
lagnir og malbikun
Yeittist að for-
stöðumanninum
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Sekt fyr-
ir fíkni-
efnasölu
SEXTÁN ára piltur á Akur-
eyri hefur verið dæmdur til
sektargreiðslu vegna fíkni-
efnabrots. Piltinum var gefið
að sök að hafa selt samtals 12
gi’ömm af hassi en kaupend-
urnir voru níu talsins, allt
ungmenni á svipuðum aldri og
seljandinn.
Pilturinn viðurkenndi sak-
argiftir og þykir sök hans því
nægilega sönnuð. Hann hafði
fyrir réttu ári gengist undir
sektargerð vegna brots á
lögum um ávana- og fíkniefni
og var dæmdur í Héraðsdómi
Norðurlands eystra í júlí í
sumar í þriggja ára skilorðs-
bundið fangelsi. Brot hans
nú voru framin áður en þeim
dómi var lokið. Með vísan til
ungs aldurs og þess að ekki
liggur fyrir að hann hafí
sjálfur haft hagnað af brot-
unum þótti refsing hans
hæfilega ákveðin 40 þúsund
króna sekt auk greiðslu sak-
arkostnaðar.
Amtsbókasafnið
Sögustund
og bíómynd
NORRÆN sögustund verður
á Amtsbókasafninu á Akur-
eyri í dag, fímmtudag kl.
14.30, en norræna bóka-
safnsvikan I ljósaskiptunum
stendur nú yfir og ber hún yf-
irskriftina „Þjóðsögur og
sagnir fyrr og nú.“
I tengslum við bóka-
safnsvikuna verður sýnd
danska myndin „Midt om
natten" með Kim Larsen í
Borgarbíói kl. 19 í kvöld og er
aðgangur ókeypis. Amtsbóka-
safnið býður aftur í bíó í laug-
ardag kl. 15, en þá verður
sýnd norska leikbrúðumyndin
„Kappaksturinn mikli“ með
íslensku tali.
Á safninu er sýning á
eyfirskum þjóðsögum og nor-
rænum sögum, þá eru kynnt-
ar norrænar bókmenntir og
vefsíður með nútímaþjóðsög-
um, auk þess sem leikin er
norræn tónlist.
Vinafundur
eldri
borgara
VINAFUNDUR eldri borg-
ara verður í Glerárkirkju í
dag, fímmtudaginn 11. nóvm-
ber og hefst hann kl. 15. Sam-
veran hefst með stuttri helgi-
stund. Gestur fundarins verð-
ur Kristján Kristjánsson pró-
fessor við Háskólann á Akur-
eyri og ber erindi hans yfir-
skriftina „Faðir minn skáld-
ið“, en faðir hans var Kristján
frá Djúpalæk. Þá munu þau
Óskar Pétursson og Helga
Bryndís Magnúsdóttir flytja
nokkur lög. Boðið verður upp
á kaffíveitingar.
VEÐRIÐ leikur við Norðlend-
inga þessa dagana og í gærdag
var hitinn í kringum 15 gráður á
Akureyri en nokkuð hvasst. St-
arfsmenn bæjarins og aðrir þeir
sem vinna úti eru að vonum him-
inlifandi með tíðarfarið. „Þetta
er alveg dásamlegt veður,“ sagði
Hilmar Gíslason bæjarverkstjóri
í samtali við Morgunblaðið.
Verklegar framkvæmdir eru í
fullum gangi og í gær var verið
að þökuleggja í kringum undir-
göngin undir Borgarbrautina,
auk malbikunarframkvæmda.
Gífurlegt vatnsmagn var í Glerá,
eða eins og í leysingum á vorin.
STJÓRN Eyþings, Sambands sveit-
arfélaga í Eyjafirði og Þingeyjar-
sýslum, stóð fyrir samráðsfundi um
vímuvarnir á Húsavík í gær og sóttu
hann fulltrúar sveitarstjórna á
starfssvæði Eyþings. Tilgangur
fundarins var að afla upplýsinga,
miðla upplýsingum og fá fram nýjar
hugmyndir, auk þess að hvetja til að-
gerða og samhæfa aðgerðir.
Daníel Snorrason, lögreglufulltrúi
hjá rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri, kynnti starf deildarinnar
en fíkniefnaneysla í bænum hefur
aukist til muna og hefur lögreglan
því lagt aukna áherslu á þann mála-
flokk. Fíkniefnamálum hefur fjölgað
jafnt og þétt og hafa 80 slík mál
komið upp á þessu ári en allt árið í
fyrra komu upp 43 fíkniefnamál. Þá
hefur verið lagt hald á mun meira
magn af fíkniefnum á árinu en
nokkru sinni áður.
Daníel sagði að áður fyrr hefði
eingöngu verið um neyslumál að
ræða en nú væri lagt hald á mun
meira magn í hverju máli, sem þá
tengdist sölu á fíkniefnum. Hann
sagði að flestir þeir sem kæmu við
sögu í fíkniefnamálum væru á aldrin-
um 18-20 ára en að yngra fólkinu
færi fjölgandi og alveg niður í grunn-
skólaaldur. Daníel sagði að hasspíp-
ur væru að fínnast á skólalóðum
grunnskólanna í bænum.
„Við erum að ljúka ýmsum verk-
efnum og það er því kærkomið
að fá þessa auka góðvirðisdaga,"
sagði Hilmar.
Það hefur farið lítið fyrir
snjómoksturstækjum á götum
bæjarins á þessu hausti og
kostnaður við snjómokstur og
hálkueyðingu verið sáralítill.
Veturinn var heldur fyrr á ferð-
inni í fyrra og þá töluverður
kostnaður við snjómokstur. I
október í fyrra var kostnaður
við snjómokstur og hálkueyð-
ingu um 1,5 milljónir króna og í
nóvember var kostnaðurinn um
3 milljónir króna.
Þeir aðilar sem að þessum málum
koma hafa leitað eftir aðstoð al-
mennings í baráttunni en Daníel
sagði að almenningur mætti standa
sig betur. „Mér finnst að fram að
þessu hafí fólk nánast litið á þetta
sem vandamál lögreglunnar. Þetta
er ekki bara vandamál lögreglunnar,
heldur líka vandamál heilbrigðis- og
félagsmálakerfísins og þjóðfélagsins
í heild. Og það kemur ekki til með að
nást neinn árangur nema allir vinni
saman gegn þessari óheillaþróun og
við hvetjum alla til samstarfs,“ sagði
Daníel.
Breytingar í félags-
miðstöðinni á Dalvík
Halldór Guðmundsson, félags-
málastjóri Dalvíkurbyggðar, fjallaði
á fundinum um ýmislegt sem tengist
forvarnastarfí í sveitarfélaginu. í
máli hans kom m.a. fram að vímu-
varnaáætlun hafi verið afgreidd í
bæjarstjórn á síðasta ári. I kjölfarið
var að tillögu félagsmálaráðs tekið
upp samstarf við SAA um sveitarfé-
lagsverkefni í forvörnum. Verkefnið
er í gangi út þetta ár og hefur verið
unnið sameiginlega í Dalvíkurbyggð
og Ólafsfirði en sveitarfélögin hafa
með sér samstarf á sviði forvarna og
barnaverndarmála.
Þá var skipaður sérstakur stýri-
hópur verkefnisins og gerð könnun á
RÚMLEGA tvítugur piltur hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur í þriggja ára skilorðs-
bundið fangelsi fyrh’ líkamsárás.
Pilturinn var ákærður fyrir að
hafa ráðist á forstöðumann áfanga-
heimilis á Akureyri í fyrrasumar,
sparkað í andlit hans með þeim af-
leiðingum að hann nefbrotnaði, fékk
glóðarauga á báðum augum og fleiri
áverka. Forstöðumaðurinn gerði
kröfu um tæplega 6.000 króna bæt-
ur.
Maðurinn játaði að hafa veist að
forstöðumanni meðferðarheimilisins,
slengt honum í vegg og sparkað í
maga hans og veitt honum þannig þá
áverka sem áður er frá greint. Kom
hann að eigin frumkvæði á lögreglu-
stöð á Akureyri og greindi frá
ástandi vímuefnaneyslu að mati 20
lykilaðila í sveitarfélaginu og gerð
könnun á neyslu vímuefna á Dalvík
og Ólafsfirði meðal nemenda í 10.
bekk. Einnig hefur verið haldin ráð-
stefna um forvarnir og vímuvarna-
skóli haldinn með öllu starfsfólki
grunnskólanna. Á næstunni verður
svo námskeið fyrir stjórnir og leið-
beinendur íþróttafélaga. Jafnframt
eru uppi áform um að við endurskoð-
un vímuvamaáætlunar Dalvíkur-
byggðar verði gerð sameiginleg
áætlun fyrir Dalvíkurbyggð og
Ólafsfjörð.
I máli Halldórs kom einnig fram
að félagsmiðstöð unglinga hefði
fengið nýtt húsnæði á árinu, í Víkur-
röst. Við það tækifæri voru settar í
framkvæmd áherslubreytingar á
markhóp félagsmiðstöðvarinnar og
er hún nú sérstaklega opin fyrir ung-
menni á aldrinum 14-18 ára. Þeim
tíma sem er opið var breytt og hann
rýmkaður um helgar og virðast þær
breytingar ætla að skila góðum ár-
angri.
Halldór sagði að mikilvægast af
öllu væri að sveitarstjórnarmenn
hefðu einhverja skoðun á því hvernig
hægt væri að styrkja samstarf milli
þeirra aðila sem koma að vinnu með
börnum og ungmennum.
Bergljót Jónasdóttir hefur umsjón
með félagsmiðstöðvunum á Akureyri
árásinni. Fyrir dómi sagði hann frá
því að til ýfínga hefði komið milli sín
og forstöðumannsins og hefði hann í
kjölfarið ákveðið að hætta meðferð á
heimilinu.
Maðurinn hefur þrívegis áður
gengist undir sektargreiðslur vegna
brota á hegningarlögum, umferðar-
lögum og áfengislögum og þá hefur
hann einnig þrívegis hlotið refsi-
dóma við Héraðsdóm Suðurlands.
Með broti sínu nú rauf hann skilorð.
Með tilliti til fyrri sakarferlis hans
þótti hæfilegt að dæma manninn í
þriggja mánaða fangelsi, en enn
þótti fært að skilorðsbinda refsing-
una og hún látin niður falla að þrem-
ur ái-um liðnum, en hún þó bundin
því skilyrði að maðurinn sæti sér-
stakri umsjón á skilorðstímanum.
og tómstundastarfí í grunnskólum
bæjarins og hún fjallaði um þá starf-
semi. Fjórar félagsmiðstöðvar eru
reknar í bænum á vegum íþrótta- og
tómstundadeildar í hverfum bæjar-
ins. Hlutverk þeÚTa er að sinna ung-
lingunum með fjölbreyttu starfi,
þannig að allir finni eitthvað við sitt
hæfí. Á næsta ári er stefnt að því að
koma á samvinnu milli skóla, nem-
endaráðs og íþrótta- og tómstunda-
deildar um þann tíma sem félags-
miðstöðvar eru opnar seinni part
dagsins.
Tómstundastarf
mikilvægur þáttur
í máli Bergljótar kom fram að
boðið sé upp á fjölbreytt tóm-
stundastarf í formi námskeiða fyrir
börn og unglinga í 4.-10. bekk.
Hún sagði að tómstundastarf væri
mikilvægur þáttur í lífi ungling-
anna og að gott tómstundastarf
gæti kveikt hugmyndir að fram-
haldsnámi eða framtíðarstarfi og
gæti því líka virkað sem
starfskynning. Þá hafi ÍTA ávallt
virt og treyst mikilvægi heimilanna
fyrir unglingana en hinu megi ekki
gleyma að á viðkvæmum aldri tán-
ingsáranna séu aðrir aðilar oft
sterkir áhrifavaldar. Má þar nefna
félagahópinn og ekki síður skólana
og starfsmenn þeirra.
Unnið við malbikunarframkvæmdir í veðurblíðunni á Akureyri í gær.
Morgunblaðið/Kristj án
Fræðslu- og samráðsfundur um vímuvarnir á starfssvæði Eyþings
Hasspípur hafa fundist á
skólalóðum grunnskólanna